Víkurfréttir - 08.03.2018, Qupperneq 10
10 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 8. mars 2018 // 10. tbl. // 39. árg.
Æfingar eru að hefjast hjá Leikfélagi Keflavíkur á söngleiknum Mystery boy
eftir tónlistarmanninn Smára Guðmundsson sem er að hluta byggður á edrú-
mennsku hans eftir meðferð þegar kvíðinn var farinn að taka völdin.
Við hittum Smára á fyrsta samlestri í liðinni viku þar sem verkefnið var kynnt
og fengum að vita meira um Mystery boy.
„Þetta er sett upp sem kómísk ástar-
saga um ungt fólk sem í leit sinni
af sannleikanum og ástinni lendir
í furðulegu ferðalagi og óvæntum
ævintýrum. En þrátt fyrir að við-
fangsefnið sé alvarlegt er mikilvægt
að koma auga á spaugilegu hliðarnar
og hafa gaman.”
LÍFIÐ AUÐVELDARA EDRÚ
Að sögn Smára er lífið auðveldara
edrú: „Sveiflunar eru minni og ég er
miklu stöðugri, glaðari og hamingju-
samari. Kvíðinn sem fylgdi drykkjunni
er horfinn og það er ólýsanlega góð til-
finning, kvíðinn er nefnilega lúmskur
djöfull. Kvíði er eðlileg tilfinning en
samfélagið okkar er að breytast svo
hratt að stundum týnumst við bara í
þessum hraða og látum. Líkaminn veit
ekki hvernig hann á að bregðast við
öllu áreitinu og fer á yfirsnúning, fyll-
ist af kvíða og ótta. Í edrúmennskunni
er auðveldara að tækla þessa hluti og
fjallar söngleikurinn lauslega um það
og mína dvöl á meðferðarheimilum.
Þar var ég að berjast við þessar til-
finningar ásamt alkahólismanum.”
VIÐ VÍBRUM ÖLL
Smári er enginn nýgræðingur í tón-
list en hann er þekktur sem einn af
systkinunum í Klassart. Þá hefur
hann leikið með hljómsveitum eins og
Tommygun Preachers, Lifun, Flugan,
Sjálfumglöðu Riddararnir, Grammið,
Farandskuggar og fleirum.
Aðspurður segist hann ekki geta út-
skýrt þennan tónlistaráhuga þeirra
en mikil tónlist hafi verið á heimilinu.
„Uppeldið hlýtur að eiga stóran þátt í
því. Það var til fullt af plötum heima
sem hægt var að grúska í og við nýttum
okkur það. Við víbrum öll og það sem
víbrar gefur frá sér hljóð þannig að
í grunninn erum við öll tónlist. Við
systkinin vorum kannski heppin að
kynnast þessum víbring snemma,“ segir
Smári leyndardómsfullur.
Hugmyndin að söngleiknum kviknaði
stuttu eftir að Smári kom úr meðferð
frá Staðarfelli á Fellsströnd í Dölunum
í desember 2016.
ÆTLAÐI AÐ SKILJA VIÐ MYSTERY BOY
„Upprunalega var hugmyndin að vera
með kveðjutónleika fyrir Mystery Boy
sem hefur verið mitt hliðarsjálf lengi.
Hann fæddist fyrir 18 árum og hefur
fylgt mér í gegnum súrt og sætt. Ég
var að byrja nýjan kafla í mínu lífi eftir
meðferð og ætlaði að skilja við Mys-
tery Boy. Í ferlinu komst ég að því að
Mystery Boy verður alltaf hluti af mér
og ég þarf að hjálpa honum frekar
en að gleyma honum. Þá kviknaði sú
hugmynd að gera þetta að söngleik.”
Smári hefur lært upptökustjórn en
hafði ekki mikla reynslu af söng-
leikjum þegar hugmyndin kviknaði
en áhuginn jókst eftir því verkinu
miðaði áfram.
„Ég fór af stað í þetta verkefni með
litla sem enga vitneskju í farteskinu
nema þá reynslu sem ég hef úr tón-
listinni. Því lengra sem ég fór inn í
verkið fór áhuginn minn fyrir söng-
leikjum og handritagerð að aukast.
Ég fór að hafa þráhyggju fyrir þeim
sem ég tel vera af hinu góða því ef
á að gera hluti vel þarf að fá kafa
djúpt í viðfangsefnið. Ég sökkti mér
í allar bækur um söngleiki og hand-
ritagerð sem ég komst yfir og sótti
einnig námskeið. Við erum búin að
ráða til okkar hann Stefán Örn Gunn-
laugsson (Íkorni) sem sérlegan tón-
listarráðgjafa en hann hefur m.a.
sett upp söngleik á Broadway. Með
honum kemur inn gífurleg reynsla
og erum við afar þakklát að fá hann
inn í verkefnið. Auk Stefáns nýt ég
krafta Ástþórs Sindra Baldurssonar
við að setja upp tónlistina með mér.
Fleiri hafa komið nálægt tónlistinni
og má þar nefna Björgvin Ívar bróðir
Ástþórs og stórfrænda þeirra Gunnar
Skjöld. Fríða systir er svo að aðstoða
við söngtextana. Þarna er saman
komið stórskotalið af geggjuðu fólki”,
segir Smári og hlær.
ÞAÐ ER HÆGT AÐ KOMAST LANGT
Á ELDMÓÐNUM
Leikfélagið tók strax vel í hugmyndina
þótt hún hafi ekki verið fullmótuð
þegar Smári hitti þau fyrst.
„Þau hvöttu mig til að halda áfram
sem gaf mér aukinn styrk og kraft
til að klára verkið og er ég þeim mjög
þakklátur fyrir það. Ætli þau hafi ekki
séð eldmóðinn í mér, það er oft hægt
að komast langt á honum einum og
sér. Aðstaðan sem Leikfélagið hefur
sett upp hér í Keflavík er frábær og
er haldið vel utan um allt. Ég mjög
heppinn að hafa fengið þau með mér
í þetta verkefni.“
Leikfélagið hefur ráðið Jóel Sæmunds-
son til að leikstýra söngleiknum en
æfingar munu hefjast á næstunni
þegar valið hefur verið í hlutverk en
stefnt er að því að frumsýna í apríl.
En hverju mega áhorfendur eiga von á?
Þetta verkefni gefur mér mikinn
styrk, styrk til að halda áfram á edrú-
brautinni og gefa gott fordæmi þar.
Mér líður vel núna og mig langar að
smita þeirri gleði í hjarta áhorfandans
og það er megintilgangurinn með
söngleiknum. Áhorfandinn má eiga
von á miklu stuði, eilítilli dulúð og
mörgum furðulegum fígúrum. Svo
er tónlistin öll samin á gömlum
skemmtara sem gefur söngleiknum
sérstakan og skemmtilegan hljóm.
Skrifaði
söngleik í
edrúmennsku
Mystery boy verður alltaf hluti af mér
Dagný Maggýjar
dagny@vf.is
VIÐTAL
Í edrúmennskunni er
auðveldara að tækla
þessa hluti og fjallar
söngleikurinn lauslega
um það og mína dvöl
á meðferðarheimilum.
Þar var ég að berjast
við þessar tilfinningar
ásamt alkahólismanum.