Fréttablaðið - 16.04.2018, Side 7

Fréttablaðið - 16.04.2018, Side 7
GÓÐUR VINNUFÉLAGI Volkswagen Caddy www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ Einn vinsælasti atvinnubíll á Íslandi er Volkswagen Caddy. Hann er áreiðanlegur, öruggur og fæst í tveimur lengdum - hefðbundinni lengd og lengri gerð (Maxi). Caddy má fá með fjórhjóladrifi sem eykur enn við öryggi og aksturseiginleika bílsins. Fjórhjóladrifinn Caddy hentar einstaklega vel við íslenskar aðstæður og eykur til muna notkunarmöguleika Caddy, hvort heldur er í snjó, hálku eða erfiðu færi. Volkswagen Caddy kostar frá 2.590.000 kr. (2.072.000 kr. án vsk)EIGUM NOK KRA 4x4 TIL AFHEND INGAR STRAX FÆST FJÓRHJÓLADRIFINN Við látum framtíðina rætast. Opinn fundur Niðurstöður eftirlits og umhverfisvökt- unar á Grundartanga. Umhverfisstofnun boðar til opins kynningarfundar um niðurstöður eftir­ lits og umhverfisvöktunar á Grundartanga þriðjudaginn 17. apríl að hótel Glym, Hvalfjarðarsveit klukkan 15:30. Í starfsleyfum tiltekinna stærri fyrirtækja er kveðið á um að boða skuli til opins kynningarfundar um umhverfisvöktun og losun af völdum starfsem­ innar. Dagskrá fundarins » Björgvin Helgason fundarstjóri setur fundinn. » Guðbjörg Stella Árnadóttir frá Umhverfisstofnun kynnir eftirlit Umhverfisstofnunar. » Halla Einarsdóttir frá Umhverfisstofnun kynnir niðurstöður eftirlits og mælinga á losun iðjuveranna 2017. » Eva Yngvadóttir frá Eflu verkfræðistofu fjallar um niðurstöður um­ hverfisvöktunarinnar. » Steinunn Dögg Steinsen frá Norðuráli flytur erindi. » Sigurjón Svavarsson frá Elkem Ísland flytur erindi. » Umræður að loknum framsögum. BANDARÍKIN Óhætt er að segja að spennustigið sé hátt í bandarískum stjórnmálum þessa dagana, en þess er nú beðið með ofvæni að bók James Comey, fyrrverandi forstjóra bandarísku alríkislögreglunnar FBI, komi í bókahillurnar á morgun. Bókin, A Higher L oy a l t y, byg g i r á s a m s k i p t u m Comeys og Trumps. Bandaríkjaforseti hefur undanfarna daga farið mikinn á Twitter og ausið f ú k y r ð u m y f i r Comey. Líklega hefur sitjandi for­ seti í Bandaríkj­ unum aldrei geng­ ið svo hart gegn einstaklingum á opinberum vett­ vangi. Eins og frægt er orðið ákvað Trump að reka Comey vegna rannsóknar alríkislögreglunnar á afskiptum rússneskra yfirvalda af bandarísku forsetakosningunum. Á meðal þess sem Comey greinir frá í bók sinni er þráhyggja Trumps gagnvart óstaðfestum heimildum alríkislögreglunnar um að Trump hafi verið myndaður af rússneskum yfirvöldum er hann hitti vændis­ konur í Moskvu. Í bókinni líkir Comey forsetatíð Trumps við skógareld og segir marg­ oft að Trump hagi sér í raun eins og mafíósi sem sé sífellt að óska eftir hollustu frá starfsmönnum sínum. Á fundi Comeys og Trumps í Hvíta húsinu, stuttu áður en Comey var rekinn, óskaði Trump eftir því að Comey lýsti yfir hollustu við sig. Bók Comeys hefur þegar slegið í gegn og hefur útgefandinn, Flatiron Books, lýst því yfir að fyrsta upplag hennar verði 850 þúsund ein­ tök. Comey fór í sitt fyrsta sjónvarpsvið­ tal eftir uppsögnina á sjónvarpsstöðinni ABC í gær. Þar var hann spurður út í viðbrögð Trumps við rannsókn­ inni á hlut Rússlands í forsetakosningunum. For­ setinn hefur ávallt þvertekið fyrir að hafa þegið stuðning frá yfirvöldum í Moskvu. „Mögulega er þetta bara þver­ móðska,“ sagði Comey. „En mögu­ lega var þetta eitthvað flóknara sem útskýrir tvírætt orðalag um Pútín og sífelldar afsakanir í hans garð.“ Repúblikanaflokkurinn hefur staðið fyrir heiftarlegum áróðri gegn Comey á síðustu vikum. Hann er sagður hafa spillt rannsókninni á tölvupóstþjóni Hillary Clinton og lekið trúnaðarupplýsingum. „Forsetinn er siðlaus og blindur gagnvart sannleikanum og stofn­ analegum gildum,“ ritar Comey í bók sinni. „Forysta hans byggir fyrst og fremst á hans eigin sjálfsmynd og hollustu annarra.“ kjartanh@frettabladid.is Trump trylltur vegna bókar James Comey Bók fyrrverandi forstjóra bandarísku alríkislögregl- unnar, FBI, kemur út á morgun. Bandaríkjaforseti og Repúblikanaflokkurinn hafa staðið í umfangsmikilli ófrægingarherferð gegn forstjóranum fyrrverandi. Bók Comeys kemur út á morgun. James Comey, fyrrverandi for­ stjóri FBI BANDARÍKIN Stjórnendur Facebook segja að fyrirtækið hafi á síðustu árum greidd 20 milljónir Bandaríkja­ dala, sem nemur tæplega tveimur milljörðum íslenskra króna, í örygg­ isgæslu fyrir forstjórann og stofnand­ ann Mark Zuckerberg. Gripið var til þessara ráðstafana vegna hótana í garð Zuckerbergs. Þá greiddi Facebook fyrir öryggiskerfi á heimili hans í Kaliforníu og lífvörð sem fylgir hinum 33 ára gamla millj­ arðamæringi hvert skref. „Við þurfum að haga öryggismál­ um okkar með þessum hætti vegna þess mikilvæga hlutverks sem hr. Zuckerberg gegnir hjá Facebook,“ sagði í yfirlýsingu Facebook til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Þar segir einnig að árslaun Zucker­ bergs séu enn einn Bandaríkjadalur, 98 krónur. Auðæfi hans liggja fyrst og fremst í verðbréfaeign í Facebook, en hlutur hans er metinn á um 70 millj­ arða Bandaríkjadala. – khn Tveir milljarðar í öryggisgæslu forstjóra Mark Zuckerberg, stofnandi Face­ book. NORDICPHOTOS/GETTY 98 kr. eru árslaun Marks Zuckerberg hjá Facebook. 1 6 -0 4 -2 0 1 8 0 5 :2 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 7 6 -7 2 4 4 1 F 7 6 -7 1 0 8 1 F 7 6 -6 F C C 1 F 7 6 -6 E 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.