Tíminn - 13.02.1983, Blaðsíða 22

Tíminn - 13.02.1983, Blaðsíða 22
22 ^tnnÁn ■jfti aAúairn.« «y;>/.tn«/vw SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 1983. nútíminn SLÚÐUR O eru bráðlega að leggja í tJánmerkurferð. Heyrsl hefur að ekki sé allt með felldu innan hljómsveitarinnar en best er að taka svoleiðis slúðri með fyrirvara. 4 Ttkarrass mun víst bráðum táka upp nýja pjötu en óvíst er hver mun gefa hana út. Hljómsveitin hefur verið á miklu spani undanfarið eftir að Gummi trommuleikari kom frá Rússlandi. Talið er að sú ferð hafi ekki verið Tappanum til framdráttar. OVERDÓS! — Uppákoma á Gullströndinni, segir Luigi ■ Ég var eitthvað að viilast um í Vesturbænum, ég hann Luigi, fyrrver- andi poppfréttaritari, og gekk á hljóðið. Hljóðið kom úr húsi niðri við sjó og var tónlist, ansvíti skrýtin tónlist samt, og ég vissi varla mitt rjúkandi ráð. Náung- inn sem var með mér, hann sagði að þetta væri Gullströndin að anda, cn ég var engu nær, skal cg scgja ykkur. Pá sagði Alfreð - því þetta var enginn annar en hann - að það væri eitthvað fríkát hjá listamönnum og svo haföi hann sig á brott. Þá mundi cg, hvort ég mundi! Ég hafði lesið í blöðunum aö einmitt þetta kvöld ætti einhvur meiri háttar grúppa að spila, cinhvur samsuða úr mcginpoppurum landsins. Eitthvað fyrir fyrrverandi poppfréttaritara, sagði cg stundarhátt við sjálfan mig, og mætti á svæöið. Og hér er cg kominn á fornar slóðir, slóðir okkar Benna pís, með smápistil um hljómsveitina Mögulegt óvcrdós. Kusslax dós er nú það? spurði kjölturakki scm ég hitti í stiganum. Ég bara þóttist ekki sjá 'ann. Ég er nú vel að mér, ég sá undir eins að Bubbi var eitthvað viðriðinn málið, Bubbi Morthens, en hann var á bömmcr af því Ragnhildur Gísla hafði farið til London um morguninn og gat ekki tekið þátt í óverdósinu. Þeir sem cftir voru í grúppunni voru B., sem söng auðvitað, Mikki Pollock sem spilaði á gítar, Rúnar var á bassann, og Sævar og Halldór úr Spilafíflum spiluðu báðir á trommur. Grúppan var að byrja þcgar ég smokraði mér inn í dimman sal og djöfull voru þeir speisaðir! Málaðir í bak og fyrir, hárið allskonar á litinn og Bubbi var í einhvcrs konar ballettbúningi. Ég hélt kannski þeir mundu taka nokkur af gömlu lögunum frá Utangarðsmanna- tímanum en það var nú citthvað annað. Þeir byrjuðu bara og ég sagði við sjálfan mig: Þetta er sko óverdós! Ég er, þó ég segi sjálfur frá, ansi vel að mér í poppbransanum og fylgist vel með, en ég á cngin orð fyrir Mögulegt óverdós. Þetta varsvona tilraunatónlist, framúrstcfna, uppákoma, boddímjúsik. Bubbi nefnilega „dansaði" með, eða hreyfði sig, eða fetti, eða bretti, eða skók - allur í fílingnum. Ferlega mögnuð tónlist, hugsaði ég mcð sjálfum mér og ekki var bíómyndin síðri. Þeir sýndu sko bíómynd mcð, einhverja dásamlega B-hryllingsmynd, sem var öll um ein- hverja heila með hala sem gerðu innrás, utan úr gcimnum jheld ég, og réðust á fólkið sem hafðist við í kjallara, og heilarnir skriðu áfram og svo stukku þeir, kyrktu liöið með halanum, þangað til einn gæinn fór á stað og út í einhverja pácrsteisjon og cinhverra hluta vegna drápust allir heilarnir þegar hann var búinn að sprengja stöðina í loft upp. Þetta var ferlega spennandi mynd og tónlistin var einhvern veginn við hæfi. Ég veit ekki hversu lengi óverdósið stóð, í klukkutíma eða einn og hálfan, ég bara sat þarna inn í salnum og starði, og tónlistin var í sjálfu sér hryllileg en þetta gckk allt saman upp cinhvern veginn og ég hafði svakalega gaman af þcssu. Bubbi og strákarnir í stuði, cn hann var alltaf að röfla um að hann vildi ekki vinna í banka, eða vildi hann kannski