Víkurfréttir - 30.11.2017, Page 12
12 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 30. nóvember 2017 // 47. tbl. // 38. árg.
Aðventuhátíð
Kvenfélag Keflavíkur býður til Aðventuhátíðar eldri borgara
á Suðurnesjum í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju
3. desember kl. 15:00.
Kaffiveitingar, söngur, skemmtiatriði og jólahugvekja.
Allir eldri borgarar hjartanlega velkomnir.
Kvenfélag Keflavíkur þakkar eftirtöldum fyrir stuðninginn
Reykjanesbæ
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma
PÁLÍNA SIGRÚN ÞORLÁKSDÓTTIR
Faxabraut 13, Keflavík
lést á Hrafnistu Hlévangi, sunnudaginn 20. nóvember.
Útförin fer fram frá Innri-Njarðvíkurkirkju,
þriðjudaginn 5. desember kl. 13.
Gunnar Þór Sigurðsson Elsa Steinunn Hafsteinsdóttir
Linda María Gunnarsdóttir
Steinþór Júlíusson Valgerður Ágústsdóttir
Ágúst Þór og Steinunn María
Gunnar Þór Jónsson Alexandra Marý
Sigurður Þór Jónsson
Pálína Heiða Gunnarsdóttir Páll Kristinsson
Kristinn Pálsson
Elías Bjarki og Elsa Lind
Steinn Árni Sigurðsson Janeth Kristín Soleminio
Mikael Jón Steinsson
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma
GUÐRÚN M. SIGURBERGSDÓTTIR
Gunna skó
Skólavegi 22, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofun Suðurnesja fimmtudaginn 23. nóvember.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 11. desember klukkan 13.
Jón Björgvin Stefánsson
Sigurberg Jónsson Dagbjört Nanna Jónsdóttir
Stefán Jónsson María Sigurðardóttir
Jóhanna Jónsdóttir
Ásbjörn Jónsson Auður Vilhelmsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Byrjað verður að kveikja á jólaljósum í kirkjugarði Njarðvíkur
laugardaginn 2. desember kl. 13:00
Aðrir opnunartímar eru sem hér segir:
Þriðjudaga frá kl. 17:30 til 19:00 ( 5., 12., og 19. des.)
Fimmtudaga frá kl. 17:30 til 19:00 ( 7., 14., og 21. des. )
Laugardaga frá 13:00 til 16:00 ( 2., 9., og 16. des.)
Síðasti opnunardagur er 21. desember.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur í síma 6603691
á milli 13 og 18 alla virka daga.
Kirkjugarður Njarðvíkur
Jólalýsing
Handagangur í öskjunni við opnun
jólamarkaðar Kompunnar
Það var margt um manninn og mikið
líf og fjör þegar hinn árlegi jóla-
markaður Kompunnar opnaði á
dögunum. Biðröð hafði myndast
þegar opnað var og segja má að
fólk hafi þust inn í þeim tilgangi
að gera góð kaup enda fjölmargir
góðir munir til sölu.
Að sögn Þorvarðar Guðmundssonar,
Þorra, forstöðumanns Fjölsmiðjunnar
á Suðurnesjum hefur þeim borist alls
kyns jólavarningur allt þetta ár og eru
Suðurnesjamenn duglegir við að láta
góðar vörur af hendi rakna sem Fjöl-
smiðjan selur svo áfram í Kompunni.
Þorri leggur líka áherslu á það að þeir
sem bæði gefa muni til Kompunnar
sem og þeir sem versla þar séu að láta
gott af sér leiða í þágu ungmennanna
sem starfa í Fjölsmiðjunni.
Að jafnaði eru um 20 nemar í Fjöl-
smiðjunni á aldrinum 16 til 24 ára
sem vinna m.a. við afgreiðslu í Komp-
unni, verðmerkingar, á sendibíl og
við brettasmíði svo fátt eitt sé talið.
Jólamarkaðurinn verður starfræktur
alveg fram að jólum.
„Ég ætla að muna eftir
ykkur á jólunum“
Með þessum orðum kvaddi kaupmannsfrúin Ása Olavsen börnin í Keflavík
sem hún hafði boðið til sín í veislu, í fínasta hús bæjarins Fischershús, einn
fagran sumardag í kringum aldamótin 1900. Frú Ása var eiginkona Ólafs
Olavsens, forstjóra og meðeiganda Duusverslunar.
Og frú Ása stóð við sitt. Upp frá þessu stóð
Duusverslunin fyrir glæsilegum jólatrés-
skemmtunum í Bryggjuhúsinu um 20 ára
skeið. Þar komu saman öll börn bæjarins
og úr nágrannabyggðum, allt upp undir
300 börn og sáu þá mörg þeirra jólatré
í fyrsta sinn. Skemmtunin hófst seinni-
partinn og stóð fram undir miðnætti.
Dansað var í kringum jólatréð, söngvar
sungnir og veitingar reiddar fram. Um
miðnættið tók fullorðna fólkið við og
skemmti sér fram eftir nóttu. Ljóst er
að þessar skemmtanir hafa verið mikil
upplyfting á þeim tíma þegar Keflavík
var aðeins fátækt þorp og fátt við að
vera. Kannski hafa þær haft svipað gildi
og Ljósanótt fyrir okkur í dag.
Gamaldags jólatrés skemmtun
í Bryggjuhúsi
Nú lítum við um öxl og rifjum upp
þennan 100 ára gamla merkilega við-
burð með jólatrésskemmtun í Bryggju-
húsinu í anda gömlu skemmtananna.
Frú Ása Olavsen tekur á móti börn-
unum eins og forðum og dansað verður
í kringum jólatréð. Auðvitað mætir jóla-
sveinn af gamla skólanum á svæðið. Við
hvetjum fjölskyldur til að koma saman
og njóta þess að líta til baka á gamlar
hefðir og upplifa einfaldleika jólanna
og hinn sanna jólaanda.
Allir eru hjartanlega velkomnir á
meðan húsrúm leyfir og aðgangur er
ókeypis. Jólaballið hefst stundvíslega
kl. 14 og dagskrá verður lokið kl. 15.
Jólamarkaður
Laugardaginn 2. desember og sunnu-
daginn 3. desember kl. 12-17 verður
einnig handverksmarkaður í Bíósal
þar sem margt skemmtilegt verður á
boðstólum og eru bæjarbúar hvattir
til að líta við og gera góð kaup.
Ratleikur og óskalistar
til jólasveinanna
Á aðventunni, frá 4. desember,
stendur fjölskyldum einnig til boða að
fara í ratleik í Bryggjuhúsinu og leita
að gömlu jólasveinunum sem hafa
falið sig hér og þar um húsið. Þá er
hægt og biðja Skessuna í hellinum um
að koma óskalista til jólasveinanna.
Nánari upplýsingar er að finna á
sofn.reykjanesbaer.is/duushus
Nemendur og starfsfólk Fjölsmiðjunnar á Suðurnesjum.
Það var handagangur í öskjunni við opnun
jólamarkaðar Kompunnar.
Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, faðir, tengda-
faðir, afi og sonur
ANDRÉS KRISTINN HJALTASON
Byggingaverktaki, Reykjanesbæ,
lést í Flórída 21. nóvember sl. Útförin verður auglýst síðar.
Jóhanna María Einarsdóttir
Erla María Andrésdóttir Haraldur Arnarson
Laufey Ósk Andrésdóttir Þorvarður Ólafsson
Einar Örn Andrésson Ástríður Halla Jóhannsdóttir
Andrés Kristinn Haraldsson Emelía Rún Þorvarðardóttir
Erla María Andrésdóttir Hjalti Guðmundsson