Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.03.2018, Side 28

Víkurfréttir - 08.03.2018, Side 28
28 UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM f immtudagur 8. mars 2018 // 10. tbl. // 39. árg. Ríkið og Suðurnesjamenn Á Alþingi bíður umræðu tillaga mín um að fulltrúar ráðuneyta og sveitarfélagana á Suðurnesjum vinni tímasetta aðgerðaáætlun um hvernig efla megi þjónustu ríkisins við íbúa á Suðurnesjum og mæta mikilli fólksfjölgun á svæðinu. Við Suðurnesjamenn eigum að gera skýra kröfu um að heilbrigðisþjón- usta, símenntun, skólar, samgöngur og þjónusta við þá sem eldri eru, verði í takt við fjölda og aldurssamsetningu íbúa svæðisins og sambærileg við önnur landsvæði. Íbúum á Suðurnesjum hefur fjölgað gríðarlega undanfarin ár, eða um tæp- lega 5.000 manns á sex árum, en hlut- fallslega mest síðastliðin tvö ár. Slíkri fólksfjölgun fylgja óhjákvæmilega margvíslegar áskoranir fyrir sveitar- félögin á svæðinu sem sveitarstjórnar- menn þurfa að takast á við. Stór hluti nýrra íbúa er af erlendu bergi brotinn, talar ekki íslensku og þarfnast af þeim sökum meiri aðstoðar. Fólksfjölgunin reynir á heilbrigðisþjónustuna og aðra innviði sem stóðu veikir fyrir þegar að herða tók á fólksfjölguninni. Í næstu ríkisfjármálaáætlun sem leggja á fram á Alþingi 1. apríl, verður að sjá þessari sjálfsögðu kröfu merki. Þingmenn og sveitarstjórnarmenn úr öllum stjórnmálaflokkum verða að standa saman um þá kröfu og láta kröftuglega í sér heyra ef fjármála- áætlunin bætir ekki verulegu fjár- magni í þjónustu ríkisins við íbúa Suðurnesja strax á næsta ári. Auk þess er mikilvægt að fulltrúar ráðuneyta og sveitarfélaganna á Suðurnesjum vinni tímasetta og fjármagnaða áætlun um úrbætur. Vonandi kemst tillagan um það á dagskrá Alþingis sem allra fyrst. Ekki í fyrsta sinn Í nóvember 2014 lagði ég fram svipaða tillögu sem ekki fékk stuðning Sjálf- stæðismanna og Framsóknarmanna og náði því ekki fram að ganga. Í greinargerð með þeirri tillögu var bent á það augljósa að samfélögin á Suðurnesjum höfðu ekki að fullu náð sér af þeim áföllum sem gengið hafa yfir svæðið undanfarinn rúman áratug, þ.e. brotthvarfi hersins árið 2006 og efnahagshruni árið 2008. Þessir atburðir höfðu gríðarleg áhrif á stöðu Suðurnesjamanna. Aðkallandi var að bregðast við ástandinu ekki síst þegar enn bættist við vandamál íbúa svæðisins þar sem stærsta bæjar- félagið átti við stórkostlega fjárhags- erfiðleika að stríða. Nú hefur staða Reykjanesbæjar batnað undir forystu Samfylkingarinnar, Beinnar leiðar og Frjáls afls en fjárframlög ríkisins eru enn langt undir því sem þörf er á. Það er ekki nóg að sveitarstjórnarmenn vilji búa vel að íbúum, ríkið verður að standa við sitt. Vonandi fær tillagan sem nú bíður umræðu, stuðning stjórnarþing- manna og aðgerðir fylgi þeim fögru orðum sem þeir létu falla á fundi um fjárframlög ríkisins til þjónustu við íbúa á Suðurnesjum saman borin við önnur landsvæði, sem haldinn var í Duushúsum á dögunum. Ásbrú Þessu til viðbótar má nefna að með lögum sem sett voru árið 2006 við brotthvarf hersins, var Reykjanesbæ gert skylt að gefa ríkinu afslátt af fasteignagjöldum vegna yfirgefinna fasteigna frá hernum sem ríkið hafði eignast. Sá afsláttur taldi í árslok 2016 rúman hálfan milljarð króna. Á sama tíma hefur ríkið selt eignir sem herinn skildi eftir, fyrir marga milljarða króna. Það kostar sitt að fara í nauðsynlegar framkvæmdir svo Ásbrú verði í raun aðlaðandi hverfi Reykjanesbæjar og eðlilegt að ríkið leggi þar sitt að mörkum og endur- greiði Reykjanesbæ í það minnsta afsláttinn í það verkefni. Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi Miðflokkurinn býður fram í Suðurkjördæmi Stjórn Miðflokksfélags Suðurkjör- dæmis (MFS) hefur tekið ákvörðun um að bjóða fram í sveitarstjórnar- kosningunum sem haldnar verða laugardaginn 26. maí n.k. Þeir sem hafa áhuga á að gefa kost á sér á framboðslista flokksins í sínu sveitarfélagi eru vinsamlegast beðnir um að senda eftirfarandi upplýsingar á sudur@midflokkur- inn.is: Nafn, heimilisfang, starfs- heiti, símanúmer, netfang ásamt því sæti sem óskað er eftir. Loka- frestur til að skila inn framboðum er klukkan 12:00, laugardaginn 3. mars n.k. Stjórn og varastjórn Miðflokksfélags Suðurkjördæmis, Einar G. Harðarson, formaður - s.662 5599 Sigrún Gísladóttir Bates, varaformaður – s.896 4509 SKÝR AFSTAÐA FÉLAGSMANNA VSFK Trúnaðarráð, samningarnefnd og stjórn VSFK greiddi atkvæði um upp- sögn kjarasamninga á samningafundi, sem fram fór þann 27. febrúar sl. Niðurstaða þeirrar kosningar var skýr. Félagsmenn töldu forsendur kjarasamninga brostnar og ekkert annað í stöðunni en að segja upp samningum. Það er á kristaltæru að verkalýðnum á Suðurnesjum er nóg boðið með sífelldar himinháar launahækkanir í fjármálageiranum, hjá alþingismönnum og núna síðast í Landsvirkjun svo eitthvað sé nefnd. Guðbjörg Kristmundsdóttir, varafor- maður félagsins, fór á formannafund ASÍ í morgun með atkvæði félagsins sem samþykkti uppsögn á kjarasamn- ingi. Niðurstaðan varð hins vegar ekki sú sem við óskuðum. Kjarasamn- ingurinn verður því gildur út samn- ingstímabilið eða til 31. desember 2018 og ljóst að ekkert verður gefið eftir í þeirri samningsgerð. Þetta eru vissulega mikil vonbrigði en 21 greiddu með uppsögn, 28 á móti. Það er því ljóst að mikil vinna er fram- undan og krafa félagsmanna er skýr. Það er ekki hægt að setja þá kröfu á eina stétt að hún haldi stöðugleika meðan aðrar virðast ekki bera nokkra ábyrgð á honum. Þegar launahækk- arnir sem jafngilda mánaðarlaunum verkamanns eru raunveruleiki hjá ákveðnum stéttum hlýtur það að setja tóninn í komandi samningum. Guðbjörg Kristmundsdóttir, varaformaður VSFK. Frumkvöðull á Kálfatjörn á 19. öld Stefán Thorarensen var prestur á Kálfatjörn 1857–1886 og kom mörgu til leiðar. Hann ritstýrði sálma- bókum, þýddi og orti fjölda sálma og stofnaði skóla sem enn starfar. Minningu Stefáns verður haldið á loft á Kálfatjörn á sunnudaginn, 11. mars, kl. 13. Fjallað verður um störf hans og sungnir sálmar eftir hann. Haukur Aðalsteinsson flytur erindi um Stefán, uppbyggingu hans á Kálfatjörn og um stofnun skólans. Una Margrét Jónsdóttir á Rúv flytur erindi um sálmaskáldið og sálmana og kór Kálfa- tjarnarkirkju flytur nokkra sálma. Að loknu kaffihléi mun prófessor Hjalti Hugason flytja erindi um prestinn Stefán Thorarensen. Á Kálfatjörn hefur lítið skólahús, sem reist var í Norðurkoti 1903, verið endurbyggt sem skólasafn. Það verður opið og athyglinni beint að upphafi skóla í Vatnsleysustrandarhreppi 1872 og þætti Stefáns Thorarensen í því. Stefán var vinsæll prestur, stundaði búskap og árabátaútgerð af myndar- skap, byggði upp staðinn og stofnaði einn af fyrstu barnaskólum landsins sem nú heitir Stóru-Vogaskóli. Lík- lega er hann þekktastur fyrr framlag sitt til sálmabóka landsmanna. Hann sat í sálmabókarnefndunum 1867 og 1878, lagfærði eða orti 95 sálma í sálmabókinni sem kom út 1871, og 44 sálma í sálmabókinni1886. Sóknar- börn hans báru honum í alla staði mjög vel söguna. Athöfnin hefst kl. 13 í Kálfatjarnar- kirkju og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Skólasafnið opnar kl.12. Sjá nánar um Safnahelgi 2018 á vefnum safnahelgi.is AUGLÝSING Um skipulag í Sveitarfélaginu Vogum. