Morgunblaðið - 08.09.2017, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 08.09.2017, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2017 efnisins Verum klár, borðum fisk og er þetta níunda árið í röð sem ferð með Húna stendum krökkum til boða. Sjávarútvegsfræðingar jafnan með í för. „Börnin fá fræðslu um ör- yggismál og um lífríki sjávar. Síðan veiðum við, fiskurinn er flakaður, grillaður og borðaður,“ segir Þor- steinn Pétursson, Steini Pje, fyrr- verandi lögreglumaður og einn að- alkarlinn í Húnahópnum.    Akureyrarbær og Samherji kosta verkefnið en karlarnir um borð sinna sínu eins og ætíð í sjálf- boðavinnu í nafni Hollvina Húna.    Slökkvilið Akureyrar hefur tek- ið í notkun nýjan reykköfunarbúnað og þar með skipt út (að mestu) göml- um græjum, sem sumar hverjar hafa verið notaðar til áratuga. Nýi bún- aðurinn er mun þægilegri og betri á alla lund, að sögn slökkviliðsmanna. Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri tók formlega við búnaðinum í vik- unni þegar Sverrir E. Bergmann frá fyrirtækinu Landstjörnunni, sem flytur búnaðinn inn og selur, afhenti hann formlega.    Sigurgeir Guðjónsson, sagn- fræðingur, hefur skrásett sögu Leikfélags Akureyrar síðasta ald- arfjórðunginn. Í gær kom út Afmæl- isrit Leikfélags Akureyrar 1992- 2017, eins og ritið heitir og var kynnt í Borgarasal Samkomuhússins.    Á 75 ára afmæli LA var gefin út bókin Saga leiklistar á Akureyri, rit- uð af Haraldi Sigurðssyni og tekur Sigurgeir upp þráðinn þar sem frá var horfið í bók Haraldar. Fundur fólksins, tveggja daga lýðræðishátíð, verður í menningar- húsinu Hofi í dag og á morgun. Ýmis félagasamtök, stjórnmálaflokkar og stofnanir bjóða upp á umræður og alls kyns uppákomur. Hátíðin er nú haldin í þriðja sinn en var í bæði fyrri skiptin á höfuðborgarsvæðinu.    Allir eru velkomnir á Fund fólksins enda tilgangurinn beinlínis sá að fá sem flesta til að taka þátt í formlegum og óformlegum fundum um málefni samfélagsins. Hátíðir sem þessi hafa lengi verið haldnar annars staðar á Norðurlöndunum.    Bæjarstjórn Akureyrar fundaði á þriðjudag, í fyrsta skipti eftir sum- arfrí. Meðal þess sem þá var rætt, var tillaga að nýju aðalskipulagi bæjarins og var samþykkt, eftir töluverðar umræður, að tillagan yrði auglýst.    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn, Gunnar Gíslason og Eva Hrund Einarsdóttir, sam- þykktu að tillagan yrði auglýst en gerðu þó ýmsar athugasemdir. Þeir bókuðu eftirfarandi: „Við sam- þykkjum að tillaga að aðalskipulagi 2018-2030 fari í auglýsingu þannig að umræða um hana í bæjarfélaginu geti farið fram með skipulögðum og markvissum hætti. Hins vegar ger- um við m.a. þann fyrirvara á að við erum alfarið gegn þéttingu byggðar í Kotárborgum eins og gert er ráð fyrir henni í skipulagsuppdrætti og það sama á við á svæðinu sunnan KA húss og austan Lundarskóla (San Síró) og svokölluðum kastvelli austan Skarðshlíðar við Þórs- svæðið.“ Af listamanni, ungum sjóurum og fundarfólki Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Haldið úr höfn Börn úr 6. bekk Hrafnagilsskóla ásamt kennurum sínum og flestum úr áhöfn Húna í gærmorgun. Morgunblaðið/Skapti Heiður Örn Ingi Gíslason þakkar fyrir viðurkenningu bæjarins. Morgunblaðið/Skapti Reykköfun Sverrir Bergmann og Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri. ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Örn Ingi Gíslason, hinn kunni fjöl- listamaður, fékk á dögunum heið- ursviðurkenningu Menningarsjóðs Akureyrar „fyrir fjölbreytt og mik- ilsvert framlag til menningarlífs á Akureyri,“ eins og það var orðað. Stjórn Akureyrarstofu ákveður hverjir hljóta viðurkenninguna en Matthías Rögnvaldsson, forseti bæj- arstjórnar, afhenti. Tækifærið var notað þegar þriðja A! gjörningahá- tíðin fór fram.    Örn Ingi var frumkvöðull í gjörn- ingalist á Akureyri fyrir margt löngu, og stundum kallaður Gjörn- ingi til gamans á árum áður! Hann hefur komið víða við en það sem flestum er líklega ferskast í minni er verk Arnar Inga, foss í kirkjutröpp- unum, á fyrstu gjörningahátíðinni fyrir þremur árum.    Samkoman mömmur og möffins var haldin í Lystigarðinum um versl- unarmannahelgina eins og oft áður. Fyrirtæki og bæjarbúar lögðu til 2.300 möffins, þessar litlu, girnilegu kökur og fallega skreyttu kökur, og fólk streymdi á staðinn. Mest allt seldist en afgangnum var komið á deildir Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) og á bæði öldrunarheimili bæjarins.Alls söfnuðust rúmlega 800 þúsund krónur og var fæðingardeild SAk afhent upphæðin í gær.    