Víkurfréttir - 08.03.2018, Síða 26
26 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 8. mars 2018 // 10. tbl. // 39. árg.
Gríðarlega vel sóttir foreldramorgnar
í Bókasafni Reykjanesbæjar
Foreldramorgnar eru vikulegir viðburðir sem starfsfólk Bókasafn Reykjanesbæjar býður upp á og hafa gert
síðustu þrjú ár. Á hverjum fimmtudegi kl. 11 mæta foreldrar í fræðslu eða spjall, fá sér kaffi saman og ræða um
áskoranir barnauppeldis. Anna Margrét Ólafsdóttir verkefnastýra hjá Bókasafni Reykjanesbæjar fékk hugmyndina
um Foreldramorgna þegar hún hafði nýlega hafið störf á bókasafninu en hún hafði fylgst með samskonar við-
burðum á bókasöfnum annars staðar á landinu. „Þetta er verkefni sem bókasöfn annars staðar á landinu eru
með og við erum dugleg að miðla hugmyndum á milli okkar. Við vildum prófa þetta hérna, en þetta hefur ekki
verið með þessu sniði áður í Bókasafninu.“
Verkefnið hefur gengið vonum framar
en það var hugsað út frá þörfum for-
eldra í fæðingarorlofi, þó að vissu-
lega séu allir foreldrar velkomnir.
Boðið er upp á fræðslu annan hvern
fimmtudag en hinn fimmtudaginn
er samvera, kaffi í boði og tilboð á
veitingum á Ráðhúskaffi. „Við bjóðum
upp á fræðslu en líka samveru þannig
að foreldrar geti komið og myndað
tengslanet. Það er margt nýtt fólk að
flytja í bæinn og þá er mikilvægt að
geta myndað tengsl og sérstaklega
fólk í fæðingarorlofi, það hættir til að
einangrast. Þá er mikilvægt að geta
miðlað alls konar fræðslu, eitthvað
tengist bókum en ekki allt. Þátttaka
í svona viðburðum skiptir máli upp á
menningarlegt og samfélagslegt læsi
sem er eitthvað sem bókasafnið leggur
mikla áherslu á,“ segir Anna Margrét.
Flestir fræðsluviðburðirnir eru vel
sóttir af foreldrum enda fjölbreytt
dagskrá í boði allt árið. Fræðslan
miðar að því að ná utan um öll þau
krefjandi verkefni sem foreldrar
takast á við á fyrsta aldursári barns.
Ebba Guðný Guðmundsdóttir heilsu-
kokkur hefur verið með kynningu á
matargerð fyrir börn sem eru að byrja
borða, Rauði Krossinn var nýlega
með skyndihjálparnámskeið miðað að
ungabörnum og Kristín Maríella, sem
er einn vinsælasti snappari landsins
sem fjallar um barnauppeldi, kynnti
RIE-uppeldisnálgunina fyrr í vetur.
Að auki hefur verið kynning á ung-
barnanuddi, taubleyjum, smekkjum
og krakkajóga.
Anna Margrét segir mikilvægt að
Bókasafnið byrji snemma að kynna
starfsemi safnsins fyrir fólki. „Við
erum að kynnast mörgum börnum og
foreldrum sem síðan koma til okkar
næstu árin. Þau kynnast bókasafninu
strax mjög ung, með foreldrum sínum
á foreldramorgnum og svo eldast þau
með safninu. Við höldum áfram að
þekkja þau og fá þau í heimsókn en
hér eru líka viðburðir á öðrum tímum
fyrir börn á öllum aldri.“
Bókasafn Reykjanesbæjar er 60 ára
í dag, 7. mars, og er þar með orðin
ein elsta, opinbera stofnun bæjarins.
Bókasafnið mun bjóða upp á ýmsa
viðburði á afmælisárinu en í dag, mið-
vikudag, verður afmælisveisla frá
kl. 15 til 18 þar sem öllum bæjarbúum
er boðið að koma og fá sér köku og
kaffi. Annað á dagskránni á afmæl-
isárinu er að opna sýningu um sögu
safnsins og svo verður opnuð sýning
í teiknimyndasögudeildinni þar sem
Lóa Hlín Hjálmarsdóttir sýnir verk sín
ásamt því að halda námskeið 17. mars
um teiknimyndasögugerð. Þangað
eru allir velkomnir og engin þörf á
því að kunna að teikna eða vera með
góða kímnigáfu. Aðrir fastir viðburðir
halda áfram út árið en Bókasafnið
tekur á móti leikskólum bæjarins í
hverri viku í sögustund og einnig hitt-
ast konur sem eru hættar að vinna og
prjóna föt fyrir leikskólana til að eiga.
