Víkurfréttir - 08.03.2018, Side 8
8 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 8. mars 2018 // 10. tbl. // 39. árg.
STÖRF Í FRAMLEIÐSLUDEILD
T A R A M A R
Við erum að leita eftir samviskusömum og ábyrgðar-
fullum aðilum til starfa í pökkun og við þrif í framleiðslu-
deild okkar. T A R A M A R framleiðir lúxus húðvörur
í Sandgerði sem seldar eru um allan heim. Um er að
ræða störf með nokkuð sveig janlegum vinnutíma.
Óskað er eftir ferilskrá og kynningarbréfi frá umsækj-
endum sem sendist á netfangið info@taramar.is fyrir
12. mars.
Nánari upplýsingar veita Ragnhildur eða Viðar í síma
570 7100.
Framboðslisti Samfylkingarinnar og óháðra í Reykjanesbæ 2018 hefur
verið samþykktur. Friðjón Einarsson skipar efsta sæti listans og Guðný
Birna Guðmundsdóttir er í 2. sæti. Þau eru bæði núverandi bæjarfull-
trúar listans.
Framboðslisti Samfylkingarinnar og óháðra í Reykjanesbæ fyrir
bæjarstjórnarkosningarnar 26. maí 2018 er eftirfarandi:
1. Friðjón Einarsson, bæjarfulltrúi
2. Guðný Birna Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi
3. Styrmir Gauti Fjeldsted, B.Sc í rekstrarverkfræði
4. Eydís Hentze Pétursdóttir, meistaranemi í heilbrigðisvísindum
5. Guðrún Ösp Theodórsdóttir, hjúkrunarfræðingur
6. Sigurrós Antonsdóttir, hársnyrtimeistari og sjálfstæður atvinnurekandi
7. Jón Haukur Hafsteinsson, forstöðumaður sérdeildar Háaleitisskóla
8. Jóhanna Björk Sigurbjörnsdóttir, verkefnastjóri og nemi
9. Elfa Hrund Guttormsdóttir, félagsráðgjafi
10. Valur Ármann Gunnarsson, leigubifreiðastjóri
11. Íris Ósk Ólafsdóttir, rekstrahagfræðingur
12. Sindri Stefánsson, hjúkrunarfræðinemi
13. Hulda Björk Stefánsdóttir, leikskólastjóri
14. Simon Cramer Larsen, framhaldsskólakennari
15. Hjörtur Magnús Guðbjartsson, sérfræðingur
16. Jurgita Milleriene, grunnskólakennari
17. Þórdís Elín Kristinsdóttir, félagsráðgjafi
18. Bjarni Stefánsson, málarameistari
19. Kristjana E. Guðlaugsdóttir, viðskiptafræðingur
20. Vilhjálmur Skarphéðinsson, eldri borgari
21. Hrafnhildur Gunnarsdóttir, eldri borgari
22. Ingvar Hallgrímsson, rafvirkjameistari
Ellefu karlar og ellefu konur skipa framboðslista Framsóknar í Reykjanesbæ
sem samþykktur var á félagsfundi í gærkvöldi. Jóhann Friðrik Friðriksson
leiðir listann en Díana Hilmarsdóttir skipar annað sæti. Halldóra Fríða Þor-
valdsdóttir er í þriðja sæti.
Listi Framsóknarflokksins í Reykjanesbæ fyrir bæjarstjórnarkosningarnar
26. maí 2018 er eftirfarandi:
1. Jóhann Friðrik Friðriksson, lýðheilsufræðingur
2. Díana Hilmarsdóttir, forstöðumaður Bjargarinnar
3. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, kennsluráðgjafi
4. Trausti Arngrímsson, viðskiptafræðingur
5. Bjarni Páll Tryggvason, flugumferðarstjóri
6. Eva Stefánsdóttir, viðskiptafræðingur
7. Sigurður Guðjónsson, löggiltur bifreiðasali
8. Halldór Ármannsson, útgerðarmaður
9. Magnea Herborg Björnsdóttir, leikskólakennari
10. Jóhanna María Kristinsdóttir, söngkona
11. Andri Fannar Freysson, tölvunarfræðingur
12. Aðalheiður Halldórsdóttir, grunnskólakennari
13. Guðmundur Stefán Gunnarsson, ráðgjafi á velferðarsviði og júdókappi
14. Drífa Sigfúsdóttir, fyrrv. forseti bæjarstjórnar
15. Róbert Jóhann Guðmundsson, málarameistari
16. Andrea Ásgrímsdóttir, PGA golfkennari
17. Hólmfríður Guðmundsdóttir, hússtjórnarkennari
18. Freyr Sverrisson, knattspyrnuþjálfari
19. Ólafía Guðrún Lóa Bragadóttir, tollvörður
20. Oddný Mattadóttir, húsmóðir
21. Ingvi Þór Hákonarson, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður
22. Kristinn Þór Jakobsson, bæjarfulltrúi og viðskiptafræðingur
Á fundi Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ á mánudags-
kvöld var tillaga uppstillingarnefndar að framboðslista fyrir bæjar-
stjórnarkosningar í Reykjanesbæ 26. maí 2018 samþykkt samhljóða.
