Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.04.2018, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 20.04.2018, Qupperneq 8
Ársfundur VIRK Ársfundur VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs verður haldinn þriðjudaginn 24. apríl á Grand Hótel Reykjavík kl. 13.30-16.00. DAGSKRÁ • Virkar VIRK? Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri VIRK • Reynslusaga einstaklings sem lokið hefur starfsendurhæfingu • VIRK Atvinnutenging Magnús Smári Snorrason, atvinnulífstengill VIRK • Reynslusaga stjórnanda úr atvinnulífinu • Hefðbundin ársfundarstörf samkvæmt skipulagskrá Ársfundurinn er öllum opinn en meðlimir fulltrúaráðs VIRK hafa einir atkvæðisrétt. Skrá skal þátttöku á virk.is Bandaríkin Dómari í St. Louis í Missouri hafnaði í gær kröfu lög- manns Eric Greitens, ríkisstjóra Missouri, að fella niður ákæru sem ríkisstjórinn á yfir höfði sér. Ríkis- þing Missouri ákærði Greitens í febrúar fyrir að hafa tekið ljósmynd af nakinni konu án vitneskju hennar og síðan hótað að birta hana opinber- lega ef hún segði frá kynnum þeirra. Ríkisstjórinn á yfir höfði sér fjög- urra ára fangelsisdóm. Hann hefur játað framhjáhald en kveðst saklaus af öllum ásökunum. Þess í stað hefur hann sagt að um „pólitískar norna- veiðar“ sé að ræða. Hann sé ásóttur fyrir einkalíf sitt sem tengist starfi hans sem ríkisstjóri ekki á neinn hátt.  Þrýst hefur verið á Greitens að segja af sér. Hafa bæði samflokksmenn hans, Repúblikanar, og Demókratar farið fram á afsögn. Þegar konan sem Greitens á að hafa myndað án samþykkis kom fyrir þingnefnd sagði hún að Greitens hefði líklegast tekið myndina þegar hún lá bundin við rúmið, með bundið fyrir augun, í kjallara ríkisstjórans. Hún hefur einnig sagt Greitens hafa þvingað sig til munnmaka. – þea Ákæra yfir ríkisstjóra Missouri ekki felld niður Eric Greitens, ríkisstjóri Missouri, gæti verið á leið í fangelsi. Nordicphotos/AFp kúBa Í fyrsta skipti í nærri sex ára- tugi er Castro-fjölskyldan hvorki með forsætisráðherra- né forseta- stólinn á Kúbu. Raúl Castro, litli bróðir Fidels, lét af embætti forseta í gær og við af honum tók Miguel Díaz-Canel. Díaz-Canel hafði gegnt embætti fyrsta varaforseta undanfarin fimm ár. Hann er nærri þrjátíu árum yngri en Raúl Castro, fæddur eftir kommúnistabyltinguna og traustur bandamaður fyrirrennara síns. Á þeim sextíu árum sem Castro- bræður stýrðu skútunni hefur Kúba gjörbreyst. Þeir komu á eins flokks kommúnistaríki, rétt undan ströndum Flórída. „Beint fyrir framan nefið á heimsvaldasinn- unum,“ sagði Fidel Castro eitt sinn. Og þrátt fyrir þrýsting frá Banda- ríkjunum, og þrátt fyrir tíð tilræði bandarísku leyniþjónustunnar við Fidel Castro, er Kommúnista- flokkurinn þar enn við völd. Ljóst er þó að Raúl Castro mun enn vera áhrifamikill á Kúbu. Hann hyggst halda áfram sem aðalritari Kommúnistaflokksins til 2021. Skýrendum þykir líklegt að nýr for- seti muni hafa samráð við Castro, Castro muni jafnvel hafa síðasta orðið þegar kemur að mikilvægum ákvörðunum. Will Grant, blaðamaður BBC á Kúbu, lýsti því augnabliki þegar Díaz-Canel og Castro stigu saman inn í þingsal í gær. Sagði hann augnablikið sýna kynslóðaskipti sem myndu þó ekki fela í sér miklar breytingar. Þá sagði Grant að það hafi komið á óvart að einn þingmannanna 605, sem allir eru úr Kommúnista- flokknum, hafi greitt atkvæði gegn Díaz-Canel. Forsetinn nýi hafi þó tryggt sér eina atkvæðið sem skipti máli, nefnilega atkvæði Raúls Castro. Í