Víkurfréttir - 12.04.2018, Qupperneq 10
10 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 12. apríl 2018 // 15. tbl. // 39. árg.
Vorhátíð
Félags eldri borgara á Suðurnesjum
verður haldin Sumardaginn fyrsta,
fimmtud. 19. apríl, kl.15,
í Gjánni við Austurveg 3 í Grindavík
(viðbygging við íþróttahúsið, austanmegin).
Kvenfélag Grindavíkur sér um veitingar,
nemendur Tónlistaskólans koma fram og
Suðurnesjamenn sjá um meiri tónlist og söng.
Gjald kr. 2000 – Ath! engin posi á staðnum.
Allir félagar á Suðurnesjum velkomnir!
Taktu stefnuna með okkur
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ boðar til fundar
með bæjarbúum til að móta stefnuna og skerpa á
málefnunum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Unnið verður í málefnahópum.
Fundurinn verður haldinn í sal Réttarins, Hafnargötu 90,
þann 12. apríl kl. 19:30 – 21:30.
Vinnum saman að því að móta bæjarfélagið okkar
Velunnarar Orgelsjóðs Keflavíkur-
kirkju standa fyrir hátíðarkvöld-
verði og tónleikaveislu í Hljóma-
höll þann 20. apríl n.k. og er við-
burðurinn lokahnykkur í söfnun til
endurbóta orgels Keflavikurkirkju.
„Orgel eru oft kölluð drottning
hljóðfæranna og þaðan kemur
heitið, Drottningin kallar en þetta
höfuðhljóðfæri kirkjunnar hefur
ekki getað sinnt hlutverki sínu sem
skyldi um hríð – sem er bagalegt
fyrir kirkju með jafn ríkt tónleika-
starf og Keflavíkurkirkja,“ segir Erla
Guðmundsdóttir sóknarprestur
Keflavíkurkirkju.
Endurbætur orgelsins eru því að sögn
sóknarprestsins orðnar aðkallandi en
í stað þess að kaupa nýtt orgel sem
er kostnaðarsamt var tekin ákvörðun
um að gera við gamla hljóðfærið og
vantar aðeins herslumuninn upp á að
viðgerð geti hafist. Fyrirhugað er að
gera á því endurbætur þar sem nýjum
röddum verður bætt við og skipt
um mikilvæga hluta hljóðfærisins.
Þetta mun gefa því aukinn hljóm og í
rauninni nýtt líf auk þess sem ásýnd
söngloftsins mun breytast þar sem
útlit orgelsins verður meira í sam-
ræmi við bogalínur kirkjuskipsins.
Allir þeir sem taka þátt í viðburð-
inum gefa vinnu sína en fram kemur
fjöldi tónlistarfólks sem vill styðja við
þetta þarfa framtak. Að sjálfsögðu
stígur kór Keflavíkurkirkju á svið
og aðrir kórar sem starfa þar eins og
Vox Felix og Skapandi starf en þar að
auki munu aðrir þekktir tónlistar-
menn og velunnarar kirkjunnar stíga
á stokk. Að sögn Erlu vantar aðeins
herslumuninn upp á að sóknin nái
því markmiði að safna uppí þá tölu
sem tilboð Björgvins Tómassonar,
orgelsmiðs, hljóðar uppá. Fyrir aðeins
fáeinum árum var fjarlægur draumur
að ná þessu en sú staðreynd að komið
er svo nálægt markinu er öðru fremur
til marks um velvild íbúa á Suður-
nesjum í garð Keflavíkurkirkju og
samtakamátt. Án stuðnings þess hóps
hefði þessu markmiði aldrei verið ná
„Við gerum ráð fyrir glæsilegu kvöldi
og tónlistarskemmtun og gestir geta
um leið látið gott af sér leiða. Orgel-
nefnd Keflavíkurkirkju hvetur fólk
til að koma og njóta þessa kvölds og
þannig styðja við verkefnið,“ segir
sóknarpresturinn.
Miðasala fer fram í Keflavíkurkirkju
og er miðaverð kr. 10.000 sem rennur
óskipt í Orgelsjóð Keflavíkurkirkju.
Nemendur í leiklistarvali Heiðar-
skóla frumsýndu söngleikinn Pinnar
& Púkar á árshátíð skólans þann
16.mars. Þær Guðný Kristjánsdóttir
og Maria Óladóttir leikstýrðu krökk-
unum eins og undanfarin mörg ár.
Leikgerð Maríu Óladóttur er unnin
upp úr söngleiknum Trolls og fjallar
um, eins og nafnið gefur til kynna,
Gleði-pinna og Fýlu-púka sem eru
ólíkir á margan hátt en eiga samt
svo margt sameiginlegt þegar alvara
lífsins með öllum sínum kostum og
göllum bankar upp á. Leikur, söngur,
dans og gleði einkennir sýninguna og
fara nemendur á kostum.
Á hverju vori er sett á svið metnaðar-
full sýning nemenda skólans og eru
nemendur búnir að leggja hart að sér
við uppsetningu sem þessa. Þess vegna
var ákveðið að hafa tvær aukasýningar
á þessu snilldarverki fyrir almenning
og verða þær miðvikudagskvöldið 11.
apríl og í kvöld, fimmtudagskvöldið
12. apríl á sal Heiðarskóla. Miðaverð
er 1000 krónur og rennur allur ágóði
sýningarinnar til nemenda skólans.
Prestar Keflavíkurkirkju, þau Erla og Fritz og Arnór organisti við orgelið sem bíður endurbóta. VF-mynd/hilmarbragi.
„Drottningin kallar“
í Hljómahöll
– Styrktarkvöld vegna orgels Keflavíkurkirkju föstudagskvöldið 20. apríl
GLEÐI-PINNAR & FÝLU-
PÚKAR Í HEIÐARSKÓLA
Grindvíkingurinn og bakarinn Hrafnhildur Anna Kroknes Sigurðardóttir,
keppir fyrir Íslands hönd á konditori-heims meist ara keppn inni sem fer
fram í München í Þýskalandi í sept em ber. Grindavik.is greinir frá þessu.
Hrafnhildur er dóttir Sigurðs Enokssonar, bakara í Grindavík og útskrifaðist
hún sem bakari frá Menntaskólanum í Kópavogi og síðar konditor frá ZBC
Ringsted á Sjálandi í Dan mörku. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland sendir þátt-
takanda í þessa keppni og er hún á vegum UIBC sem er samband bakara og
konditora um allan heim.
Hrafnhildur
Anna keppir
á heimsmeist-
arakeppni í
konditori
Njarðvíkursókn óskar eftir
áhugasömum í sóknarnefnd
Þann 29. apríl næstkomandi er aðalfundur Njarðvíkursóknar (Innri) og óskum
við eftir áhugasömum aðilum til að bjóða sig fram í sóknarnefnd. Njarðvíkur-
sókn er í sífelldum vexti og starfið fjölbreitt, gefandi og skemmtilegt. Það væri
gaman að fá ykkur í lið með okkur að efla framtíðarstarf í sókninni okkar.
Áhugasamir geta haft samband við
Jakob Sigurðsson í síma 868-0773,
gummiing74@gmail.com
eða mætt á aðalfundinn
og boðið sig fram.
Sjáumst hress og kát,
Sóknarnefnd Njarðvíkurkirkju