Víkurfréttir - 30.11.2017, Síða 18
18 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 30. nóvember 2017 // 47. tbl. // 38. árg.
„Ég var heima með stelpuna mína í tuttugu og einn mánuð og var orðin
svolítið þreytt og var ekki alveg viss um hvert mitt hlutverk væri og hvert
ég ætlaði í mínum starfsframa, ég var eiginlega í smá krísu. En svo fékk
ég hugmyndina að bókinni og þá fannst mér ég hafa smá tilgang. Þegar
maðurinn minn kom heim úr vinnunni þá fór ég út að skrifa. Mér fannst
ég þá hafa smá verkefni og tilgang en það tók mig tvo mánuði að fínpússa
bókina. Ég sendi hana síðan á Margréti Pálsdóttur málfræðing, sem fór
yfir bókina áður en ég fór með hana til útgefanda.“
Sigríður Etna Marinósdóttir eða Etna
eins og hún er kölluð hefur gefið út
sína fyrstu bók, barnabókina „Etna
og Enok fara í sveitina“, en bókin
er byggð á upplifun Sigríðar Etnu á
sveitinni hjá mömmu sinni og pabba
í gegnum dóttur sína Ingibjörgu
Etnu. Sigríður Etna býr í Grindavík
ásamt manninum sínum Ingólfi. „Ég
fer oft vestur til mömmu og pabba
og vinn í öllu eins og ég er vön að
gera en ég fór ekkert að spá í því
hvernig lífið í sveitinni væri fyrr en
ég fór með dóttur mína til þeirra
og fylgdist með henni að gefa kind-
unum, kemba hestunum, og þegar
ég sá hana fylgjast með mömmu
gefa býflugunum sykurvatn þá sá
ég að þetta væri ævintýri sem ekki
öll börn fá að upplifa. Mér fannst
það pínu sorglegt að hugsa til þess
að það séu ekki öll börn sem geta
fengið að upplifa þetta en þá datt
mér í hug þessi bók og ég vildi tengja
hana umhverfinu sem við mæðgur
þekkjum. Bókin er tengd Tálknafirði
sem er heimabærinn minn.“
Hélt skrifunum leyndum
Sigríður Etna segir ferlið í kringum
bókina vera búið að vera mjög
skemmtilegt og að fólk hafi tekið vel
í þetta, það sé ánægt með textann og
myndirnar í bókinni.
„Það vissi eiginlega enginn af því að ég
væri að skrifa þessa bók. Mamma og
pabbi vissu af því, Ingólfur maðurinn
minn og örfá systkini mín en ég er
yngst níu systkina. Ég ætlaði ekki að
láta neinn vita af því að ég væri að
skrifa hana fyrst nema manninn minn
en síðan lét ég mömmu og pabba lesa
yfir hana því þetta er svo persónuleg
bók úr okkar umhverfi og ég vildi
nú ekki fara að segja einhverja vit-
leysu. Ég hef fengið góðar viðtökur
og margar bækur
hafa nú þegar
selst og lagerinn
að tæmast. Bókin
var ein af þeim sem
var valin til að fara í
stórmarkaðina og mér
finnst það mjög skemmtilegt.“
Vildi að fleiri myndu upplifa
sveitarlífið
Etna ólst upp í sveit og upplifði því
sjálf sveitarlífið beint í æð þegar hún
var barn og sinnti sveitarstörfunum
með mömmu sinni og pabba en henni
finnst það vera eitthvað sem flestir
ef ekki allir ættu að fá að upplifa að
minnsta kosti einu sinni á ævinni.
„Það eru ekki mörg börn í dag sem
fá að upplifa sveitina en mamma og
pabbi bjóða leikskólabörnum til sín
þegar það er sauðburður. Ég fer alltaf
vestur og er í viku þegar það er sauð-
burður. Það er yndislegt að fylgjast
með Ingibjörgu Etnu, dóttur minni,
í sauðburðinum ásamt hinum börn-
unum en hún fer „all in“ og vill helst
bara knúsa lömbin allan daginn. Það
sem mér fannst líka svolítið skemmti-
legt að segja frá er að þegar ég fór með
manninn minn vestur í fyrsta sinn þá
talaði hann alltaf um hvíta sandinn
og ég skildi ekkert í því hvað hann
væri að tala um. Þá áttaði ég mig á því
að sandurinn fyrir vestan er hvítur
eins og á sólarströnd en hér fyrir
sunnan er hann til dæmis svartur.
