Víkurfréttir - 30.11.2017, Page 10
10 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 30. nóvember 2017 // 47. tbl. // 38. árg.
Ný Gallup-könnun fyrir verkalýðsfélögin:
VINNUTÍMINN STYTTIST Á SAMA TÍMA OG LAUN HÆKKA UMTALSVERT
Um þriðjungur félagsmanna Flóa-
bandalagsins búa í leiguhúsnæði
og greiðir yfir tvö þúsund krónur
á mánuði að meðaltali fyrir hvern
fermetra. Starfsmenn á leikskólum
með lægstu heildarlaunin en mesta
starfsálagið. Þetta er meðal þess sem
kemur fram í nýrri könnun Gallup
fyrir verkalýðsfélög sem eiga aðild að
Flóabandalaginu. Verkalýðs- og sjó-
mannafélag Keflavíkur og nágrennis
er þar á meðal. Könnunin var fram-
kvæmd í september og október sl.
Heildarlaun hækka um 10% milli ára
en á sama tíma styttist vinnutíminn
um tæplega eina klukkustund á viku
og vinna félagsmenn nú að meðaltali
46 klukkustundir á viku miðað við fullt
starf. Meðalheildarlaun karla eru nú
531 þúsund krónur á mánuði og meðal-
heildarlaun kvenna um 405 þúsund
krónur á mánuði fyrir fullt starf. Leið-
beinendur á leikskólum eru með lægstu
heildarlaunin eða 354 þúsund krónur á
mánuði að meðaltali en skrifstofufólk,
stjórnendur og sérfræðingar með hæstu
heildarlaunin eða 579 þúsund krónur
að meðaltali.
Einungis 44% félagsmanna búa í eigin
húsnæði og greiðir sá hópur um 125
þúsund krónur að meðaltali í afborg-
anir af húsnæðislánum. Þá eru um 33%
félagsmanna í leiguhúsnæði og greiða
að meðaltali 2.077 krónur fyrir hvern
fermetra á mánuði.
Konur eru með 76% af
heildarlaunum karla á
mánuði að meðaltali
Heildarlaun karla eru að meðaltali 126
þúsund krónum hærri en heildarlaun
kvenna fyrir fullt starf. Heildarlaun
karla í fullu starfi eru að meðaltali
531.000 kr. á mánuði og 405.000 kr.
hjá konum. Hins vegar er meðaltal
heildarmánaðarlauna allra félagsmanna
í Flóanum 473.000 kr. á mánuði og mið-
gildi heildarmánaðarlauna 445.000 kr.
Þegar spurt var hver væru sanngjörn laun
fyrir vinnu viðkomandi, þá töldu karlar
að þau þyrftu að vera 64 þúsund krónum
hærri og konur 82 þúsund krónum hærri
að meðaltali á mánuði en nú er. Munur-
inn á dagvinnulaunum karla og kvenna
er mun minni en á heildarlaunum eða
44.000 krónur á mánuði. Karlar eru
að meðaltali með 390.000 kr. á mánuði
í dagvinnulaun á meðan konur eru að
meðaltali með 346.000 kr. í dagvinnulaun
fyrir fullt starf.
Vert er að vekja athygli á því að fjöl-
mennir hópar hefðbundinna kvenna-
starfa eiga þess ekki kost að vinna fullt
starf. Þannig er einungis 20% þeirra
sem starfa við umönnun sem segjast
vera í fullu starfi en þar er jafnframt
meðalfjöldi vinnustunda lægstur eða
35,6 klst. á viku en meðaltal fjölda
vinnustunda hjá öllum svarendum er
42,1 klst. Meðaltal heildarlauna fyrir
fullt starf í umönnun er 450.000 kr. en
sú tala endurspeglar í raun lítinn hluta
þess hóps sem starfar í umönnun þar
sem flestir eru í hlutastörfum og vinna
í vaktavinnu.
Lægstu heildarlaunin hjá
leikskólastarfsmönnum
Af einstaka starfsstéttum eru starfs-
menn sem vinna við ræstingar með
lægstu dagvinnulaunin eða 328.000 kr.
á mánuði að meðaltali fyrir fullt starf
en leiðbeinendur á leikskólum eru með
lægstu heildarlaunin að meðaltali fyrir
fullt starf eða 354.000 kr. Leiðbein-
endur á leikskólum eru jafnframt lang
ósáttastir með laun sín þar sem yfir 8 af
hverjum 10 eru mjög eða frekar ósáttir
á meðan rétt yfir 4 af hverjum 10 félags-
mönnum í Flóanum alls segjast vera
mjög eða frekar ósáttir með laun sín.
