Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.04.2018, Qupperneq 12

Víkurfréttir - 12.04.2018, Qupperneq 12
12 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 12. apríl 2018 // 15. tbl. // 39. árg. Ólöf Rún Guðmundsdóttir er ekki eins og flestir jafnaldrar sínir úr Reykjanesbæ, en þessi 26 ára kona býr ein í sumarbústað þar sem hún vinnur við að temja og þjálfa hesta. Ólöf elskar að búa í sveit, en hún býr á Litla- landi í Ásahreppi þar sem hún sinnir þrettán hrossum en eigendur þeirra hafa mjög mis- munandi markmið og væntingar um þjálfun- ina, sem gerir starfið fjölbreytt. Ákvað níu ára gömul að læra reiðkennslu Ólöf ólst upp í Reykjanesbæ og eftir að hafa stundað nám við Fjölbrautaskóla Suðurnesja lauk hún BS námi í reiðmennsku og reið- kennslu frá Háskólanum á Hólum. Hestamennska er mikil ástríða hjá Ólöfu sem byrjaði sem barn að fara með fjölskyldunni á Mánagrund. „Ég var níu ára gömul þegar ég tók ákvörðun um að fara á Hóla þannig að það er óhætt að segja að ég hafi ekki verið gömul þegar ég stefndi þessa leið. Hestamennskan mín er lífstíll sem ég lifi og ekki margt annað sem kemst að hjá mér,“ segir Ólöf. Hversdagsleikinn er ólíkur því sem gengur og gerist í þéttbýlinu en Ólöf nýtur sín vel í sveitinni, þar hefur hún dvalið nánast öll sumur síðan hún var fimm- tán ára gömul. „Hér er mikið félagslíf og margir af mínum vinum búa hér á Suðurlandi, sérstaklega skólafélagar frá Hólum. Ég finn mikinn mun á því að vera í sveitinni og að búa í bænum, hér í sveitinni er fólk mun duglegra að gefa sér tíma og kíkja í kaffi eða stuttar heimsóknir sem gefur lífinu skemmtilegan lit.“ Ólöf gefur sér ekki mikinn tíma í annað en hestamennsku utan vinnu en stundar líkamsrækt í Kraftbrennslunni á Sel- fossi og sækir hestatengda viðburði eins og mót og sýningar. „Hestamennskan er minn lífstíll“ ... hér í sveitinni er fólk mun duglegra að gefa sér tíma og kíkja í kaffi eða stuttar heimsóknir sem gefur lífinu skemmtilegan lit.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.