Víkurfréttir - 12.04.2018, Síða 19
19UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM f immtudagur 12. apríl 2018 // 15. tbl. // 39. árg.
GRIPGÆÐI Á ÖLLUM,
ALLT ÁRIÐ Frábær dekk
á frábæru verði
Útvegum flestar gerðir hjólabarða
Smur- og hjólbarðaþjónustan ehf., Vatnsnesvegi 16, 230 Reykjanesbæ, sími 421 4546
Suðurnesjakonur
í framlínu Frí-
hafnarinnar
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
fyrrverandi ráðherra er nýr
stjórnarformaður Fríhafnarinnar
á Keflavíkurflugvelli. Ný stjórn
var kynnt á aðafundi félagsins
í vikunni.
Ragnheiður sat á Alþingi frá 2007
til 2016 og var iðnaðar- og við-
skiptaráðherra á árunum 2013–
2017. Hún situr í stjórn Lands-
virkjunar, er Senior Fellow við
bandarísku hugveituna Atlantic
Council og sinnir ýmsum ráðgjafa-
störfum.
Ragnheiður er ekki eini Suður-
nesjamaðurinn í stjórn Fríhafnar-
innar því Guðný María Jóhanns-
dóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri,
er varaformaður stjórnar. Aðrir
í stjórninni eru Sigrún Trausta-
dóttir, Matthías Imsland og Vil-
hjálmur Jósefsson.
Útboð á aðstöðu
fyrir veitinga-
rekstur Í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar
Isavia hefur opnað fyrir aðgang
að gögnum vegna útboðs fyrir
útleigu á aðstöðu fyrir veitinga-
þjónustu á annarri hæð í suður-
byggingu Flugstöðvar Leifs Ei-
ríkssonar á Keflavíkurflugvelli.
Óskað er eftir eftir áhugasömum
aðilum til þátttöku í valferlinu sem
hafa reynslu af veitingarekstri og
yfir að ráða vörumerki sem býður
m.a. upp á pítsur í sneiðum og
fersk salöt.
Í valferlinu verður notast við
samkeppnisviðræður og síðan
samið við þann aðila sem skilar
að endingu inn besta tilboðinu.
Fram kom í farþegaspá Isavia
fyrir árið 2018, sem kynnt var í
nóvember síðastliðnum, að ríf-
lega 10 milljón farþegar fara um
Keflavíkurflugvöll í ár. Það eru
18% fleiri en í fyrra. Fjölgunin er
mest á meðal skiptifarþega, sem
millilenda einvörðungu á leið sinni
á milli Evrópu og Norður-Ameríku,
en þar er spáð 33% aukningu.
Nýja veitingaaðstaðan í suður-
byggingu flugstöðvarinnar verður
liður í aukinni þjónustu við þessa
ferðalanga. Áhersla verður lögð
á tengingu við Ísland í hönnun
á veitingarýminu þar sem kann-
anir sýna að farþegarnir sem fara
þarna um vilji upplifa að þeir séu
staddir á Íslandi.
Í útboðinu er byggt á markaðs-
rannsóknum meðal tengifarþega
sem sýna að þeir vilja einfalda mat-
vöru sem er tilbúin á skömmum
tíma. Þar kom fram að helst vildu
þeir pítsur og ferskt salat.
Nánari upplýsingar um útboðið
sjálft og útboðsgögn vegna þess
má finna hér :
www.kefairport.is/Um-felagid/
veitingarekstur/
VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM Vinnum saman
Reykjanesbær er bær tæki-
færanna. Reykjanesbær er
sá bær sem vex hvað hraðast
á landsvísu. Reykjanesbær og
önnur sveitarfélög á Suður-
nesjum hafa átt undir högg að
sækja vegna fjármagns frá hinu
opinbera. Fjárveitingar meðal
annars til Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja, Fjölbrautaskóla
Suðurnesja, Keilis og löggæslu
bera þess greinilega merki, en
þessar stofnanir eru allar undir
stjórn ríkisins.