Skrifstofufólk, stjórnendur og sérfræð-
ingar eru með hæstu heildarlaunin eða
579.000 kr. á mánuði að meðaltali fyrir
fullt starf. Þar á eftir koma bygginga-
starfsmenn með 575.000 kr. á mánuði
að meðaltali.
Vinnutíminn styttist
Heildarvinnutími félagsmanna í fullu
starfi er 46 klst. að meðaltali og hefur
styst um tæpa klukkustund milli ára.
Vinnutíminn er lengstur hjá bílstjórum
eða 50,7 klst. að meðaltali en bygginga-
starfsmenn koma fast á hæla þeirra með
50,1 klst. Vinnutíminn er stystur hjá
leiðbeinendum á leikskóla eða 41 klst.
að meðaltali á mánuði fyrir fullt starf.
Vinnuálag mest hjá
leikskólastarfsmönnum
Ríflega þrír af hverjum fjórum starfs-
mönnum sem vinna á leikskóla telja
að vinnuálagið sé of mikið en tæplega
helmingur allra félagsmanna svarar
því til að vinnuálagið sé of mikið. At-
hyglisvert er að skoða það í samhengi
við hátt hlutfall leikskólastarfsmanna
sem telja að það sé auðvelt fyrir þá að fá
aðra vinnu á svipuðum kjörum eða 76%
en starfsaldur leikskólastarfsmanna
er ríflega 10 ár að meðaltali en hjá fé-
lagsmönnum almennt um 8 ár. Sam-
kvæmt könnuninni hefur fjórðungur
leiðbeinenda á leikskólum verið 15 ár
eða lengur í starfi.
68% pólskumælandi búa í
leiguhúsnæði
Þriðjungur félagsmanna býr í leigu-
húsnæði og fær þriðjungur þeirra
húsnæðisbætur eða sérstakan hús-
næðisstuðning. Það eru 68% pólsku-
mælandi félagsmanna í Flóanum er
sem búa í leiguhúsnæði og fær um 18%
þeirra húsnæðisbætur eða sérstakan
húsnæðisstuðning. Sé tekið mið af
stærð húsnæðis þá greiða félagsmenn
að meðaltali 2.077 kr. fyrir hvern fer-
metra. Pólskumælandi félagsmenn í
Flóanum greiða hins vegar að meðal-
tali 2.375 kr. fyrir hvern fermetra og
íslenskumælandi 1.809 kr.
Dregur úr áhyggjum af
fjárhagsstöðu hjá flestum
hópum
Dregið hefur úr áhyggjum félagsmanna
vegna fjárhagsstöðu milli ára en rétt
um þriðjungur félagsmanna hefur
miklar áhyggjur nú en hlutfallið var
tæp 39% árið 2016 og 55% árið 2013.
Umhugsunarvert er þó að tveir hópar
skera sig hér sérstaklega úr þar sem
áhyggjur þeirra aukast milli ára. Þannig
segjast tæplega 6 af hverjum 10 þeirra
sem starfa við umönnun hafa miklar
áhyggjur af fjárhagsstöðu sinni og ríf-
lega helmingur leiðbeinenda á leik-
skólum.
Aukning í fjarvistum vegna
veikinda
Fjarvistir vegna veikinda aukast enn
frekar á milli ára en yfir helmingur
félagsmanna var frá vegna veikinda á
síðustu 3 mánuðum og hefur hlutfallið
aldrei verið hærra. Þá má greina fylgni
við aldur þar sem veikindafjarvistir
aukast í hlutfalli við lækkandi aldur.
Starfsfólk í veitingaþjónustu var oftast
frá vegna veikinda þar sem 61% þeirra
sögðust hafa verið frá vegna veikinda
á síðustu 3 mánuðum. Þá koma starfs-
menn í umönnun fast á hæla þeirra
þar sem sex af hverjum tíu voru frá
vegna veikinda á síðustu 3 mánuðum.
Ef horft er í fjölda daga eru starfmenn
í umönnun lengst frá vegna veikinda
þar sem 20% í þeim hópi voru lengur
en 5 daga frá vegna veikinda á síðustu
3 mánuðum.
Margt fleira athyglisvert í
könnuninni
Hægt er að nálgast könnunina í heild
sinni á vsfk.is en þar má meðal ann-
ars finna upplýsingar um afstöðu fé-
lagsmanna til séreignasparnaðar og
vísbendingar um góðan árangur af
launaviðtölum.
Pólskumælandi félagsmenn í
Flóanum greiða hins vegar að
meðaltali 2.375 kr. fyrir hvern
fermetra og íslenskumælandi
1.809 kr.
Íslensku jólasveinarnir
fást í Stapafelli
Jólatilboð á jólasveinastyttum
STAPAFELL
HAFNARGATA 50 - SÍMI 421-2300