Víkurfréttir - 30.11.2017, Blaðsíða 28
28 VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM f immtudagur 30. nóvember 2017 // 47. tbl. // 38. árg.
Framtíðin í ferðaþjónustunni
á Reykjanesi er mjög björt
- segir Atli S. Kristjánsson, markaðs-
samskiptastjóri Bláa Lónsins en
hann var valinn „Mentor ársins“ úr
100 manna hópi sérfræðinga
„Ég sjálfur legg mikinn metnað í það
sem ég geri, það kannski skilar sér
bara svona. En þetta er alveg ótrú-
legt og ég er rosa ánægður með þessa
útnefningu,“ segir Atli Sigurður
Kristjánsson. Markaðssamskipta-
stjóri Bláa Lónsins en hann var val-
inn Mentor ársins 2017 úr hópi 100
sérfræðinga, frumkvöðla, stjórn-
enda, fjárfesta og annarra lykilaðila
af sviði ferðaþjónustu sem leggja
verkefninu Startup Tourism lið.
Hlutverk mentora í Startup Tourism
er ein af grunnstoðum verkefnisins
en hvað er Startup Tourism?
Startup Tourism er viðskiptahraðall
fyrir frumkvöðla. Það eru margir sem
sitja þarna úti með einhverja frábæra
hugmynd, einhverja tæknilausn eða
bara hugmynd að afþreyingu og þá
geta þeir sótt um Startup Tourism.
Þar fá þeir aðgang að skrifstofum
og mentorum, alls konar ráðgjöfum
í ferðaþjónustu og geta þannig þróað
hugmyndina sína. Þannig að Star-
tup Tourism er ekkert annað en við-
skiptahraðall fyrir nýjar lausnir á
afþreyingu fyrir ferðaþjónustuna.
Bakhjarlarnir sem koma að þessu
verkefni eru þar sem ég starfa, Bláa
Lóninu. Við leggjum mikið upp úr
því að rækta frumkvöðlastarfsemi á
Íslandi í ferðaþjónustu, enda erum við
frumkvöðlafyrirtæki sjálf og státum
okkur af því að vinna þannig alla daga,
við erum ávallt í þróun. Aðrir bak-
hjarlar eru til dæmis Isavia, hérna á
Suðurnesjum, Vodafone og Íslands-
banki, Íslenski ferðaklasinn og svo
náttúrulega líka Icelandic Startups,
sem Startup Tourism er partur af.
Hvernig fer svo þessi vinna fram?
Segjum sem svo að þú værir með frá-
bæra hugmynd í ferðaþjónustu. Þá
myndir þú bara sækja um á heima-
síðu Startup Tourism. Þar myndirðu
útlista þessa hugmynd og þú ert þá
jafnvel boðaður á fund hjá Startup
Tourism. Út frá því ertu kannski val-
inn. Það eru tíu teymi valin, eða tíu
hugmyndir, þá hefurðu aðgang að
þessu frábæra rými og getur þróað
þína viðskiptahugmynd. Hraðallinn
byrjar 15. janúar, og heldur áfram
alveg að sumrinu. Þannig getur þú
einblínt á þína viðskiptahugmynd
og fengið aðstoð frá sérfræðingum í
ferðaþjónustunni. Við mentorarnir,
sem erum hluti af þessu verkefni,
komum þarna og við kannski gagn-
rýnum eða komum með hugmyndir
að bætingu. Fólk sem er að koma inn
í ferðaþjónustuna skilur kannski ekki
alveg markaðinn og tækifærin sem
eru í boði, en það kannski leynir á frá-
bærri hugmynd. Þess vegna er Startup
Tourism svona frábært fyrir frum-
kvöðla, af því að fá þeir í rauninni
aðgang að öllu. Það er alveg magnað
að þetta sé til. Við erum svo lítið land.
Það er ótrúlegt hvað það er mikið af
góðum hugmyndum sem hafa komið.
Þó svo að sum fyrirtæki komist ekki
inn, þá heldur fólk áfram og kemur
kannski inn á næsta ári. Sem dæmi,
aðili sem var mikið í fréttunum í
sumar, var eitt teymi sem var t.d. í
Startup Tourism síðast, The Cave
People. Þau breyttu Laugarvatns-
helli, eins og hann var í gamla daga.
Þetta var síðasti hellirinn sem fólk
bjó í og breyttu honum sem sagt hell-
inum í hús ef svo má segja. Fólk getur
komið, ferðamenn og við Íslendingar,
og séð hvernig þetta var. Þeir byggja
þetta alveg eins og þetta var. Þeir voru
þarna, fengu hugmyndir og ráðgjöf
um það hvernig eigi að gera þetta og
hitt og í dag eru þeir í blómstrandi
„bisness“, sem er bara frábært. Þannig
að ef fólk lúrir á hugmyndum þarna
úti þá er bara að sækja um, ekki hika.
Er ekki magnað hvað ferðaþjónustan
er á mikilli ferð á Íslandi? Ertu búinn
að sjá einhverja hluti sem má laga
líka?
