Fréttablaðið - 20.04.2018, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 20.04.2018, Blaðsíða 18
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 Hjá Nesdekkjum er hugsað stórt og því hefur verið opnað eitt stærsta og fullkomnasta hjólbarðaverk- stæði landsins að Breiðhöfða 13. Nýjasta Nesdekkjaverkstæðið er tilkomið m.a. vegna hraðs uppgangs í ferðaþjónustu og hjá verktakafyrirtækjum í landinu. Þetta hefur kallað á meiri og betri þjónustu við þann stóra og fjöl- breytta bílaflota sem fyrirtæki í þessum geira reka. Hægt að aka í gegnum húsið að Breiðhöfða Gestur Árskóg, þjónustustjóri atvinnubíla hjá Nesdekkjum, segir að tilkoma þessa nýja hjólbarða- verkstæðis að Breiðhöfða marki tímamót í starfsemi fyrirtækisins. „Það er óhætt að segja að nýja Nes- dekkjaverkstæðið okkar í Breið- höfðanum sé kærkomin viðbót við Nesdekkjaflóruna. Hér er hugsað stórt í öllu tilliti og nýja húsið er sérhannað fyrir starfsemina með tækjabúnaði og aðstöðu til að veita bílum af öllum stærðum fyrsta flokks hjólbarðaþjónustu,“ segir Gestur og nefnir m.a. niðurgrafnar lyftur sem henta vel fyrir bíla sem lágt er undir og snertilausar umfelgunarvélar sem rispa ekki felgurnar. „Þá býður hönnunin upp á þá nýjung að hópferða- og vöruflutn- ingabílar geta keyrt í gegnum verk- stæðið. Hér er því á ferðinni eitt fullkomnasta hjólbarðaverkstæði á landinu sem á eftir að gjörbylta möguleikum okkar til að veita eigendum bíla af öllum stærðum betri þjónustu í hvívetna.“ Gestur ítrekar að þetta eigi ekki síst við um stóru bílana. „Við erum á besta stað hér í Breiðhöfðanum, bæði miðsvæðis og með þægi- lega aðkomu fyrir stóra sem smáa. Afkastagetan er mikil og má geta þess að rými er til að sinna fjórum til sex trukkum í einu án þess að það bitni á þjónustu við minni bílana. Kjörorð okkar í Breiðhöfða er: Stærðin skiptir ekki máli – við dekkjum alla bíla.“ Dekkjahótel Hjá Nesdekkjum er hægt að láta geyma dekk og spara þann- ig geymslupláss og fyrirhöfn. „Dekkjahótel Nesdekkja býður upp á þægilega leið til að geyma dekk við réttar aðstæður og hafa þau tilbúin næst þegar skipta þarf undir bílnum. Með þessari þjón- ustu sleppa viðskiptavinir okkar við að meðhöndla dekk sem bera óhreinindi um bílinn og heimilið,“ segir Gestur. Nesdekk bjóða faglega ráð- gjöf við dekkjaval Öll hjólbarðaverkstæði Nesdekkja eiga það sameiginlegt að veita bíla- eigendum fyrsta flokks þjónustu. Þar finna bílaeigendur sömu- leiðis einhverja breiðustu línu af hjólbörðum sem völ er á, að sögn Gests. „Nesdekk bjóða upp á sex gæðamerki; Pirelli, Toyo Tires, BFGoodrich, Maxxis, Interstate og Nordexx. Þar geta allir fundið dekk við sitt hæfi í ýmsum verðflokkum. Interstate býður til að mynda upp á gæðadekk á frábæru verði. Toyo-dekkin bjóða upp á lága vegmótstöðu, minni eldsneytis- notkun og lágt veghljóð á meðan Pirelli er einn stærsti dekkjafram- leiðandi heims og hannar m.a. gæðadekk í samstarfi við helstu lúxusbílaframleiðendur í heimi. Í því sambandi má nefna Porsche, Ferrari, Lamborghini og McLaren,“ segir Gestur. Að hans sögn er það viðurkennd staðreynd að dekkin hafa heil- mikið að segja um aksturseigin- leika bílsins og því veltur öryggi ökumanna og farþega á gæðum þeirra. „Þess vegna skiptir miklu máli að velja réttu dekkin. Við kapp- kostum að hjá Nesdekkjum séu fagmenn að störfum sem geti veitt bestu ráðgjöf við dekkjaval og þjónustu sem völ er á. Viðskipta- vinirnir geta treyst okkar mönnum fyrir bílum sínum og atvinnu- tækjum þegar dekkin eru annars vegar,“ segir Gestur að lokum. Gestur Árskóg, þjónustustjóri atvinnubíla, segir að nýja verkstæðið marki tímamót í starfsemi Nesdekkja. Nýverið var opnað nýtt og fullkomið dekkjaverkstæði undir nafni Nesdekkja að Breiðhöfða og eru þau nú orðin sex talsins. Njarðarbraut 9 Reykjanesbær Lyngás 8 Tangarhöfða 15 Breiðhöfða 13 Grjóthálsi 10 Fiskislóð 30 NESDEKK ER NÚ Á 6 STÖÐUM! FÁÐU GÓÐ RÁÐ UM RÉTTU DEKKIN HJÁ FAGMÖNNUM OKKAR. Fiskislóð 30 101 Reykjavík 561 4110 Grjótháls 10 110 Reykjavík 561 4210 Njarðarbraut 9 260 Reykjanesbæ 420 3333 nesdekk.is / 561 4200 Tangarhöfði 15 110 Reykjavík 587 5810 Lyngási 8 210 Garðabæ 565 8600 Breiðhöfði 13 110 Reykjavík 590 2080 2 KYNNINGARBLAÐ 2 0 . A p R Í L 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RSumARDeKK 2 0 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :4 4 F B 0 4 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 8 2 -7 D B C 1 F 8 2 -7 C 8 0 1 F 8 2 -7 B 4 4 1 F 8 2 -7 A 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 0 s _ 1 9 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.