Notaleg sögustund með Höllu Karen
á laugardögum er mjög vinsæll við-
burður og svo er Bókabíó einu sinni
í mánuði, Leshringur, Heilakúnstir
sem er heimanámsaðstoð fyrir börn,
Sumarlestur í sumar, Hugleiðslu-
hádegi alla mánudaga, Heimskonur
og Erlingskvöld.
Hlutverk bókasafna er að þróast og
hefur breyst mikið á undanförnum
árum. Það er ekki lengur þannig að
þú labbar inn og það á að vera algjör
þögn og má ekkert segja. „Bókasafn
Reykjanesbæjar er lifandi bókasafn,
hér er að auki kaffihús og þjónustu-
miðstöð bæjarins. Það er samt líka
hægt að fá ró og næði sem margir
vilja en margir námsmenn nýta lær-
dómsaðstöðuna á neðri hæð hússins.
Okkar hugmynd er að við viljum vera
þriðji staðurinn í lífi fólks, einhvers
konar heimili utan veggja heimilisins.
Fólk er heima hjá sér, í vinnu eða skóla
og svo á Bókasafnið að gegna hlut-
verki þriðja staðarins sem fólk hefur í
lífinu. Sú stefna er rekin víðast hvar á
Norðurlöndunum. Bókasafn á að vera
samkomustaður og menningarmið-
stöð enda er okkar hlutverk að efla
samfélagslegt og menningarlegt læsi,
læsi þarf ekki endilega að þýða lestur
á bók,“ segir Anna Margrét að lokum.
Hlutverk bókasafna er
að þróast og hefur breyst
mikið á undanförnum
árum. Það er ekki lengur
þannig að þú labbar inn
og það á að vera algjör
þögn og má ekkert segja.
Bókasafn Reykjanesbæjar
er lifandi bókasafn, hér er
að auki kaffihús og þjón-
ustumiðstöð bæjarins.
Lóa Hlín verður með námskeið í
teiknimyndasögugerð í Bókasafninu.
Notaleg sögustund með Höllu Karen
er vinsæl hjá yngstu gestunum.
Störf í boði
hjá Reykjanesbæ
Duus Safnahús– Safnvörður í hlutastarf
Velferðarsvið – Störf í heimaþjónustu
Holtaskóli – Skólastjóri
Málefni fatlaðs fólks – Sumarstörf í Einidal
Leikskólinn Hjallatún – Aðstoðarmatráður
Málefni fatlaðs fólks – Störf í sumardagvistun
Hæfingarstöðin – Sumarstörf
Málefni fatlaðs fólks – Umönnunarstörf á heimilum
Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt
gegnum vef Reykjanesbæjar undir Stjórnsýsla:
Laus störf. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um
auglýst störf og á facebook síðunni Reykjanesbær –
laus störf.
Viðburðir
í Reykjanesbæ
Bókasafn Reykjanesbæjar - afmæli og Gamandrama
Öllum bæjarbúum er boðið í 60 ára afmæli safnsins
7. mars kl. 15-18. Þann 8. mars opnar Lóuboratoríum
Lóu Hlínar kl. 17. Allir hjartanlega velkomir.
Tónleikar lengra kominna nemenda
Verða haldnir í Bergi Hljómahöll 7. mars kl. 19:30.
Fjölbreytt og spennandi efnisskrá. Allir velkomnir.
Safnahelgi á Suðurnesjum 10. - 11. mars
Sjá dagskrárliði á vefnum safnahelgi.is
Hljómahöll - Viðburðir framundan
15. mars - KK á trúnó. Örfáir miðar eftir.
Miðasala á hljomaholl.is
Gjafakort til sölu í móttöku Hljómahallar. Tilvalin gjöf!