Fréttablaðið - 20.04.2018, Page 6

Fréttablaðið - 20.04.2018, Page 6
Glæsilegur bæklingur fylgir blaðinu í dag Kláraðu verkið í Vogunum HEILBRIGÐISMÁL Mögulegt er að auka lífslíkur einstaklinga sem greinast með algengustu tegund lungnakrabba- meins til muna með því að beita nýrri meðferð sem byggir á hefðbundinni krabbameinslyfjameðferð og nýju, ónæmishvetjandi lyfi. Þetta er meginniðurstaða nýrrar og umfangsmikillar rannsóknar þar sem ávinningur lyfsins Keytruda fyrir ein- staklinga með 4. stigs kirtilmyndandi lungnakrabbamein var kannaður í víðara samhengi en gert hefur verið áður. „Þessar niðurstöður kalla á nýja staðla í meðferð við kirtilmyndandi lungnakrabbameini,“ sagði Leena Ghandi, fyrsti höfundur rannsóknar- innar, þegar hún kynnti niðurstöð- urnar á ársþingi Bandarísku krabba- meinssamtakanna (AACR) í Chicago fyrr í vikunni. Í kringum 85 prósent allra lungna- krabbameina sem greinast eru af þessari tegund. Krabbamein í lungum dregur tæplega 1,7 milljónir manna til dauða árlega. Rannsókn Ghandi, sem birt var í læknaritinu The New England Journal of Medicine fyrr í vikunni, var tvíblind rannsókn með samanburðarhópi sem fékk lyfleysu. Rannsóknin fór fram í 16 löndum og tók til 616 einstaklinga með 4. stigs krabbamein í lungum. Ríflega helmingur þátttakenda fékk hefðbundna lyfjameðferð auk 200 mg af Keytruda á þriggja vikna fresti. Samanburðarhópurinn fékk hefð- bundna lyfjameðferð en lyfleysu í staðinn fyrir lyfið. Lífslíkur fyrri hópsins ári eftir upp- haf meðferðarinnar voru 69,2 prósent á móti 49,4 prósentum hjá saman- burðarhópnum. Þessar niðurstöður hafa vakið mikla athygli og undirstrika þær miklu vonir sem bundnar eru við ónæmishvetjandi lyfjameðferðir við krabbameini. „Það er verið að færa þessa ónæmis- hvetjandi meðferð framar og framar í línuna, og þetta er þróun sem átt hefur sér stað á allra síðustu árum,“ segir Örvar Gunnarsson, sérfræðingur í krabbameinslækningum á Land- spítala. Keytruda hefur verið í notkun á Landspítala, líkt og víðar, undanfarin misseri og gefið góða raun, en þá fyrir afmarkaðan hóp einstaklinga með kirtilmyndandi lungnakrabbamein. Þessi nýja rannsókn breytir því. „Núna kemur í ljós að þetta [lyf] virkar fyrir alla sjúklinga með þessa tegund krabbameins.“ Ónæmishvetjandi meðferðir við krabbameini hafa verið í þróun undan farin ár. Í grunninn byggjast þær á að koma í veg fyrir eiginleika krabbameinsfrumunnar til að dulbú- ast fyrir árásarfrumum ónæmis- kerfisins, sem eiga undir venjulegum kringumstæðum að ráðast gegn stökk- breyttum frumum. Hingað til hafa sex lyf verið samþykkt sem virkja ónæmis- frumur sjúklinga á þennan máta, þar á meðal Keytruda. Segja má að þessar nýju aðferðir hafi valdið hugarfars- breytingu í krabbameinslækningum, og það á tiltölulega stuttum tíma. „Ónæmisfræðilega nálgunin hefur gjörsamlega breytt nálgun okkar að krabbameinsmeðferðinni,“ segir Örvar. „Ef þú horfir aðeins örfá ár aftur í tímann vorum við þá að gera allt aðra hluti en í dag.“ Örvar ítrekar að Ísland sé ekki eftirbátur annarra í innleiðingu nýrra lyfja og meðferða. Keytruda er þegar í notkun hér á landi og eftir samþykki bandarísku og evrópsku lyfjastofnan- anna verður hægt að taka þessa nýju meðferð upp hér. Um leið bendir Örvar á að þessi árangur muni aldrei nást fyrir alla sjúklinga. Krabbameinsmeðferðir verði með tímanum sífellt einstakl- ingsmiðaðri. Ekki megi vekja of miklar væntingar, því ein tiltekin meðferð hentar aldrei öllum sjúklingum. Roy Herbst, prófessor við Yale- háskóla og einn virtasti krabbameins- sérfræðingur Bandaríkjanna, undir- strikaði þetta á fundi AACR í vikunni. Hann hvatti vísindamenn til að stuðla að enn meiri framþróun með því að leita að lífsmörkum og ábendingum svo hægt verði að þróa meðferðir fyrir fleiri sjúklinga. „Þrátt fyrir þessar einstöku niður- stöður, og þær eru sannarlega einstak- ar […] þá verðum við að halda áfram að þróa vísindin og við verðum ávallt að leita nýrra leiða,“ sagði Herbst. kjartanh@frettabladid.is Nýjar niðurstöður lofa góðu í baráttunni gegn lungnakrabba Miklar vonir eru bundnar við frekari árangur í að virkja ónæmisfrumur í baráttunni við krabbamein. Ný rannsókn sýnir fram á það hvernig ný tegund lyfja eykur lífslíkur sjúklinga þegar þau eru notuð samhliða hefðbundnum krabbameinslyfjum. Krabbamein í lungum dregur um 1,7 milljónir manna til dauða árlega. Miklar vonir eru bundnar við ný ónæmishvetjandi lyf. Fréttablaðið/Getty Ef þú horfir aðeins örfá ár aftur í tímann vorum við þá að gera allt aðra hluti en í dag. Örvar