Fréttablaðið - 20.04.2018, Blaðsíða 16
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms
Hallgrímsson
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 |
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 |
Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 |
Edda Björgvinsdóttir er ein ástsælasta leikkona þjóðar-innar. Ferilskráin er orðin
löng en Edda hefur leikið í fjölda
leikrita, kvikmyndum og í sjón-
varpi og leikstýrt eigin verkum og
annarra. Hún var flugfreyja um
tíma og í gegnum árin hefur hún
haldið námskeið og fyrirlestra
þar sem húmor og hamingja er í
aðalhlutverki. Þessa dagana má
sjá Eddu á sviði Þjóðleikhússins
í söngleiknum Með allt á hreinu
og í haust mun hún leika í Ronju
ræningjadóttur.
„Ég er fyrst og fremst leikkona en
ég er líka frumkvöðull með þekk-
ingarþrá á háu stigi og bíð eftir að
finna tíma til að læra meira,“ segir
Edda brosandi en hún er með MA
í menningarstjórnun og MA-dipl-
ómu í jákvæðri sálfræði. „Alveg frá
því ég var sjö ára var ég ákveðin í
að verða leikkona, enda var ég allt-
af að leika eitthvað. Ég man eftir
að hafa verið í barnaafmæli og þar
var einnig stödd Melitta Urbancic,
leikkona frá Austurríki og eigin-
kona Victors Urbancic tónlistar-
manns. Melitta kom til mín, horfði
á mig og sagði hátt og snjallt: „Þú
verður einhvern tímann mikil leik-
kona.“ Mér brá við en ég var sann-
færð um að hún hefði rétt fyrir sér
og að leiklist yrði mitt aðalstarf,“
rifjar Edda upp.
Stella orðin heimilisvinur
Edda hefur leikið mörg ógleyman-
leg hlutverk í gegnum tíðina en
henni finnst einna vænst um
hlutverk sitt í einleiknum Alveg
brilljant skilnaður. „Það stykki
gekk fyrir fullu húsi í þrjú leikár og
var í senn fyndið og sorglegt. Svo
er Stella í orlofi auðvitað partur
af mér og myndin löngu orðin
heimilisvinur hjá fjölda manns.
Mér finnst líka vænt um báðar
alkóhólistakonurnar mínar, Ingu
í kvikmyndinni Undir trénu og
sendiherrafrúna í Risaeðlunum.
Þær sýna að alkóhólismi er ekki
bara fyllerí heldur mikill harmur.
Þær glíma við djúpa sorg sem þær
reyna að deyfa með áfengi. Þetta
er heimur sem ég hef mikið pælt í
og hef skoðað á allar hliðar,“ segir
Edda sem fékk einmitt Edduna
fyrir hlutverk sitt í Undir trénu fyrr
í vetur.
Hún gat þó ekki veitt verðlaun-
unum viðtöku því hún var að leika
í Þjóðleikhúsinu á sama tíma. „Í
hjarta mínu grét ég svolítið yfir
því að geta ekki tekið á móti þeim
sjálf en ég var búin að segja við
yndislega vinkonu mína að ef ég
fengi Edduna, þótt ég tryði ekki
alveg á það því gamanleikarar fá
ekki oft verðlaun og ég hélt að þótt
hlutverkið væri dramatískt myndi
það bara gilda áfram, skyldi hún
bara segja það sem hana langaði að
segja og það kom mjög fallega út,“
segir Edda hlýlega.
Hún nefnir að í gegnum tíðina
hafi gamanleikur ekki verið eins
hátt skrifaður og dramaleikur en
það sé þó vonandi að breytast.
„Ég hef fengið mestu þjálfunina í
gamanleik en það þótti stundum
eitthvað skrípó. Það er varla til-
viljun að Bessi Bjarnason og Árni
Tryggvason voru á lægri launum
en aðrir í Þjóðleikhúsinu og
þáverandi Þjóðleikhússtjóri sagði
að það væri vegna þess að þeir
væru bara gamanleikarar. Bessi
og Árni eru sennilega þeir einu
af sinni kynslóð leikara sem ekki
hafa fengið heiðurslaun lista-
manna frá Alþingi. Það er grimmi-
legt og ég vona að því verði breytt
og Árni beðinn afsökunar á að hafa
ekki notið sannmælis en Bessi er
því miður fallinn frá. Ég held sem
betur fer að við stöndum núna á
þeim tímamótum að gamanleik-
arar séu metnir að verðleikum.
Mikil áhætta fylgir gamanleik en
það er mikil höfnun ef áhorfendur
skella ekki upp úr. Gamanleikarar
eru oft bestu dramaleikararnir.“
Edda segir styrkleikakortin gott þjálfunartæki á vinnustöðum, í skólum og
félagasamtökum og ekki síður í vinahópum og fjölskyldum.