einmitt vinna í banka? Þetta var spurn- ingin. whether to suffer the slings and arrows of outrageous fortune... Sem sagt, í klukkutíma eða einn og hálfan, sat maður undir þessari heví músík og sumum leiddist alveg hræði- lega, cn mér fannst gaman, ég segi það satt. Og á eftir, þegar þctta var búið, og Bubbi var að fá sér pönnuköku hjá Ellu Magg, þá sagði hann að þetta hefði verið algjör spuni, ekkert æft og ekki neitt. Allt fittaði samt eins og flís við rass, einhvern veginn. Frikki hcfur misst af meiri háttar happening! Aðeins þctta eina sinn. -Luigi, poppl'réttaritari (fyrrv.) - Einhvern tíma á dögunum 16.-19. febtúar mun koma fram ný hljómsveit scm æft hefur stíft að undanförnu. skipuð Eiríki og Sigurgeiri, áður i Start; Ásgeiri úr Purrk Pillnikk. og Richard Korn bassaleikara sem m.a. hefur leikið með Sinfoníunni. Margir vilja til íslands: Eyeless in Gaza vilja koma aftur — The Residents sýna landinu áhuga - Fræbbblarnir, sem ávallt hafa átt í erfiðicikum meö gítarlcikara, hafa nú klófcst tvo slíka. Eftir bestu heimildum heita þeir Snorrí og Sigurður. En einn fer þá tveir konia: Valli söngvari er víst á förum.er báft eftir loðnum heimild- lim. og cr það nokkuð átakanlegt fyrir hljómsveitina • þar sem rödd hans heíur alltaf vcrið eins konar vörumcrki Fræbbblanna. Bra ■ Það virðast þó nokkuð margar erlendar hljómsveitir hafa áhuga á því að koma hingað upp á klakann. í síðasta Nútíma greindum við frá því að von væri á The Fall og Virgin Prunes hingað og af þeim málum er það að frétta að beðið er eftir staðfestingarskeytum að utan, annað mun vera nokkuð klappað og klárt. Hljómsveitin Eyeless in Gaza mun hafa mikinn hug á að koma aftur en þeir héldu hér tónleika í fyrra. Munu þeir vera á leið vestur um haf uppúr vorinu og hafa fullanliug á að endurtaka leikinn. Það höfum við hér á Nútímanum frétt af því að bandaríska hljómsveitin The Residents hafi sýnt áhuga á því að koma hér við en þeir halda í tveggja mánaða hljómleikaför um Evrópu í sumar. Þeir eru framarlega í tæknipoppinu, synthar og hljóð „effectar" en munu hinsvegar vera nokkuð dýrir í „innkaupum" og lítt þekktir hérlendis til að þetta séu meir en „pælingar" enn sem komið er. - FRI Ný dansUjómsveit EFTIRMIÐDAGS ROKK í N-KJALLARA ■ Norður-kjallari MH er eflaust besti staður til hljómleikahalds sem finnst hér í bæ. Hann er laus við öll borð, köflótta dúka, sænska furu og nokkurn veginn laus við stóla. Stærð hans er góð og sviðið hæfilega stórt fyrir rokkhljóm- sveitir. Þennan laugardag var allt mjög vel skipulagt af þeim Tóta og Ragga og fleirum, engar tafir og soundið, sem var í höndum Kjartans Kjartans, var óað- finnanlegt. Undirritaður gat ekki verið viðstaddur nema fyrri hluta tónleikanna, eða til sjö, og ég bjóst nú við að fleiri poppskrifarar kæmu svo ég yfirgaf kjallarann með góðri samvisku. Á þessum fimm klukku- tímum sá ég 11 hljómsveitir en það er langt frá því að ég ætli að skrifa um þær allar. Annars sveik Hjörtur Geirsson okkur og lét ekki sjá sig. Bar 8, sem breytti nafni sínu á tónleikunum yfir í eitthvað sem hljómaði líkt og æsir, var eina bandið sem hljómaði eitthvað sannfærandi. Þeir sýndu fátt nýtt en lofuðu mjög góðu. Hivo Pivo voru ágætir en aðallega kom mér á óvart trommarinn úr þeirri hljómsveit, mjög lágur í lofti en virkilcga kraftmikill. Sjálf hljómsveitin náði ekki upp í þann kraft sem geislaði frá honum og ég leyfi mér að halda tram að svona ásláttur getur haft meira að segja en fimm „venjulegar" hljómsveitir saman- lagt: Ringulreið var allt annað en ringulreið, örugg og samhent rokk- hljomsveit með ekkert nýtt fram að færa. Annars voru tvær