Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.11.2017, Qupperneq 22

Víkurfréttir - 30.11.2017, Qupperneq 22
22 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 30. nóvember 2017 // 47. tbl. // 38. árg. Tillaga að óverulegri breytingu á aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2015-2030 Bæjarstjórn Reykjanesbæjar auglýsir hér með tillögu að óverulegri breytingu á aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2015-2030 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin fellst í tilfærslu á opnu svæði (OP) til norðurs og tilfærslu á íbúðarsvæði (ÍB20) til suðurs, auk smávægilegrar breytingar á skilgreiningu IB20 í greinargerð. Greinargerð með rökstuðningi er á uppdrætti dags. 30.10.2017 í mkv: 1:7.500. Breytingin er auglýst samhliða breyttu deiliskipulagi fyrir Víkurbraut 21 og 23. Deiliskipulagsbreytingar í Reykjanesbæ Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér með auglýstar eftirfarandi deiliskipu- lagsbreytingar. Deiliskipulagsbreyting Víkurbraut 21 og 23 Breytt deiliskipulag felst í að núverandi lóð Víkurbraut 21-23 færist sunnar og bæjarlandið norðar á núverandi lóð Víkurbraut 21-23. Nýbygging þriggja 5 hæða fjölbýlishúsa, með allt að 81 íbúð. Niðurrif á saltgeymslum. Breytingu á götuheiti lóðar úr Víkurbraut 21-23 í Hafnargötu 81, 83 og 85 . Tillagan er auglýst samhliða auglýsingu á breyttu aðalskipulagi. Deiliskipulagsbreyting Framnesvegur 11 Núverandi lóð Framnesvegur 11 stækkar yfir á Framnesveg 9 og Básveg 11. Húsum fækkað úr fjórum í þrjú 5 hæða fjölbýlishús, með allt að 87 íbúðum. Fyrirkomulag bygginga á lóð breytt. Niðurrif á Framnesvegi 9. Deiliskipulagsbreyting Dalsbraut 3 og 5 Breytingin fellst í að byggingareitur við hús nr. 5 verði lengdur um 2m til suðurs í stað þess að beygja til austurs og íbúðum verði fjölgað úr 26 í 38. Bílastæðahlutfall fer úr 1,8 á íbúð í 1,6. Tillögur verða til sýnis á skrifstofu Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 frá og með 28. nóvem- ber 2017 til 8. janúar 2018. Tillögur eru einnig aðgengilegar á heimasíðu Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 8. janúar 2018. Skila skal inn skrif- legum athugasemdum á skrifstofu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12 , 230 Reykjanesbæ. Reykjanesbæ 22. nóvember 2017. Skipulagsfulltrúi Söfnum í neyðarmatar- sjóð fyrir jólin til matarkaupa hjá Fjölskylduhjálp Íslands fyrir þá fjölmörgu sem lægstu framfærsluna hafa. Þeir sem geta lagt okkur lið er bent á bankareikning 0546-26-6609, kt. 660903-2590. Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ. Neyðarsöfnun í matarsjóðinn fyrir jólin Guð blessi ykkur öll ATVINNA STARFSFÓLK ÓSKAST TIL RÆSTISTARFA Í FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKSSONAR Í boði er 50% starf með möguleika á meiri vinnu Vinnutími 08:00 til 12:00 virka daga Kröfur: Hreint sakavottorð, ökuréttindi Tungumál: Íslenska eða góð enskukunnátta Áhugasamir sendið tölvupóst á halldor@allthreint.is JOB OFFER STAFF NEEDED FOR CLEANING IN FLE ( KEF AIRPORT ) Available is: 50% job with possibility of more work Working hours from 08:00 to 12:00 week days Must have: Clean criminal record, Drivers license Language: Icelandic or good