Víkurfréttir - 12.04.2018, Síða 18
18 VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM f immtudagur 12. apríl 2018 // 15. tbl. // 39. árg.
Áfram góð afkoma hjá Isavia
❱❱ Fjölgun farþega sem fóru um Keflavíkurflugvöll 28% og töldu um 8,8 milljónir farþega 2017
Ársreikningur reikningur Isavia fyrir árið 2017 var samþykktur á aðalfundi
félagsins sl. fimmtudag. Rekstur ársins gekk áfram vel og var rekstraraf-
koma í samræmi við áætlanir félagsins. Tekjur félagsins námu 38 milljörðum
króna sem er 15% aukning á milli ára. Stærsti hluti tekna er tilkominn vegna
sölu á þjónustu enda Isavia verið þjónustufyrirtæki í ferðaþjónustu frá
stofnun félagsins. Farþegum um Keflavíkurflugvöll fjölgaði um 28% milli
ára, flugvélum sem fóru um íslenska úthafsflugstjórnarsvæðið fjölgaði um
12% og innanlandsfarþegum um 3%.
Rekstrarafkoma fyrir afskriftir, fjár-
magnsliði og skatta (EBITDA) nam 9,9
milljörðum króna og jókst um 11%
á milli ára. Heildarafkoma nam 3,9
milljörðum króna og lækkaði um 3,0
milljarða króna frá fyrra ári. Á sama
tíma nema neikvæð áhrif vegna breyt-
inga á gengismun um 3,6 milljörðum
króna sem er að mestu tilkominn
vegna fjármögnunar í erlendum gjald-
miðlum. Arðsemi eiginfjár var 13,6%.
Heildareignir samstæðunnar námu
72,5 milljörðum króna í árslok 2017
og jukust um 13,3 milljarða króna
milli ára. Þar af eru 59,7 milljarðar
tilkomnir vegna varanlegra rekstrar-
fjármuna og óefnislegra eigna. Fjár-
festingar í varanlegum rekstrarfjár-
munum námu 14,4 milljörðum króna
og þar af eru um 13,1 milljarður vegna
Keflavíkurflugvallar. Staða eigin fjár
hækkaði um 3,9 milljarða króna milli
ára sem skilaði um 42,7% eiginfjár-
hlutfalli sem er lækkun frá síðasta ári
en þó ríflegt miðað við þá starfsemi
sem félagið er í.
Í lok árs 2017 störfuðu 1.202 starfs-
menn hjá móðurfélagi Isavia, þar
af þriðjungur konur. Á sama tíma
störfuðu 313 hjá dótturfélögum, 221
hjá Fríhöfninni og 46 hjá Tern Sys-
tems.
30 milljarðar á næstu þremur
árum
Ingimundur Sigurpálsson, formaður
stjórnar Isavia, sagði á fundinum að
1. febrúar síðastliðinn hefði stjórnin
samþykkt að leggja þróunaráætlun
fyrir Keflavíkurflugvöll, svonefnt
Masterplan, til grundvallar allri upp-
byggingu á vellinum.
„Og var jafnframt því samþykkt að
hefja hönnun á fyrstu verkþáttum
uppbyggingaráætlunar til ársins 2025.
Þar er gert ráð fyrir því að á árinu
2018 verði boðin út bygging fyrir nýja
farangursflokkunar- og skimunar-
stöð austur við norðurbyggingu flug-
stöðvarinnar, sem áætlað er að verði
tilbúin 2020,“ sagði Ingimundur.
„Einni er áformað að bjóða út á
þessu ári framkvæmdir við áfram-
haldandi breikkun tengibyggingar
og nýtt landamæraeftirlit norðan
við núverandi flugstöðvarbyggingu,
sem áætlað er að verði tilbúin í árslok
2021. Alls nemur kostnaður við þessa
tvo framkvæmdaþætti ríflega 30 millj-
örðum króna á næstu þremur árum.“
Viðburðaríkt ár hjá Isavia
Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia,
sagði árið 2017 hafa verið viðburðar-
ríkt hjá fyrirtækinu og mætti tengja
mikinn vöxt Isavia við aukningu milli-
landaflugs eing og fyrri ár.
