Víkurfréttir - 08.03.2018, Blaðsíða 20
20 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 8. mars 2018 // 10. tbl. // 39. árg.
skipi í Karabíska hafinu, við vorum
búin að æfa mikið og svo fékk gamla
einhvern sviðskrekk, við vorum með
mjög flottum trommara úr einu af
stóru böndunum þannig að þetta var
dálítil spenna hjá okkur fjölskyldunni.
Ég ætla alveg að viðurkenna það að
sonur minn gaf mér frekar illt auga
þegar ég var búin að gera þriðju mis-
tökin á sviðinu. Eftir á var meðal ann-
ars sagt að það væri ekki víst að við
myndum halda jólin saman a.m.k.
miðað við svipinn sem hann sendi
mömmu sinni. En við kláruðum þetta
með stæl að lokum.“
Hvað eruð þið lengi á siglingu?
Guðjón: „Við erum fimm daga á
siglingu.“
Sveinn: „Við förum frá Tampa til Be-
lice, Costa Maya en oft á tíðum förum
við ekkert frá borði, það eru tónleikar
út um allt og ég held að meirihlutinn
fari ekki frá borði, það er svo mikið
að gera.“
Sólný: „Það er kannski líka svolítið
skemmtilegt að segja frá því að
þetta eru í raun og veru ekki bara
tónleikar heldur eru þetta líka svona
spjall stundir við hljómsveitirnar eða
spurt og svarað. Um tíu á morgnana
byrjar spjallstund og þú getur verið
að spyrja hetjurnar þínar, sem þú
ert búin að vera að fylgja í mörg ár
persónulega spurninga og þannig
að það er það kannski það sem gerir
þetta sérstakt. Sumir hafa hlegið af
okkur og spurt hvers vegna við förum
í siglingu og förum ekkert í land, af
hverju förum við ekki bara á tónleika
í landi. Þetta er svolítið sérstakt því
við erum þarna saman í fimm daga
með öllum þessum listamönnum og
fólki eins og okkur sem eru áhuga-
menn og höfum gaman af því að spila
og fáum tækifæri þarna til að flytja
tónlist sem við höldum upp á. Þetta
er svolítið sérstakt, þú ert kannski
að spjalla við gítarleikarann sem þú
varst alveg dolfallin yfir að hlusta á
kvöldinu áður í morgunkaffinu. Sam-
félagið er líka svolítið sérstakt og við
brosum stundum og segjum að þetta
sé svolítið nördasamfélag. En það má
kannski líkja þessu við að fótbolta-
menn hvaðanæva að úr heiminum
kæmu saman um borð í skipi og gerðu
ekkert annað en að spila og spjalla um
fótbolta í fimm daga.“
Sveinn: „Værum kannski bara að
taka leik með Messi eða Ronaldo í
hádeginu.“
Sólný: „Það er það sem gerir þetta
sérstakt, við erum í þessum heimi.
Strákurinn okkar hann Sighvatur sem
er sautján ára í dag, kom með okkur
fyrir þremur árum og var ekkert að
spila á gítar og var ekkert í tónlist.
Þetta varð vendipunktur í hans lífi,
þarna kviknaði áhugi á tónlist og hann
hefur varla sleppt gítarnum síðan,
hann tók þátt í fyrra og núna. Hann
spilaði einmitt með okkur á búgarð-
inum núna og um borð í skipinu en
í annari siglingunni spilaði hann á
búgarðinum.“
Þið fóruð fimm saman í fjölskyldunni
í siglinguna núna, hvernig gekk það?