Gunnars- son, sérfræðingur í krabbameins- lækningum TæknI Facebook hefur fært ábyrgð á notendum sínum utan Bandaríkjanna frá alþjóðlegum höfuðstöðvum sínum á Írlandi og til höfuðstöðvanna í Kali- forníu. Með þessu kemst Facebook hjá því að fylgja nýrri löggjöf Evrópu- sambandsins um öryggi persónulegra upplýsinga. Guardian greindi frá þessu í gær. Löggjöfin ber heitið General Data Protection Regulation (GDPR) og tekur gildi þann 25. maí næstkom- andi. Ef Facebook hefði gerst brotlegt við hina nýju löggjöf gæti það þýtt sekt upp á fjögur prósent af veltu fyrirtækisins sem samsvarar um 160 milljörðum króna. Talsmaður Facebook sagði við Reuters í gær að fyrirtækið myndi vernda upplýsingar allra notenda á sama hátt, hvort sem notandinn hefði samþykkt notendaskilmála í Bandaríkjunum eða á Írlandi. Breytingin hafi eingöngu verið gerð vegna þess að Evrópulög- gjöfin fer fram á sérstakt orða- lag í notendaskilmálanum en ekki sú bandaríska. Athyglisvert er að skoða ummæli Marks Zuckerberg framkvæmdastjóra frá því fyrr í mánuðinum í ljósi þessara tíðinda. Þegar Reuters spurði hvort hann gæti lofað því að GDPR-löggjöfinni yrði fylgt sagði Zuckerberg að Facebo- ok myndi fylgja „anda löggjafarinnar“ á heimsvísu. Zuckerberg gaf svo álíka loðið svar þegar bandarískir þing- menn spurðu hann spjörunum úr. Lukasz Olejnik gagnaöryggis- fræðingur sagði við Guardian í gær að það væri síður en svo einfalt að færa upplýsingar eins og hálfs milljarðs notenda á milli landa. Aðgerðin væri áhyggjuefni. „Þetta er mikil og fordæmalaus breyting. Breytingin leiðir af sér minni kröfur um öryggi persónulegra upplýs- inga og minni réttindi notenda,“ sagði Olejnik við Reuters. – þea Facebook flýr evrópska löggjöf um gagnaöryggi Mark Zuckerberg, forstjóri Facebook. BRETLand Elísabet önnur Bret- landsdrottning bað í gær leiðtoga breska samveldisins um að gera Karl Bretaprins að þjóðhöfðingja samveldisins eftir hennar dag. Sagði hún það einlæga ósk sína þegar hún setti fund þjóðarleið- toga samveldisríkjanna í Lund- únum. Leiðtogasætið sem um ræðir er ekki arfgengt líkt og breska krúnan. Því þarf sérstaklega að samþykkja nýjan leiðtoga samveldisins. BBC greindi frá því í gær að búist væri við því að þjóðarleiðtogarnir 53 samþykki að Karl taki við af Elísa- betu í dag þótt vangaveltur hafi verið uppi um hvort heppilegra væri að önnur ríki samveldisins en Bretland fengju að spreyta sig. Samkvæmt James Landale, fréttaskýranda BBC, er þó ekki búist við því að samþykkt verði að leiðtogi samveldisins verði alltaf konungur eða drottning Bretlands. Einungis verði samþykkt að Karl taki næst við sætinu. „Ég óska þess að samveldið haldi áfram að stuðla að stöðugleika og góðri framtíð komandi kynslóða. Ég óska þess að samveldið ákveði einn daginn að prinsinn af Wales taki við þessu mikilvæga starfi sem faðir minn kom á árið 1949,“ sagði Elísabet drottning. – þea Vill að Karl leiði breska samveldið Karl bretaprins verður trúlega leiðtogi breska samveldisins.. Nordicphotos/aFp BandaRíkIn Stór hluti Repúblikana í bæði fulltrúa- og öldungadeild bandaríska þingsins er ekki tilbúinn til þess að lýsa yfir stuðningi við komandi forsetaframboð Donalds Trump, sitjandi forseta og sam- flokksmanns þeirra. CNN greindi frá í gær en Trump mun sækjast eftir endurkjöri árið 2020. Viðtöl CNN við tugi þingmanna Repúblikana leiddu í ljós að stór hluti þeirra var ekki tilbúinn til að lýsa yfir stuðningi. Það þótti blaða- mönnum CNN óvenjulegt þar sem slíkur stuðningur við sitjandi for- seta er nærri sjálfgefinn. Þá hafi næstum enginn lýst eindregnum stuðningi við Trump í viðtölunum. Þrátt fyrir að Trump hafi nú þegar lýst því yfir að hann muni sækjast eftir endurkjöri voru ýmsir þing- mannanna óvissir um að sú væri raunin. Þannig sagði Bill Huiz- enga, fulltrúadeildarþingmaður frá Mich igan, að hann þyrfti fyrst að vita hvort Trump sæktist eftir endurkjöri til að hann gæti svarað spurningu CNN. – þea Samflokksmenn vilja ekki styðja Donald Trump donald trump, forseti bandaríkj- anna. Nordicphotos/aFp Óvenjulegt þykir að þingmenn séu ekki reiðu- búnir til þess að lýsa yfir stuðningi við endurkjör sitjandi forseta. 2 0 . a p R í L 2 0 1 8 F Ö S T U d a G U R6 F R é T T I R ∙ F R é T T a B L a Ð I Ð 2 0 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :4 4 F B 0 4 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 8 2 -7 8 C C 1 F 8 2 -7 7 9 0 1 F 8 2 -7 6 5 4 1 F 8 2 -7 5 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 0 s _ 1 9 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.