Verið er að safna fyrir nýjum hjartsláttarmónitor á fæðingardeild- inni; tæki sem nemur hjartslátt bæði móður og barns í fæðingu, en það sem notað hefur verið er orðið gam- alt. Nýtt tæki kostar rúma milljón og því ljóst að söfnunin skiptir miklu máli.    Karlarnir á eikarbátnum Húna II eru samir við sig og hafa í haust farið margir ferðir á sjó með börn úr 6. bekk grunnskólanna á Akureyri. Síðasta ferð haustsins, sú nítjanda, var í gærmorgun þegar börn úr Hrafnagilsskóla í nágrannabyggð- arlaginu Eyjafjarðarsveit voru um borð. Alls hafa um 300 krakkar farið í slíka fræðsluferð í haust.    Húnamenn eru í samvinnu við Háskólann á Akureyri vegna verk- Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Landsbankinn hefur auglýst eftir arkitektum til þess að hanna ný- byggingu bankans að Austurhöfn 2 á Hörpureitnum við höfnina. Endanleg áætlun um tímasetning- ar framkvæmda við nýbygginguna mun ekki liggja fyrir fyrr en hönnun er lokið og niðurstaða hefur fengist úr útboði, samkvæmt upplýsingum Rúnars Pálmasonar, upplýsingafull- trúa Landsbankans. Bankinn leigir meirihluta húsnæð- is sem notuð er fyrir starfsemi hans í miðborginni, að sögn Rúnars. Húsin við Hafnarstræti 10, 12 og 14 eru í eigu bankans og gert er ráð fyrir að þau hús verði boðin til sölu. Einnig á bankinn húsið við Austurstræti 11 sem hefur menningarlegt og sögu- legt gildi. „Bankinn vill að það hús fái áfram að njóta sín til framtíðar en ekki liggur fyrir með hvaða hætti það verður,“ segir Rúnar í skriflegu svari. Í auglýsingu Landsbankans er til- tekið að þeir arkitektar sem hafi áhuga á að hanna hið nýja hús þurfi að hafa samband við bankann eigi síðar en mánudaginn 18. september n.k. Landsbankinn muni í kjölfarið velja 3-5 arkitektastofur eða arki- tektateymi til að skila frumtillögum að hönnun hússins. Áætlaður skila- frestur á tillögum er tveir mánuðir. Bankinn mun síðan velja sér sam- starfsaðila við endanlega hönnun hússins. 16.500 fermetra hús Fram kemur í auglýsingunni að nýbygging Landsbankans verði 14.500 fermetrar ofanjarðar og 2.000 fermetrar í kjallara, alls 16.500 fer- metrar. Að auki verður bílakjallari sem nýtist öllu svæðinu við Austur- höfn. Landsbankinn hyggst nýta 10.000 fermetra undir eigin starf- semi. Á jarðhæð er gert ráð fyrir rými fyrir verslun og þjónustu, þar með talin móttaka og afgreiðsla fyrir bankann. Morgunblaðið/Árni Sæberg Austurstræti 11 Núverandi höfuðstöðvar bankans eru í friðuðu húsi. Eldri hlutinn er steinhlaðið hús frá 1896. Byggt var við það 1923. Nýtt hús teiknað fyrir bankann  Landsbankinn fer í Austurhöfn  Eignir við Hafnarstræti verða seldar Rannsóknarnefnd samgönguslysa beindi því til Samgöngustofu fyrr á árinu að þegar yrði hafin endurskoð- un á reglum um losunar- og sjósetn- ingarbúnað um borð í íslenskum skipum og heildarúttekt á þeim bún- aði sem er í notkun í dag. „Staða málsins hjá Samgöngu- stofu er sú að hér er unnið að drög- um að reglugerð þar sem til skoð- unar er að alþjóðlegar kröfur um björgunarbúnað gildi, þannig að nú- gildandi íslenskar sérkröfur verði valkostur útgerða,“ segir í skriflegu svari frá Samgöngustofu þegar Morgunblaðið grennslaðist fyrir um stöðu málsins. Tvö mál rannsökuð Dragnótabátnum Jóni Hákoni BA 60 hvolfdi þegar hann var á veiðum á Vestfjarðamiðum að morgni 7. júlí 2015 og sökk báturinn skömmu síð- ar. Einn maður fórst en þrír björg- uðust í nærstaddan bát. Tveir gúmmíbjörgunarbátar af Viking-gerð voru í sjálfvirkum sleppibúnaði á þaki stýrishúss Jón Hákonar en eftir að honum hvolfdi skilaði hvorugur björgunarbátanna sér upp á yfirborðið. Strandveiðibáturinn Brekkunes ÍS fékk á sig straumhnút bakborðs- megin sem varð til þess að honum hvolfdi. Þetta gerðist 11. maí 2016. Skipstjórinn, sem var einn um borð, drukknaði. Talsverð ákoma var á hliðarglugga á bakborðshlið bátsins. Einnig hafði gúmmíbjörgunarbátur á þaki hans fengið á sig högg og gengið til. Slysið varð um 18 sjómílur norðvestur af Straumnesi. Gúmmíbjörgunarbáturinn losnaði ekki frá bátnum eftir að honum hvolfdi og ekki heldur þegar bátur- inn var dreginn á hvolfi til Bolung- arvíkur. Í framhaldi af rannsókn á þessum tveimur málum beindi nefndin erindi til Samgöngustofu. sisi@mbl.is Vinna drög að nýrri reglugerð  Samgöngustofa skoðar sleppibúnað skipa  Björgunarbátar losnuðu ekki Losnaði ekki Björgunarbátur Jóns Hákonar fastur á 80 metra dýpi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.