Morgunblaðið - 08.09.2017, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2017
Jóhanna María Eyjólfsdóttir heldur upp á 50 ára afmælið sitt semer í dag í Vestmannaeyjum þar sem hún er fædd og uppalin, enhún fór þangað með sonum sínum í morgun. „Við dveljum á æsku-
heimilinu mínu og ætlum að fara í fjallgöngu og út á sjó. Siglum ann-
aðhvort kringum Eyjarnar eða skellum okkur út á tuðru og upp á
Heimaklett og ætli ég skáli ekki þar í freyðivíni í tilefni afmælisins. Svo
förum við út að borða í kvöld á Slippinn, besta veitingastað á Íslandi.
Seinna í mánuðinum förum við til Sikileyjar, en það verður stóra
afmælisferðin.“ Synir Jóhönnu Maríu eru Anton Emil 20 ára og Bene-
dikt Aron 12 ára Albertssynir.
Jóhanna María lauk í sumar djáknanámi við Háskóla Íslands. „Svo
hefst vonandi seinni starfsferill minn í haust, en ég er að leita mér að
vinnu og er að velta ýmsum hlutum fyrir mér og svo næsta haust fer ég
til Bandaríkjanna í framhaldsnám í CPE, nám í sálgæslufræðum.“ Jó-
hanna María hefur verið í starfsþjálfun á Landspítalanum og hefur unn-
ið með hælisleitendum í Laugarneskirkju meðan hún var í náminu og
hún var einnig formaður Pieta-samtakanna á Íslandi, en í þeim sam-
tökum er reynt að finna úrræði fyrir fólk í sjálfsvígshugleiðingum og
sem er með sjálfsskaðahegðun. „Mig langar að beita mér þar sem á
bjátar hjá fólki og hef vent kvæði mínu í kross en áður vann ég við fjöl-
miðla, í menntamálum og var viðloðandi pólitík.“
Áhugamál Jóhönnu Maríu eru víðtæk. Hún hefur mikinn áhuga á fót-
bolta og hefur gaman af listum og menningu, útiveru, fjallgöngum og
ferðalögum og hefur gaman af því að dansa. „Uppáhaldsliðið mitt er
ÍBV að sjálfsögðu og ég æfði fótbolta með því og handbolta með Tý. Svo
held ég einnig með Arsenal og Juventus og neyðist líka til að halda með
KR í yngri flokkunum því að strákarnir mínir æfa fótbolta þar.“
Mæðginin Anton Emil, Jóhanna María og Benedikt Aron við
útskriftarathöfn Jóhönnu Maríu í Dómkirkjunni 27. júní síðastliðinn.
Heldur upp á dag-
inn á heimaslóðum
Jóhanna María Eyjólfsdóttir er fimmtug
K
atrín Ágústa Johnson
fæddist í Reykjavík
8.9. 1977 og átti heima í
Vesturbænum fyrstu
árin en flutti fjögurra
ára í Breiðholtið þar sem hún var til
12 ára aldurs. Þá fór hún aftur vestur
yfir Læk: „Það snerist flest um dans
hjá mér í barnæsku. Ég byrjaði fimm
ára í ballett hjá Eddu Scheving, lærði
líka samkvæmisdans og djassballett.
En allt vék fyrir ballettinum þegar ég
þurfti að gera upp á milli. Ég var ekki
í sveit en fór í sumarbúðir í Vindás-
hlíð, fjögur sumur.“
Katrín var í Hólabrekkuskóla,
Melaskóla og Hagaskóla. Hún flutti
til Stokkhólms þegar hún var 16 ára
til að læra í Konunglega sænska ball-
ettskólanum, lauk þar stúdentsprófi
1996 og flutti þá aftur heim til Ís-
lands.
Katrín dansaði hjá Íslenska dans-
flokknum 1996-2011 að undanskildu
einu leikári, 2005-2006. Þá bjó hún í
Bern í Sviss og dansaði með Bern
Ballet í Stadttheater Bern.
Á dansferlinum lék Kartín einnig í
leikritum og söngleikjum í Borgar-
leikhúsinu og Stadttheater Bern. Auk
þess lék hún í nokkrum stuttmyndum
og í fjölda auglýsinga.
„Ég var alltaf meðvituð um að ég
gæti ekki dansað gegnum allan minn
starfsferil. Þar setur tíminn sín mörk
eins og svo víða. Ég hef aldrei haft
áhuga á að vera danshöfundur eða
danskennari. Ég stefndi því alltaf á
að fara í háskólanám eftir að ég hætti
að dansa. Upphaflega stóð til að læra
lögfræði en það breyttist með tím-
anum og ég lærði mannfræði þegar
ég hætti í Íslenska dansflokknum ár-
ið 2011.“
Katrín Johnson, listdansari og mannfræðingur – 40 ára
Vinkonur úr dansinum Talið frá vinstri: Tinna Grétarsdóttir, Bryndís Ragna Brynjólfsdóttir, afmælisbarnið, Katr-
ín Ingvadóttir og loks Aðalheiður Halldórsdóttir. Myndin var tekin á árshátíð dansara fyrir nokkrum árum.
Kattavinurinn Katrín
elskar rússíbanaferðir
Katrín á sviði Myndin er stilla úr
sjónvarpsþáttunum Dans, dans dans.
Hafnarfjörður Aron
Dreki Arnarson fæddist
á Akranesi 8. september
2016 kl. 16.44 og á því
eins árs afmæli í dag.
Hann vó 4.215 g og var
55 cm langur í fæðingu.
Foreldrar hans eru Ást-
rós Eva Gunnarsdóttir
og Örn Erlingsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
HÁGÆÐA POTTAR
OG PÖNNUR
Á ALLAR GERÐIR ELDAVÉLA