Víkurfréttir - 22.03.2018, Qupperneq 24
24 UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM f immtudagur 22. mars 2018 // 12. tbl. // 39. árg.
Aðalstræti – ys og læti
Það var reyndar Austurstræti, en systir hans afa rak mat-
sölu í Aðalstræti, einskonar Tjarnarkaffi eða Réttinn,
það er önnur saga. Ég er ánægður með líflínuleiðina í
bænum sem liggur frá Duushúsum í Keflavík og út á
Stapa í Njarðvík.
Þetta er aðal-
æðin í bænum
og ég vill að hún
heiti Aðalstræti
(Mainstreet) og
ná frá Duus og koma í stað Duusgötu,
Hafnargötu, Njarðarbrautar, Tjarna-
brautar og Dalsbrautar.
Þetta yrði lengsta Aðalstræti á Ís-
landi og þó víðar væri leitað. Þá fengi
setningin sem kennd er við húsið
Street „up the street“ aftur merkingu.
Við eigum líka að virkja þetta Aðal-
stræti með sér strætóleið sem æki
fram og til baka frá morgni til kvölds.
Þetta yrði leið 1 eða Aðalleið. Þetta yrði
til mikilla hagsbóta fyrir ýmsa hópa.
1. Innri Njarðvíkingar yrðu betur fé-
lagslega tengdir við restina af bænum.
2. Þetta myndi létta á umferð um Aðal-
stræti þar sem fleiri myndu nota sér
strætó.
3. Þetta yrði til mikilla hagsbóta fyrir
verslun og þjónustu á öllu Aðalstræti.
4. Ferðalangar erlendir sem íslenskir
hefðu mjög marga möguleika til að
hoppa á og af strætó og skoða t.d.
Duus, fara á kaffihús eða matsölustaði
og versla í gamla bænum, Ráðhúsið,
Villapulsu, fara á Heilsugæsluna,
augnlæknirinn, í Stapafell, hótelin,
Olsen, hafnirnar, pósthúsið, bankana,
kaupfélagshöllina, Réttinn,Kentucky,
Nettó, Miðstöð strætó (til að fara
aðrar leiðir), Das, Hljómahöllina,
Sælasjoppusvæðið, Fitjakjarnan,
Stekkjakot, Víkingaheima, bæjar-
tjaldsvæði, skóla og leikskóla og alla
leið uppá Stapa.
Aðalstræti yrði nýr möguleiki fyrir
ferðafólk (hopp on off), upplagt að
byggja upp skemmtilegt tjaldsvæði
við Stekkjarkot og færa veginn sjávar-
megin við það og nær Víkingaheimum.
Það hafa sjálfsagt fleiri fengið þessa
eða álíka hugmynd og er það gott, mér
datt þetta í hug út frá t.d. Líflínunni,
strætópælingum, Pósthússtræti og fl.
Ég hvet unga fólkið sem er að fara í
framboð til að skoða þessa hugmynd
vel því ég held að hún sé góð, alla vega
hefur hún ekki látið mig í friði.
Önnur hugmynd tengd þessari er
leiðin frá smábátahöfninni í Keflavík
og með ströndinni framhjá Kefla-
víkurhöfn eftir Bakkastíg og að
höfninni í Ytri-Njarðvík mætti heita
Hafnastræti.
Auðvitað kostar þetta eitthvað en
ég held að þetta myndi efla verslun,
þjónustu og ferðamennsku, auk
þess að auðvelda fólki að ferðast á
milli bæjarhluta og sækja vinnu og
skemmtun.
Nafngiftir hafa ótrúlega mikið að
segja þegar sameiningarmál eru ann-
ars vegar, auk skipulagsmála.
Aðalstræti ys og læti og fólk í strætó-
sæti.
Hjalti Örn Ólason
áhugamaður um bætt mannlíf
á Suðurnesjum.
V I L T Þ Ú V E R Ð A
H L U T I A F G Ó Ð U
F E R Ð A L A G I ?
Hringur er flugumferðarstjóri
í flugstjórnarmiðstöðinni
í Reykjavík. Hann er hluti
af góðu ferðalagi.
