Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.04.2018, Síða 16

Víkurfréttir - 12.04.2018, Síða 16
16 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 12. apríl 2018 // 15. tbl. // 39. árg. Hæfingarstöðin í Reykjanesbæ býður upp á dagþjónustu fyrir fatlað fólk á Suðurnesjum, starfsemi hennar er starfrækt á Ásbrú en var starfrækt á Hafnargötu 90 frá árinu 1990. Núverandi húsnæði var þegar til staðar og ráðist var í framkvæmdir innanhúss sem voru aðlagaðar að starfsemi stöðvarinnar. Jón Kristinn Pétursson, forstöðuþroskaþjálfi Hæfingarstöðvarinnar, segir að húsnæðið sé mjög gott, það sé með gott aðgengi og sniðið að þeirra þörfum. Í því má meðal annars finna jógaherbergi, matsal, litla rækt, vinnuherbergi og fleira. Verkefni Hæfingarstöðvarinnar eru margvísleg og má meðal annars finna búð, eða Hæfó- búðina, þar sem að listaverk, sultur, baðsölt og fleira er til sölu. STYÐJA VIÐ FÆRNI EINSTAKLINGSINS Í dag eru 32 einstaklingar frá sextán ára aldri sem nýta sér þjónustu í dag- vistun og hjá Hæfingarstöðinni starfa ellefu manns. Nemendur FS mæta í skólann á morgnana og koma síðan á Hæfingarstöðina þegar skóladegi lýkur. „Þetta er lögboðið atvinnuúr- ræði, dagþjónusta sem skiptist í tvennt, annars vegar vinnumiðað úrræði og hins vegar félagslegt. Á sama tíma er þetta vinnustaður og félagsmiðstöð,“ segir Jón Kristinn. Markmið Hæfingarstöðvarinnar er að styðja við færni einstaklingsins eða efla færni einstaklinginn til að taka þátt í atvinnulífinu og líka í samfélaginu. Hæfingarstöðin hefur einnig sinnt ýmsum verkefnum frá fyrirtækjum og stofnunum, s.s. pökk- unarverkefnum og öðrum tilfallandi verkefnum, en þau eru alltaf opin fyrir því að vinna með eða vera í sam- starfi við fyrirtæki á svæðinu. MARGIR VILJA VINNA Hugmyndafræði Hæfingarstöðvar- innar er sú að þeir einstaklingar sem þangað koma læri hvernig það er að vera á vinnustað, félagsleg færni þeirra er efld og síðan er farið út á vinnumarkaðinn eftir getu og þörfum. „Það eru því miður ekki nógu margir sem hafa farið út á vinnumarkaðinn því það ekki nægilega margt í boði fyrir þennan hóp. Það þarf að líta meira til þess sem einstaklingurinn getur gert í stað þess að einblína á það sem hann getur ekki gert, það er „Það þarf að horfa á hvað einstaklingurinn getur gert“ Hæfingarstöðin í Reykjanesbæ er með fjölbreytta starfsemi Störf í boði hjá Reykjanesbæ Vinnuskóli – Störf fyrir nemendur í 9. og 10. bekk Heiðarskóli – Skólaritari Málefni fatlaðs fólks – Sumarstörf í þjónustukjörnum Leikskólinn Heiðarsel – Deildarstjóri Hæfingarstöðin – Matráður í 50% starf Velferðarsvið – Sumarstörf á heimilum fatlaðs fólks Grunnskólar – Fjölbreytt störf í öllum skólum Málefni fatlaðs fólks – Umönnunarstörf á heimilum Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef Reykjanesbæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf og á facebook síðunni Reykjanesbær – laus störf. Viðburðir í Reykjanesbæ Duus Safnahús - Síðasta sýningarhelgi Verndarsvæði í byggð í Gryfju, Hjartastaður - Þingvallamyndir í Listasal og Undir pressu, grafíkmyndir í Stofunni. Sýningum lýkur 15. apríl. Opið kl. 12-17 alla daga. Bókasafn Reykjanesbæjar - Ævintýri Tinna Miðvikudagskvöldið 18. apríl kl. 20:00 kemur Gísli Marteinn Baldursson og fjallar um Tinna bækurnar sívinsælu. Allir hjartanlega velkomnir. Listahátíð barna í Reykjanesbæ - Ert þú með viðburð? Hátíðin fer fram 26. apríl - 13. maí. Fjöldskylduhátíð verður 28. og 29. apríl. Þeir sem vilja tengja sig við hátíðina með viðburði eða öðru hafið samband á menningarfulltrui@ reykjanesbaer.is. Nánari upplýsingar á reykjanesbaer.is

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.