Morgunblaðið - 13.09.2017, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.09.2017, Blaðsíða 2
Að sögn Halldóru Vífilsdóttur er með þessari samkeppni verið að horfa til uppbyggingar á reitnum til langrar framtíðar. Tillögur sýndar á aldarafmæli Stefnt er að því að gera grein fyr- ir niðurstöðum dómnefndar og halda sýningu á þeim tillögum sem berast í tengslum við aldarafmæli fullveldis Íslands hinn 1. desember 2018. Framkvæmdasýslan óskaði eftir samstarfi við Reykjavíkurborg vegna þessara verkefna. Borgarráð samþykkti að fela borgarstjóra að tilnefna aðila í samstarfshópa vegna þeirra. Lindargötu. Innan hans eru göt- urnar Sölvhólsgata og Skuggasund. Í bréfi framkvæmdasýslunnar til borgarstjóra segir að gert sé ráð fyrir því að á reitnum verði framtíð- arhúsnæði allra ráðuneyta nema hugsanlega forsætisráðuneytisins. Að auki er gert ráð fyrir að þarna komi fleiri ríkisstofnanir og e.t.v. dómstólar. Meðal annars hefur ver- ið rætt um að þarna verði byggt hús yfir Landsrétt, en hann tekur til starfa í bráðabirgðahúsnæði í Kópavogi um næstu áramót. Nú þegar eru allmörg ráðuneyti á reitnum. Einnig eru þar tvö frið- uð hús, íþróttahús Jóns Þorsteins- sonar og gamla hæstaréttarhúsið. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Framkvæmdasýsla ríkisins undir- býr samkeppni um stjórnarráðs- byggingar sem efnt verður til í upp- hafi ársins 2018. Í fyrsta lagi er áformað að halda framkvæmdasamkeppni um við- byggingu bak við stjórnarráðshúsið við Lækjargötu. Í bréfi sem fram- kvæmdasýslan ritaði Degi B. Egg- ertssyni borgarstjóra í síðasta mánuði kemur fram að ráðgert er að koma fyrir 1.000 fermetra bygg- ingu á baklóð stjórnarráðsins. Að sögn Halldóru Vífilsdóttur, forstjóra Framkvæmdasýslu rík- isins, er áfomað að hin nýja bygg- ing rísi fyrir austan stjórnarráðs- húsið, þar sem nú er bílaplan. Ekki er gert ráð fyrir hárri byggingu, líklegast tveim hæðum. Þá er gert ráð fyrir bílakjallara. Hin nýja bygging mun tengjast stjórn- arráðshúsinu með tengigangi. Í húsinu verða skrifstofur forsæt- isráðuneytisins. Fornleifakönnun framkvæmd Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið og þarf því að vinna slíkt skipulag. Jafnframt þarf að fara fram fornleifakönnun á reitn- um. Framkvæmdasýslan hefur átt samráð við Minjastofnun um þann þátt málsins, að sögn Halldóru. Í öðru lagi er áformuð skipulags- samkeppni um uppbyggingu á svo- kölluðum stjórnarráðsreit. Ytri mörk reitsins afmarkast af Ingólfs- stræti, Skúlagötu, Klapparstíg og Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Stjórnarráðshúsið Hugmyndin er að viðbyggingin verði um 1.000 fermetrar. Húsið verður líklega tveggja hæða. Viðbygging bak við stjórnarráðshúsið  Samkeppni haldin um uppbyggingu á stjórnarráðsreit 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2017 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Umfangsmiklar framkvæmdir hóf- ust í gær á Kringlumýrarbraut í Reykjavík og hafa stórvirkar vinnu- vélar þegar grafið í sundur akbrautir vestan megin, en verið er að endur- nýja stofnlögn kalds vatns frá loka- húsi við Stigahlíð og yfir götuna. Meðan á þessu stendur verður verulega þrengt að umferð og hafa talsmenn lögreglu og slökkviliðs meðal annars lýst yfir áhyggjum af þeim miklu umferðartöfum sem framkvæmdunum kunna að fylgja, einkum á álagstímum. Umferðin gekk þó vel í gærmorgun þar sem verktakinn byrjaði ekki á verkinu fyrr en eftir morgunumferðina. Tafir eru hins vegar fyrirsjáanlegar héðan af, en framkvæmdir munu standa yf- ir næstu tvær vikurnar. Skammt frá, á Miklubraut til móts við Klambratún, stóð til að loka fyrir alla bílaumferð í austur vegna mal- bikunar. Þeim framkvæmdum hefur nú hins vegar verið slegið á frest og hefjast ekki fyrr en framkvæmdum er lokið á Kringlumýrarbraut. khj@mbl.is Búið að rjúfa ak- brautir til suðurs Morgunblaðið/Árni Sæberg Viðhald Umferð á Kringlumýrarbraut er leidd yfir á öfugan vegarhelming. Margt þarf að skoða og ganga upp áður en hægt er að ræða af alvöru hugmyndir um að velja Hvassa- hraun í Vogum sem öryggisflug- völl á suðvesturhorninu eins og rætt er um í nýrri skýrslu um ör- yggishlutverk Reykjavíkurflug- vallar. Engar viðræður hafa átt sér stað um þau mál við sveitarfé- lagið Voga, að sögn Ásgeirs Ei- ríkssonar bæjarstjóra. Hann segir að fólk þar sé eiginlega hvorki með né á móti hugmyndinni, en opið fyrir því að kanna hana. Hvassahraun