Víkurfréttir - 08.03.2018, Qupperneq 32
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
MUNDI
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
Kannski pískarnir finnist í
BDSM-herbergjum hjá 50+
www.volkswagen.is
Við látum framtíðina rætast.
Volkswagen er með breiddina í rafmagns- og tengiltvinnbílum. Nú bjóðast þeir á vistvænu tilboði.
Gríptu tækifærið og skiptu yfir í rafbíl frá Volkswagen sem gengur fyrir íslenskri orku.
Vistvænt tilboð
2.890.000 kr.
e-up!
Vistvænt tilboð
3.850.000 kr.
Golf GTE
Vistvænt tilboð
3.950.000 kr.
e-Golf
Vistvænt tilboð
3.990.000 kr.
Passat GTE
Volkswagen á
vistvænu tilboði!
HEKLA Reykjanesbæ · Njarðarbraut 13 · Sími 590 5090 · heklarnb.is
Útibú Sjóvár í Reykjanesbæ flutti
1. mars sl. af Hafnargötu í Kross-
móa 4a í Reykjanesbæ. Flutn-
ingurinn leggst afar vel í útibús-
stjórann, Arngrím Guðmunds-
son, sem hóf störf nú í mars.
„Við erum mjög ánægð með þessa nýju
staðsetningu og erum búin að koma
okkur vel fyrir. Það er heilmikið líf
hér í húsinu og við hlökkum til að
taka á móti fólki á nýjum stað,“ sagði
Arngrímur í samtali við Víkurfréttir.
Föstudaginn 9. mars eru gestir og
gangandi boðnir sérstaklega vel-
komnir í útibúið þar sem boðið verður
upp á veitingar og ýmsan glaðning.
Til vinstri má sjá mynd innan úr nýja
útibúinu sem er á jarðhæð við hlið
Landsbankans í Krossmóa.
Þrír útibússtjórar!
Arngrímur Guðmundsson, til
hægri, ásamt þeim Geir Newman
og Baldri Guðmundssyni en þeir
eru báðir fyrrverandi útibús-
stjórar Sjóvár í Reykjanesbæ.
VF-myndir: Hilmar Bragi
Útibú Sjóvár í Krossmóa 4a í Reykjanesbæ.
SJÓVÁ ER
KOMIN Í
KROSSMÓA
Hraðaksturinn
kostaði 112.500 kr.
Erlendur ferðamaður sem
var á hraðferð í umdæmi lög-
reglunnar á Suðurnesjum um
helgina mátti greiða 112.500
krónur í sekt þar sem hann ók
á 175 km hraða eftir Reykjanes-
brautinni þar sem hámarks-
hraði er 90 km á klukkustund.
Auk hans hefur löreglan á Suður-
nesjum kært 35 ökumenn fyrir
hraðakstur á síðustu dögum.
Langflest áttu brotin sér stað á
Reykjanesbraut. Í mörgum til-
vikum, eða 13, var um að ræða
erlenda ferðamenn sem stigu of
fast á bensíngjöfina.
Féll úr stiga utan
á vinnulyftu
Tvö vinnuslys urðu um síðast-
liðna helgi í umdæmi lögregl-
unnar á Suðurnesjum. Maður
féll aftur fyrir sig úr stiga utan á
vinnulyftu á Keflavíkurflugvelli
og lenti á steyptu flughlaðinu.
Hann var fluttur með sjúkrabif-
reið á bráðamóttöku Landspítal-
ans í Fossvogi og Vinnueftirlitinu
gert viðvart um óhappið.
Í hinu tilvikinu var maður að fara
úr bát sem lá við bryggju í Grinda-
víkurhöfn en skrikaði fótur og datt
á bryggjuna. Hann var fluttur á
Landspítalann í Fossvogi og reynd-
ist vera með brotna mjaðmarkúlu.
Handtekinn tvisvar
á sama degi
Lögreglan á Suðurnesjum hand-
tók um liðna helgi sama ökumann
tvisvar sinnum með fárra klukku-
stunda millibili. Maðurinn var án
ökuréttinda og þar að auki grun-
aður um akstur undir áhrifum
fíkniefna. Honum höfðu verið
gefin skýr fyrirmæli um að hann
mætti ekki aka bifreið hér á landi
eins og staðan væri en hann lét
sér ekki segjast.
Þá hafði lögregla afskipti af þremur
ökumönnum til viðbótar sem
höfðu aldrei öðlast ökuréttindi.
Einn þeirra var grunaður um ölvun
við akstur. Fimmti ökumaðurinn
ók sviptur ökuréttindum.
Fáeinir ökumenn voru svo hand-
teknir, grunaðir um akstur undir
áhrifum áfengis og/eða fíkniefna.
Miklu magni
reiðtygja stolið
Brotist var inn í hesthús í um-
dæmi lögreglunnar á Suður-
nesjum um helgina og miklu
magni af reiðtygjum stolið.
Hesthúsið var læst en hann hafði
verið fjarlægður þegar eigandinn
kom að húsinu. Meðal þess sem
stolið var voru voru sjö hnakkar,
mörg beisli, reiðhjálmar og ýmis
annar búnaður sem notaður er í
hestamennsku.