Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.04.2018, Page 14

Víkurfréttir - 12.04.2018, Page 14
14 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 12. apríl 2018 // 15. tbl. // 39. árg. LJÓSMYNDASAMKEPPNIN „EITT ÁR Á SUÐURNESJUM“ Tjáum líf okkar í myndum – Ljósanætursýningin 2018. Allir geta verið með! „Nú leitum við til Suðurnesjamanna og vonum að þeir verði með okkur í ljós- myndasamkeppni en við munu sýna allar myndir sem berast í aðalsýningu Ljósanætur í listasal Duus-húsa,“ segir Valgerður Guðmundsdóttir, ferða- málafulltrúi Reykjanesbæjar, en Listasafn Reykjanesbæjar og Norræna húsið í Færeyjum verða í samstarfi með stóra ljósmyndasýningu á Ljósanótt 2018 í nokkrum sýningarsölum Duus Safnahúsa. Efnt er til ljósmyndasamkeppni meðal almennings á Suðurnesjum vegna sýningarinnar og munu margar myndanna sem berast verða sýndar stórar, útprentaðar á Ljósanótt 2018. Færeyingar leggja til sýninguna „Föroyar i et år“ sem samanstendur af rúmlega 600 ljósmyndum sem íbúar eyjanna tóku og lýsa daglegu lífi þeirra í eitt ár á sama tíma og ljósmyndasýningin „Eitt ár á Suður- nesjum“ verður opnuð í Listasal Duus Safnahúsa. Listasafn Reykjanesbæjar býður öllum þátttöku í Ljósanætursýningu safnsins haustið 2018 „Eitt ár á Suður- nesjum“. Hvað hefur gerst á árinu? Safnaðu saman ljósmyndunum þínum sem teknar voru á Suðurnesjum á tímabilinu 17. júní 2017 til 17. júní 2018. Hver og ein myndanna segir sína sögu af lífi þínu á árinu og saman segja allar innsendar myndir, allra þátttakenda eina góða sögu af dag- legu lífi á Suðurnesjum. Hvað gerðist á Suðurnesjum þetta ár? Hvað vorum við að gera? Börnin og gamla fólkið, fólkið og dýrin, hversdagurinn og há- tíðarhaldið, pólitíkin og trúarbrögðin, bæjarlífið og náttúran, fjölskyldan og vinnan eða hvað annað sem talist gæti hluti af okkar daglega lífi. Nánari upplýsingar um skil verða auglýstar vel þegar nær dregur. Hver og einn má senda inn mest tíu myndir. Þar sem myndirnir eru hugsaðar á sýningu er nauðsynlegt að þær séu í mjög góðri upp- lausn svo möguleiki sé á að prenta þær út í góðri stærð. Því er æskilegt að myndirnar séu ekki minni en 4 MB en þó er hægt að hlaða inn myndum í öllum stærðum. Skilafrestur er til 1. júlí 2018. Allar inn- sendar myndir verða sýndar á Ljósanætur- sýningunni, þær bestu útprentaðar en hinar á skjám. Eigendur þeirra mynda sem verða sýndar út- prentaðar fá eintak af þeim til eignar, þá verða fimm bestu myndirnar sem berast, að mati dómnefndar, verðlaunaðar sérstaklega. Á meðfylgjandi slóð má senda myndir á sýninguna: http://listasafn.reykja- nesbaer.is/ljosmyndasamkeppni (athugið að einungis er hægt að hlaða inn þremur myndum í einu og síðan er hægt að endurtaka leik- inn þar til tíu myndum hefur verið hlaðið inn). Kosið um fimm nöfn í sameinuðu sveitarfélagi ❱❱ Örnefnanefnd með tvö nöfn til viðbótar til umsagnar Nefnd sem skipuð var til að undirbúa tillögur að nafni á nýtt sveitarfélag Garðs og Sandgerðis hefur ákveðið að senda tvær tillögur til viðbótar til umsagnar Örnefnanefndar. Áður hefur nefndin sent fimmtán tillögur til umsagnar og Örnefnanefnd lagst gegn átta þeirra. Örnefnanefnd hefur allt að þrjár vikur til að veita umsögn um nýju tillögurnar. Eins og áður hefur verið greint frá munu íbúar fá tækifæri til að greiða atkvæði um tillögur að nöfnum. Atkvæðagreiðsla fer fram að umsagnarfresti liðnum hjá Örnefna- nefnd en þá verða tillögur að nöfnum í atkvæðagreiðslu birtar. Nafnanefnd sameinaðs sveitarfélags hefur ákveðið að greidd verði atkvæði í tveimur umferðum. Í fyrstu umferð um fimm tillögur og í þeirri seinni um þau tvö nöfn sem fá flest atkvæði í fyrri umferðinni. Atkvæðagreiðsla verður rafræn og munu íbúar sveitarfélaganna sem fæddir eru 2001 eða fyrr hafa at- kvæðisrétt. Samhliða mun fara fram „skuggaatkvæðagreiðsla“ í grunn- skólunum tveimur. SMÁAUGLÝSINGAR ÍBÚÐ ÓSKAST Óska eftir tveggja herbergja íbúð helst í Njarðvík eða Keflavík. Uppl. í síma 863 0121. Bjarg byggir fimm leiguíbúðir í Sandgerði Íbúðalánasjóður hefur samþykkt stofnframlag vegna byggingar Bjargs á fimm leiguíbúðum í Sand- gerðisbæ. Málið var lagt fram fyrir húsnæðis-, skipulags- og