embættistökuræðu sinni sagð- ist Díaz-Canel hafa umboð til þess að tryggja að kúbverska byltingin héldi áfram. Utanríkisstefna Kúbu yrði óbreytt og allar ákvarðanir um „nauðsynlegar breytingar“ yrðu kúbversku þjóðarinnar. „Það er ekkert pláss á Kúbu fyrir þá sem vilja endurlífga kapítal- ismann,“ sagði Díaz-Canel sem eyddi að auki drjúgum hluta ræðu sinnar í að lofa fyrirrennara sinn. Þegar forsetinn nýi sagði Kúbu þarfnast Castros risu þingmenn á fætur og klöppuðu. Á borði Díaz-Canel eru mál  á borð við algjört hrun hagkerfis Venesúela, eins helsta banda- manns Kúbu, sem og samskiptin við hinar eyjarnar á Karíbahafi og svo Bandaríki Donalds Trump. Bandaríkjaforseti innleiddi í fyrra takmarkanir á ferðalögum og við- skiptum við Kúbu eftir að Barack Obama, forveri hans í starfi, hafði slakað á þeim takmörkunum þegar hann bjó í Hvíta húsinu. Stjórnmálaferill Díaz-Canel nær aftur á þrítugsaldurinn. Þá tók hann þátt í ungliðastarfi Kommún- istaflokksins í Santa Clara. Hann varð svo ritari hreyfingarinnar 33 ára gamall áður en hann varð hér- aðsstjóri Villa Clara. Í umfjöllun BBC segir að þar hafi hann sýnt að hann væri opnari, frjálslyndari en Castro-bræður. Hann hafi til að mynda leyft rokk- tónleika, sem bannaðir hefðu verið annars staðar, og þá sé samfélag hinsegin fólks þar sýnilegra en víða á Kúbu. Díaz-Canel varð svo hluti framkvæmdaráðs, eða Polit- buro,  Kommúnistaflokksins árið 2003. Árið 2009 varð hann svo ráð- herra framhaldsmenntunar og, eins og áður segir, fyrsti varaforseti árið 2013. En þótt Díaz-Canel þyki frjáls- lyndari en Castro-bræður er búist við því að þær breytingar sem ráðist verður í verði hægfara. Díaz-Canel sé handvalinn arftaki Castros, sem muni sjálfur áfram hafa bein afskipti af stefnu ríkisstjórnarinnar. thorgnyr@frettabladid.is Nýr forseti segir byltinguna halda áfram Valdatíð Castro-bræðra á enda. Nýr forseti tekinn við. Sá lofar því að byltingin haldi áfram og segir ekkert pláss fyrir kapítalista í þessu eins flokks kommúnistaríki. Castro-bræður voru við völd á Kúbu í nærri sex áratugi. Raúl mun þó áfram vera aðalritari flokksins. Frjálslyndisumbætur Raúls Castro Valdatíð Raúls var mun styttri en Fidels. Sat í forsetastólnum í tíu ár samanborið við rúmt 31 ár stóra bróður. Á þessum tíu árum þykir Raúl Castro þó hafa opnað Kúbu, horfið á braut frá alræðis- stefnu fyrri tíma. BBC tók saman helstu skref hans í þá átt. Árið 2008 innleiddi hann nýja stefnu í landbúnaðarmálum. Hét hann því að bændur fengju millj- ónir hektara til að reka starfsemi, óháða hinu opinbera. Árið 2010 slakaði Castro á reglu- gerðum um fyrirtækjarekstur. Þannig heimilaði hann Kúb- verjum að stofna lítil fyrirtæki. Árið 2011 leyfði hann svo Kúb- verjum að kaupa og selja eigin heimili. Árið 2013 var þráðlausri net- tengingu komið á á nokkrum blettum. Þannig varð veraldar- vefurinn aðgengilegri Kúbverjum. Þeir díaz-canel og castro fögnuðu saman í þingsal í gær eftir að þingmenn samþykktu valdaskiptin. Nordicphotos/AFp Það er ekkert pláss á Kúbu fyrir þá sem vilja endurlífga kapítal­ ismann. Miguel Díaz-Canel, forseti Kúbu 2 0 . a p r í l 2 0 1 8 F Ö S T U d a G U r8 F r é T T i r ∙ F r é T T a B l a ð i ð 2 0 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :4 4 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 8 2 -7 3 D C 1 F 8 2 -7 2 A 0 1 F 8 2 -7 1 6 4 1 F 8 2 -7 0 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 1 9 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.