Ég held við séum að standa okkur
gríðarlega vel. Ísland er yfir höfuð
mjög heillandi land. Það er okkar að
standa vörð um náttúruna og annað
slíkt, og að stýra dreifingunni um
allt land. Það er eitthvað sem mun
gerast í meiri mæli. Það hefur komið
mjög vel út hjá okkur í Bláa Lóninu.
Við höfum innleitt aðgangsstýringu
þar sem gestir okkar þurfa að bóka
sig fyrir fram. Þannig getum við svo-
lítið gert ráð fyrir hverjum mánuði,
jafnvel ári, hvernig stýringin er. Það
er svo eitthvað sem mun gerast, held
ég, hérna á Íslandi og er að gerast
um allan heim, þannig náum við að
vernda vörumerkið Ísland, ef svo má
segja. En ég held að á heildina litið
séum við að standa okkur mjög vel.
Atli, þetta er nú mikil viðurkenning
sem þú færð sem „Mentor ársins“.
Þú ert í ansi myndarlegum og fjöl-
mennum hópi sem valið er úr, allt
þekkt fólk í stjórnun fyrirtækja og í
ferðaþjónustu á Íslandi.
Já, ég er ennþá að klípa mig og sjá
hvort þetta sé raunverulegt. Maður
er hálf orðlaus ennþá, að átta sig
á þessu. Eins og afi sagði, sem var
með Blómabílinn í Stapanum, hrós er
manns besta meðal, og manni líður
rosa vel að fá svona viðurkenningu
og staðfestingu á því að maður sé að
segja eitthvað af viti. En maður er
kannski bara þannig alinn upp í Bláa
Lóninu. Við erum frumkvöðlar og
við erum líka ákveðnar fyrirmyndir
og við leggjum mikið upp úr því að
hjálpa öðrum Startup fyrirtækjum.
Er eitthvað efst á lista hjá þér sem
þú ert að segja frumkvöðlum í ferða-
þjónustu?
Það sem er kannski lykilatriði í þessu
er að fólk nái yfirsýn. Mörgum finnst
markaðssetning vera rosa flókin og
rosa hnútur. Það sem ég segi við
teymin er að ég gef þeim ákveðna
yfirsýn yfir það sem þarf að gera og
hvernig þetta virki svo fólk sjái: „Já
ókei, hérna er ég með vörumerki eða
fyrirtæki og þetta eru bara skrefin og
leiðirnar sem eru í boði“. Það þarf
að vera vörumerki, það þarf að vera
einhver „strategía“. Svo þarf að hugsa
hvernig eigi að hafa samskipti eða
samtal við hugsanlega viðskiptavini
í gegnum þessa „strategíu“. Þá til
dæmis koma boðleiðirnar inn, eins
og samfélagsmiðlar eða prentmiðlar
eða hvaða miðlar sem myndu henta
ákveðnu fyrirtæki. Það sem er mikil-
vægt að Startup fyrirtæki skilji er
að það þarf ekki að vera alls staðar,
það þarf ekki að vera á öllum sam-
félagsmiðlum. Það á bara að velja
það sem hentar hverjum og einum
og fjárfesta bara í tíma þar sem það
er verið að rækta þann miðil þar sem
markhópurinn er, það skiptir máli.
Hluti af „stradegíunni“ er markhópa-
vinnan og annað slíkt. Þetta snýst um
að ná yfirsýn. Um leið og maður er
búinn að ná yfirsýninni þá veit maður
betur hvað maður vill gera. Það er
lykilatriði að ná því.
Er fólk í ferðaþjónustu endalaust að
fá nýjar hugmyndir?
Já, alveg villt og galið. Það er spurning
bara hvort fólk grípi þær eða ekki.
Bara hjá okkur í Bláa Lóninu, við
erum sífellt að gagnrýna okkur sjálf,
hvernig við getum bætt þetta og hitt
og erum alltaf í þróun, þess vegna er
þetta líka svo frábær vinnustaður.
Við erum alltaf að stækka og alltaf
að líta í okkar eigin barm. Það er eitt-
hvað sem öll fyrirtæki jafnvel eru að
gera og þurfa að gera upp á að geta
vaxið í þessum markaði því núna er
samkeppnin orðin hörð. Við erum
að fá aukið magn af ferðamönnum
og auðvitað skiptir máli að ímyndin
og upplifunin hjá ferðamönnunum sé
bara góð. Við þurfum að vera í takti
við nútímann.
Erum við að fara sterk inn í næstu ár?
Yfir tuttugu flugfélög eru að fljúga til
Íslands yfir háannatímann. Er eitt-
hvað sem getur truflað þetta?
Ég held það muni koma eitthvað jafn-
vægi á þetta. Það er okkar svolítið að
virðið sé þá hundrað prósent. Þannig
getum við aukið verðmæti Íslands.
Hluti af þessu er stýringin, hluti af
þessu er að það sé ekki svona mikið
kraðak, en Ísland er svo heillandi og
náttúran er svo mögnuð.
