Víkurfréttir - 12.04.2018, Síða 8
8 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 12. apríl 2018 // 12. tbl. // 39. árg.
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga
kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84
Helgihald í
Njarðvíkurprestakalli
12. apríl til 18. apríl 2018.
Ytri-Njarðvíkurkirkja
Kóræfing í Ytri-Njarðvíkurkirkju
17. apríl kl.19:30. Nýtt söngfólk boðið
velkomið.
Vinavoðir miðvikudaginn 18. apríl
kl.10:30-13:30.
Njarðvíkurkirkja (Innri)
Fjölskylduguðsþjónusta 15. apríl
kl. 11:00.
Samhliða guðsþjónustunni verður
Sunnudagaskóli kl. 11:00 í umsjá
Heiðars og Péturs.
Foreldramorgun í Safnaðarheimili
Njarðvíkurkirkju þriðjudaginn
17. apríl kl.10.30.
Umsjón hefur Emilía B. Óskarsdóttir.
Æskulýðsstarfssemi KFUM/K í Njarð-
víkurkirkju (Innri) 12. apríl
kl. 19:30-20:30. Umsjón hefur Heiðar
Örn Hönnuson.
SUNNUDAGURINN 15. APRÍL KL. 11 OG 14
Heiðarskólabörn verða fermd
í hátíðarguðsþjónustu.
SUNNUDAGURINN 22. APRÍL KL. 11
Myllubakkaskólabörn verða fermd
í hátíðarguðsþjónustu.
Í öllum fermingarguðsþjónustum
syngur Kór Keflavíkurkirkju undir stjórn
Arnórs organista. Sr. Fritz Már og
sr. Erla þjóna ásamt messuþjónum
HVER MIÐVIKUDAGUR KL. 12
Alla miðvikudaga í hádeginu er boðið uppá
kyrrðarstund í kapellu vonarinnar. Arnór, Fritz
og Erla leiða stundirnar. Gæðakonur bera fram
súpu og brauð í Kirkjulundi að lokinni stund.
Verið öll velkomin
RAUÐAKROSSBÚÐIN
Smiðjuvöllum 8, Reykjanesbæ
Opnunartímar
Miðvikudagar frá kl. 13:00 – 17:00
Fimmtudagar frá kl. 13:00 – 17:00
Fatnaður og skór.
Rauði krossinn
á Suðurnesjum
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur stuðning,
vináttu og samúð við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu, langömmu og langalang-
ömmu
ÁSU EYJÓLFSDÓTTUR
frá Sandgerði
sem lést þriðjudaginn 20. mars 2018 og var jarðsett miðvikudaginn
28. mars 2018.
Sérstakar þakkir til starfsfólks og íbúa á Hrafnistu Nesvöllum fyrir góða
umönnun og hlýhug í hennar garð.
Dóra Garðarsdóttir Ögmundur Magnússon
Guðmundur Garðarsson Brynhildur Guðmundsdóttir
Geir Garðarsson Helga Ingimundardóttir
Guðrún Garðarsdóttir Birgir Þórbjarnarson
Eyjólfur Garðarsson Kristín Magnúsdóttir
Hafdís Garðarsdóttir Einar Jónsson
Jórunn Garðarsdóttir Hilmar Magnússon
Garðar Garðarsson Kristín Bárðardóttir
Sigurður Garðarsson Lilja Ármannsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Á sunnudag lýkur þremur sýningum í Duus Safnahúsum
og því allra síðasti séns að líta við og skoða þessar glæsi-
legu sýningar. Í listasal lýkur sýningunni Hjartastaður
sem samanstendur af málverkum af Þingvöllum eftir
marga af helstu myndlistarmönnum 20. aldar. Verkin
koma öll úr einkasafni Sverris Kristinssonar og er
sýningin framlag Listasafnsins í tilefni 100 ára afmælis
fullveldis á Íslandi.
Í Gryfju lýkur sýningunni Reykjanesbær, verndarsvæði í
byggð? þar sem þeirri spurningu er velt upp hvort ástæða
sé til að vernda ákveðin svæði í Reykjanesbæ, svo sem
gamla bæinn, vegna menningarsögulegs mikilvægis?
Á sýningunni fá gestir einstakt tækifæri til að skilja sína
skoðun eftir og eru allir hvattir til að taka þátt í þeirri
„umræðu“.
Í Stofunni lýkur sýningunni „Undir pressu“ sem er sam-
sýning nokkurra félaga í Félagi myndlistarmanna í Reykja-
nesbæ. Verkin voru unnin með með óhefðbundnum
grafíkaðferðum (Painterly Print) undir leiðsögn lista-
konunnar Elvu Hreiðarsdóttur.
Ókeypis aðgangur er á sýningarnar og opið er alla daga
frá kl. 12-17.
Skipulags- og byggingarnefnd
Sveitarfélagsins Garðs leggur til við
bæjarstjórn að breyting á aðalskipu-
lagi við Rósaselstorg verði samþykkt
og send til Skipulagsstofnunar til
staðfestingar.
Aðalskipulag Garðs 2013–2030 hefur
verið til meðferðar síðustu misseri.
Meðal annars tillaga að breytingu
vegna Rósaselstorgs, Garðvangs og
hindrunarflata Keflavíkurflugvallar.
Áform eru uppi um talsverða upp-
byggingu við Rósaselstorg í landi
Sveitarfélagsins Garðs. Þar eru uppi
áform um byggingu verslunar- og
þjónustumiðstöðvar. Gengið hefur
verið frá samningum við fjóra aðila
um rekstur í verslunar- og þjón-
ustukjarnanum Rósaselstorgi sem
áætlað er að rísi rétt við flugstöðina
á Keflavíkurflugvelli. Á meðal þeirra
eru Nettó með matvöruverslun,
Subway, Pizza Hut, KFC, Taco Bell
og Grill 66 með veitingastaði og Olís
með eldsneytissölu og þjónustu. Auk
fjölbreyttrar þjónustu við erlent og
innlent ferðafólk þá er þess vænst að
staðsetning kjarnans geti verið gátt að
ferðamannastöðum á Reykjanesi og
fjölgað þeim erlendu ferðamönnum
sem staldra við á svæðinu, að því er
fram kemur í tilkynningu frá Kaup-
félagi Suðurnesja sem unnið hefur að
opnun þjónustukjarnans og var birt
haustið 2016.
Samhliða mikilli fjölgun farþega um
Keflavíkurflugvöll hefur þörf fyrir
fjölbreyttari verslun og þjónustu á
flugvallarsvæðinu aukist. Greiðlega
hefur gengið að fá rekstraraðila að
verkefninu sem leigja munu rými í
nýja kjarnanum en dregist hefur að
hefja framkvæmdir þar sem enn er
verið að hnýta lausa enda í skipulagi
svæðisins. Þeir endar ættu að vera
hnýttir með samþykkt aðalskipu-
lagsins.
ERTU BÚIN(N) AÐ SJÁ ÞETTA?
Aðalskipulag vegna Rósasels-
torgs sent til staðfestingar
Áform eru uppi um talsverða uppbyggingu við Rósaselstorg í
landi Sveitarfélagsins Garðs. Þar eru uppi áform um byggingu
verslunar- og þjónustumiðstöðvar.