Víkurfréttir - 22.03.2018, Side 4
4 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 22. mars 2018 // 12. tbl. // 39. árg.
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
Orgelnefnd Keflavíkurkirkju
stendur fyrir hátíðarkvöldverði og
tónleikaveislu í Hljómahöll föstu-
daginn 20. apríl þar sem fjöldi
þekktra tónlistarmanna er tengjast
kirkjunni koma fram en markmiðið
er að ljúka söfnun fyrir endurbótum
orgelsins sem eru orðnar aðkallandi
þannig að drottning hljóðfæranna
geti sinnt hlutverki sínu fyrir kom-
andi kynslóðir.
Allir þeir sem koma að verkefninu
munu gefa vinnu sína og rennur allur
hagnaður óskiptur í orgelsjóð.
„Keflavíkurkirkja hefur mótað um-
gjörðina um stærstu stundir ein-
staklinga í bænum frá vöggu til grafar.
Þar skiptir tónlistin miklu máli og er
nýtt orgel kærkomið. Því leitum við
því til bæjarbúa um aðstoð,“ sagði Sr.
Erla Guðmundsdóttir, sóknarprestur
sem er bjartsýn á að viðgerðir á orgeli
kirkjunnar geti hafist á árinu.
Orgelsjóður Keflavíkurkirkju var
stofnaður 2. febrúar 1995 í minn-
ingu Árna Vigfúsar Árnasonar sem
var formaður sóknarnefndar Kefla-
víkursóknar um árabil. Lítið var í
sjóðnum framanaf en nú hafa safnast
ríflega 20 milljónir en gert er ráð
fyrir að viðgerð á orgelinu kosti 26
milljónir. Til samanburðar má geta
að nýtt hljóðfæri myndi kostar um
60 milljónir.
Miðar á hátíðarkvöldverðinn verða
seldir til fyrirtækja og fara í almenna
sölu föstudaginn 23. mars. Miðaverð
er kr. 10.000 og fer miðasala fram í
Keflavíkurkirkju.
Hátíðarkvöld-
verður og tónleika-
veisla í Hljómahöll
-lokahnykkur í söfnun til endurbóta
orgels Keflavíkurkirkju
Arnór Vilbergsson organisti Keflavíkurkirkju við orgelið. VF-mynd: Hilmar Bragi
Skeljungur hefur lagt inn umsókn
til Reykjanesbæjar um uppsetningu
aðstöðu til vetnissölu á lóð sinni
Fitjar 1 í Reykjanesbæ.
Umhverfis- og skipulagsráðs Reykja-
nesbæjar hefur afgreitt erindið og
fellur það að skilmálum deiliskipulags
fyrir reitinn. Í afgreiðslu ráðsins er
lýst ánægju með þetta skref í um-
hverfismálum og það samþykkt.
VETNI
Á FITJAR
Eldsneytisafgreiðsla Skeljungs að Fitjum.
VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson
Orlofshús VSFK
sumar 2018
Ný orlofssíða VSFK orlof.is/vsfk er komin á vefinn.
Eftirtalin orlofshús félagsins verða leigð út í sumar:
3 hús í Svignaskarði (veiðileyfi í neðra svæði Norðurá í boði)
2 hús í Húsafelli
2 hús í Ölfusborgum
2 hús í Hraunborgum (gæludýr leyfð)
1 íbúð í raðhúsi að Núpasíðu 8h, á Akureyri
Útleigutímabil er frá föstudeginum 25. maí til og með föstudagsins
24. ágúst 2018.
Félagsmenn geta farið inn á www.orlof.is/vsfk og skráð sig inn með
Íslykli eða Rafrænum skilríkjum, fylla skal út sumarumsókn með allt að
6 valmöguleikum.
Einnig er hægt að fara inn á vsfk.is – Orlofshús (grænn takki)
Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 fimmtudaginn 5. apríl 2018.
Úthlutað verður 6. apríl samkvæmt punktakerfi.
Niðurstaða verður tilkynnt með tölvupósti til félagsmanna sem sækja um.
Orlofsstjórn VSFK
Verkalýðs- og
sjómannafélag
Keflavíkur og nágrennis
Verkalýðs- og
sjómannafélag
Keflavíkur og nágrennis
Fræðsluráð Reykjanesbæjar
hvetur til þess að tekin verði
upp umræða meðal fagaðila um
að endurskoða tilgang og fram-
kvæmd samræmdra prófa. Þetta
er niðurstaða umræðu sem fram
fór í fræðsluráði Reykjanesbæjar
sl. föstudag.
Helgi Arnarson, sviðsstjóri
fræðslusviðs, kynnti þá stöðu sem
upp er komin vegna annmarka á
framkvæmd samræmdra könn-
unarprófa sem lögð voru fyrir
nemendur í 9. bekk nýlega.
Fræðsluráð bæjarins felur Helga
Arnarsyni að vinna málið með
starfsfólki fræðslusviðs Reykja-
nesbæjar og skólastjórnendum.
Tilgangur og
framkvæmd sam-
ræmdra prófa
til skoðunar
Hraðaksturinn
kostaði 130 þúsund
Nokkrir ökumenn voru kærðir fyrir
of hraðan akstur í umdæmi Lög-
reglunnar á Suðurnesjum í vikunni.
Sá sem hraðast ók var ökumaður um
tvítugt sem mældist á 146 km hraða
á Reykjanesbraut þar sem hámarks-
hraði er 90 km á klukkustund.
Ökumannsins unga bíður 130.000
króna sekt, svipting ökuleyfis í einn
mánuð og þrír refsipunktar í öku-
ferilsskrá.
Þá voru skráningarnúmer fjarlægð af
fjórum bifreiðum vegna vanrækslu
varðandi skoðun eða tryggingar og
einn ökumaður var stöðvaður vegna
gruns um ölvun við akstur.
AUGLÝSINGASÍMINN ER
421 0001
Lokaskil auglýsinga í páskablað Víkurfrétta
er mánudaginn 26. mars kl. 12:00
Dreifum í öll hús á Suðurnesjum fyrir páska.