1. Margrét Sanders, ráðgjafi
2. Baldur Þ. Guðmundsson, viðskiptafræðingur
3. Anna S. Jóhannesdóttir, rekstrar- og mannauðsstjóri
4. Ríkharður Ibsen, framkvæmdastjóri
5. Andri Örn Víðisson, kerfisfræðingur
6. Hanna Björg Konráðsdóttir, lögfræðingur
7. Ísak Ernir Kristinsson, háskólanemi
8. Þuríður B. Ægisdóttir, stjórnmálafræðingur
9. Sigrún Inga Ævarsdóttir, verkefnastjóri
10. Brynjar F. Garðarsson, háskólanemi
11. Jónína Birgisdóttir, ljósmóðir
12. Kristján Rafn Guðnason, yfirverkstjóri
13. Barbara Marí aSawka, sjúkraliði
14. Sigurður Mar Stefánsson, bókari
15. Anna Steinunn Jónasdóttir, stjórnmálafræðingur
16. Grétar Guðlaugsson, verkefnastjóri/byggingafr.
17. Birgitta Rún Birgisdóttir, flugfreyja
18. Páll Orri Pálsson, framhaldsskólanemi
19. Karólína Júlíusdóttir, viðskiptamenntun
20. Albert Albertsson, hugmyndasmiður
21. Böðvar Jónsson, viðskiptafræðingur
22. Árni Sigfússon, bæjarfulltrúi
„Mikil stemmning ríkir í herbúðum sjálfstæðismanna sem ganga fylktu
liði til komandi kosninga með nýjan oddvita listans, Margréti Sanders í
fararbroddi,“ segir jafnframt í tilkynningunni.
Markaðsstofa Reykjaness og Reykja-
nes UNESCO Global Geopark hafa
að undanförnu staðið fyrir opnum
fundum um ferðamál á Reykjanesi í
samstarfi við sveitarfélögin á Suður-
nesjum.
Á fundinum hefur starfsemi Markaðs-
stofu Reykjaness, Reykjanes UNESCO
Global Geopark verið kynnt sem og
stefna sveitarfélaganna í ferðamálum.
Góð mæting hefur verið á fundina
í öllum sveitarfélögum og fjörugar
umræður en aukning ferðamanna
og gistinátta hefur verið hvað mest á
Suðurnesjum að undanförnu.
Að sögn Eggerts Sólbergs Jóns-
sonar verkefnastjóra Reykjanes
UNESCO Global Geopark var mark-
mið fundanna að ræða stöðu ferða-
þjónustunnar á Reykjanesi sem og
að skoða þau verkefni sem eru fram-
undan í þessari vaxandi atvinnugrein.
Það hefur margt áunnist á síðustu
árum, m.a. hvað varðar ábyrga mark-
aðssetningu, skipulagningu innra
starfs og uppbyggingu innviða. Það
er horft til okkar og áfangastaðurinn
Reykjanes hefur fengið viðurkenn-
ingar sem eftir hefur verið tekið. Það
er þó ekki þar með sagt að starfinu
sé lokið. Við þurfum að halda áfram
á þessari braut og vinna í átt að sjálf-
bærara samfélagi. Það skiptir miklu
máli að ferðaþjónustan byggi sína
tilveru á sátt við samfélagið og það
er von okkar að þessir fundir ýti
undir það.
Ólafur Þór Ólafsson, forseti bæjar-
stjórnar Sandgerðis, segist í færslu
á fésbókinni tilbúinn til þess að
leiða nýjan framboðslista um fé-
lagshyggju og lýðræði í sameinuðu
sveitarfélagi Garðs og Sandgerðis.
