Víkurfréttir - 30.11.2017, Page 24
24 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 30. nóvember 2017 // 47. tbl. // 38. árg.
Tíu ár frá útgáfu plötunnar Bottle of Blues með Klassart
„Eins og að ferðast aftur í tímann“
Systkinin Fríða Dís og Smári Guðmundsbörn mynda hljómsveitina Klassart en þau hafa starfað saman frá árinu 2004
en Smári náði að plata litlu systur sína með sér í smá „gigg“ á veitingastaðnum Mamma Mía í Sandgerði með nokkra
tíma fyrirvara árið 2004 og hafa þau komið fram við hin ýmsu tilefni frá þeim degi. Hljómsveitin fagnar tíu ára útgáfuaf-
mæli fyrstu plötunnar sinnar Bottle of Blues í ár og af því tilefni verða haldnir tónleikar í Hljómahöll, nánar tiltekið í
Bergi fimmtudaginn 30. nóvember kl. 20:00. Á tónleikunum verður platan leikin í heild sinni auk þess sem þau fara yfir
áhrifavalda og segja frá uppruna laganna og textanna en platan hlaut einróma lof gagnrýnenda þegar hún kom út árið
2007. Víkurfréttir hittu þau Fríðu Dís og Smára í samkomuhúsinu í Sandgerði þar sem að Smári starfrækir hljóðver.
Hvernig varð Klassart til?
SMÁRI: Ég var að brasa við það að semja
tónlist og syngja inn á sjálfur, það
gekk ekki alveg nógu vel en ég vissi
að Fríða var byrjuð að syngja heima
og var með fína rödd þannig að ég
prófaði hana á nokkrum lögum og
það smellpassaði.
FRÍÐA DÍS: Ég man að það voru aftan-
festival tónleikar sem voru haldnir á
Mamma Mía hér í Sandgerði 2004 og
mig minnir að þú hafir verið í skól-
anum, varst kominn heim klukkan
fjögur og tónleikarnir voru klukkan
átta og þú sagðir ; „Heyrðu Fríða,
værir þú nokkuð til í að syngja eitt
lag með mér í kvöld?“
SMÁRI: Hvað varstu gömul þá?
FRÍÐA DÍS: Ég hef verið sextán ára og
það var kannski bara fínt að ég fékk
ekki lengri umhugsunarfrest til þess
að segja nei eða ég hefði kannski ekki
sofið daginn áður út af stressi og það
lukkaðist svona bara ótrúlega vel og
þá var það einmitt þetta lag Bottle of
Blues sem ég söng.
SMÁRI: Það var lag sem við sendum inn
í blúslagakeppni á sínum tíma sem
við unnum árið 2006 sem varð til
þess að við ákváðum að kýla á plötu.
Hvernig fór vinna fyrstu plötunnar
fram?
SMÁRI: Kiddi Hjálmur hann tók okkur
að sér, hann heyrði demóin, heyrði í
okkur í útvarpinu og hann sagði að
við værum með eitthvað en hann er
glöggur á svoleiðis og sagði að Fríða
væri með röddina sem hægt væri að
vinna með, hann tók okkur að sér í
stúdíóið og kallaði á stráka til að vinna
með okkur, meðal annars Sigga hjálm
og Gumma P og einhverja stráka sem
kunna að spila og eru sjóaðir í brans-
anum. Síðan töldum við í og runnum
frekar blint í sjóinn, við vorum með
tíu lög og þetta heppnaðist vel. Það
var svo góður andi yfir þessu en ég
man reyndar að ég var nýbúin að
selja húsið mitt þegar við erum að
taka upp plötuna og átti hvergi heima
og ég svaf í bílnum fyrir utan Geim-
stein nokkrar nætur þegar við vorum
að vinna langt fram eftir. KK var að
taka upp blúsplötu á sama tíma og
við og í einu lagi á plötunni þá segir
hann; „hann sefur í bílnum“ og ég vil
meina að það sé verið að vitna í mig
á þeim tíma.
Hafið þið gefið út fleiri plötur eftir
fyrstu plötuna?
FRÍÐA DÍS: Já við höfum gefið út tvær
í viðbót en þessi plata sker sig frá
hinum því hún er aðallega á ensku en
á henni er eitt ábreiðu lag á íslensku
sem Bragi Valdimar gerði texta við
og heitir Örlagablús en svo erum við
með hinar plöturnar, Bréf frá París
og Smástirni á íslensku.
SMÁRI: Þá fórum við að einbeita okkur
betur að textagerðinni, á fyrstu
plötunni eru textarnir nánast ein-
göngu eftir mig á ensku og eigum
líka nokkur saman, síðan vissum
við að á næstu plötu vildum við ein-
beita okkur betur að textagerðinni
og Fríða tók eiginlega alveg yfir þar.
Helsti munurinn á fyrstu plötunum
og hinum er að við höfum verið að
vinna á íslensku.
Er erfiðara eða auðveldara að semja
á íslensku eða ensku?
SMÁRI: Mér finnst miklu erfiðara að
semja á íslensku, það er léttara að
komast upp með „corny“ línur, texta á
ensku en á íslensku er línan svo þunn
að maður getur dottið í það að vera
alveg rosalega væminn á íslensku.
FRÍÐA DÍS: Aftur á móti finnst mér samt
þegar maður semur á íslensku þá
verða textarnir meira sannir, maður
kemst dýpra í tungumálið og getur
leikið sér meira því það er móður-
málið manns sem maður þekkir svo
vel. Mér finnst að ég þurfi að leggja
meiri vinnu í texta á ensku heldur
en íslensku.
