Morgunblaðið - 13.09.2017, Síða 6

Morgunblaðið - 13.09.2017, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2017 Halldór Benjamín Þorbergsson Elín Björg Jónsdóttir „Hagkerfið er að breyta um takt eftir mikinn efnahagsuppgang og hagvöxt síðustu ára,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, fram- kvæmdstjóri Samtaka atvinnulífs- ins, en hann segir skýr merki þess í fjárlagafrumvarpinu. „Hagvöxtur verður minni á næsta ári og fjárlögin endurspegla þann breytta veruleika. Ég sakna þess því að sjá ekki áherslur um að koma til móts við atvinnulífið, m.a. með lækkun á tryggingagjaldi,“ segir hann og bendir á að nú séu kjöraðstæður til lækkunar gjalds- ins. Halldór segir jákvætt að greidd- ar séu niður skuldir hins opinbera en þær hafa að hans sögn minnkað um tæpan helming frá því þær voru hvað mestar í kringum ára- mótin 2011-2012. Stóra málið í vet- ur segir hann þó vera kjaravið- ræður ríkisins við stéttarfélög opinberra starfsmanna. „Ég tel mikilvægt að ríkið sýni ábyrgð í fjármálastjórn og hjálpi okkur að varðveita kaupmáttar- aukningu síðustu ára,“ segir hann og vísar þar til komandi kjara- viðræðna. Áhyggjur af innviðum Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, tekur í sama streng og Halldór og segir mikilvægt að kaupmátturinn sé varinn. „Þetta snýst ekki bara um krón- ur og aura heldur hvað við fáum fyrir þær. Þess vegna er mikilvægt að fullt samráð verði haft við alla aðila vinnumarkaðarins í málum sem varða okkur öll,“ segir Elín. Spurð um fjárlagafrumvarpið telur hún rétt að tala varfærn- islega en óttast þó að innviðum samfélagsins sé ekki sinnt sem skyldi. „Í þeim málum sem lúta að al- mannaþjónustu er mikilvægt að beina fjármunum til þeirra verk- efna sem almenningur telur brýn- ust.“ Nefnir Elín dæmi um heilsu- gæslustöðvar á höfuðborgarsvæð- inu en hún gagnrýnir að einka- reknar stöðvar taki til sín mest fjármagn þvert á vilja almennings meðan þær opinberu sitji eftir fjársveltar. vilhjalmur@mbl.is Lækka þarf trygg- ingagjald  Sammála um að verja kaupmáttinn Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjálmur@mbl.is Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar græns fram- boðs, segir jákvætt að verið sé að hækka svokallaða umhverfisskatta og vísar þar til hækkunar á bensín- og olíugjaldi. „Þrátt fyrir að hækkunin ein og sér sé jákvæð er skortur á heild- arstefnu stjórnvalda í þessum mála- flokki,“ segir Katrín, sem kallar eft- ir skýrari stefnu í umhverfis- og loftlagsmálum. „Við höfum lagt til að Ísland gangi lengra en Parísarsamkomu- lagið og stefnt verði að kolefnishlut- lausu Íslandi. Skattastefnan þarf að spila með því markmiði og það er löngu tímabært að sú stefna liggi fyrir.