„Ísland er nú orðinn heilsársáfanga-
staður og erum við sérstaklega stolt
af þátttöku Keflavíkurflugvallar í því
verkefni en sá árangur er afrakstur
góðrar samvinnu flugvallarins, verk-
taka á flugvellinum og flugfélaganna
auk ferðaþjónustunnar á Íslandi. Við
höfum fjölgað starfsfólki til að takast
á við aukna umferð um flugvöllinn
og er það okkar góða fólki að þakka
hversu vel hefur gengið. Það er líka
ánægjulegt að sjá hversu vel hefur
tekist að verja arðsemi af rekstrinum
við mjög svo þröngar aðstæður á
Keflavíkurflugvelli,“ segir Björn Óli.
„Með aukinni flugumferð yfir Norður-
Atlantshafið hefur flugleiðsöguþjón-
usta Isavia haldið áfram að vaxa á
liðnu ári. Starfsemin hefur styrkst
og ný tækni hefur áfram verið þróuð
til verksins. Afkoman af starfseminni
hefur áfram verið stöðug.“
„Ég hef verið mjög ánægður með
vinnu okkar starfsfólks á innan-
landsflugvöllum landsins. Frábæra
starf þess hefur gert erlendum aðilum
mögulegt að fljúga beint á Akureyrar-
flugvöll nú í ár. En rétt er að benda á
að fyrirbyggjandi viðhaldi á innan-
landsflugvöllunum hefur ekki verið
sinnt sem skyldi. Það er vegna þess
að vantað hefur upp á fjármögnun á
þjónustusamningum íslenska ríkisins
við Isavia um rekstur vallanna.“
„Á árinu fjölgaði farþegum sem fóru
um Keflavíkurflugvöll um nær 28%
og töldu um 8,8 milljónir farþega.
Til að taka vel á móti þessum fjölda
er nauðsynlegt að standa vel að upp-
byggingu á Keflavíkurflugvelli sem
og á öðrum innviðum í landinu til að
ferðalag þeirra sé sem ánægjulegast
frá byrjun til enda.“
Eigendastefna og meira fé til
viðhalds flugvalla
Í ræðu sinni á fundinum sagði
Sigurður Ingi Jóhannsson, sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra,
að góðar samgöngur væru forsenda
atvinnugreina og blómlegs mannlífs.
Hann sagði að örðugt hafi reynst að
tryggja rekstrargrundvöll flugvallar-
kerfisins innanlands. Viðhald og ný-
framkvæmdir hafi seti á hakanum og
lendingarstöðum lokað. Uppsöfnuð
þörf fyrir viðhald innanlandsflugvalla
næmi um 7-8 milljörðum króna með
nauðsynlegri endurnýjun flugbrauta
og flughlaða.
„Góðu fréttirnar eru hins vegar þær
að samkvæmt fjármálaáætlun verður
meira fjármagni veitt til viðhalds flug-
valla en hefur verið gert á síðustu
árum,“ sagði samgönguráðherra.
„Stjórnarsáttmálinn gerir ráð fyrir
að mótuð verði eigendastefna fyrir
Isavia og mun hún taka til hvert skal
stefna varðandi framtíðar fjármögnun
og frekari uppbyggingu í þjónustu
við flugið.“
Engir Suðurnesjamenn
í stjórn Isavia
Engir Suðurnesjamenn eru í stjórn
Isavia en ný stjórn var kynnt á aðal-
fundi félagsins í síðustu viku. Þau
Ólafur Þór Ólafsson úr Sandgerði og
Helga Sigrún Harðardóttir úr Njarð-
vík sem sátu í stjórninni síðastliðin
tvö ár duttu út úr stjórninni. Fulltrúar
í stjórn koma frá pólitískum flokkum
landsins en aldrei í sögu Isavia höfðu
tveir fulltrúar frá Suðurnesjum verið
á sama tíma í stjórn.