Mér fannst það því mjög spes að börn
voru að moka í sandkassa fullum af
svörtum sandi, það er svo skemmti-
legt að kynna þetta fyrir börnunum
en á einni mynd í bókinni er hvíta
ströndin okkar fyrir vestan.“
Fékk leyfi frá vinkonu sinni
Nafnið Etna er ekki algengasta nafnið
sem maður heyrir á Íslandi en þeim
hefur þó fjölgað sem bera þetta fal-
lega nafn og ákvað ein stelpa sem
vann með Etnu fyrir nokkrum árum
að ef hún myndi eignast dóttur, þá
fengi hún nafnið Etna og í dag á fyrr-
verandi vinnufélagi Etnu stúlku sem
heitir ber þetta nafn.
„Nöfnin Etna og Enok koma frá því
að það var stelpa með mér í háskóla
sem heitir Marsibil, henni fannst Etna
svo fallegt nafn og hún sagði alltaf
við mig að ef hún eignaðist tvíbura
myndi hún skíra þá Etnu og Enok, því
henni fannst þau svo falleg saman.
Það var líka strákur með okkur í námi
í tómstunda- og félagsfræði sem heitir
Hjalti Enok, en þegar ég hugsaði um
nöfn á börnunum í bókinni þá komu
bara þessi tvö nöfn til mín. Ég ákvað
nú samt að senda Marsibil línu þegar
ég var búin að ákveða að skrifa þessa
barnabók því ég vissi að hún var hætt
í barneignum og henni fannst þetta
bara gaman og samþykkti. Ég held
ég sé sú þriðja sem er skírð Etna en
svo ákvað ég að kanna málin þegar
ég byrjaði að skrifa og ég held við
séum um átta núna á Íslandi sem
berum þetta nafn og þrjár af okkur
búa í Grindavík. Ég er nokkuð viss
um að það verða nokkar Etnur sem
fá bókina í jólagjöf þessi jól.“
Myndirnar þjóðlegar og fanga
umhverfið vel
Þegar Etna var lítil í sveitinni þá voru
myndirnar eftir Freydísi frænku
hennar listaverkin á heimilinu en
Etna segir að myndirnar sem Freydís
teikni séu listaverk í hennar augun og
jólakortin sem Freydís sendi fjölskyld-
unni voru meðal annars römmuð inn,
þau voru svo falleg.
„Myndirnar í bókinni eru eftir Frey-
dísi Kristjánsdóttur en við erum
systkinabörn. Hún vann myndirnar
í bókinni út frá myndum sem ég lét
hana hafa en ásamt því fór hún vestur
í vettvangsferð. Ég er mjög glöð að
hún gerði það, veðrið var reyndar
aðeins að aftra ferðinni hennar en
svo komst hún til mömmu og pabba
og gisti hjá þeim. Hún fékk umhverfið
allt beint í æð og það sést vel á mynd-
unum í bókinni. Hún teiknar síðan
myndirnar eftir að ég klára að skrifa
handritið og hún er búin að upplifa
umhverfið í bókinni sjálf. Ég hef alltaf
haft mikinn áhuga á barnabókum en
áhuginn kom löngu áður en ég varð
móðir sjálf og ég laðaðist alltaf af
bókum sem Freydís myndskreytti.
Myndirnar hennar eru svo þjóðlegar
og fallegar og hún nær umhverfinu
fyrir vestan svo vel.“
Þarf ekki að vera nákvæmlega
eins og raunveruleikinn
Í barnabókum er oft leikið sér með
raunveruleikann og Etna hafði smá
áhyggjur því vegna þess að allir Tálkn-
firðingar eigi eftir að tengja við um-
hverfið í bókinni en að bókin eigi
ekki endilega að vera nákvæmlega
eins og í raunveruleikinn, þó hún sé
mjög lík honum.
„Bókin er byggð á bænum sem
mamma og pabbi búa í núna og þegar
ég fékk bókina í hendurnar fannst
mér ég pínu berskjölduð því þarna
var komið verk sem hægt var að gagn-
rýna mann út frá. Það verða ekki allir
sammála um útlitið eða gæðin og ég
fékk pínu sjokk og hugsaði hvað ég
væri búin að koma mer út. Það eiga
allir Tálknfirðingar eftir að kann-
ast við umhverfið í bókinni. Bókin á
samt ekki að vera nákvæmlega eins
og raunveruleikinn þó hún sé mjög
lík honum en það er líka allt í lagi.
Mamma og pabbi eru til dæmis ekki
með beljur en mig langaði samt sem
áður að hafa beljur í bókinni, það
er nefnilega svo skemmtilegt þegar
maður gerir hlutina sjálfur því þá má
alveg hafa hlutina smá öðruvísi, það
er bara gaman. Ég vissi hins vegar
ekkert um beljur og hafði því sam-
band við vinkonu mína, Sigríði Árna,
en foreldrar hennar eru kúabændur
og ég hef sjálf farið með henni í fjósið
þeirra nokkrum sinnum, fengið að
þrífa spenana og fleira. Ég bað hana
að lýsa því fyrir mér hvernig hún
myndi útskýra mjólkurferlið í barna-
bók. Þá kom í ljós að það þyrfti alltaf
að mjólka beljurnar tvisvar sinnum
á dag, alveg sama hvaða dagur er, af-
mæli, jól, áramót, skiptir engu máli.