“ Hún segir fjárlagafrumvarpið ekki hafa komið sér á óvart. Það sé í takt við fjármálaáætlun sem sam- þykkt var af stjórnarflokkunum í vor. „Hér er verið að lögfesta það sem ég hef kosið að kalla sveltistefnu. Það er ekki verið að sækja fram í neinum málaflokkum. Hlutur sam- neyslunnar er að dragast saman sem hlutfall af landsframleiðslu og það sést víða í fjárlagafrumvarpinu. Barnabætur lækka, vaxtabætur lækka og við sjáum að ekki er verið að hlusta á ákall kjósenda um stór- aukin framlög til heilbrigðismála,“ segir Katrín og telur þá einnig til fjársvelti í menntamálum. Skattahækkun á ungt fólk Sigurður Ingi Jóhannsson, for- maður Framsóknarflokksins, segir fátt koma sér á óvart í fjárlagafrum- varpinu, það sé að mestu í samræmi við fjármálaáætlun. „Það sem kemur mér þó á óvart er að fjármálaráðherra skuli hunsa tilmæli meirihluta stjórnarliða um að falla frá hækkun á virðisauka- skatti á ferðaþjónustu og skoða þess í stað komugjöld,“ segir Sigurður og bendir á að þegar hafi menn séð merki þess að hækkun virðisauka- skatts á ferðaþjónustu komi verst niður á ferðaþjónustusvæðum utan áhrifasvæðis höfuðborgarsvæðisins. Þá gagnrýnir Sigurður fyrirhug- aða skattahækkun á olíu- og bensín- gjald sem hann segir bitna verst á þeim sem vegna búsetu sinnar þurfi að aka langar vegalengdir. Hann segir jafnframt mikilvægt að nýta fjárlagaafganginn með skynsamlegum hætti. „Framsóknarflokkurinn benti á það í vor að afgangurinn yrði meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir, þ.e. að tekjur myndu vaxa meira. Þess vegna lögðum við það til þá og mun- um gera aftur í haust að auknu fé verði varið í innviðauppbyggingu þeirra svæða sem ekki hafa notið sama hagvaxtar og þéttbýlustu kjarnar landsins.“ Samfylking vill eignaskatt Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, segist orðlaus yfir því metnaðarleysi stjórnar- flokkana sem birtist í fjárlagafrum- varpinu í garð mennta- og velferð- armála. „Mér finnst það vonbrigði að ekki sé meira fé varið í sjúkraþjónustu og skammsýnt að gefa ekki öldr- uðum tækifæri til að vinna og finna sér lífsfyllingu,“ segir Logi og vísar þar m.a. til frítekjumarks. „Samfylkingin hefur talað fyrir klassískum leiðum jafnaðarstefn- unnar þar sem gæðum og birgðum er skipt jafnar á fólk. Ég hafna því alfarið þeirri hugmyndafræði að stækka þurfi bara kökuna og brauð- molarnir leiti niður.“ Spurður um skattastefnu stjórn- valda segir Logi að skattkerfið þurfi að vera tekjuskiptara, þ.e. að fólk með lægstu og meðaltekjur beri ekki meiri álögur en auðugasti hluti þjóðarinnar. „Ég vil sjá hér einhvers konar út- færslu á auðlegðarskatti og breyt- ingar á skattkerfinu. Við munum því að sjálfsögðu, líkt og áður, leggja fram breytingartillögur við fjárlaga- frumvarpið.“ Spurður hvort hann eigi þá við einhvers konar eignaskatt svara hann játandi. Birgitta þingflokksformaður Ekki náðist í Birgittu Jónsdóttur, kaftein Pírata, en í fréttatilkynningu frá flokknum kemur fram að Birg- itta hafi verið kjörin þingflokksfor- maður, Þórhildur Sunna Ævarsdótt- ir varaformaður þingflokksins og Jón Þór Ólafsson ritari hans. „Stjórnarkjörið er hluti af end- urskipulagningu innan þingflokks- ins sem hefur staðið yfir í sumar en verkaskipting og valddreifing er nú jafnari en áður meðal stjórnarliða þingflokks. Þessi verkaskipan er að- eins einn angi af vinnu þingflokks við að skerpa á leiðum til að hrinda í framkvæmd helstu stefnumálum Pírata,“ segir í tilkynningu frá flokknum. Vilja auka útgjöld og skatta  Formenn stjórnarandstöðuflokkanna telja flestir að verja þurfi auknum fjár- munum í félags- og heilbrigðisþjónustu  Samfylking vill auðlegðarskatt á þá