AFMÆLISDAGAR
Ýmis tilboð í verslun - Nýjar sendingar af vorvörum
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
Framhald af forsíðu ➛
Bjartsýn að eðlisfari
Þegar Edda er spurð hvort hún sé
hjátrúarfull þegar kemur að leik-
listinni segir hún svo ekki vera. „Nei,
en einn af mínum styrkleikum er að
ég er bjartsýn að eðlisfari. Ég byrjaði
líka að nota húmor snemma á lífs-
leiðinni til að draga úr streitu og
áhyggjum og sætta mig við það sem
maður fær ekki breytt. Ég fór fljótt
að sjá kómísku hliðarnar á erfiðum
hlutum. Svo er ég búin að skrifa
heila mastersritgerð um húmor í
stjórnun,“ segir hún.
Edda fær aldrei nóg af því að læra
og fyrir tveimur árum útskrifaðist
hún úr námi í jákvæðri sálfræði.
„Í mörg ár hélt ég námskeið um
tjáningu og tækni leikarans. Svo
fóru þau að snúast um húmor en
núna fjalla námskeiðin um það sem
við getum kallað vellíðan í lífi og
leik. Ég kalla námskeiðin Húmor og
gleði – dauðans alvara. Á þeim sit ég
með fólki og við ræðum um hvernig
því líður, hvernig því gæti liðið
betur, af hverju því líður ekki nógu
vel og hvað hægt er að gera í því. Ég
fjalla um hvernig við ættum að auka
hamingjuna í lífi okkar en það er
vel hægt. Ótal rannsóknir sýna að
ef maður er jákvæður, gefandi, slak-
andi og yndislegur eykst hamingjan
og við það aukast hamingjuhorm-
ónin í heilanum. Húmor einn og sér
getur t.d. orsakað flæði af mikil-
vægum vellíðunarhormónum. Við
hlátur, hreyfingu eða söng getum
við framkallað helmingi meira af
þeim en vanalega og þá styrkjum
við ónæmiskerfið, virkjum heilann,
verðum betri í samvinnu, orku-
meiri og vinnum betur. Ótrúlegir
hlutir gerast við að auka hamingju
og vellíðan,“ segir Edda glaðlega en
hún hefur látið útbúa sérstök kort
sem hún kallar styrkleikakort. „Slík
kort eru notuð um allan heim til
að byggja upp einstaklinga og bæta
samskipti. Þau eru einstaklega gott
þjálfunartæki á vinnustöðum, í
skólum og félagasamtökum og ekki
síður í vinahópum og fjölskyldum.
Ég hef fengið mjög góð viðbrögð
frá þeim sem hafa notað styrk-
leikakortin og þau eru komin inn á
fjöldamörg heimili. Við höfum ekki
auglýst þau en vorum með söfnun
á Karolina Fund sem gekk vel en ég
er með einvala lið með mér í þessu
verkefni.“
Upplifir kærleika og hlýju
Þegar Edda er spurð hvernig til-
finning það sé að vera eftirlæti
þjóðarinnar verður hún hálffeimin
og þakkar hólið. „Það merkilega
er að þegar maður býr í einhverju
landi og fólk þekkir mann og hefur
smekk fyrir manni eða ekki, er það
eðlilegasti hlutur í heimi. Mér finnst
núna, eftir allan þennan tíma, og ég
sem er aðeins nýlega búin að slíta
barnskónum, að ég upplifi sífellt
meiri hlýju og meiri kærleika frá
fólki. Ég hitti nær daglega fólk sem
finnst það þekkja mig og kemur til
mín, faðmar mig eða segir eitthvað
fallegt við mig. Þetta fæ ég seint
fullþakkað.“
Að lokum er Edda spurð hvort
hún eigi sér draumahlutverk á leik-
sviðinu. „Nei, reyndar hef ég aldrei
átt mér draumahlutverk. Ef ég hefði
haft drauma um ákveðið hlutverk
hefði ég bara safnað fólki í kringum
mig og leikið það hlutverk. Ég hóf
ferilinn í Þjóðleikhúsinu á sínum
tíma og finnst gaman að fá tækifæri
til að taka að mér svona mörg og
fjölbreytt verkefni í Þjóðleikhúsinu
á ný.“
Edda var strax í æsku ákveðin í að verða leikkona. MYND/EYÞÓR
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . A p R Í L 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R
2
0
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:4
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
8
2
-8
2
A
C
1
F
8
2
-8
1
7
0
1
F
8
2
-8
0
3
4
1
F
8
2
-7
E
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
1
9
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K