Guðjón: „Bara mjög vel.“
Sveinn: „Okkur vantar trommara og
sá næst yngsti er líklegur kandídat
í það.“
Sólný: „Þetta prógram hefur stækkað
töluvert frá því að það byrjaði og núna
byrjuðum við til dæmis á búgarði.“
Guðjón: „Það eru hjón sem eru hluti
af skipulagshópnum í kringum þetta
sem búa rétt hjá Tampa á búgarði og
þau ákváðu að bjóða þeim sem taka
þátt í þessu prógrammi eða þeim sem
vildu, tveimur dögum fyrir hátíðina
að koma fram, sú hátíð heitir „Prog
on the Ranch“. Alls tóku þrjátíu flytj-
endur þátt í þeirri hátíð en það voru
töluvert fleiri að hlusta. Það var búið
að setja upp svið og svo er bara spilað,
bæði Progressive Rock og önnur tón-
list. Síðan voru líka lögin tekin sem
eru spiluð á skipinu, þannig að þetta
var smá undirbúningur fyrir það og
þarna gafst smá tími til þess að æfa
fyrir þá sem gátu komið saman.“
Sólný: „Núna var þetta í rauninni
fyrir okkur sjö daga tónlistarhátíð og
fyrsta daginn á búgarðinum þá voru
flutt 57 lög frá tíu um morguninn
til ellefu-tólf um kvöldið og ætli við
höfum ekki verið um þrjátíu þarna
samtals. Við leigðum okkur húsbíl og
vorum í honum við þennan búgarð
að flytja tónlist og spila. En það er
skemmtilegt að segja frá því að þegar
Guðjón útskrifast úr Verslunarskóla
Íslands og flestir vinir hans voru á
leiðinni til Benidorm, þá fann Guðjón
þessa ferð og langaði að fara. Hann
bað okkur að koma með, en þá var
þetta kerfi komið, að þú þurftir að
senda inn upptökur sem voru þátt-
tökuskilyrði og við vorum alls ekkert
að fara að gera það enda höfðum við
ekkert verið í tónlist á okkar seinni
árum, þótt við hefðum verið hér áður
fyrr svolítið að spila. En Guðjón hætti
ekki fyrr en að við samþykktum að
senda inn og fer með okkur í sitt-
hvoru lagi upp í stúdíóið sitt, tekur
upp og sendir, síðasta kvöldið sem
skilafresturinn rann út! Síðan var
þetta svolítið skemmtileg helgi því
ég fékk tölvupóst og Svenni líka, og
ég fékk póst um að ég kæmist inn og
var alveg jii, hvað ef ég kemst inn en
ekki Svenni.“
Sveinn: „Og ég fékk tölvupóst þar sem
að ég var samþykktur í hópinn og ég
þorði ekki að segja neitt við Sólný.“
Sólný: „Þannig að það leið eiginlega
heill sunnudagur án þess að nokkur
þyrði að segja frá en við vorum svo
heppin að fá að taka þátt í þessu sem
er alveg einstakt að okkar mati því
þetta er eiginlega orðin eins og fjöl-
skyldan okkar, fólkið sem er með
okkur í siglingunum.“
Eignist þið ekki góða vini í gegnum
þetta?
Sólný: „Jú, tónlist tengir fólk saman,
það skiptir engu máli hver þú ert.“
Sveinn: „Hvort sem þú ert úr stóru
hljómsveitunum eða ekki, það eru
allir á sama stigi. En það sem er líka
svo skemmtilegt núna er að það hefur
aldrei verið jafn mikil þátttaka eða
... við erum kölluð
„The Vikings“ um borð,
víkingafjölskyldan frá
Íslandi og auðvitað vekur
það athygli að við séum
fjögur úr sömu fjölskyld-
unni í þessu prógrammi
að spila.
SAMÞYKKT DEILISKIPULAG: OFAN SKAGABRAUTAR,
SVÆÐI ÍB 10, Í6, ÍB8, ÍB11 OG MV3.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Garðs samþykkti þann 7.2. 2018 deiliskipulag
fyrir ofangreint svæði sunnan Skagabrautar.
Tillagan var auglýst skv. 1. mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ein athuga-
semd barst og hefur þeim sem gerði athugasemdir verið send niðurstaða sveitar-
stjórnar. Deiliskipulagið var samþykkt óbreytt.
Hægt er að kæra samþykkt sveitarstjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auð-
lindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku deili-
skipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.
Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garðs.
Stjórn Samkaupa hf. boðar hér með til aðalfundar í félaginu fyrir rekstrarárið 2017.
Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 14. mars kl. 15.00
á skrifstofu félagsins að Krossmóa 4a, 260 Reykjanesbæ.
Á dagskrá fundarins eru aðalfundarstörf samkvæmt 14. gr. samþykkta félagsins.
Þá verður lögð fyrir fundinn tillaga um að félagið megi eignast
og eiga allt að 10% hlutafjár í félaginu í þrjú ár.
Stjórn Samkaupa hf.
AÐALFUNDUR
Í SAMKAUPUM HF.
Ljósmyndir: Olga Helgadóttir.
Rokkfleyið.
Guðjón í fyrstu siglingunni árið 2015.
Ljósmynd: Mike Savoia.