Víkurfréttir - 12.04.2018, Blaðsíða 13
13MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 12. apríl 2018 // 15. tbl. // 39. árg.
Hestarnir fá mismunandi
þjálfun eftir markmiðum
eigendanna
Starf Ólafar felst í því að temja og
þjálfa hesta en hún leigir aðstöðu
fyrir starfsemina á Litlalandi, sem er
í eigu hjónanna Guðmundar Gunn-
arssonar og Þórhöllu Sigurðardóttur
sem búa í Keflavík. Alls eru 26 hestar
í hesthúsinu og deilir Ólöf aðstöðunni
með annarri hestakonu, Birnu Kára-
dóttur, en þær vinna mikið saman.
Hinn dæmigerði vinnudagur byrjar
á því að gefa hestunum morgun-
gjöf. Eftir það tekur hún stíurnar
hjá hestunum og ber undir þá spæni.
Þjálfunin fer svo fram fyrir og eftir
hádegi og dagurinn endar á kvöldgjöf.
„Enginn hestur er eins og er ég því
alltaf með mörg ólík verkefni. Þegar
eigendur hrossa koma með hestana
sína í þjálfun til mín eru markmiðin
oft mjög ólík fyrir hvern hest. Sumir
vilja að ég geri hrossin þeirra að ein-
faldari og betri reiðhrossum sem það
ætlar sjálft að nota í framtíðinni, aðrir
vilja að ég leggi meiri áherslu á að
undirbúa hestinn fyrir keppni eða
kynbótasýningar. Ég fæ líka oft hesta
í þjálfun þar sem markmiðið er að
selja þá og finna nýja eigendur þann-
ig það er óhætt að segja að þetta sé
mjög fjölbreytt og skemmtilegt starf,“
segir Ólöf Rún.
Hestamennskan er nokkuð
árstíðarskipt, á veturna og
sumrin þjálfar Ólöf hross
sem eru að fara annað hvort í
keppni eða kynbótasýningar.
Á sumrin fer hún líka mikið
í hestaferðir með hestana
sem hún þjálfar sem er það
skemmtilegasta við starfið. Á
haustin tekur svo annað tímabil
við en þá eru engin mót í gangi.
Þá er Ólöf mikið í því að frum-
temja ung hross sem ekki hafa
fengið knapa áður og einnig er
oftast mest um að vera í sölu á
hrossum á haustin.
Draumurinn að komast
á heimsmeistaramót
íslenska hestsins
Sjálf mun Ólöf keppa mikið í vor
og sumar og er stærsti viðburður
ársins svo Landsmót hestamanna
sem verður haldið í Reykjavík í
sumar. Ólöf byrjaði að keppa níu
ára gömul og fór á fyrsta Lands-
mótið tíu ára. Eftirminnilegasti
árangurinn í yngri flokkum er
Íslandsmeistaratitill í fimmgangi
unglinga á hryssunni Toppu frá Vatns-
holti sem hún á sjálf. „Hugafarið mitt
hefur reyndar mikið breyst síðan ég
var yngri, þá mældi ég árangurinn
minn mikið út frá sigrum eða sætum
sem ég lenti í en núna
hef ég meira gaman af
því að gera það besta úr
hverjum hesti sem ég
hef í höndunum, frekar
en að ná fyrirfram
ákveðnum árangri per-
sónulega. Til að útskýra
þetta nánar þá er mjög
misjafnt hvaða árangri
í keppni er hægt að ná
á mismunandi hestum
og einnig er styrkleiki
móta mjög misjafn
eftir þátttöku,“ segir
Ólöf sem stefnir á
að komast í íslenska
landsliðið og keppa á
Heimsmeistaramóti
íslenska hestsins er-
lendis en Ólöf hefur
einmitt starfað er-
lendis, við þjálfun og
reiðkennslu, á bú-
garði í Nýja-Sjálandi
með íslenska hesta.
„Það var virkilega
skemmtileg lífs-
reynsla en ég hef
samt ekki mik-
inn áhuga á því
að starfa við hesta í útlöndum því
hestamennska eins og hún er á Ís-
landi heillar mig miklu meira,“ segir
Ólöf Rún.
Ég var níu ára gömul þegar ég tók ákvörðun um að
fara á Hóla þannig að það er óhætt að segja að ég
hafi ekki verið gömul þegar ég stefndi þessa leið.
Háskólinn á Hólum
Hagnýtt háskólanám
• Ferðamálafræði
• Stjórnun ferðaþjónustu og móttaka gesta
• Viðburðastjórnun
• Fiskeldisfræði
• Reiðmennska og reiðkennsla
Tækifærin eru í okkar greinum
Hólaskóli -
Háskólinn á Hólum
Hólum í Hjaltadal 551 Sauðárkrókur
Sími 455 6300 holaskoli@holar.is www.holar.is
Þú finnur Hólaskóla
bæði á Facebook
og Twitter!
Háskólasamfélag með langa sögu
Hólar í Hjaltadal er í senn mikill
sögustaður og útivistarparadís.
Háskólinn á Hólum er lítill en
öflugur háskóli sem sinnir kennslu
og rannsóknum á sviði ört
vaxandi atvinnugreina.
w
w
w
.h
ol
ar
.is
Framkvæmdastjóri óskast
til starfa í Póllandi
Royal Iceland hf leitar að framkvæmdastjóra til að aðstoða við
stofnun og uppsetningu matvælavinnslu í vesturhluta Póllands
og í framhaldi að sjá um rekstur þess og vöxt. Viðkomandi
þyrfti að geta hafið störf sem fyrst.
Helstu hæfniskröfur eru:
• Góð almenn menntun og rekstrarþekking
• Dugnaður og útsjónarsemi
• Góð kunnátta í pólsku og ensku.
• Reynsla af matvælavinnslu væri mjög æskileg
• Reynsla í sölustörfum væri mjög æskileg
Við bjóðum upp á mjög áhugavert tækifæri þar sem við-
komandi einstaklingur gæti mótað stefnu og starfssemi pólska
fyrirtækissins.
Áhugasamir sendi upplýsingar til lbj@royaliceland.is
fyrir 7. maí 2018.
Dyrektor zarządzający
zakładu produkcyjnego w Polsce
Royal Iceland szuka menedżera, do otwarcia oraz komplekso-
wego zarządzania średniej wielkości zakładem produkcyjnym
z branży spozywczej , w zachodniej Polsce . Osoba zaintereso-
wana powinna móc rozpocząć pracę tak szybko, jak to możli-
we.
Główne kwalifikacje to:
• Dobra ogólna edukacja i wiedza operacyjna
• łatwość podejmowania decyzji, także w sytuacjach
kryzysowych
• Dobra znajomość języka polskiego i angielskiego.
• Doswiadczenie w przetwórstwie spożywczym
• Doświadczenie w sprzedaży i prowadzeniu negocjacji
handlowych
Oferujemy bardzo atrakcyjne warunki oraz możliwość dalszego
rozwoju zawodowego poprzez udział w rozowju Firmy. Infor-
macje wraz z cv proszę przesyłać na adres lbj@royaliceland.is
przed 7 maj 2018 r.