„Það eru spennandi tímar framundan
hjá Sandgerðingum og Garðmönnum
og það verður í mörg horn að líta á
komandi árum. Ég er reiðubúinn til að
taka sæti á nýjum framboðslista í nýju
sveitarfélagi og er tilbúinn til þess að
leiða hann í komandi kosningum.
Ég hef það lánsamur að leiða bæjar-
stjórn Sandgerðisbæjar síðustu átta
árin, á tíma sem hefur verið krefjandi,
stundum erfiður en líka ánægju-
legur því við höfum séð árangur af
vinnunni. Ég hef reynt að láta skyn-
semi og samtal ráða ferðinni og ég
tel að þannig pólitík sé líklegust til að
skila árangri fyrir nýtt sveitarfélag.
Með það að leiðarljósi gef ég kost á
mér til starfa á komandi kjörtíma-
bili um leið og ég vona að reynsla
mín og þekking geti orðið að gagni í
nýrri bæjarstjórn,“ segir Ólafur Þór
í færslunni.
Hann hvetur fólk sem hefur áhuga á
því að koma með í þetta skemmtilega
ferðalag að gefa kost á sér til starfa.
Friðjón skipar efsta sæti
xS í Reykjanesbæ
Jóhann Friðrik leiðir
Framsókn í Reykjanesbæ
Margrét Sanders leiðir
xD í Reykjanesbæ
Margt áunnist í ferðaþjón-
ustunni á Suðurnesjum
ÓLAFUR ÞÓR VILL LEIÐA NÝTT
FRAMBOÐ Í GARÐI OG SANDGERÐI
Tjaldstæðið í Grindavík hefur hlotið
gæðaviðurkenningu Trip Advisor
fyrir árið 2017, eða „Certificate of
excellence.“ Þessa viðurkenningu
geta aðilar á TripAdvisor fengið sem
fá ítrekað góða dóma frá gestum og
halda stöðugt uppi góðri þjónustu.
Tjaldsvæði Grindavíkur hefur hlotið
mjög góða dóma frá gestum og er
með 4,5 stjörnur af 5 mögulegum á
TripAdvisor, 4,5 á Google Maps og
fullt hús stiga, 5 stjörnur, á Facebook.
Það er því nokkuð ljóst að gestum
líkar vel við tjaldsvæðið Grindavíkur-
bæjar og endurspeglar mikil fjölgun
gesta og gistinátta frá ári til árs þessa
stjörnugjöf.
REYKJANES
HLÝTUR ALÞJÓÐ-
LEGA TILNEFNINGU
Reykjanesið hefur verið tilnefnt til
verðlauna í flokknum Earth Award,
Best of Top 100 Destination showing
global leadership in combatting
climate cange and environmental
degradation.
Tilkynnt verður um verðlaunahafa
í Berlín 7. mars og verður fulltrúi
Reykjaness á staðnum.
Góðar sögur
af Reykjnesi
tilnefndar
til verðlauna
Ímyndarátakið Reykjanes – við
höfum góða sögu að segja hefur
verið tilnefnt til Árunnar sem
eru árangursverðlaun ÍMARK,
íslensks markaðsfólks en þeim
er ætlað að beina sjónum að her-
ferðum sem skilað hafa framúr-
skarandi árangri.
Góðar sögur er samstarfsverk-
efnið sveitarfélaga á Suðurnesjum
og fyrirtækja en það er leitt af
Heklunni, atvinnuþróunarfélagi
Suðurnesja. Framkvæmd er í
höndum HN - Markaðssamskipta.
TJALDSVÆÐI
GRINDAVÍKUR-
BÆJAR HLÝTUR
GÆÐAVIÐURKENN-
INGU TRIPADVISOR
Ráðning skóla-
stjóra Gerða-
skóla kynnt á
miðvikudag
Alls sóttu sex umsækjendur um
auglýsta stöðu skólastjóra Gerða-
skóla í Garði. Jóhann Geirdal, sem
nú gegnir stöðunni, sagði upp starfi
sínu á dögunum frá og með næsta
skólaári.
Tillaga um ráðningu skólastjóra
verður lögð fyrir fund bæjarstjórnar
Sveitarfélagsins Garðs nk miðvikudag,
þann 7. mars.
AUGLÝSINGASÍMINN ER
421 0001