Víkurfréttir - 30.11.2017, Page 31
31ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 30. nóvember 2017 // 47. tbl. // 38. árg.
Landsliðstreyjan -
tilvalin jólagjöf
STAPAFELL
Landsliðstreyjan fæst hjá okkur
HAFNARGATA 50 - SÍMI 421-2300
„Líklegir til alls ef við
spilum saman sem lið“
Magnús Már Traustason leikur með
liði Keflavíkur í Domino´s deildinni
í körfuknattleik en markmið hans
í vetur er að hjálpa liðinu sínu
eins mikið og hann getur. Hann er
ánægður með liðsfélaga sína, sem
taka vel á honum á æfingum, en
Magnús segir liðið bæta sig með
hverjum deginum.
Eftir landsleikjapásu munu Keflvík-
ingar mæta í Ljónagryfjuna næst-
komandi sunnudag í sannkallaðan
nágrannaslag gegn Njarðvíkingum.
Leikurinn hefst kl. 19:15.
Eruð þið sáttir með frammistöðuna
í vetur?
„Ég held við séum ekkert ósáttir
en í þessum þremur tapleikjum þá
hefðum við geta gert miklu betur.
Þetta er langt mót og við bætum
okkur á hverjum degi og toppum von-
andi á réttum tíma. Við erum með
flott lið og erum til alls líklegir ef við
spilum saman sem lið.“
Hvernig hafa æfingarnar verið hjá
ykkur?
„Æfingarnar hafa verið mjög góðar.
Frikki er með margar góðar æfingar
og svo skemmir ekki fyrir að hafa
góða liðsfélaga sem taka vel á manni.“
Hver eru markmiðin þín í vetur?
„Markmiðin mín í vetur eru að hjálpa
liðinu mínu eins mikið og ég get og
gera betur en í fyrra.“
Hver er skemmtilegasti/erfiðasti and-
stæðingurinn?
„Ég er sjálfur svolítið erfiður við mig
en annars eru öll lið erfið ef maður
mætir ekki tilbúinn til leiks, alveg
sama hvort þau séu i úrvalsdeild eða
í neðri deildum.“
Hvert er eftirminnilegasta atvikið
þitt í körfunni?
„Úrslitakeppnin i fyrra og líka keppnis-
ferð til Búlgaríu með U-18 landslið-
inu þar sem okkur gekk ágætlega og
kynntumst fullt af öðruvísi hlutum.“
Hvað finnst þér best við það að vera
í körfu?
„Maður kynnist fullt af fólki og eignast
góða vini. Einnig er mikið um það að
við gerum eitthvað saman sem lið.“
Áttu einhverja skemmtilega sögu af
liðinu?
„Ég á helling af sögum en þær haldast
innan liðsins.“
UTANVALLAR
ÍÞRÓTTAFÉLÖGIN Á SUÐURNESJUM LÁTA GOTT AF SÉR LEIÐA
- Halda samstöðumót til styrktar Guðmundi Atla Helgasyni
Í nóvember 2015 greindist Guðmundur Atli Helgason með bráðahvít-
blæði aðeins 7 ára gamall. Við tók sjö mánaða ferli með lyfjagjöfum og
veikindum sem Gummi eins og hann er kallaður tæklaði með jákvæðnina
að vopni. Þann 3. september, fimmtán mánuðum seinna og Gummi ný
orðinn níu ára endurgreindist hann með bráðahvítblæðið og hefur þegar
lokið tveimur lyfjagjöfum. Gummi þarf því að fara til Svíþjóðar í frekari
meðferð og mergskipti. Gummi hefur því á sinni stuttu ævi tekist á við
marga erfiðleikana en 5 ára flutti hann ásamt systur sinni til ömmu sinnar
og afa sem hafa staðið við hlið hans í gegnum allt saman.
Sunddeild ÍRB með
söfnunarbauk á Aðventumóti
Börn á aldri við Guðmund ætla að
sýna samstöðu og hafa íþróttadeilir
á Suðurnesjum tekið höndum saman
og ætla að halda samstöðumót til
að styðja og styrkja Guðmund Atla.
Sunddeild ÍRB mun hefja leika með
Aðventumótinu sínu sem haldið
verður þann 29. nóvember nk. og
hefst mótið klukkan 17:30, söfnunar-
baukur verður á staðnum fyrir þá
sem vilja taka þátt í að styðja við
bakið á fjölskyldu Guðmundar Atla
Helgasonar. Sundráð ÍRB sendir ekki
jólakort í ár til stuðningsaðila og
gefur andvirði kortanna þess í stað
í þetta góða málefni.
Fjölmargar íþróttagreinar í
Grindavík
Þann 3. desember nk. frá klukkan 14-
16 verður keppt í fótbolta í Hópinu
í Grindavík, þar verða lið frá öllum
Suðurnesjum sem munu keppa inn-
byrðis. Í Mustad höllinni í Grindavík
fara fram körfuboltaleikir þar en þar
mætast einnig lið frá öllum Suður-
nesjunum. Júdódeildir Grindavíkur
og Þróttar Voga taka líka þátt og
verða með sameiginlega æfingu í
Gjánni Grindavík, ungir og efnilegir
skákleikmenn á öllum aldri munu
etja kappi í Gjánni og á sama tíma
ætlar sundfólk frá UMFG og Þrótti
frá Vogum reyna með sér í sund-
lauginni í Grindavík .
Guðmundur er lífsglaður og hjarta-
hlýr drengur með mörg áhugamál.
Hann hefur áhuga á fótbolta, sundi,
hjólreiðum, skák og Lego. Hann
hefur verið í Myllubakkaskóla með
einstökum bekkjarfélögum sem hafa
stutt hann á ólýsanlegan hátt á samt
því að stunda nám hjá grunnskóla
Barnaspítalans í öðrum og nú fjórða
bekk. Stefnan í hans meðferð núna
er að vera á sjúkrahúsi í Huddinge
í Svíþjóð þessi jólin.
Styrktarreikningur: Guðmundur
Atli Helgason, Kt: 190808-4080,
Reikn: 0542-14-40497I.
HÖGNI MADSEN TIL
LIÐS VIÐ ÞRÓTT
Færeyingurinn Högni
Madsen mun leika með
Þrótti Vogum í knatt-
spyrnu á næstu leiktíð.
Högni kemur til lands-
ins í janúar en hann getur
bæði spilað á miðjunni og
sem miðvörður.
Högni, sem er 32 ára, lék síðast með
Fram í Inkasso-deildinni og þar á
undan með B36 frá Þórshöfn. Hann á
að baki þrjá A-landsleiki fyrir Færeyjar
en hann hafði leikið allan sinn feril í
heimalandinu áður en hann fór í Fram.
Í fréttatilkynningu frá félaginu segir
að það sé mikil ánægja fyrir knatt-
spyrnudeild Þróttar að fá Högna í
liðið fyrir komandi átök.
Alexander verður aðstoðar-
og styrktarþjálfari Keflavíkur
Alexander Magnússon
hefur verið ráðinn að-
stoðar- og styrktarþjálfari
hjá 2. flokki karla til næstu
tveggja ára.
Alexander er fyrrum leik-
maður meistaraflokks karla
og var gríðarlega efnilegur
ungur leikmaður, en glímdi
við erfið meiðsli sem urðu til
þess að hann þurfti að hætta,
aðeins 28 ára gamall.
Fram kemur á vef Knatt-
spyrnudeildar Keflavíkur að
félagið sé gríðarlega ánægt
með þetta skref og hlakki
til að sjá ungu strákana í 2.
flokki taka framförum í vetur
og á komandi misserum.