English Interested send e-mail to: halldor@allthreint.is Jólaljósin á vinabæjarjólatrénu tendruð í fimmtugasta og fimmta sinn Það er Adrian Andruszkiewicz, nemandi úr 6. bekk Myllubakkaskóla, sem fær þann heiður á laugardaginn að kveikja ljósin á jólatrénu á Tjarnar- götutorgi sem er að venju gjöf frá vinabæ okkar, Kristiansand í Noregi. Viðstaddir athöfnina verða sendiherra Noregs á Íslandi og fulltrúi Norræna félagsins í Kristiansand sem flytja okkur kveðjur. Forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar veitir trénu viðtöku fyrir hönd bæjarbúa. Skjóða, Langleggur og jóla­ sveinar líta við Það er næsta víst að margir bæjar- búar hafa alist upp við það að vera viðstaddir tendrunina á vinabæjar- jólatrénu og þótt ekki sé um stór- brotinn viðburð að ræða þá er þetta eins og með aðrar jólahefðir, það má alls ekki breyta þeim. Enda verður þetta skemmtileg stund. Blásarasveit frá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar leikur jólalög við tréð á meðan gesti drífur að og systkini jólasveinanna, þau Skjóða og Langleggur sjá um að skemmta börnunum ásamt bræðrum þeirra úr fjöllunum sem dansa með gestum í kringum tréð. Boðið verður upp á heitt kakó og piparkökur til að halda hita á mann- skapnum. Dagskráin hefst kl. 17 og verður lokið kl. 18. KERTATÓNLEIKAR KARLAKÓRS KEFLAVÍKUR Hinir árlegu Kertatónleikar Karla­ kórs Keflavíkur fara fram í Ytri­ Njarðvíkurkirkju miðvikudaginn 6. desember. Tónleikarnir hefjast kl. 20:30. Stjórnandi Karlakórsins er Jóhann Smári Sævarsson. Á dagskrá eru hefð- bundin jólalög, bæði í hátíðlegri kant- inum og léttari jólasöngvar. Píanóleik annast Sævar Helgi Jóhannsson. Gestir á kertatónleikunum að þessu sinni er Kvennakór Suðurnesja sem syngja bæði einar og með karla- kórnum. Stjórnandi Kvennakórsins er Dagný Þórunn Jónsdóttir og Geir- þrúður Fanney Bogadóttir leikur á píanó. Að venju er um rólega og notanlega stemmingu að ræða sem yljar kór og gestum á aðventunni. Miðaverð er kr. 2.500,­ Falleg vinastund á milli yngri og eldri borgara „Gaman saman“ er yndislegt samfélagslegt verkefni þar sem yngri og eldri borgarar koma saman og eiga ljúfar stundir. Nemendur á Gimli heimsækja reglulega vini og vinkonur á Nesvöllum, Selinu og Hrafnistu og eru með ýmsar uppákomur í formi ljóðalesturs, söngva og leikþátta. Í sl. viku fóru börnin á Nesvelli og fluttu Aravísur og sungu öll erindin sex, textinn er eftir Stefán Jónsson en lagið er eftir Ingibjörgu Þorbergs. Ingibjörg lagahöfundur dvelur á Hrafnistu og fagnaði nýverið 90 ára afmæli. Börnin höfðu sérstaklega æft Aravísur til þess að syngja fyrir Ingi- björgu, henni til heiðurs. Ingibjörgu þótti afar vænt um heim- sóknina og fannst henni börnin svo ótrúlega flink að kunna textann og lagið svona vel. Næst á dagskrá er að æfa annað lag eftir Ingibjörgu Þor- bergs Jólaköttinn, ljóð eftir Jóhannes úr Kötlum. Ingibjörg og vinir hennar á Hrafnistu bíða spennt eftir að heyra það og fá börnin aftur í heimsókn. Þess má geta að þessir sömu nem- endur frá Gimli munu fimmtudaginn 7. desember flytja leikþátt um Jóla- sveinana á hinni árlegu aðventustund Gaman saman hópsins sem haldin er á Nesvöllum.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.