Víkurfréttir - 08.03.2018, Blaðsíða 17
SAFNAHELGI Á SUÐURNESJUM DAGANA 10.–11. MARS ÓKEYPIS Á ÖLL SÖFN
www.safnahelgi.is
Reykjanesbær
Rokksafn Íslands
Hvar: Hljómahöll, Hjallavegi 2, Ytri-Njarðvík.
Opið: Laugardag og sunnudag kl. 11:00–18:00.
rokksafn.is
Rokksafn Íslands er safn um sögu popp- og rokktónlistar á
Íslandi. Þar er saga tónlistar á Íslandi sögð allt frá árinu 1830
til dagsins í dag. Á safninu er að finna tvær sérsýningar um
íslenska tónlistarmenn, önnur um Pál Óskar Hjálmtýsson og
hin um Björgvin Halldórsson.
Bókasafn Reykjanesbæjar
Hvar: Ráðhúsinu, Tjarnargötu 12, Keflavík
Opið: Laugardag 11:00–17:00
sofn.reykjanesbaer.is
Teiknimyndasögusýning Lóu Hlínar eða Lóaboratoríum.
Sýningin verður í unglinga- og teiknimyndasöguhorni safnsins.
Skessan í hellinum
Hvar: Svarti hellir við smábátahöfnina í Gróf, Keflavík.
Opið: laugardag og sunnudag kl. 10:00–17:00.
skessan.is
Skessan úr bókunum Sigga og Skessan, er flutt til Reykjanes-
bæjar og hefur komið sér fyrir í Svarta helli í Gróf í Keflavík.
Hún býður gestum og gangandi að heimsækja sig í hellinn.
Viðburður: 10. og 11.mars kl. 12.00–17.00. Börn geta komið
við í Duus Safnahúsum og fengið skessublöðru og þrauta-
bækling.
Slökkviliðssafn Íslands
Hvar: Safnamiðstöðin
Rammi, Seylubraut 1,
Innri-Njarðvík .
Opið: Laugardag og
sunnudag 13:00–17:00.
Sýning þar sem aldar-
löng saga slökkviliða á
Íslandi er rakin eins og
hún birtist í bílum og tækjabúnaði auk fjölda ljósmynda frá
þessari sögu. Sýningin var sett upp og er rekin af slökkvi-
liðsmönnum í sjálfboðastarfi. Nú fer hver að verða síðastur
til að sjá þessa sýningu því hún verður bráðlega tekin niður.
Orkuverið jörð, Reykjanesvirkjun
Opið: Sunnudag kl. 12:30–16:30.
powerplantearth.is
Sýningin rekur sögu orkunnar á myndrænan hátt allt frá
Miklahvelli að virkjun jarðhita á Íslandi.
Handverk, vinnustofur:
Gallerí Svarta pakkhúsið
Hvar: Hafnargötu 2, Keflavík.
Opið: Laugardag og sunnudag 13:00–17:00.
Alls kyns handverk og listmunir eftir íbúa á svæðinu á góðu
verði Gler, leir, prjón, fatnaður, skrautmunir, skartgripir o.fl.
Sandgerði
Sýning í Sandgerði -
Frá hafi til hafnar
Hvar: Miðhúsum.
Opið: Laugardagur og sunnudagur kl.
13:00–16:00
Skipslíkön, myndir og minnigabrot frá
ævi sjómannsins.
Jónatan Jóhann Stefánsson vélstjóri opnar
heimili sitt í Miðhúsum í Sandgerði.
Margir merkilegi munir eru þar til sýnis
frá ævi Jónatans.
Sýningin er opin laugardaginn 10. mars
og sunnudaginn 11. mars milli kl. 13:00
og 16:00.
Þekkingarsetur Suðurnesja
Sýningar opnar laugardaginn 10. mars og sunnudaginn 11.
mars frá kl. 13:00 til 17:00.
Náttúrusýning
Náttúrugripasýningu með yfir 70 uppstoppuðum dýrum. Þar
má einnig sjá ýmis lifandi sjávardýr og jafnvel koma við þau.
Sýningin Heimskautin heilla
Sýningin er um franska heimskautafarann Jean-Baptiste
Charcot, einn merkasta landkönnuð síðustu aldar en hann
fórst með skipi sínu Pourquoi-pas? og áhöfn við Mýrar 1936.
Lista- og fræðslusýningin
Huldir heimar hafsins – Ljós þangálfanna
Lista- og fræðslusýning. Sýningin er tileinkuð minningu Guð-
mundar Páls Ólafssonar, rithöfundar og náttúrufræðings, sem
skrifað hefur einstakar bókmenntaperlur um náttúru Ísland.
Vogar
Ljósmyndasýning
í íþróttamiðstöð
Hvar: Sundlaugin Vogum, Hafn-
argata 17.
Opið: Laugardagur kl. 13:00–
15:00.
Myndir af mannlífi og náttúru
í Vogum fyrr og nú.
Kálfatjörn Vatnsleysuströnd
Kálfatjarnarkirkja
Opið: Sunnudagur kl. 13:00–15:30.
Málþing um séra Stefán Thorarensen, sveitarhöfðingja, prest,
sálmaskáld og menntafrömuð á 19. öld í Kálfatjarnarkirkju
og safnaðarheimili.
Norðurkot
Opið: Sunnudagur kl. 12:00–13:00 og 15:30–16:30
Kálfatjörn Vatnsleysuströnd
Opið í Norðurkotsskóla, sem starfaði 1903–1910 í tengslum
við skólann sem Stefán stofnaði og Minja- og sögufélag Vatns-
leysustrandar hefur endurbyggt á Kálfatjörn sem skólasafn.