S TA R F S S T Ö Ð :
K E F L AV Í K
U M S Ó K N A R F R E S T U R :
2 . A P R Í L
U M S Ó K N I R :
I S AV I A . I S/AT V I N N A
Hjá Isavia starfar öflugur hópur fólks sem allt hefur það að markmiði að vera hluti af góðu
ferðalagi þeirra sem fara um flugvelli félagsins og íslenska flugstjórnarsvæðið.
Isavia hefur hlotið gullmerki PwC fyrir launajafnrétti og hvetjum við bæði konur og karla
til að sækja um þau störf sem í boði eru.
Vegna kröfu reglugerðar um flugvernd þurfa umsækjendur að fylla út og skila inn umsókn vegna
bakgrunnskoðunar lögreglu og vera með hreint sakavottorð. Nánari upplýsingar er að finna á isavia.is.
Helstu verkefni eru eftirlit með tölvubúnaði í innritun
og flugupplýsingaskjám, aðstoð við uppsetningu á vél-
og hugbúnaði og uppsetningar og viðhald á tölvum,
prenturum og öðrum jaðarbúnaði.
Nánari upplýsingar veitir Axel Einarsson, deildarstjóri
Kerfisþjónustu, axel.einarsson@isavia.is.
Hæfniskröfur
• Góð þekking á Microsoft lausnum
• Þjónustulund og hæfni til að vinna sjálfstætt
• Þekking á IP og netkerfum er kostur
• Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
• Kostur að hafa lokið CompTIA A+ gráðunni
Isavia óskar eftir kerfisstjóra í notendaþjónustu við tölvukerfi
Isavia á Keflavíkurflugvelli. Helstu verkefni eru notenda-
þjónusta, uppsetningar og viðhald á tölvum, pantanir, skráning-
ar og samskipti við birgja. Gríðarleg áhersla er lögð á uppitíma
kerfa. Lögð er áhersla á að nota nýjustu tækni við að leysa
flókin vandamál.
Nánari upplýsingar veitir Axel Einarsson, deildarstjóri
Kerfisþjónustu, axel.einarsson@isavia.is.
Hæfniskröfur
• Kostur að hafa lokið MS prófgráðu eins og MCSA eða MCITP
• Kostur að hafa lokið kerfisstjóranámi
• Kostur að hafa lokið CompTIA A+ gráðu
• Skilningur og þekking á Microsoft Windows umhverfi
• Þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum
Við leitum að ábyrgum og úrræðagóðum einstaklingum með
sjálfstæð vinnubrögð til að sinna störfum húsvarða í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar. Um framtíðarstörf er að ræða í krefjandi
umhverfi. Unnið er á dag- og næturvöktum.
Nánari upplýsingar veitir Bjarni Freyr Borgarsson, hópstjóri
rekstrarstjórnstöðvar, bjarni.borgarsson@isavia.is.
Hæfniskröfur
• Aldurstakmark 20 ár
• Nám í iðnmenntun eða önnur sambærileg menntun/reynsla
• Góð kunnátta í ensku og íslensku
• Góð tölvukunnátta er skilyrði
Isavia óskar eftir að ráða kerfisstjóra í net- og símamálum
með góða þekkingu á Cisco netbúnaði og netkerfum.
Kerfisþjónustan rekur eitt stærsta tölvu- og netkerfi á Íslandi.
Gríðarleg áhersla er lögð á uppitíma kerfa. Lögð er áhersla
á að nota nýjustu tækni við að leysa flókin vandamál.
Nánari upplýsingar veitir Axel Einarsson, deildarstjóri
Kerfisþjónustu, axel.einarsson@isavia.is.
Hæfniskröfur
• Cisco CCNA gráða er kostur (R&S, Voice eða Wireless)
• Þekking á búnaði frá Cisco og Palo Alto er kostur
• Þekking á Cisco símaumhverfi er kostur
• Þekking á Cisco WiFi er kostur
• Almenn þekking á IP, Layer 2 og 3 samskiptum er æskileg
K E R F I S Þ J Ó N U S T A
S U M A R S T A R F
K E R F I S S T J Ó R I
Á K E F L A V Í K U R F L U G V E L L I
F R A M T Í Ð A R S T Ö R F
H Ú S V A R Ð A
K E R F I S S T J Ó R I
N E T O G S Í M A M Á L A