Íslensk tónlist hefur verið vinsæl
undanfarin misseri og íslenskir rapp-
arar hafa verið duglegir að halda
móðurmálinu uppi, er það ekki svolítið
skemmtilegt og gott að íslenskan sé
svona mikið notuð í tónlistinni í dag?
SMÁRI: Jú og það sem mér finnst svo
skemmtilegt er það sem þeir eru að
gera er að þeir eru að beygja tungu-
málið og leika sér svolítið með það
og það er frábært að þeir séu að leika
sér með íslenska tungu.
Hefur samstarfið alltaf gengið vel hjá
ykkur systkinunum?
FRÍÐA DÍS: Eigum við að segja já eða?,
segir Fríða og hlær.
SMÁRI: Jú, ég myndi segja það, Fríða
er náttúrulega svo yndisleg stelpa, ég
hef alveg tekið dýfur og farið upp og
niður en hún hefur alltaf staðið með
stóra bróðir og verið eins og stytta
en í gegnum árin hefur þetta verið
ansi gott.
FRÍÐA DÍS: Já ég myndi segja það, við
erum ótrúlega tengd.
SMÁRI: Við vitum oftast hvað við viljum
gera og þurfum oft ekki að tala saman
áður en við semjum. Ég læt hana fá
lag og hún veit alveg nákvæmlega
hvernig textinn á að vera og svo fæ
ég textann til baka og finnst eins og
hún hafi verið að lesa hugsanir mínar.
FRÍÐA DÍS: Já það er svolítið þannig.
Þið eruð með nokkra vel valda tón-
listarmenn sem spila með ykkur á
afmælistónleikunum, segið mér að-
eins frá þeim.
SMÁRI: Það er kannski fyrst að nefna
hann Pálmar sem er bróðir okkar,
hann er á bassa og kontrabassa. Hann
spilaði líka á annari plötunni okkar,
hann var úti í Danmörku þegar fyrsta
platan var tekin upp en hann er líklega
besti bassaleikari sem ég hef spilað
með. Síðan erum við með Föruneytið
með okkur, Óli Ingólfs á trommur sem
ég þekki mjög vel en hann hefur verið
með mér í ýmsum verkefnum, er einn
sá þéttasti í bransanum en Pálmar og
Óli mynda geggjað rythma-par. Síðan
erum við með Óla Þór frænda okkar
sem er móðurbróðir okkar þannig að
þetta er dálítill fjölskyldufílingur og
Hlynur stórsöngvari og munnhörpu-
leikari, hann syngur með okkur og
spilar á gítar og er stórvinur minn.
Síðan erum við með snilling sem
heitir Stefán Örn sem er einn besti
tónlistarmaður landsins, Íkorni er
listamannanafnið hans, hann spilar
á píanó og syngur líka.
Hvað hefur Klassart verið að gera
undanfarin ár?
FRÍÐA DÍS: Við höfum verið bæði í þessu
tónlistarlífi þar sem við erum að spila
okkar tónlist með stærra bandi en
svo höfum við mikið verið að koma
saman bara við tvö í kokteilboðum,
brúðkaupum og þannig.
SMÁRI: Það er líka alltaf gaman að spila
í brúðkaupum og svona gleðisam-
komum.
FRÍÐA DÍS: Þetta styrkir líka ótrúlega
böndin að spila svona mikið saman
við ólík tilefni, það þéttir okkur.
SMÁRI: Já við fórum líka til Frakklands
í tónlistarkeppni en sagan í kringum
þá ferð er alveg efni í annað viðtal.
Við fórum hringinn eftir síðustu
plötu með stórband, rútu og læti,
vorum með níu manna band og það
var heljarinnar ævintýri þannig að
við höfum verið að brasa ýmislegt.
Hvernig hafa æfingarnar verið fyrir
afmælistónleikana?
FRÍÐA DÍS: Þær hafa verið mjög góðar.
SMÁRI: Alveg yndislegar, við erum sjö
saman núna og það er smá púsl að
koma öllum saman á sama stað en
þegar það gerist þá rennur þetta ansi
ljúft.
FRÍÐA DÍS: Það hefur verið gaman að
spila þessi lög og rifja upp tilfinn-
ingarnar á bakvið þau og þetta hefur
verið skemmtilegur tími.
Verða bara lög af fyrstu plötunni
spiluð á afmælistónleikunum?
FRÍÐA DÍS: Við ætlum að renna plötunni
í gegn og svo er aldrei að vita nema
að við tökum einhver auka lög eða
einhverja gamla slagara.
Hvað er framundan hjá Klassart?
SMÁRI: Við erum með ýmsar hug-
myndir í maganum sem okkur langar
að gera sem eru kannski ekki alveg
tengdar því sem við erum að gera
núna og það er ekki alveg kominn
tími á það að tala um það strax. En
við munum gera eitthvað, hvort sem
það er tónlistartengt eða ekki 2018.
Rannveig Jónína
Guðmundsdóttir
rannveig@vf.is
VIÐTAL
- segir Fríða Dís
söngkona Klassart
STÖRF Í BOÐI
AUGLÝSINGADEILD
Óskum eftir að ráða starfsmann í
auglýsingadeild. Við leitum eftir ein
staklingi með góða þjónustulund og
menntun við hæfi. Starfið felst í mót
töku og sölu auglýsinga í miðla Víkur
frétta.
FRÉTTAMENNSKA
Okkur vantar frískan fréttamann í
Víkur fréttaliðið sem segir fréttir í
blaði, á fréttavefnum vf.is og í Sjónvarpi
Víkur frétta. Mjög góð íslenskukunnátta
er nauðsynleg og almenn þekking á
samfélaginu. Lágmarksaldur er 20 ára.
Umsóknir í störfin sendist á pket@vf.is þar sem frekari upplýsingar eru veittar.
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
Klassart á tónleikum árið 2008.