Morgunblaðið - 08.09.2017, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2017
Fellibylurinn Irma hélt áfram að
valda mikilli eyðileggingu á eyjum í
Karíbahafi í gær, lagði mörg hús í
rúst og kostaði a.m.k. tíu manns lífið.
Óttast er að manntjónið aukist. Yfir-
völd á eyjunni Barbúda sögðu að hún
væri „varla byggileg“ og um 95%
húsa á eyjunni Saint Martin eru sögð
hafa eyðilagst.
Styrkur bylsins mældist enn á
fimmta og hæsta stigi á kvarða sem
kenndur er við vísindamennina Saffir
og Simpson. Þegar fellibylur nær
fimmta stigi er vindhraðinn yfir 80
m/s og sjávarstaða yfirleitt meira en
6 m hærri en í meðallagi, að því er
fram kemur á vef Veðurstofu Íslands.
Irma var í gær norðan við Dóm-
iníska lýðveldið og stefndi að eyjun-
um Turks og Caicos. Hætta var á
miklum flóðum á eyjunum.
Almannavarnastofnun Bandaríkj-
anna, FEMA, sagði að búist væri við
miklu tjóni á suðurströnd landsins
þegar fellibylurinn kæmi þar að
landi, líklega aðfaranótt sunnudags
að staðartíma. „Meirihluti íbúa á
ströndinni hefur aldrei lent í eins öfl-
ugum fellibyl,“ sagði yfirmaður
FEMA, Brock Long, í viðtali við
CNN-sjónvarpið.
Búist er við að þegar fellibylurinn
kemur að landi í Flórída verði styrk-
ur hans á fjórða stigi eins og fellibyl-
urinn Harvey sem olli miklu tjóni í
Texas fyrir tæpum tveimur vikum.
Frá því að mælingar hófust hefur það
aldrei gerst áður að tveir fjórða stigs
fellibyljir komi að landi í Bandaríkj-
unum á sama fellibyljatímabili.
Eyjan „varla byggileg“
Gaston Browne, forsætisráðherra
Antígva og Barbúda, sagði að um
95% húsa á eyjunni Barbúda hefðu
skemmst í óveðrinu. „Eyjan er bók-
staflega undir vatni. Reyndar tel ég,
eins og staðan er núna, að eyjan sé
varla byggileg,“ sagði Browne í við-
tali við breska ríkisútvarpið. Um
1.600 manns búa á Barbúda og
Browne telur að um helmingur
þeirra hafi misst heimili sitt. Minna
tjón varð á eyjunni Antígva þar sem
íbúarnir eru fleiri, eða um 80.000.
Embættismenn sögðu að mikið
tjón hefði orðið á eyjunum Saint
Martin og Saint Barthélemy. Einn
þeirra sagði að 95% húsa á Saint
Martin hefðu eyðilagst. Miklar
skemmdir urðu einnig á aðalflugvelli
eyjunnar. Saint Martin lýtur yfirráð-
um Frakklands og Hollands.
Um þrjár milljónir manna voru án
rafmagns í Púertó Ríkó vegna Irmu
en tjónið virtist ekki vera eins mikið
þar og óttast hafði verið. Óveðrið náði
einnig til bresku eyjunnar Anguilla
og Bresku Jómfrúreyja.
Annar fellibylur, Jose, var austan
við Irmu í Atlantshafi en stefndi ekki
að eyjunum. Hann var skilgreindur
sem fyrsta stigs fellibylur.
Þriðji fellibylurinn, Katia, stefndi
að strönd Mexíkó og gert var ráð fyr-
ir að hann kæmi að landi í dag. Hann
var einnig á lægsta stigi styrkleika-
kvarðans. bogi@mbl.is
Óttast meira manntjón
Fellibylurinn Irma hefur valdið mikilli eyðileggingu á eyjum í Karíbahafi
Um 95% húsa á tveimur eyjanna sögð hafa eyðilagst eða skemmst í óveðrinu
AFP
Hamfarir Frá Marigot, stærsta bænum í franska hluta Saint Martin. Mikið eignatjón varð á eyjunni af völdum Irmu.
Jose
Katia
Irma
Fellibyljir í Atlantshafi
Heimild: Fellibyljastofnun Bandaríkjanna
250 km
ATLANTSHAF
KÚBA
BANDARÍKIN
MEXÍKÓ
DÓMINÍSKA
LÝÐVELDIÐ
PÚERTÓ
RÍKÓ
Karíbahaf
Í gær
kl. 05.00
Í gær
kl. 03.00
Í gær
kl. 06.00
Laugardag
kl. 23.00
Fellibylur
Öflugur fellibylur
Hitabeltisstormur/lægð
Mexíkóflói
HAÍTÍ
Þriðjudag
00:00
Þriðjudag
kl. 00.00
Líkleg leið
fellibylsins
að ísl. tíma
Spár
Donald Trump Bandaríkjaforseti
hefur komið þingmönnum repúblik-
ana í opna skjöldu með því að styðja
tillögu demókrata um að tengja
fjárveitingu til neyðaraðstoðar
vegna fellibylsins Harvey við að-
gerðir til að fjármagna starfsemi al-
ríkisstofnana og hækka skuldaþak
ríkisins þar til um miðjan desember.