hljómsveitir þarna . sem gjörsamlega misstu marks: Nef- rennsli og Omicron. In Afghanistan hét eitt lag Nefrennslis, sem var svo óheyri- lega hallærislegt að líkja má því við þegar Big Nose Band léku á Melarokki lag sem tileinkað var Bobby Sands og hófct á þessa leið: „Bobby Sands er dauður." Textinn, In Afghanistan, var uppfullur af orðinu „fuckin", orði sem á nákvæm- lega engan samastað í íslenskum textum, þótt þeir séu á ensku. Einhverja sprautu vantaði líka í tónlist Nefrennslis. Omicr- on lék aðallega instrumental tónlist með fáguðu yfirborði og sérstaklega litlausum svip; mikið af Pink Floyd töktum með Dire Straits tilburðum og flaututónum. Hún vakti allavega engar kenndir né var uppörvandi fyrir áhorfendur. Garg og geðveiki og Lítilsháttar frík eru hljómsveitir sem hafa ekkert að gera upp á svið. Þær trufla bara með því að leika sama leik og margir þeir sem kunna of mikið á hljóðfærin: slá þau þegar'þáö þarf ekki og á ekki, í óþökk allra. Það er algjör brandari að heyra þetta lið syngja um peningaleysi, ef það nennir ekki að vinna þá hlýtur það að vera að kalla á þann meðalmennskuframleið- anda sem aumingja hipparnir og upphaf- ið menntafólk hefur reitt sig á: sósíalinn. Annars er þetta „pönk gengi“ orðið svo þreytt að óhætt fer að verða að setja samasem merki milli þess og hippanna. Siggi pönk, liðsmaður beggja ofan- greindra hljómsveita, sannaði síðan þreytumörk sín með því að skakklappast upp á svið og tilkynna hátíðlega að nú væri hann senn á förum, hanni dæi á þessu ári eða því næsta og áhorfendum væri velkomið að leysa þvag utan í gröf sína. Ásamt þreytunni er það líklega peningaleysið sem hrjáir hann og gerir honum ókleift að lifa hér. Mjög vel var staðið að þessari hátíð þótt tónlistin hafi verið misjöfn. Það væri ekki vitlaust að halda svona „big gig“ árlega, eða oftar, því þetta sýnir mjög vel hvað er að gerast á hverjum tíma og dregur líka fram eitthvað af þeim fjölda hljómsveita sem hírast hér og þar í felum. Það var bara eitt svolítið skrýtið: ég hcld að áhorfendur hafi verið færri en samanlagður fjöldi hljómsveitarmeð- lima! Bra ■ Ný danshljómsveit hefur tekið til starfa í Reykjavík. Nafn hljómsveitar- innar er Þrek. Hjómsveitina skipa: (frá vinstri) Hall- dór Erlendsson gítarleikari, Kristján Óskarsson hljómborðsleikari, Þórður Bogason söngvari, Gústaf Guðmunds- ■ Svipað og í fyrra sjáum við okkur hér á Nútímanum, ekki annað fært en að1 gefa lesendum okkar eitt tækifæri enn á því að tjá sig um hvað var best á liðnu ári og því endurbirtum við atkvæða- seðilinn einn ganginn enn. Þetta er ekki hvað síst tilkomið vegna þess að aðeins hafa borist ca. 50 seðlar ennþá og eigum við bágt með að trúa því að aðcins 50 af lesendum okkar hafi skoðanir á þessum málum. Nú ef hin skýringin er rétt. þ.e.-að aðeins séu til ca. þetta margir lcsendur þessara síðna þá er eins gott að pakka son ásláttarleikari, og Þórður Guð- mundsson bassaleikari. Hljómsveitin Þrek sérhæfir sig í fjörugri dansmúsik, lagavalið saman- stendur af vinsælum danslögum og frumsömdum stuðlögum. Bókanir eru teknar í símum Kristján 79141 og 10856 Þórður. þcim saman og fara út í eitthvað ábatasamara. Við viljum cnn benda á að fjórir af þeim sem senda inn seðla fá senda plötu að eigin vali frá Hljómplötudeild Karnabæjar. Við sögðum frá því síðast að Stuðmenn og Egó berðust um toppinn en nú hafa Þeysarar heldur betur sigið á seinni hlutann og blanda sér væntan- lega í toppbaráttuna. . Utanáskriftin er sem fyrr: Tíminn/ Nútíminn Síðumúla 15,105 Revkjavík. Vmsældakosningar Mtímans: Eitt tæki- færi enn

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.