Víkurfréttir - 18.04.2018, Qupperneq 12
12 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM miðvikudagur 18. apríl 2018 // 16. tbl. // 39. árg.
Sunneva Fríða og Jón Tómas fóru með stuttum fyrirvara í fjögurra mánaða
reisu þar sem þau heimsóttu meðal annars Nýja Sjáland og Kambódíu. Sunn-
eva segir að þau hafi alltaf verið að tala um hversu skemmtilegt það væri að
fara í langt ferðalag og skoða heiminn betur, Jón Tómas stakk síðan upp á því
að fara í reisu og ferðin var bókuð um mánuði seinna.
Ferðalag þeirra var í heildina fjórir
og hálfur mánuður og á þeim tíma
heimsóttu þau Sunneva og Jón Dubai,
Maldíveyjar, Sri Lanka, Singapore,
Malasíu, Tæland, Víetnam, Kambódíu,
Balí, Ástralíu, Nýja Sjáland, Fiji og
Hong Kong. Þegar Sunneva er spurð
hvað hafi staðið upp úr í ferðinni,
þá segir hún að það sé ómögulegt að
nefna eitthvað eitt, því það hafi verið
svo ótrúlega margt sem stóð upp úr.
„Sri Lanka kom okkur mjög á óvart,
mikið menningarsjokk en ótrúlega
fallegt land og indælt fólk. Við lærðum
að kafa í Tælandi sem var ótrúlega
skemmtilegt. Fórum einnig í fílaat-
hvarf í Tælandi þar sem við fengum
að labba með og baða frjálsa fíla sem
hefur verið bjargað úr túristaþrælkun,
það var mögnuð upplifun.“ Sunneva
nefnir einnig Halong Bay í Víetnam,
Killing Fields í Kambódíu (gott að
Googla það) og Angkor Wat. Eyja-
hopp á Fiji þar sem þau snorkluðu
með hákörlum og hún gæti haldið
endalaust áfram.
Skipulagning ferðarinnar tók ekki
langan tíma en þau fóru á fund með
ferðaskrifstofunni Kilroy og ákváðu
til hvaða landa þau ætluðu að fara til
og hvað þau ætluðu að eyða löngum
tíma í hverju landi. „Við bókuðum svo
flugin í gegnum þau en vorum ekki
Rannveig Jónína
Guðmundsdóttir
rannveig@vf.is
VIÐTAL
„Það er
æðisleg
lífreynsla
að ferðast“
Við lærðum að kafa í
Tælandi sem var ótrúlega
skemmtilegt. Fórum einnig
í fílaathvarf í Tælandi þar
sem við fengum að labba
með og baða frjálsa fíla
sem hefur verið bjargað úr
túristaþrælkun ...
Sunneva og Jón Tómas köfuðu í Tælandi.
Á hobbitaslóðum á Nýja Sjálandi.
Störf í boði
hjá Reykjanesbæ
Holtaskóli – Aðstoðarskólastjóri
Heiðarskóli – Skólaritari
Málefni fatlaðs fólks – Störf í þjónustukjörnum
Holtaskóli – Umsjón fasteigna
Leikskólinn Heiðarsel – Deildarstjóri
Hæfingarstöðin – Matráður í 50% starf
Velferðarsvið – Störf á heimilum fatlaðs fólks
Grunnskólar – Fjölbreytt störf í öllum skólum
Vinnuskóli – Flokkstjórar
Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum
vef Reykjanesbæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf. Þar
eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf og
á facebook síðunni Reykjanesbær – laus störf.
Viðburðir
í Reykjanesbæ
Bókasafn Reykjanesbæjar - Ævintýri Tinna
Miðvikudagskvöldið 18. apríl klukkan 20.00 kemur
Gísli Marteinn Baldursson og fjallar um Tinna bækurnar
sívinsælu. Allir hjartanlega velkomnir.
Lærdómsvegurinn - kynning á Nesvöllum
Friðþór Vestmann Ingason fjallar um reynslu sína
að greinast með geðsjúkdóm og kynnir bók sína
Lærdómsveginn á Nesvöllum mánudaginn 23. apríl
klukkan 18:00. Allir velkomnir.
Sumar í Reykjanesbæ - Ertu með?
Ef þitt félag eða klúbbur vill vera með í Sumar í
Reykjanesbæ vinsamlegast sendið upplýsingar á
netfangið sumar@reykjanesbaer.is