bygging- aráð á dögunum. Ráðið fagnar afgreiðslu Íbúðalána- sjóðs og hvetur Sandgerðisbæ til áframhaldandi uppbyggingu leiguhús- næðis fyrir tekjulægri íbúa sveitar- félagsins með frekari samvinnu við Bjarg eða með öðrum sambærilegum hætti. Margir vilja í Út-Garðinn Margir sýna því nú áhuga að byggja íbúðarhúsnæði við Skagabraut í Garði en gatan liggur um Út-Garðinn. Kristín Kristjánsdóttir hefur sótt um lóðina Skagabraut 26 undir byggingu einbýlishúss. Hún hefur áður sótt um lóðina en þá var unnið að deiliskipu- lagi svæðisins. Hlíðar Sæmundsson hefur sótt um lóðina Skagabraut 59 undir einbýlis- hús og þá hefur Þorsteinn Heiðarsson sótt um lóðina Skagabraut 49 undir einbýlishús. Þá hefur Pétur Bragason ehf. sótt um lóðirnar Skagabraut 53, 55–57 og 59 undir byggingu tveggja einbýlis- húsa og raðhúss. Samþykkt var að út- hluta Pétri lóðunum Skagabraut 53 og 55–57 með fyrirvara um staðfestingu Skipulagsstofnunnar á heimild til að auglýsa gildistöku tilheyrandi deili- skipulags en sami fyrirvari á einn- ig við um aðrar lóðaumsóknir við Skagabraut. T A K T U M Y N DL J Ó S M Y N D A S A M K E P P N I Á S U Ð U R N E S J U M E I T T Á R Á S U Ð U R N E S J U M OPIÐ FYRIR ALLA OG MYNDEFNIÐ MÁ VERA HVAÐ SEM ER : DAGLEGT L ÍF, NÁTTÚRAN, FÓLK , HÁT ÍÐ IR , DÝR EÐA STAÐIR – OG AUÐVITAÐ MÁ NOTA S ÍMANN E INS OG MYNDAVÉL . E INA SKILYRÐIÐ ER AÐ MYNDIN SÉ TEKIN Á SUÐURNESJUM! DAGLEGT L ÍF Á SUÐURNESJUM Á T ÍMABIL INU 17 . JÚNÍ 2017 T I L 17 . JÚNÍ 2018 . ALLAR LJÓSMYNDIRNAR VERÐA SÝNDAR Í DUUS -SAFNAHÚSUM Á NÆSTU LJÓSANÓTT OG SETTAR Í VEGLEGA SÝNINGARSKRÁ. S ÍÐASTI SKILADAGUR ER 1 . JÚL Í 2018 .NÁNARI UPPLÝSINGAR Á HE IMASÍÐU L ISTASAFNS REYKJANESBÆJAR: L ISTASAFN .REYKJANESBAER . IS HÖ NN UN : V ÍK UR FR ÉT TIR Ljósmynd úr sýningunni „Föroyar i et år“Starfssvið: • Sala og ráðgjöf til viðskiptavina • Gerð tilboða Hæfniskröfur: • Reynsla af sölumennsku skilyrði • Framúrskarandi þjónustulund • Góð færni í mannlegum samskiptum • Útsjónarsemi og sjálfstæð vinnubrögð • Gott vald á íslensku og ensku • Góð tölvukunnátta Umsókn ásamt ferilskrá sendist í síðasta lagi mánudaginn 16. apríl, merkt „Sölumaður-nýir“ á netfangið: benni@benni.is. Fullum trúnaði er heitið. Bílabúð Benna ehf. er 43 ára þjónustufyrirtæki bílaáhuga- mannsins. Fyrirtækið flytur inn og selur vara- og fylgihluti í allar tegundir bifreiða. Bílabúð Benna ehf. er umboðsaðili nýrra bíla frá Porsche, Opel og SsangYong. ERT ÞÚ FRAMMÚRSKARANDI SÖLUMAÐUR? Bílabúð Benna leitar að öflugum einstaklingi í starf sölumanns nýrra og notaðra bíla í Reykjanesbæ. Starfið felur í sér kynningu, sölu, frágang og afgreiðslu á nýjum bílum. Umsækjandi þarf að koma vel fram, vera þjónustulipur, samviskusamur og geta sýnt frumkvæði í starfi. Aðeins vanir sölumenn koma til greina. Opel Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar tekur undir áhygg jur Heil- brigðisnefndar Suðurnesja af þeirri hættu sem að vatnsbólum Suðurnesjamanna stafar vegna bílaumferðar á Grindavíkurvegi og leggur áherslu á að lausn verði fundin hið fyrsta. Heilbrigðisnefnd Suðurnesja bókaði fyrr á árinu og lýsti áhyggjum af þeirri hættu sem vatnsbólum Suður- nesjamanna í Lágum stafar af bíla- umferð á Grindavíkurvegi. Kemur m.a. fram að ef grunnvatn mengast t.d. vegna olíuleka af völdum bíl- slyss, eru yfirgnæfandi líkur á að vatnsbólin spillist innan fárra vikna. Nefndin skorar á sveitarfélög á Suðurnesjum og hlutaðeigandi veitu- fyrirtæki að hefja nú þegar undir- búning að flutningi vatnsbólanna á öruggari stað. Bæjarráð Garðs hefur einnig fengið málið til afgreiðslu, eins og áður hefur verið greint frá. Það þakkar Heilbrigðisnefnd Suðurnesja fyrir að vekja athygli á þessu mikilvæga máli. Jafnframt hvetur bæjarráð Garðs til þess að rannsóknum og vinnu við að opna ný vatnsból verði hraðað, en málið hefur m.a. verið í vinnslu hjá Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja og viðkomandi veitufyrirtæki. Bæjarráð Garðs leggur áherslu á hve mikilvægt hagsmunamál er um að ræða fyrir öll Suðurnes, íbúa og atvinnustarfsemi. Olíuleki á Grindavíkurvegi getur mengað vatnsból Suðurnesja

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.