Víkurfréttir - 08.03.2018, Page 1
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
AÐAL S ÍMANÚMER 421 0000 ■ AUGLÝS INGAS ÍM INN 421 0001 ■ FRÉTTAS ÍM INN 421 0002
S U Ð U R N E S J A
MAGASÍN
fimmtudagskvöld kl. 20
á Hringbraut og vf.is
Het Wapen van Amsterdam var hollenskt skip sem sigldi frá Austur-Indíum árið 1667. Það strandaði á Skeiðarársandi 19. september 1667. Skipið
var hlaðið dýrmætum varningi og með 200 manns innanborðs. Af þeim björguðust 60 eftir mikla hrakninga en hinir 140 létust úr sjóvolki og
kulda. Skipið hefur alltaf verið kallað „Gullskipið“ á Íslandi en þess var leitað í mörg ár, án árangurs. Jónatan Stefánsson, íbúi í Miðhúsum í Sand-
gerði, á nákvæmt líkan af skipinu. Líkanið var smíðað í fangelsi í Víetnam. Það og önnur skipslíkön verða til sýnis á heimili Jónatans á Safnahelgi
á Suðurnesjum um komandi helgi. Rætt er við Jónatan í Suðurnesjamagasíni í á Hringbraut og vf.is. Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson
Gullskipið sýnt á Safnahelgi
Krossmóa 4 | Reykjanesbæ
Opið lengur
mán.–fös. frá 9–20
lau.–sun. frá 11–18
REYKJANESBÆR GRINDAVÍK VOGARGARÐUR
4° 40kg 14° 1250kg 12° 75kg12° 4kg
SPÁÐ ER SENDINGUM
UM ALLT REYKJANESFLUTNINGASPÁ DAGSINS
SANDGERÐI
-20° 150kg
Vox Arena
sýnir Burleque
S U Ð U R N E S J A
MAGASÍN
fimmtudagskvöld kl. 20 á Hringbraut og vf.is
Einnig heimsókn í Kaffitár, skipslíkön
Jónatans Stefánssonar og svipmyndir
frá Nettómótinu í körfubolta.
Bærinn hafnaði
öllum tilboðum
í Stapaskóla
Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur
hafnað öllum tilboðum sem
bárust í byggingu Stapaskóla
í Reykjanesbæ. Ástæðan er að
tilboðin voru öll verulega yfir
kostnaðaráætlun, sem hljóðaði
uppá rúmlega 3.487 milljónir
króna.
Þrjú fyrirtæki buðu í verkið. ÞG
verktakar rúmlega 4.736 milljónir
króna, MT Hogard rúmlega 3.839
milljónir króna og Munk var með
tilboð upp á rúmlega 3.779 millj-
ónir króna. Lægsta tilboðið var
því tæpum 300 milljónum króna
yfir kostnaðaráætlun.
„Óvissan
er verst“
Rósa Víkingsdóttir á langveikt barn:
Rósa Víkingsdóttir, hjúkrunarfræðingur og
móðir langveiks barns, sendi opið bréf til
Svandísar Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra
í síðustu viku í Morgunblaðið. Í bréfinu talar
hún um hversu mikið álag er á foreldra sem
eiga langveik börn.
Jenný, dóttir hennar er með arfgengan efna-
skiptasjúkdóm sem ræðst á taugakerfið og
nefnist Batten Disease, en líftími einstaklinga
með sjúkdóminn er 20-30 ár. Jenný er blind
og flogaveik og þarf aðstoð við allar athafnir
daglegs lífs. - Sjá nánar á síðu 2 í blaðinu í dag.
fimmtudagur 8. mars 2018 // 10. tbl. // 39. árg.