er svokallað fjar- svæði með tilliti til vatnsverndar og engin könnun hefur farið fram á því hvaða áhrif flugvöllur hefði á vatnsból íbúa í Vogum eða í öðrum sveitarfélögum í nágrenninu. Ás- geir segir að Vogar fái sitt vatn úr borholu við Vogavík rétt við bæ- inn, en önnur sveitarfélög á Suð- urnesjum fái vatn frá Lágum sem eru við Grindavíkurveg. Hann seg- ir að hafi flugvallargerð áhrif á vatnsverndarsvæði þurfi það ekki að takmarkast við Voga, en rann- sóknir þurfi til að skera úr um það. „Það sem er flóknast í þessu máli er að flugvöllur í Hvassa- hrauni kallar á breytingu á að- alskipulagi Voga,“ segir Ásgeir. „Slík breyting þarf að falla að svæðisskipulagi allra sveitarfélag- anna á Suðurnesjum. Svæðisskipu- laginu verður ekki breytt nema öll sveitarfélögin fallist á það.“ Að hans mati gæti það orðið snúið mál. „Þetta mál á mjög langt í land og hér verður ekkert aðhafst fyrr en eitthvað meira áþreifanlegt kemur fram,“ segir Ásgeir Eiríks- son. gudmundur@mbl.is „Þetta á mjög langt í land“  Enginn flugvöllur í Hvassahrauni nema með samþykki allra sveitarfélaganna  Engar viðræður farið fram  Áhrif á vatnsverndarsvæði ekki verið könnuð Hvassahraun » Í nýrri skýrslu er viðruð hug- mynd um öryggisflugvöll í Hvassahrauni. » Breyta þyrfti aðalskipulagi Voga og svæðisskipulagi á Suðurnesjum. » Öll sveitarfélög á Suður- nesjum þyrftu að fallast á hug- myndina. „Þetta er geng- ið inn á land og mun því hverfa á næstu dög- um,“ segir Ein- ar Sveinbjörns- son veður- fræðingur og vísar til þess mikla veðurofsa sem gengið hef- ur yfir Mið- og Norður-Ameríku að undanförnu, en hann segist ekki eiga von á leifum fellibyljanna hingað til lands. „Fellibylurinn Jose er enn úti á Atlantshafi og mun dóla þar næstu daga. Leifar hans gætu e.t.v. borist norðar.“ Ekki von á neinum leifum fellibyljanna hingað til lands Rústir Irma gekk yfir með látum. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Sólarstrendur nutu mikilla vin- sælda hjá Íslendingum í sumar. Margir lögðu leið sína til Spánar og voru áfangastaðirnir Playa de las Americas, Barcelona, Beni- dorm og Alicante hvað vinsælastir. Þetta kemur fram í greiningu bók- unarvefsins Dohop.is fyrir Morg- unblaðið. Armina Ilea, greinandi hjá fyrir- tækinu, segir ekki ósennilegt að lækkað verð á ferðum til þessara staða skýri aukna eftirspurn. Almennt hafi áfangastaðir sem ódýrt er að fara til verið vinsælir. London hafi verið í efsta sæti. Til samanburðar hafi Íslend- ingar sýnt meiri áhuga á borg- arferðum í fyrrasumar. Vinsælustu borgirnar hafi þá verið New York, Kaupmannahöfn, London, Boston og Berlín. Hins vegar nutu sólar- strendur þá einnig vinsælda og urðu áfangastaðirnir Nice, Adeje (Spáni) og Orlando gjarnan fyrir valinu. Til upprifjunar lék íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu við Englendinga í Nice á EM 2016. Loks benda gögn Dohop, sem byggjast á bókunum Íslendinga á gistingu, til að eftirspurn eftir ferðum til Bandaríkjanna hafi ver- ið minni í sumar en í fyrrasumar. Eftirspurnin hafi minnkað þrátt fyrir meira framboð á ódýru flugi. Ofangreind þróun kann að vera vísbending um að vegna aukins kaupmáttar og gengisstyrkingar framan af sumri hafi Íslendingar leyft sér dýrari ferðalög en í fyrra. Íslendingar sóttu á sólarstrendur  Gögn Dohop.is benda til að dregið hafi úr eftirspurn til Bandaríkjanna Þetta er ekki í fyrsta sinn sem rætt hefur verið um uppbyggingu austan við stjórnarráðið. Í janúar 2005 birtist frétt í Morgunblaðinu þar sem sagði að hugmyndir væru uppi um að reisa allt að fjögurra hæða skrifstofubyggingu á reitnum bak við Stjórnarráð Íslands og myndi byggingin tengjast stjórnarráðinu. Tillaga að deiliskipulagi fyr- ir lóðina hefði verið auglýst, en enn væri langt í að lagt yrði í fram- kvæmdir. „Þetta eru tillögur sem eru lagðar fram af hálfu skipulagsins í Reykjavík, og eru svona einhver framtíðarmúsík,“ var haft eftir Bolla Þ. Bollasyni, þáverandi ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu, í fréttinni. Ekkert varð af framkvæmdum á þessum tíma. Þá var gert ráð fyrir allt að 2.000 fermetra byggingu, eða tvöfalt stærri en nú er rætt um. Þá var einnig gert ráð fyrir að bílageymsla yrði í kjallara sem kæmi á móti þeim bílastæðum sem myndu fara undir nýju bygginguna. Stærri bygging rædd 2005 VIÐBYGGING HEFUR VERIÐ ÁFORMUÐ ÁÐUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.