Víkurfréttir - 12.04.2018, Qupperneq 24
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
MUNDI
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
Greinilega búið að
dýpka vasa bæjarins!
Setjum
íþróttir
aftur á
oddinn
Við sem elskum kosningar höfum
verið dekruð mikið síðastliðin ár.
Líklega hefur verið kosið oftar á síð-
astliðnum 10 árum en alla lýðveldis-
söguna fram að því. Næstu kosn-
ingar eru sveitarstjórnarkosningar
og það er sérstaklega tvennt sem
yljar mér við þá staðreynd. Í fyrsta
lagi fer aðsendum greinum frá fólki
sem heyrist varla í yfir kjörtímabilið
að fjölga. Svo mikið fjölgar þeim
síðustu vikurnar fyrir kosningar að
allt eins líklegt er að við förum að
heyra hósta og stuna frá Frjálsu afli
sem kom eins og stormsveipur inn
í sveitarstjórnarmálin fyrir fjórum
árum í Reykjanesbæ. Hins vegar
hefur maður fundið álíka mikið
fyrir þeim frá síðustu kosningum
og meðvindinum í Reykjaneshöll-
inni og öðrum íþróttamannvirkjum
bæjarins. Í öðru lagi fara frambjóð-
endur að mæta á íþróttakappleiki
og menningarviðburði sem þeir
hafa aldrei sést á áður í veiðivon
um atkvæði. Það er ekki laust við
að um mann hríslist kjánahrollur
þegar maður sér skælbrosandi fram-
bjóðendur heilsa almúganum með
virktum eins og um meðlimi bresku
krúnunnar sé að ræða.
Því miður er það staðreynd að minna
verður um vandræðalega frambjóð-
endur á körfuboltaleikjum hér í bæ
en áður sökum áður óþekkts gengis
liðanna. Bara sú staðreynd ætti að
vera tilefni hvatningar til þeirra aðila
sem sækjast eftir kjöri í Reykjanesbæ
að setja íþróttir aftur á oddinn og
horfa frá þeirri sveltistefnu sem
unnið hefur verið eftir undanfarin
ár. Forsvarsmenn félaganna hafa bæði
metnað og vilja til að vera við toppinn.
Það væri frábært ef metnaður og vilji
bæjarfulltrúa væri sá sami því ég er
nokkuð viss um að metnaður og vilji
íbúanna rímar við metnað og vilja
forsvarsmanna félaganna sem unnið
hafa hér þrekvirki þrátt fyrir bágan
fjárhag. Hér í bæ ættu allar forsendur
að vera til staðar svo þessi forðum
mikli íþróttabær eigi félög sem eru í
fremstu röð. Til að svo megi vera þarf
hins vegar stuðningur bæjarfélagsins,
hvað varðar fjárhag, aðstöðu o.fl., að
vera mikið mun meiri. Spyrnum við
fótum og setjum íþróttir aftur á odd-
inn svo íþróttafélög bæjarins fari aftur
á toppinn, þar sem þau eiga heima!
LOKAORÐ
SÆVARS SÆVARSSONAR
www.n1.is facebook.com/enneinn
Hjólbarðaþjónusta N1
Bíldshöfða 440-1318
Fellsmúla 440-1322
Réttarhálsi 440-1326
Ægisíðu 440-1320
Langatanga Mosfellsbæ 440-1378
Reykjavíkurvegi Hafnarfirði 440-1374
Grænásbraut Reykjanesbæ 440-1372
Dalbraut Akranesi 440-1394
Réttarhvammi Akureyri 440-1433
Opið
mán –fös kl. 08-18
laugardaga kl. 09-13
www.n1.is
Pantaðu tíma fyrir dekkjaskiptin
á www.n1.is
Öruggari
á Michelin
dekkjum
Alltaf til staðar
Michelin CrossClimate+
• Sumardekk fyrir norðlægar slóðir
• Öryggi frá fyrsta til síðasta kílómetra
• Halda eiginleikum sínum vel
• Gott grip við flest allar aðstæður
• Endingarbestu sumardekkin á markaðnum
Michelin Primacy 4
• Öryggi frá fyrsta til síðasta kílómetra
• Frábært grip og góð vatnslosun
• Einstakir aksturseiginleikar
Michelin Pilot Sport 4
• Sumardekk fyrir þá kröfuhörðustu
• Gefa óviðjafnanlega aksturseiginleika
• Frábært grip og góð vatnslosun
• Endingarbestu dekkin á markaðnum
í sínum flokki
Bæjarstjórn Grindavíkur hefur samþykkt samhljóða
tillögu bæjarráðs um 135 milljóna króna viðauka við
fjárhagsáætlun 2018 til að klára alla dýpkunina við
Miðgarð. Viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun
á handbæru fé.
Hafnarstjórn hafði óskað eftir viðauka við fjárhagsáætlun
2018 til að klára alla dýpkunina við Miðgarð. Gert er ráð
fyrir að framkvæmdin komi á samgönguáætlun 2019–2023.
Þá er gert ráð fyrir að verkið kosti 135 milljónir króna
og hlutur Grindavíkurbæjar er 40%. Þó er gert ráð fyrir
að Grindavíkurbær leggi alfarið út fyrir þessu og endur-
greiðslan komi ekki fyrr en í fyrsta lagi 2019.
Séð yfir framkvæmdasvæði við Grindavíkurhöfn í síðustu viku. Unnið við nýjan viðlegukant á Miðgarði. VF-mynd: Hilmar Bragi
Bæjarstjórn Grindavíkur samhljóða í framkvæmdum við Grindavíkurhöfn:
Veita 135 milljónum króna
í að ljúka dýpkun við Miðgarð