Er nóg pláss?
Ég myndi alveg segja það. Við eigum
allt landið eftir þannig séð. Sumrin
eru náttúrulega stærstu mánuðirnir.
Við eigum vetrarmánuðina eftir, þeir
eru samt vaxandi. Í dag er Ísland, allt
árið, orðið mjög sterkt. Það er bara
okkar að halda rétt á spilunum og
passa það að við séum ekki að eyði-
leggja vörumerkið með einhverri
brjálæðislegri útrás. Það þarf að
rækta innviðina og landsbyggðar-
fókusinn, sem er klárlega byrjað.
Hverjir finnst þér möguleikar Reykja-
nessins vera í ferðaþjónustunni?
Þar er mjög björt framtíð. Við getum
nefnt sem dæmi Reykjanes Unesco
Geopark, jarðvanginn. Þetta er alveg
ótrúlegt að á okkar svæði sé Unesco-
garður, það er ekki sjálfgefið. Ég held
að sú vinna sé að skila sér og muni
skila sér margfalt í framtíðinni. Við
erum með sem dæmi Bláa Lónið,
Gunnuhver og Reykjanesvita, sem
er elsti viti á landinu. Við erum með
nýjar uppbyggingu í kringum Ósa-
botnana og svo frábæra upplifun í
Garði og Sandgerði. Þetta er rosa
flottur skagi. Reykjanes er magnaður
og ég held að það muni aðeins aukast
hér og ég held við þurfum að fjár-
festa ennþá meira í markaðsetningu
suðurfrá.
Hvað getur þú sagt okkur um þessa
mögnuðu áframhaldandi uppbygg-
ingu í Bláa Lóninu með hótelinu?
Hvernig er staðan á þessu verkefni?
Hún er góð. Nú styttist heldur betur
í að sá heimur opni eða snemma árs
2018. Nýtt upplifunarsvæði „Retreat“,
nýtt spa og magnað hótel. Þar munu
gestir geta farið inn og upplifað alls
konar heima inni í hrauninu við her-
bergið sitt eða með lón fyrir utan.
þetta verður einstakt.
Verður þetta bara fyrir ríka útlend-
inga?
Þú getur valið svolítið þína upplifun.
Auðvitað kostar þetta, að fara þangað.
Þú ert ekki bara að fara á hótel, þú
ert að fara í ákveðið svona „get away“.
Þú ert að fara í spa, þú ert að fara í
Bláa Lónið og ert í ákveðnum heimi.
Þú ert í rauninni ekki bara að gista,
þú ert inni í einhverjum töfraheim,
ef svo má segja.
Það hefur verið talað um að það vanti
meiri fimm stjörnu afþreyingu. Þetta
er svolítið hluti af því.
Já, já, við erum að hluta að mæta
þeim þörfum, þessum efnameiri og
við gerum ráð fyrir því að þjónustan
sé framúrskarandi. Við leggjum mikið
upp úr því að bjóða framúrskarandi
vörur og upplifun í lóninu. Eitthvað
ógleymanlegt.
Þetta er allt öðruvísi en við erum vön
og þetta mun líka, ekki bara bæta
upplifun ferðamanna og Íslendinga
heldur líka auka atvinnu. Þetta eru
heldur betur mikið af störfum sem
verða til. Því tengdu er náttúrulega
mikil þjálfun. Það er ekkert sjálfgefið
að opna svona nema að vera með flott
starfsfólk. Það er nóg af því hérna á
Suðurnesjum. Við erum ekkert smá
stolt af því að vera með svona flott
teymi frá Suðurnesjum hjá okkur í
Bláa Lóninu.
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga
kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84
Startup Tourism er tíu vikna viðskiptahraðall sem er sniðinn að
þörfum nýrra fyrirtækja í ferðaþjónustu. Markmið verkefnisins
er að hvetja til nýsköpunar á sviði ferðaþjónustu, styrkja stoðir
nýrra fyrirtækja, fjölga afþreyingarmöguleikum og stuðla að
dreifingu ferðamanna víðsvegar um landið, allan ársins hring.
Ár hvert eru tíu fyrirtæki valin til þátttöku. Þau fá aðgang að full-
búnu skrifstofurými meðan á verkefninu stendur og gefst kostur
á að njóta fræðslu og þjálfunar og þróa áfram viðskiptahugmyndir
sínar undir leiðsögn reyndra frumkvöðla, fjárfesta, lykilaðila á
sviði ferðaþjónustu og annarra sérfræðinga og stjórnenda þeim
að kostnaðarlausu.
Bakhjarlar Startup Tourism eru Isavia, Íslandsbanki, Bláa Lónið
og Vodafone. Icelandic Startups sér um framkvæmd verkefnisins
í samstarfi við Íslenska ferðaklasann.
Núna er óskað er eftir ferskum hugmyndum að afþreyingu og
lausnum sem styrkt geta innviði ferðaþjónustunnar. Opið er
fyrir umsóknir í Startup Tourism til og með 11. desember á
startuptourism.is.