Fréttablaðið - 16.04.2018, Síða 12
Slakir United-menn færðu City enska titilinn
Manchester City svaraði fyrir þrjú töp í röð með öruggum sigri á Tottenham á Wembley um helgina. Eftir tap Manchester United daginn eftir gegn West Brom varð
ljóst að United gæti ekki náð City að stigum og fimmti meistaratitillinn var í höfn. City hefur fimm umferðir til að gera atlögu að marka- og stigameti deildarinnar.
FÓTBOLTI Stuðningsmenn Man
chester City þurftu ekki að lifa við
svekkelsi lengi eftir að hafa tapað
þremur leikjum í röð og fallið úr leik
í Meistaradeildinni í síðustu viku.
Félaginu mistókst að tryggja sér
enska meistaratitilinn á heimavelli
gegn erkifjendunum á dögunum en
það reyndist aðeins töf á því óum
flýjanlega því Citymenn eru meist
arar aðeins viku síðar.
Áttu þeir eflaust von á því að sigur
gegn Swansea um næstu helgi yrði
það sem myndi koma titlinum á
Etihadvöllinn en ekki að United
myndi misstíga sig gegn lélegasta
liði deildarinnar á heimavelli eins
og reyndist í gær.
Sluppu við vafasamt met
Manchester City fékk krefjandi
verkefni upp í hendurnar strax eftir
að hafa dottið út úr Meistaradeild
Evrópu. Eftir að hafa aðeins tapað
tveimur leikjum á átta mánuðum
komu þrír tapleikir í röð. Tveir
þeirra gegn Liverpool og einn gegn
Manchester United.
Andstæðingurinn var Tottenham
sem hafði unnið síðustu tvo heima
leiki gegn City og var það raun
hæfur möguleiki að City myndi
tapa fjórum í röð. Hefði það verið í
fyrsta sinn á ferli Pep Guardiola sem
lið undir hans stjórn tapar fjórum
leikjum í röð.
Allar efasemdir virtust kveðnar
niður snemma leiks, mörk frá
Gabriel Jesus og Ilkay Gundogan
komu City í góða stöðu og fékk
Leikmaður helgarinnar
Wilfried Zaha skoraði tvívegis er Crystal Palace vann 3-2 sigur á erki-
fjendum sínum í Brighton á heimavelli. Með sigrinum skaust Palace upp
í 16. sæti en það sem mikilvægast er að þeir náðu sex stiga forskoti á
Southampton sem er í fallsæti.
Öll mörk leiksins komu í fyrri hálfleik og nýtti Zaha sér sofandahátt í
vörn Brighton til að skora tvívegis. Er hann búinn að skora
sjö mörk í vetur og leggja upp önnur fimm. Hefur hann
komið að þriðjung (12/36) marka Palace í vetur.
Rætt hefur verið um áhuga stærri liða á borð
við Tottenham á Zaha en kantmaðurinn sem kom
upp úr unglingaakedemíu Crystal Palace hugsar sig
eflaust tvisvar um áður en hann yfirgefur uppeldis-
félagið.
Eftir misheppnaða tveggja ára dvöl hjá Man-
chester United sneri Zaha aftur á Selhurst Park
þar sem hann hefur fengið að þroskast og
dafna sem einn af hættulegustu kantmönnum
deildarinnar.
Mikilvægi hans fyrir félagið er ótrúlegt en án
hans hefur félagið ekki unnið leik í tæp tvö ár.
Allt frá sigri á Sunderland í október 2016
hefur Crystal Palace ekki unnið leik sem
hann kemur missir af, tölfræði sem sannar
fullkomlega mikilvægi hans fyrir upp-
eldisfélagið.
Stóru málin
eftir helgina í enska boltanum
Stærstu úrslitin
Nýliðar Huddersfield
skoruðu sigurmark á
91. mínútu gegn Wat-
ford sem gæti hafa
innsiglað sæti liðsins
í úrvalsdeildinni á
næsta ári.
Hvað kom á óvart?
West Brom var svo
gott sem dauða-
dæmt í neðsta
sæti deildarinnar á
leiðinni á Old Traf-
ford. Barðist liðið af
krafti og vann flata United-menn.
Var þetta fyrsti sigur liðsins í þrjá
mánuði og annar sigurinn í deild-
inni á síðustu átta mánuðum.
Mestu vonbrigðin
Dýrlingarnir berjast
fyrir lífi sínu í deild-
inni og komust 2-0
yfir en glutruðu for-
skotinu niður.
Hægt er að tala um
að þeir hafi ekki haft heppnina
með sér þegar dómarinn missti
af kláru rauðu spjaldi á Marcus
Alonso í fyrri hálfleik. Tíminn er
naumur en þeir þurfa að vinna
upp fimm stiga forskot Swansea í
fimm umferðum.
Raheem Sterling enn einn leikinn
fjölda færa til að klára einvígið en
rangar ákvarðanir komu honum í
koll eins og í fyrri leikjunum.