Allir flokkar sem bjóða fram til
bæjarstjórnar í kosningunum í
vor eru að vinna í málefnastarfi
og setja fram ákveðna sýn og
stefnu, sem á að vera íbúum
Reykjanesbæjar til heilla. Þar
þurfum við öll að hafa skýra sýn
í ofangreindum málaflokkum.
Hvernig náum við best
árangri saman Suðurnesja-
menn?
Við náum bestum árangri með
því að vinna öll saman, þvert á
flokka, með starfsfólki og stjórn-
endum þessara stofnana. Öll
sameiginleg barátta þarf að
halda áfram þrátt fyrir breyt-
ingar á meirihlutasamstarfi í
sveitarstjórnum, þrátt fyrir
breytingar stjórnmálaflokka í
ríkisstjórn og þrátt fyrir endur-
nýjun forsvarsmanna stofnana.
Okkar barátta endar aldrei og
þarf að lifa ríkisstjórnir og
meirihluta í bæjarfélögunum.
Sveitarfélögin öll á Suður-
nesjum þurfa að vinna saman
og það þarf að vera samræmi í
málflutningi þegar við sækjum
að þingmönnum, ráðherrum,
embættismönnum og hverjum
þeim sem koma að því að stilla
upp stefnu og fjármálaáætlun
komandi ára.
Ef við vinnum saman að for-
gangsröðun verkefna, skýrum
áherslum og sterkari aðferða-
fræði mun allur okkar mál-
flutningur bera þess merki að
við erum sameinuð. Sameinuð
náum við okkar kröfum í gegn
og við verðum ósigrandi.
Reykjanesbær er bær tæki-
færanna og þar viljum við búa.
Margrét Sanders
skipar 1. sæti hjá Sjálfstæðis-
flokknum í Reykjanesbæ
Listinn hjá Frjálsu afli fyrir
komandi kosningar
Frjálst afl býður fram í komandi sveitarstjórnarkosningum í Reykjanesbæ 2018.
Í síðustu sveitarstjórnarkosningum fékk Frjálst afl tvo fulltrúa kjörna og tók í kjöl-
farið þátt í meirihluta samstarfi sem hefur reynst bæjarbúum farsælt.
Framboðslisti Frjáls afls í sveitarstjórnakosningum 2018 í Reykjanesbæ:
1. Gunnar Þórarinsson, bæjarfulltrúi og
viðskiptafræðingur
2. Jasmina Crnac, háskólanemi í stjórn-
málafræði
3. Íris Kristjánsdóttir, byggingafræð-
ingur og fjármálastjóri
4. Alexander Ragnarsson, húsasmíða-
meistari
5. Rósa Björk Ágústsdóttir, landamæra-
vörður
6. Albert Gibowicz, bílasali
7. Guðbjörg Ingimundardóttir, sérkenn-
ari
8. Gunnar Jón Ólafsson, slökkviliðs- og
sjúkraflutningamaður
9. Guðrún Pálsdóttir, ljósmóðir
10. Jóhannes Kristbjörnsson, lögfræð-
ingur
11. Arnar Páll Guðmundsson, viðskipta-
fræðingur
12. Þórunn Benediktsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur
13. Þórður Karlsson, rafvirki og öryggis-
vörður
14. Elínborg Ósk Jensdóttir, lögfræð-
ingur
15. Stefán Geirsson, matreiðslumaður
16. Hólmfríður Karlsdóttir, grunnskóla-
kennari
17. Guðmundur Kristinn Árnason, vél-
virki
18. Sólveig Karlsdóttir, grunnskóla-
kennari
19. Bryndís Guðmundsdóttir, flugfreyja
20. Berglind Þorsteinsdóttir, tollvörður
21. Baldur Rafn Sigurðsson, sóknar-
prestur
22. Elín Rós Björnsdóttir, bæjarfulltrúi,
flugfreyja og jógakennari