Þingmenn repúblikana urðu forviða
og reiðir yfir ákvörðun Trumps, að
sögn dagblaðsins The Wall Street
Journal sem segir hana vekja
spurningar um hvort forsetinn snúi
sér nú að demókrötum á þinginu til
að semja um breytingar á skattkerf-
inu og innflytjendalöggjöfinni.
„Sýnir klofning“
Talið er að ákvörðun Trumps
auki spennuna í samskiptum hans
við forystumenn repúblikana á
þinginu. „Þetta kemur forystu repú-
blikana í vandræði og sýnir klofn-
ing,“ hefur The Wall Street Journal
eftir Trent Lott, fyrrverandi leið-
toga repúblikana í öldungadeild
þingsins.
Paul Ryan, forseti fulltrúadeild-
arinnar, hafði sagt að tillaga demó-
krata um að tengja fjárveitinguna
vegna Harvey við hækkun skulda-
þaksins í þrjá mánuði væri „fárán-
leg og óframkvæmanleg“.
Leiðtogar repúblikana höfðu upp-
haflega lagt til að skuldaþakið yrði
framlengt um átján mánuði, þannig
að þingið greiddi næst atkvæði um
það eftir þingkosningar 6. nóv-
ember á næsta ári. Þegar leiðtogar
demókrata höfnuðu þeirri tillögu
lögðu repúblikanar til að þakið yrði
framlengt um sex mánuði.
Þingmenn repúblikana óttast að
ákvörðun Trumps geti styrkt stöðu
demókrata í næstu atkvæða-
greiðslum á þinginu um skuldaþakið
og telja að erfiðara verði fyrir repú-
blikana að ná stefnu sinni fram í
desember. bogi@mbl.is
Repú-
blikanar
reiðir
Trump tók afstöðu
með demókrötum
Ríkissaksóknari
Spánar sagði í
gær að leiðtogar
Katalóníu yrðu
sóttir til saka fyr-
ir áform þeirra
um að efna til
þjóðaratkvæða-
greiðslu í hér-
aðinu um aðskiln-
að frá Spáni. Enn
fremur ættu spænsk yfirvöld að
leggja hald á öll kjörgögn í tengslum
við atkvæðagreiðsluna.
Ríkissaksóknarinn Jose Manuel
Maza kvaðst vera að undirbúa ákær-
ur á hendur leiðtogum þings Kata-
lóníu og embættismönnum í stjórn
héraðsins sem hafa beitt sér fyrir at-
kvæðagreiðslunni. Hann bætti við að
saksóknarar í Katalóníu, ríkislög-
regla Spánar og katalónska lögregl-
an hefðu fengið fyrirmæli um að
rannsaka allar ráðstafanir sem gerð-
ar hafa verið til að undirbúa at-
kvæðagreiðsluna vegna hugsanlegra
saksókna fyrir „óhlýðni“, „vísvitandi
blekkingar“ og „misnotkun á opin-
beru fé“.
Þing Katalóníu samþykkti at-
kvæðagreiðsluna eftir heitar um-
ræður í fyrradag. 52 andstæðingar
hennar fóru af fundi áður en gengið
var til atkvæða og af þeim sem voru
eftir studdu 72 þingmenn atkvæða-
greiðsluna en 11 sátu hjá.
Áður hafði stjórnlagadómstóll
Spánar úrskurðað að atkvæða-
greiðslan myndi ganga í berhögg við
stjórnarskrána.
„Óviðunandi óhlýðni“
Mariano Rajoy, forsætisráðherra
Spánar, sagði að leiðtogar Katalóníu,
hefðu gerst sekir um „óviðunandi
óhlýðni“ með því að samþykkja at-
kvæðagreiðsluna. Hann bætti við að
stjórnlagadómstóllinn yrði beðinn
um að ógilda lög sem þing Katalóníu
setti um atkvæðagreiðsluna.
Sveitarstjórnir í Katalóníu hefðu
einnig verið áminntar um að þeim
bæri skylda til að koma í veg fyrir að
atkvæðagreiðslan færi fram.
Talsmaður Katalóníustjórnar,
Jordi Turull, sagði að hún myndi
halda áformunum til streitu þrátt
fyrir „umsátursaðgerðir“ spænskra
stjórnvalda. „Við ætlum að gera
þetta hvað sem á dynur vegna þess
að við erum samningsbundin íbúum
Katalóníu,“ sagði Turull. bogi@mbl.is
Leiðtogarnir
verða ákærðir
Katalónar undirbúa atkvæðagreiðslu
um sjálfstæði Yfirvöld boða saksóknir
Mariano Rajoy
Hoist Vinnulyftur • Víkurhvarf 4 • Sími 517 6000 • hoist@hoist.is • www.hoist.is
Umboðsaðili Alimak Hek á Íslandi
Turnlyftur
Sala og þjónusta
Sérhæfum okkur
í sölu og þjónustu
á lyftum af öllum
stærðum og gerðum
517 6000