Fréttablaðið - 20.04.2018, Síða 1

Fréttablaðið - 20.04.2018, Síða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —9 2 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r F ö s t u d a g u r 2 0 . a p r Í l 2 0 1 8 Veldu um að sækja eða fá sent frá Nettó Mjódd eða Nettó Granda* *Gildir innan höfuðborgarsvæðisins Ódýrt 299 kr.pk. Rana pasta, 250 g, 9 tegundir Fréttablaðið í dag skoðun Þórlindur Kjartansson skrifar um styttingu framhalds- skóla. 11 sport Úrslitaeinvígi Tindastóls og KR hefst í kvöld. 12 Menning Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn fagnar 200 ára afmæli sínu með sögu- sýningu. 20 lÍFið Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum gagnrýna KSÍ harðlega. 26 plús 2 sérblöð l Fólk l  suMardekk *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 Sindri Þór Stefánsson, fanginn sem strauk úr fangelsinu að Sogni og flúði land aðfaranótt þriðjudags, fullyrðir að sér hafi verið haldið í fangelsi án dóms og laga og segist ætla að sanna það. Sindri hefur sent Fréttablaðinu yfirlýsingu þar sem hann útskýrir sína hlið málsins og segist ætla að koma heim fljótlega. Sindri vísar til þess að gæsluvarð- haldsúrskurður yfir honum hafi ekki verið í gildi þegar hann lagði á flótta frá Sogni. Hann var leiddur fyrir dómara síðastliðinn þriðju- dag, daginn sem úrskurðurinn féll úr gildi, en dómari tók sér sólar- hrings frest til að ákveða sig. Sindri segist í kjölfarið hafa verið upp- lýstur um að í raun væri hann frjáls ferða sinna, en að hann yrði hand- tekinn ef hann yfirgæfi fangelsið án skýringa. „[…]en undir þeirri hótun að lög- reglan myndi handtaka mig ef ég yfirgæfi fangelsið án skýringa. Ég var neyddur til að undirrita pappír sem á stóð að ég væri frjáls ferða minna en ef ég færi mundi ég gista í fangaklefa þar til framlenging á gæsluvarðhaldi væri samþykkt,“ segir Sindri, sem sætir haldi vegna gruns um aðild að þjófnaði á um 600 tölvum úr þremur gagnaverum í Reykjanesbæ. „Ég mundi aldrei reyna að flýja fangelsi ef ég væri löglega sviptur frelsi mínu af ákvörðun dómara, það er staðreynd,“ bætir hann við. Þá segist hann hafa verið í gæslu- varðhaldi, í tvo og hálfan mánuð, að ósekju og án sönnunargagna. Hann ætlar að kæra málið til Mannrétt- indadómstóls Evrópu. „Mér hefur ekki verið birt eitt einasta sönnun- argagn og mér var ógnað og hótað lengri einangrun meðan einangrun átti sér stað. Mér var margoft sagt að ég fengi að ganga út ef ég myndi staðsetja svokallað þýfi sem ég er grunaður um að hafa stolið. Ég var látinn dúsa í einangrun, sem refs- ing, því þeir fundu ekki þetta þýfi. Án sönnunar.“ Sindri tekur fram að hann harmi það að hafa valdið ástvinum sínum hugarangri og viðurkennir að það hafi verið röng ákvörðun að flýja. Hvað sem því líður þurfi hann og muni takast á við þá stöðu sem hann sé í. „Unnið er að því að semja við lögregluna á Íslandi um að ég fái að koma heim án þess að vera handtek- inn erlendis. Einnig að þetta skjal fái að koma upp á yfirborðið sem sýnir og styður það sem ég segi um að ég hafi verið frjáls ferða minna. Ég get verið á flótta eins lengi og ég vil, ég er kominn í samband við hóp fólks sem gefur mér þak yfir höfuðið, far- artæki, þess vegna fölsuð skilríki ef ég vil og peninga til að lifa. Það væri ekkert mál ef ég myndi vilja það, en ég vil heldur og ætla að takast á við þetta heima á Íslandi svo ég kem fljótlega.“ Ítarlega umfjöllun og yfirlýsing- una í heild er að finna á vef Frétta- blaðsins, frettabladid.is. – sks Yfirlýsing frá Sindra: „Ég kem fljótlega“ Sindri Þór Stefánsson, sem strauk úr fangelsinu að Sogni og flúði land aðfaranótt þriðjudags, sendi Fréttablaðinu yfir- lýsingu, þar sem hann útskýrir sína hlið máls. Halldór Viðskipti Útgerðarfélagið Brim þarf að gera tilboð til yfirtöku á HB Granda eftir að félagið keypti 34,1% eignarhlut í félaginu upp á tæp- lega 21,7 milljarða. Ef af yfirtökunni verður er verðmiðinn um það bil 65 milljarðar króna. Lög kveða skýrt á um að hafi hluthafi samanlagt eign- ast 30 prósent atkvæðisréttar í félagi sem er skráð í Kauphöllinni skal sá hinn sami gera öðrum hluthöfum félagsins tilboð um að kaupa hluti þeirra. Fjármálaeftirlitið hefur málið til skoðunar. „Okkur langar ekki til að gera þetta tilboð, en það er skylda. Okkar von er að núverandi hlut- hafar verði áfram í félaginu,“ segir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri og eigandi Brims. – ósk / sjá síðu 4 Stærsta yfirtaka frá hruni í kortunum Leiða má líkur að því að það hafi verið einhvers konar fiskur í kvöldmatinn hjá þessum herramanni sem kastaði í gríð og erg á hafnarsvæðinu í Hafnarfirði þegar ljósmyndara Fréttablaðs- ins bar að garði í gær. Ekki liggur fyrir hver afli veiðimannsins var. Trúlega var þó um fyrstu veiðiferð sumarsins að ræða hjá kappanum, enda sumardagurinn fyrsti í gær. Fréttablaðið/Valli 2 0 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :4 4 F B 0 4 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 8 2 -4 C 5 C 1 F 8 2 -4 B 2 0 1 F 8 2 -4 9 E 4 1 F 8 2 -4 8 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 0 s _ 1 9 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.