Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.04.2018, Síða 24

Víkurfréttir - 12.04.2018, Síða 24
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir MUNDI S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M Greinilega búið að dýpka vasa bæjarins! Setjum íþróttir aftur á oddinn Við sem elskum kosningar höfum verið dekruð mikið síðastliðin ár. Líklega hefur verið kosið oftar á síð- astliðnum 10 árum en alla lýðveldis- söguna fram að því. Næstu kosn- ingar eru sveitarstjórnarkosningar og það er sérstaklega tvennt sem yljar mér við þá staðreynd. Í fyrsta lagi fer aðsendum greinum frá fólki sem heyrist varla í yfir kjörtímabilið að fjölga. Svo mikið fjölgar þeim síðustu vikurnar fyrir kosningar að allt eins líklegt er að við förum að heyra hósta og stuna frá Frjálsu afli sem kom eins og stormsveipur inn í sveitarstjórnarmálin fyrir fjórum árum í Reykjanesbæ. Hins vegar hefur maður fundið álíka mikið fyrir þeim frá síðustu kosningum og meðvindinum í Reykjaneshöll- inni og öðrum íþróttamannvirkjum bæjarins. Í öðru lagi fara frambjóð- endur að mæta á íþróttakappleiki og menningarviðburði sem þeir hafa aldrei sést á áður í veiðivon um atkvæði. Það er ekki laust við að um mann hríslist kjánahrollur þegar maður sér skælbrosandi fram- bjóðendur heilsa almúganum með virktum eins og um meðlimi bresku krúnunnar sé að ræða. Því miður er það staðreynd að minna verður um vandræðalega frambjóð- endur á körfuboltaleikjum hér í bæ en áður sökum áður óþekkts gengis liðanna. Bara sú staðreynd ætti að vera tilefni hvatningar til þeirra aðila sem sækjast eftir kjöri í Reykjanesbæ að setja íþróttir aftur á oddinn og horfa frá þeirri sveltistefnu sem unnið hefur verið eftir undanfarin ár. Forsvarsmenn félaganna hafa bæði metnað og vilja til að vera við toppinn. Það væri frábært ef metnaður og vilji bæjarfulltrúa væri sá sami því ég er nokkuð viss um að metnaður og vilji íbúanna rímar við metnað og vilja forsvarsmanna félaganna sem unnið hafa hér þrekvirki þrátt fyrir bágan fjárhag. Hér í bæ ættu allar forsendur að vera til staðar svo þessi forðum mikli íþróttabær eigi félög sem eru í fremstu röð. Til að svo megi vera þarf hins vegar stuðningur bæjarfélagsins, hvað varðar fjárhag, aðstöðu o.fl., að vera mikið mun meiri. Spyrnum við fótum og setjum íþróttir aftur á odd- inn svo íþróttafélög bæjarins fari aftur á toppinn, þar sem þau eiga heima! LOKAORÐ SÆVARS SÆVARSSONAR www.n1.is facebook.com/enneinn Hjólbarðaþjónusta N1 Bíldshöfða 440-1318 Fellsmúla 440-1322 Réttarhálsi 440-1326 Ægisíðu 440-1320 Langatanga Mosfellsbæ 440-1378 Reykjavíkurvegi Hafnarfirði 440-1374 Grænásbraut Reykjanesbæ 440-1372 Dalbraut Akranesi 440-1394 Réttarhvammi Akureyri 440-1433 Opið mán –fös kl. 08-18 laugardaga kl. 09-13 www.n1.is  Pantaðu tíma fyrir dekkjaskiptin á www.n1.is Öruggari á Michelin dekkjum Alltaf til staðar Michelin CrossClimate+ • Sumardekk fyrir norðlægar slóðir • Öryggi frá fyrsta til síðasta kílómetra • Halda eiginleikum sínum vel • Gott grip við flest allar aðstæður • Endingarbestu sumardekkin á markaðnum Michelin Primacy 4 • Öryggi frá fyrsta til síðasta kílómetra • Frábært grip og góð vatnslosun • Einstakir aksturseiginleikar Michelin Pilot Sport 4 • Sumardekk fyrir þá kröfuhörðustu • Gefa óviðjafnanlega aksturseiginleika • Frábært grip og góð vatnslosun • Endingarbestu dekkin á markaðnum í sínum flokki Bæjarstjórn Grindavíkur hefur samþykkt samhljóða tillögu bæjarráðs um 135 milljóna króna viðauka við fjárhagsáætlun 2018 til að klára alla dýpkunina við Miðgarð. Viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé. Hafnarstjórn hafði óskað eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2018 til að klára alla dýpkunina við Miðgarð. Gert er ráð fyrir að framkvæmdin komi á samgönguáætlun 2019–2023. Þá er gert ráð fyrir að verkið kosti 135 milljónir króna og hlutur Grindavíkurbæjar er 40%. Þó er gert ráð fyrir að Grindavíkurbær leggi alfarið út fyrir þessu og endur- greiðslan komi ekki fyrr en í fyrsta lagi 2019. Séð yfir framkvæmdasvæði við Grindavíkurhöfn í síðustu viku. Unnið við nýjan viðlegukant á Miðgarði. VF-mynd: Hilmar Bragi Bæjarstjórn Grindavíkur samhljóða í framkvæmdum við Grindavíkurhöfn: Veita 135 milljónum króna í að ljúka dýpkun við Miðgarð

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.