Víkurfréttir - 12.04.2018, Blaðsíða 9
9FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 12. apríl 2018 // 12. tbl. // 39. árg.
Hljómahöll 20. apríl 2018
TIL STUÐNINGS ORGELSJÓÐI KEFLAVÍKURKIRKJU
Húsið opnar kl. 19:30
Forréttir og létt tónlist
Borðhald hefst 20:30
Dagskrá lýkur 23:30
Miðaverð kr. 10.000.
Hátíðarkvöldverður og tónlistarveisla
Miðasala er hafin og fer fram í Keflavíkurkirkju
Það má búast við fjölmennum félagsfundi í
Verslunarmannafélagi Suðurnesja á fimmtu-
dagskvöld í Hljómahöll. Til fundarins er
boðað til að ræða framlengingu skilafrests
á framboðsgögnum til allsherjarkosningar í
Verslunarmannafélagi Suðurnesja. Fundur-
inn er haldinn á grundvelli laga félagsins um
að haldin skuli félagsfundur ef a.m.k. 50 fé-
lagsmenn óska þess. Fyrir liggur slík beiðni.
Samkvæmt ákvörðun stjórnar og trúnaðar-
ráðs frá 5. febrúar var samþykkt að viðhafa
allsherjaratkvæðagreiðslu við kjör stjórnar
og trúnaðarráðs. Auglýst var eftir framboðum
og bárust tveir listar sem merktir voru A-listi
stjórnar og trúnaðarráðs og B-listi. B-listi upp-
fyllti ekki, að mati kjörstjórnar, þau skilyrði
sem sett eru fyrir framboði og úrskurðaði kjör-
stjórn að einungis einn listi væri löglega fram
borinn, A-listi, en í fundargerð kjörstjórnar
frá 19. mars 2018 segir: „Einungis eitt fram-
boð var löglega framkomið, A-listi stjórnar
og trúnaðarráðs og er hann því sjálfkjörinn.“
Fundarefni félagsfundar VS á fimmtudagskvöld
varðar framkvæmd allsherjaratkvæðagreiðslu
við kosningu stjórnar og trúnaðarmannaráðs
og ósk um framlengdan framboðsfrest.
Einar Már Atlason hefur farið fyrir framboði
B-lista en Tómas Elí Guðmundsson er for-
mannsefni listans. Í viðtali í útvarpsþættinum
Í bítinu á Bylgjunni á þriðjudagsmorgun sögðu
þeir Einar Már og Tómas Elí að óánægja væri
með störf Guðbrands Einarssonar ,formanns
Verslunarmannafélags Suðurnesja, og að fólk
vildi fá að kjósa í félaginu.
Einar Már hefur skrifað tvær greinar um
stjórnarkjörið í Víkurfréttir og Tómas Elí hefur
ritað greinar á Stundina.
Kosningabaráttan hefur hins vegar að mestu
farið fram á samfélagsmiðlunum þar sem
Sósíalistaflokkur Íslands tengist m.a. bar-
áttunni með beinum hætti. Þar hafa þeir Einar
Már Atlason og Þórólfur Júlían Dagsson, odd-
viti Pírata í Reykjanesbæ, komið að málum.
„Næsta hallarbylting er hafin,“ skrifar Einar
Már Atlason á Facebook-síðu Sósíalistaflokks
Íslands og deilir þar færslu frá „Vor í Versló“
sem er stuðningshópur B-lista framboðs í
Verslunarmannafélagi Suðurnesja. Þórólfur
Júlían skrifar á vegg Sósíalistaflokks Íslands
að komið sé mótframboð í Verslunarmanna-
félagi Suðurnesja af mjög öflugum aðilum
og að hlaða þurfi í framboð fyrir Verkalýðs-
og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis
og í Starfsmannafélag Reykjanesbæjar, þar
á Þórólfur örugglega við Starfsmannafélag
Suðurnesja.
En hverju svarar Guðbrandur Einarsson, for-
maður VS, óánægjuröddum sem Einar Már og
Tómas Elí lýsa með störf formanns VS í viðtali
við Í bítið á Bylgjunni?