Christian Eriksen minnkaði
muninn en Raheem Sterling bætti
við marki fyrir gestina um mið
bik seinni hálfleiks og gerði út um
leikinn og kom um leið í veg fyrir
að City myndi tapa fjórum leikjum
í röð. Metið stendur því enn hjá
Guardiola sem hefur aldrei tapað
fjórum leikum í röð.
Önnur met í augsýn
Nú er ljóst að Manchester City vinnur
tvöfalt á öðru tímabili Guardiola með
félagið. Enski deildar bikarinn er
Enska úrvalsdeildin
Staðan
Úrslit 34. umferðar 2017-18
Southampton - Chelsea 2-3
1-0 Dusan Tadic (21), 2-0 Jan Bednarek (60.),
2-1 Olivier Giroud (70.), 2-2 Eden Hazard
(75.), 2-3 Olivier Giroud (78.).
Burnley - Leicester 2-1
1-0 Chris Wood (6.), 2-0 Kevin Long (9.), 2-1
Jamie Vardy (72.)
Crystal Palace - Brighton 3-2
1-0 Wilfried Zaha (5.), 2-0 James Tomkins
(14.), 2-1 Glenn Murray (18.), 3-1 Wilfried
Zaha (24.), 3-2 Jose Izquierdo (34.).
Huddersfield - Watford 1-0
1-0 Tom Ince (91.)
Swansea - Everton 1-1
0-1 Kyle Naughton (43. sjálfsmark), 1-1
Jordan Ayew (71.).
Liverpool - Bournem. 3-0
1-0 Sadio Mane (7.), 2-0 Mohamed Salah
(69.), 3-0 Roberto Firminho (90.)
Tottenham - Man City 1-3
0-1 Gabriel Jesus (22.), 0-2 Ilkay Gundogan
(25.), 1-2 Christian Eriksen (42.), 1-3 Raheem
Sterling (72.)
Manchester City er enskur meistari eftir tap
Manchester United um helgina..
Newcastle - Arsenal 2-1
0-1 Alexandre Lacazette (14.), 1-1 Ayoze
Perez (29.), 2-1 Matt Ritchie (68.).
Man. Utd - West Brom 0-1
0-1 Jay Rodriguez (73.)
FÉLAG L U J T MÖRK S
Man City 33 28 3 2 93-25 87
Man Utd 33 22 5 6 63-26 71
Liverpool 34 20 10 4 78-35 70
Tottenham 12 20 7 6 65-30 67
Chelsea 33 18 9 6 57-33 60
Arsenal 33 16 6 11 62-45 54
Burnley 33 14 10 9 33-29 52
Leicester 33 11 10 12 49-47 43
Everton 34 11 9 14 39-54 42
Newcastle 33 11 8 14 35-42 41
Bournem. 34 9 11 14 41-56 38
Watford 34 10 7 17 42-60 37
Brighton 33 8 11 14 31-46 35
Huddersf. 34 9 8 17 27-54 35
West Ham 32 8 10 14 40-58 34
Crystal P. 34 8 10 16 36-54 34
Swansea 33 8 9 16 27-46 33
Southam. 33 5 13 15 33-53 28
Stoke 33 6 9 18 30-63 27
West Brom 34 4 12 18 27-52 24
Okkar menn
Íslendingar í efstu tveimur
deildunum í Englandi
Everton
Gylfi Þór Sigurðsson
Missti af tækifærinu til að
snúa aftur á gamla heima-
völlinn vegna meiðsla.
Cardiff City
Aron Einar Gunnarsson
Lék 90 mínútur í mikil-
vægum sigri Cardiff. Fjórði
leikurinn sem hann fær
90. mínútur í röð.
Reading
Jón Daði Böðvarsson
Krækti í vítaspyrnu og fékk
90 mínútur í jafntefli gegn
Sunderland en komst ekki
á blað.
Aston VIlla
Birkir Bjarnason
Tók ekki þátt í leik liðsins
vegna meiðsla í baki.
Bristol City
Hörður B. Magnússon
Sneri aftur í hópinn eftir
smávægileg meiðsli. Kom
ekki við sögu í tapi gegn
Middlesbrough.
Leroy Sane, Gabriel Jesus og Kyle Walker, sem fagna hér marki Jesus, unnu fyrsta meistaratitil sinn um helgina en ungur kjarni Manchester City er líklegur til alls næstu árin undir stjórn hins spænska Pep Guardiola. NORDICPHOTOS/GETTY
Burnley
Jóhann Berg Guðmundss.
Sneri aftur í byrjunar-
liðið eftir meiðsli. Lagði
upp markið sem reyndist
sigurmark leiksins.
1 6 . A P R Í L 2 0 1 8 M Á N U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
6
-0
4
-2
0
1
8
0
5
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
7
6
-4
5
D
4
1
F
7
6
-4
4
9
8
1
F
7
6
-4
3
5
C
1
F
7
6
-4
2
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K