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi. Frístundabyggð í Hvassahrauni. Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti þann 28. febrúar 2018 að aug- lýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í Hvassahrauni, skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í eftirfarandi: • Lóð númer 22 skiptist í tvær lóðir. Lóðin var áður 8.340 m2 og innan hennar byggingarreitur fyrir eitt frístundahús, verkfærahús og bátaskýli. Að- koma akandi umferðar og bílastæði er frá að- komuvegi austan lóðarinnar. Eftir breytingu verða til tvær lóðir og fá þær númerin 22A og 22B. • Lóð 22A er 4.181 m2 og er aðkoma að henni og bílastæði frá aðkomuvegi vestan lóðar- innar. • Lóð 22B er 4.163 m2 og er aðkoma að henni og bílastæði frá aðkomuvegi austan lóðarinn- ar, á sama stað og gert var ráð fyrir aðkomu og bílastæðum áður en lóðinni var skipt í tvær lóðir. • Ástæða þess að samanlögð stærð lóða 22A og 22B er 4 m2 meiri en lóð 22 var áður er ónákvæmni í uppgefinni stærð á uppdrætti gildandi deiliskipulags. Innan beggja lóða er byggingarreitur fyrir frí- stundahús, verkfærageymslu og bátaskýli. • Hámarks grunnflötur frístunahúsa innan byggingarreita á lóðum á skipulagssvæðinu fer úr 120 m2 í 190 m2. • Hámarks grunnflötur verkfærageymsla innan byggingarreita á lóðum á skipulagssvæðinu fer úr 10 m2 í 50 m2. • Hámarks grunnflötur bátaskýla innan bygg- ingarreita á lóðum á skipulagssvæðinu fer úr 15 m2 í 30 m2. • Heimilt er að hafa verkfærageymslu og báta- skýli sem eitt hús og ef svo er má stærð bygg- ingar vera að hámarki samanlögð stærð þeirra beggja, þ.e. 80 m2. • Breytingar eru gerðar á texta á þann hátt að fellt er út að frístundahús á skipulagssvæðinu séu 1 hæð og svefnloft og þess í stað verður að- eins gert ráð fyrir hámarkshæð bygginga, sem hækkar úr 5,0 m í 6,5 m. Vegghæð skal vera að hámarki 5,0 m. • Heimilt verður að hafa gististarfsemi í frí- stundahúsum á skipulagssvæðinu skv. flokki I (heimagisting) og flokki II (gististaður án veit- inga) í samræmi við reglugerð nr. 1277/2016 um veitingastaði, gististaði og skemmtana- hald. Sækja þarf um rekstrarleyfi til sýslu- manns vegna starfsemi í flokki II, gististaður án veitinga, í samræmi við 25. gr. áðurnefndr- ar reglugerðar. Tillagan er sett fram á uppdráttum ásamt greinargerð og vísast til þeirra um nánari upplýsingar. Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar frá og með miðvikudeg- inum 7. mars 2018 til og með miðvikudagsins 18. apríl 2018. Tillagan er einnig aðgengilega vef Sveitar- félagsins Voga, www.vogar.is/Skipulag/Skipulag_i_kynningu/. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Skila skal skriflegum athugasemdum til skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar eða á netfangið skrifstofa@vogar.is eigi síðar en miðvikudaginn 18. apríl 2018. Vogum, 7. mars 2018 f.h. bæjarstjórnar, Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.