Aðalstjórn Isavia ohf. skipa þau Ingi-
mundur Sigurpálsson, Eva Pandora
Baldursdóttir, Matthías Páll Imsland,
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir og
Valdimar Halldórsson. Varastjórn
skipa þau Sigrún Traustadóttir, Björg
Eva Erlendsdóttir, Hreiðar Eiríksson,
Ingveldur Sæmundsdóttir og Reynir
Þór Guðmundsson.
GUÐRÚN TINNA TIL FRÍHAFNARINNAR
Guðrún Tinna Ólafsdóttir hefur
verið ráðin til Fríhafnarinnar sem
rekstarstjóri verslunarsviðs sem
er nýtt starf og hluti af skipulags-
breytingum. Tinna mun hefja störf
í byrjun apríl. Undir verslunarsvið
heyrir daglegur rekstur verslana
Fríhafnarinnar, ásamt almennum
sölu-, markaðs- og rekstrarmálum.
Tinna er með M.S. gráðu í fjár-
málum. Hún hefur víðtæka og
góða reynslu af smásölu, rekstri,
markaðsmálum og stefnumótun.
Hún hefur m.a. starfað sem fram-
kvæmdastjóri íslenska barnafata-
merkisins Ígló ehf. og hjá Baugi
Group þar sem hún vann með
stjórnendum smásölufyrirtækja í
Danmörku, Svíþjóð og á Íslandi. Þar
áður starfaði Tinna hjá Kauphting
Bank Luxembourg og Verðbréfa-
markaði Íslandsbanka. Í dag situr
Tinna í stjórn fasteignafélagsins
Regins hf. og er stjórnarformaður
Svanna, lánatryggingasjóðs kvenna.
Tinna er gift Karli Pétri Jónssyni og
saman eiga þau fimm börn.
„Við erum spennt og ánægð að fá
reynslumikinn stjórnanda eins
og Tinnu til liðs við öflugan hóp
Fríhafnarstarfsmanna,“ segir Þor-
gerður Þráinsdóttir framkvæmda-
stjóri Fríhafnarinnar.
„Fríhöfnin er í alþjóðlegu og sí-
breytilegu umhverfi og á skömmum
tíma hafa orðið mjög hraðar breyt-
ingar á starfsumhverfinu. Til að vera
betur í stakk búin til að takast á við
nýjar áskoranir höfum við verið í
stefnumótun og skipulagsbreyt-
ingum. Tinna hefur góða þekkingu
og reynslu af smásölu og rekstri
sem nýtist vel í það kerfjandi verk-
efni að stýra verslunarsviði Frí-
hafnarinnar.“
Nýr vefur Isavia
Á aðalfundinum var kynntur nýr
vefur Isavia sem var formlega opn-
aður af Birni Óla Haukssyni, for-
stjóra Isavia. Vefurinn sameinar alla
upplýsingagjöf um flugvelli Isavia
á einum stað og þar geta farþegar
fundið flugupplýsingar innan flug-
valla á Íslandi sem og aðrar nauðsyn-
legar upplýsingar við undirbúning
ferðalags innanlands sem erlendis.
Þar er einnig að finna öfluga upplýs-
ingaveitu til flugmanna og er nú mun
betra aðgengi fyrir þá sem þurfa að
nota þjónustu Isavia eða sækja um
störf svo dæmi sé tekið. Mikið er
lagt upp úr nýjum lausnum fyrir
farþega á vefnum enda er það yfir-
lýst markmið Isavia að vera hluti af
góðu ferðalagi. Hægt er að fara inn
á www.isavia.is