ríku Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Alþingi var sett með hefðbundnum hætti í gær. Þingmenn héldu til guðsþjónustu í Dómkirkjunni og að henni lokinni ávarpaði Guðni Th. Jó- hannesson, forseti Íslands, Alþingi. Í ávarpinu gerði forsetinn stjórnar- skrána að sínu helsta umræðuefni og lagði áherslu á mikilvægi þess að endurskoða hana reglulega. „Þegar stjórnarskrá konungsrík- isins Íslands var endurskoðuð við lýðveldisstofnun árið 1944 var um það einhugur að breyta því einu sem breyta þyrfti af nauðsyn við þau kaflaskil. Við fyrstu hentugleika yrði stjórnarskráin svo tekin til gagn- gerðrar endurskoðunar. Vissulega hefur stjórnarskrá Íslands oft verið breytt frá stofnun lýðveldis. En samfélagið vex áfram og þróast,“ segir Guðni sem líkti stjórnar- skránni við flík sem sífellt þyrfti að bæta. Úrelt lagaákvæði Hann telur ýmis lagaákvæði úrelt, þar með talið ákvæðið um uppreist æru. „Fyrr í sumar brugðust fjöl- margir ókvæða við þegar kynferð- isbrotamenn fengu uppreist æru eft- ir afplánun dóms. Engu skipti að stuðst var við lög og ríka hefð um framkvæmdina. Þetta skipti engu vegna þess að lagahugtakið uppreist æru þykir úrelt og villandi. Löngu er tímabært að það heyri sögunni til,“ sagði Guðni. Að lokum lýsti hann yfir von sinni um að fólk lærði af biturri reynslu. Auk þess sem Alþingi yrði við kröf- um um endurskoðun á stjórnarskrá Íslands á þeim grundvelli sem unnið hefur verið að á undanförnum árum á vettvangi stjórnlagaráðs og stjórnarskrárnefnda. Forsetinn lagði til breytingar  Hvatti til endurskoðunar á stjórnarskrá við þingsetningu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Þingsetning Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ásamt Agnesi M. Sigurðardóttur, biskupi, Bjarna Benediktssyni, forsætisráðherra, Unni Brá Konráðsdóttur, forseta Alþingis, Óttari Proppé, heilbrigðisráðherra, og séra Bolla Þór Bollasyni, sem predikaði í Dómkirkjunni fyrir þingsetningu. Stefnuræða forsætisráðherra og um- ræður um hana eru á dagskrá Alþingis í kvöld. Á fimmtudag mælir fjár- málaráðherra síðan fyrir fjárlaga- frumvarpi næsta árs. „Þingið hefst með nokkuð hefð- bundnu sniði á stefnuræðu forsætis- ráðherra og umræðu um hana. Þá verður fjárlagafrumvarpið tekið fyrir á fimmtudag og á föstudaginn mun hver fagráðherra gera sérstaka grein fyrir sínu sviði er varðar fjárlagafrum- varpið,“ segir Unnur Brá Konráðs- dóttir, forseti Alþingis. Hún vonar að með þeim hætti verði umræða um fjár- lagafrumvarpið skipulagðari en áður. „Í næstu viku hefjast svo hefðbundin þingstörf en búast má við því að tekist verði að mestu á um mál tengd fjár- lagafrumvarpinu.“ Dregið var um sætaskipan í þing- salnum í gær og vakti athygli að nokkrir þingmenn Framsóknarflokks- ins lentu hver við hliðina á öðrum. Þannig mun Lilja Dögg Alfreðsdóttir hafa þá Sigmund Davíð Gunnlaugsson og Gunnar Braga Sveinsson sinn til hvorrar handar í vetur. Stefnuræða forsætisráðherra í kvöld Morgunblaðið/Eggert Sessunautar Þrír þingmenn Framsóknarflokksins: Gunnar Bragi Sveinsson, Lilja Dögg Alfreðsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sitja hlið við hlið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.