Víkurfréttir - 18.04.2018, Page 2
2 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM miðvikudagur 18. apríl 2018 // 16. tbl. // 39. árg.
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a,
4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími
421 0004, pket@vf.is // Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
// Blaðamaður: Rannveig Jónína Guðmundsdóttir, sími 421 0002, rannveig@vf.is //
Auglýsingastjóri: Andrea Sif Þorvaldsdóttir, sími 421 0001, andrea@vf.is // Útlit & um-
brot: Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is // Afgreiðsla: Aldís Jónsdóttir, sími 421
0000, aldis@vf.is, Dóróthea Jónsdóttir, dora@vf.is // Prentun: Landsprent // Upplag:
9000 eintök // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið andrea@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17:00
á mánudegi fyrir útgáfudag, sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga
er á vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15:00 á mánudögum. Sé fimmtudagur frídagur
þá kemur blaðið út á miðvikudögum. Dreifing blaðsins tekur að jafnaði tvo daga og er
dreift inn á öll heimili á Suðurnesjum.
Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur
frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða greinar birtast í prentaðri útgáfu Víkurfrétta.
Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á
vefsíðum Víkurfrétta.
FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
MANNLÍF Á SUÐURNESJUM
VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM
ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM
UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
REYKJANESBÆR GRINDAVÍK VOGARGARÐUR
4° 40kg 14° 1250kg 12° 75kg12° 4kg
SPÁÐ ER SENDINGUM
UM ALLT REYKJANESFLUTNINGASPÁ DAGSINS
SANDGERÐI
-20° 150kg
Fyrirtæki á vegum Bláa Lónsins
hf. hóf rekstur þann 12. apríl sl.
á eigin áætlunarferðum til og frá
Bláa Lóninu undir heitinu Destina-
tion Blue Lagoon. Um er að ræða
ferðir í Bláa Lónið frá Reykjavík og
Keflavíkurflugvelli. Markmiðið er að
bjóða gestum víðtækari þjónustu og
tryggja samræmi í upplifun þeirra
á meðan á heimsókn þeirra í Bláa
Lónið stendur. Lagt er upp með að
ferðirnar verði á klukkutíma fresti.
Destination Blue Lagoon er fyrirtæki
í meirihlutaeigu Bláa Lónsins hf. en
samstarfsaðili félagsins í þessu verk-
efni er hópferðafyrirtækið Airport
Direct ehf., sem er dótturfélag Hóp-
bíla hf. segir í frétt frá Bláa Lóninu.
Loftrýmisgæsla Atlantshafsbanda-
lagsins við Ísland er að hefjast að
nýju með komu flugsveitar danska
flughersins. Alls munu um 60 liðs-
menn danska flughersins taka þátt
í verkefninu og til viðbótar starfs-
menn frá stjórnstöð NATO í Uedem,
Þýskalandi (Combined Air Opera-
tions Center). Flugsveitin kemur til
landsins með fjórar F-16 orrustu-
þotur.
Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að
varaflugvöllum á Akureyri og Egils-
stöðum á tímabilinu 12. til 17. apríl.
Verkefnið verður framkvæmt með
sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í
samræmi við loftrýmisgæsluáætlun
NATO fyrir Ísland. Flugsveitin verður
staðsett á öryggissvæðinu á Kefla-
víkurflugvelli. Ráðgert er að verk-
efninu ljúki um mánaðamótin apríl/
maí. Verkefnið er framkvæmt af Land-
helgisgæslu Íslands í samvinnu við
Isavia.
BLÁA LÓNIÐ STOFNAR RÚTUFYRIRTÆKI
LOFTRÝMISGÆSLA NATO
VIÐ ÍSLAND AÐ HEFJAST
Listahátíð barna verður formlega
sett fimmtudaginn 26. apríl og er
það í 13. sinn sem hátíðin verður
haldin. Yfirskrift hátíðarinnar
í ár er “Börn um víða veröld” en
þátttakendur í hátíðinni eru allir
tíu leikskólar bæjarins, allir sex
grunnskólarnir, Fjölbrautaskóli
Suðurnesja, Tónlistarskóli Reykja-
nesbæjar og dansskólarnir Bryn
Ballett Akademían og Danskompaní.
Glæsilegar listsýningar verða í Duus
Safnahúsum að venju og Hæfileika-
hátíð grunnskólanna fer fram 9.
maí.
Helgina 28. og 29. apríl verða svo sér-
stakir fjölskyldudagar þar sem fjöl-
skyldum gefst kostur á að taka þátt
í skemmtilegri dagskrá á svæðinu
í kringum Duus Safnahús þeim að
kostnaðarlausu. Sunnudaginn 29.
apríl fara svo fram skemmtilegir
fjölskyldutónleikar í Stapa þar sem
tónlistararfur Suðurnesja sem snýr
að börnum verður rifjaður upp. Það
er Tónlistarskóli Reykjanesbæjar sem
heldur tónleikana og sérstakur gestur
þeirra er Magnús Kjartansson sem var
öflugur fulltrúi þessarar tónlistar á
sínum tíma og kom t.a.m. að útgáfu
hljómplatna með barnastjörnunni
Rut Reginalds.
Listahátíð barna í fullum undirbúningi
Frá setningarhátíð listahátíðar barna í Duus Safnahúsum á síðasta ári.
Forráðamenn fyrirtækja og stofn-
ana á Ásbrú hafa tekið höndum
saman í gróðursetningarátaki.
Markmiðið er að hvetja aðila á
Ásbrú að gróðursetja í nánasta um-
hverfi sínu. Hópurinn hefur fengið
Bjarna Þór Karlsson, skrúðgarða-
fræðing til liðs við sig og hefur
hann útbúið tillögu að gróður-
setningu sem hver aðili getur gert.
Guðmundur Pétursson, fram-
kvæmdastjóri hjá ÍAV á Ásbrú
kallaði forráðamenn fyrirtækja
og stofnana saman en mikill áhugi
hefur vaknað um að gera gott átak
í gróðursetningu Ásbrú. „Þetta er
og verður skemmtilegt samfélags-
verkefni. Það eru flestir til í að gera
umhverfi okkar fallegra og vistlegra,“
sagði Guðmundur.
Bjarni Þór fór yfir tillögu sína sem
felst í því að hver aðili byrji á því
að gróðursetja um 25 m2 reit í sínu
umhverfi sem væri með um tuttugu
trjám af ýmsum gerðum. Hann mun
verða aðilum til aðstoðar og ráð-
gjafar í gróðursetningunni. Litið er
á þetta sem langtímaverkefni.
Fljótlega verður efnt til hreins-
unardags á Ásbrú en síðan verður
sérstakur gróðursetningardagur í
september en þá er góður tími til
að gróðursetja trén að sögn Bjarna.
Stjórn var kosin á fundinum til að
fylgja málinu eftir en hana skipa
Anna Guðmundsdóttir, skólastjóri
Háaleitisskóla sem er formaður en
með henni eru þeir. Sigþór Skúlason
frá Airport Associates og Hjálmar
Árnason, framkvæmdastjóri Keilis.
Hluti forráðamanna fyrirtækja og aðila sem vinna að gróðursetningarátaki. VF-mynd/pket.
Gróðursetningarátak á Ásbrú
-fyrirtæki og stofnanir vinna saman að verkefninu