Þá fattaði ég að það eru ekki allir sem
skilja hvað það fer mikil vinna í það
að vera með kúabú. Ég er heppin að
hafa fengið að upplifa þetta og það
eru eflaust ekki mörg börn sem hafa
fengið að upplifa það að fara í fjós.“
Skrifar um sveitina sína
Bókin gerist eins og áður sagði í sveit
foreldra Etnu og eru meðal annars
kanilsnúðarnir sem mamma hennar
bakaði alltaf fyrir afmæli þegar þau
systkinin voru lítil á forsíðumyndinni,
henni langaði að reyna að koma inn
öllum smáatriðum sem eru í dag og
úr æsku sinni.
„Kisan í bókinni er byggð á kisunni á
bænum hjá mömmu og pabba en hún
sinnir allt öðru hlutverki í dag heldur
en henni var ætlað og það kemur fram
í bókinni. Ég skrifa einnig um bý-
flugnabúið sem mamma er með en
það er gríðarleg vinna sem fer í slíkt
bú og eru flugurnar hennar mömmu
orðnar þekktar í þorpinu þar sem að
þær líta ekki út eins og hinu hefð-
bundnu hunangsflugur. Það er margt
annað sem tengist búinu og umhverf-
inu hjá mömmu og pabba eins og
laxeldi og pollurinn á Tálknafirði.“
Íslenskt, já takk!
Etnu finnst mikilvægt að íslensk börn
lesi íslenskt efni sem þau tengja við
og henni finnst það einnig mikilvægt
að það sé íslenskur myndskreytir í
barnabókum en bókin hennar Etnu
er rammíslensk og fjallar á skemmti-
legan hátt um lífið í sveitinni, hún er
líka með jólasögu um Etnu og Enok
í vinnslu.
„Mikið af ömmum og öfum hafa keypt
bókina hjá mér til að gefa barnabörn-
unum sínum. Það tengja flestir, ef ekki
allir, við það að fara í heimsókn til
ömmu og afa en margir kaupa bókina
líka til að senda erlendis. Bókin er
íslensk út í gegn og ég vona að þetta sé
upphafið að einhverju í framtíðinni.
Það er alltaf verið að tala um það að
börn lesi minna og það sé á sama
tíma lítið um að velja. Það er mikið
af barnabókum til sem eru þýddar
og koma erlendis frá en börn tengja
kannski ekki eins mikið við umhverfið
í þeim og þeim íslensku. Næsta bók
er í vinnslu um Etnu og Enok sem
lenda þá í öðrum ævintýrum eða í
jólaævintýri. Ég vona að hún komi
út en það er heilmikið ferli sem fer
í gang þegar maður skrifar bók, allt
frá hugmynd að prentun.“
Nöfnin Etna og Enok koma frá
því að það var stelpa með mér
í háskóla sem heitir Marsibil,
henni fannst Etna svo fallegt
nafn og hún sagði alltaf við
mig að ef hún eignaðist tvíbura
myndi hún skíra þá Etnu og
Enok, því henni fannst þau svo
falleg saman.
Myndirnar í bókinni eru eftir Freydísi Kristjánsdóttur, hún vann myndirnar út frá
myndum sem Etna lét hana hafa en ásamt því að fara vestur í vettvangsferð.
FYRSTI SUNNUDAGUR
Í AÐVENTU Í GARÐI
3. desember 2017
Messa í Útskálakirkju kl. 14:00
Kirkjudagur kvenfélagsins.
Organisti Keith Reed.
Jólabasar kvenfélagsins Gefnar
í Kiwanishúsi kl. 15:00
Góðgæti og handverk til sölu.
Kaffisala.
Allur ágóði rennur í líknarsjóð félagsins.
Kveikt á ljósum
á jólatré bæjarbúa kl. 17:00
Hugvekja, jólasöngur, heitt kakó
og jólasveinar.
Hvetjum íbúa til að taka þátt í viðburðum dagsins
Minnum á jólabókaflóðið á bókasafni Garðs, í Gerðaskóla. Allar nýjustu bækurnar.
Opið mánudaga til fimmtudaga frá kl. 14:30 til 17:30.
Rannveig Jónína
Guðmundsdóttir
rannveig@vf.is
VIÐTAL
Sigríður Etna gefur út sína fyrstu barnabók
„Hef elskað barnabækur
frá því ég man eftir mér“
- segir Sigríður Etna, höfundur bókarinnar,
Etna og Enok fara í sveitina