„Það er aldrei svo að maður sé óumdeildur en
ég skil það hins vegar vel að þessir tveir séu óá-
nægðir með mig. Ég er hins vegar alveg meðvit-
aður um vaxandi óánægju í flugstöðinni vegna
aukins álags á starfsmenn sem hefur vaxið
verulega frá því að síðasti kjarasamningur
var gerður. Það verður viðfangsefnið í næstu
kjarasamningsgerð að takast á við það. Held
hins vegar að fólk sé almennt ánægt með þá
þjónustu sem við erum að veita félagsmönnum
hér á skrifstofunni, sem hefur stöðugt verið
að aukast og mun halda áfram að aukast.“
Þú hefur væntanlega séð umræðu á samfélags-
miðlum og á síðu Sósíalistaflokksins um verka-
lýðsmálin. Er Sósíalistaflokkur Íslands að
reyna hallarbyltingu í Verslunarmannafélagi
Suðurnesja?
„Ég get engu svarað til um það en mér þykir það
undarlegt að oddviti Pírata hér í Reykjanesbæ
skuli vera að hvetja til mótframboða í stéttar-
félögum hér á Suðurnesjum inn á þessari síðu
Sósíalistaflokksins. Hlaða í mótframboð eins
og hann orðar það svo smekklega.“
Það hafa verið ýmsar uppákomur síðustu daga
og m.a. birtar upplýsingar um tengsl sitjandi
stjórnar við atvinnulífið. Hvernig er þetta að
snerta ykkur?
„Allar þessar uppákomur hafa haft veruleg
áhrif á starfsemi okkar hér á skrifstofunni og á
starfsfólkið. Það gefur auga leið. Þessar meintu
upplýsingar sem þú kallar svo, eru hins vegar
ekkert annað en lúaleg aðferð þeirra félaga til
þess að reyna að kasta rýrð á trúverðugleika
okkar sem höfum starfað fyrir félagið. Það
er engin synd að tengjast atvinnulífinu og
margir launþegar hafa þannig tengingar, án
þess að koma með virkum hætti að stjórnun
og rekstri. Það eru hins vegar til dæmi þess að
fólk hafi þurft að segja sig úr stjórn VS þegar
að það fór úr hlutverki launþega í hlutverk
atvinnurekenda. En að ég sé að planta atvinnu-
rekendum í stjórn VS til þess eins að halda
launakjörum félagsmanna niðri er auðvitað
bara fáránlegt og sýnir best innræti þeirra
sem halda slíku fram.
Ég er giftur hárgreiðslukonu sem rekur hár-
greiðslustofu og er ég þá sem helmingseigandi
í öllu því sem konan mín á, orðinn atvinnu-
rekandi skv. þeirra skilningi? Maki Tómasar
Elí sem einnig bíður sig fram í varastjórn VS
með Tómasi á skráð fyrirtæki. Er þá Tómas Elí
sem skrifaði þessa makalausu grein á Stundina
ekki orðinn vanhæfur til þess að bjóða sig
fram fyrir hönd B-lista? Svona umræða þjónar
auðvitað engum tilgangi og ekki þess virði að
tekið sé þátt í henni. Reynum heldur að láta
þetta snúast um það sem skiptir máli, þ.e. kjör
okkar félagsmanna og þjónustuna við þá.“
Í viðtali við Í bítið á Bylgjunni sögðu þeir Einar
Már og Tómas Elí að ef þeir komist til valda í
Verslunarmannafélagi Suðurnesja þá ætli þeir
að hafa félagið meira opið, setja meiri pressu á
ríkisvaldið og alvöru baráttu um kaup og kjör.
Guðbrandur Einarsson, formaður VS, hvetur fé-
lagsmenn til að mæta á félagsfundinn í Hljóma-
höll á fimmtudagskvöld og láta sig málið varða.
FÉLAGSMENN LÁTI SIG MÁLIÐ VARÐA
Búast við fjölmennum félagsfundi í Verslunarmannafélagi Suðurnesja á fimmtudagskvöld: