Morgunblaðið - 13.09.2017, Page 8

Morgunblaðið - 13.09.2017, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2017 Ámorgun 14. september gefur Íslandspóstur út fjórar frímerkjaraðir og eina smáörk. Efni frímerkjanna er til­ einkað siðbót í 500 ár, Viðskiptaráði Íslands 100 ára, lífríki hafsbotnsins og fléttum. Smáörkin er tileinkuð erlendum vísindaleiðöngrum og ferðamönnum til Íslands í 250 ár. Fyrstadagsumslög fást á helstu pósthúsum. Einnig er hægt að panta þau hjá Frímerkjasölunni. Sími: 580 1050. Netfang: stamps@stamps.is Heimasíða: www.stamps.is facebook.com/icelandicstamps Safnaðu litlum listaverkum Skattgreiðendur fengu kaldarkveðjur í gær þegar fjár- málaráðherra kynnti fjárlaga- frumvarp ársins 2018. Skattar hækka um tugi milljarða króna og vekur sérstaka athygli að bílaeig- endur eiga á næsta ári að greiða rúmum átta milljörðum króna meira í alls kyns skatta og gjöld en þeir gera í ár og þótti þó nóg um.    Þessir skattar oggjöld hækka úr 43,5 milljörðum króna í 51,6 milljarða króna.    Vinstristjórnin sem sat á árunum2009-2013 hækkaði líka skatta á bifreiðar en hún var þeirrar skoð- unar að dísel væri minna mengandi en bensín þannig að dísel var skatt- lagt þannig að það væri hagstæðara en bensín.    Almenningur tók sig til og keyptidíselbíla, en fær þá sendingu frá núverandi ríkisstjórn sem ákveður að hækka gjöldin á dísellítr- ann um 18 krónur og bensínlítrann um átta krónur.    Þetta er rökstutt þannig að jafnaþurfi gjöldin því að dísel sé ekki endilega heilnæmara en bensín.    Þessi hækkun er sem sagt sett íþann búning að um jöfnunar- aðgerð sé að ræða, en vitaskuld er þetta aðeins skattahækkun.    Ef ætlunin hefði verið að jafnahefði átt að lækka bensín- gjöldin niður í það sem þau eru á dísel.    Þegar bæði gjöld eru hækkuð, þóað annað sé hækkað meira en hitt, heitir aðgerðin skattahækkun. Benedikt Jóhannesson Skattahækkun á bifreiðaeigendur STAKSTEINAR Veður víða um heim 12.9., kl. 18.00 Reykjavík 10 skýjað Bolungarvík 7 skýjað Akureyri 10 léttskýjað Nuuk 5 skýjað Þórshöfn 11 rigning Ósló 15 skýjað Kaupmannahöfn 14 heiðskírt Stokkhólmur 17 heiðskírt Helsinki 16 heiðskírt Lúxemborg 13 skúrir Brussel 17 léttskýjað Dublin 12 rigning Glasgow 12 skúrir London 16 skúrir París 17 skúrir Amsterdam 15 léttskýjað Hamborg 16 skúrir Berlín 18 léttskýjað Vín 15 heiðskírt Moskva 21 heiðskírt Algarve 28 heiðskírt Madríd 26 heiðskírt Barcelona 23 léttskýjað Mallorca 25 léttskýjað Róm 22 léttskýjað Aþena 29 heiðskírt Winnipeg 21 heiðskírt Montreal 18 léttskýjað New York 23 heiðskírt Chicago 20 léttskýjað Orlando 27 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 13. september Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:47 20:02 ÍSAFJÖRÐUR 6:48 20:10 SIGLUFJÖRÐUR 6:31 19:53 DJÚPIVOGUR 6:15 19:32 Innkauparáð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að taka tilboði lægstbjóðanda, Háfells ehf., í gatna- gerð og lagnir á nýju byggingar- svæði á Strætóreitnum á Kirkju- sandi. Þetta var samþykkt með tveimur atkvæðum fulltrúa Samfylking- arinnar og Bjartrar framtíðar gegn einu atkvæði fulltrúa Sjálfstæðis- flokks. Lögð var fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokks, Björns Gíslasonar, á fundinum: „Mikilvægt er að hæfi bjóðenda, rekstrarsaga fyrirtækja og við- skiptasaga stjórnenda og helstu eig- enda séu skoðuð gaumgæfilega áður en til verkkaupa kemur og ekki gengið til samninga við fyrirtæki sem nýlega hafa lent í gjaldþroti.“ Dóra Magnúsdóttir og Magnea Guðmundsdóttir, fulltrúar Samfylk- ingarinnar og Bjartrar framtíðar, lögðu fram svohljóðandi bókun : „Samkvæmt áliti borgarlögmanns uppfyllir lægstbjóðandi kröfur út- boðsgagna og innkaupareglna Reykjavíkurborgar. Fulltrúarnir telja brýna ástæðu til áframhaldandi endurskoðunar innkaupareglna Reykjavíkurborgar er lúta að kennitöluflakki og viðskiptasögu.“ Á vef Ríkisskattstjóra kemur fram að Háfell ehf. var úrskurðað gjaldþrota 7. júní 2016. Þegar félag- ið var gert upp hafði það hlotið nýtt nafn, H150 ehf. Ekkert fékkst greitt upp í kröfur sem námu um 1.200 milljónum króna. Ný kennitala Þegar Háfell ehf. varð gjaldþrota var það rekið á kennitölunni 690186- 1609. Tilboðið í verkið á Kirkjusandi er hins vegar gert á annarri kenni- tölu, 500907-1770. Háfell var áður eitt umsvifamesta verktakafyrirtæki landsins og kom að fjölmörgum verkefnum. Má þar nefna Héðinsfjarðargöng og tvöföld- un Reykjanesbrautar. Í verkið á Kirkjusandi bárust alls sjö tilboð. Tilboð Háfells var lægst eða 223,5 milljónir, sem var 97% af kostnaðaráætlun. Næstlægsta til- boðið átti Urð og grjót ehf., 227,2 milljónir. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Hanna Strætóreitur Á næstunni hefst jarðvinna fyrir nýja byggð á Kirkjusandi. Ágreiningur um til- boð í innkauparáði  Lægstbjóðandi gjaldþrota í fyrra  Reglurnar verði endurskoðaðar Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, verður gestur á fundi Samtaka eldri sjálfstæðismanna (SES) í hádeginu í dag. Fram kemur í tilkynningu frá stjórn Samtaka eldri sjálfstæðismanna, að fundurinn verður haldinn í Valhöll og hefst hann kl. 12.00, en húsið verður opnað kl. 11.30. Fundurinn hefst með því að forsætisráðherra flytur ræðu um stjórnmálaástandið og í kjölfarið situr hann síðan fyrir svörum. Fram kemur að boðið verður upp á súpu gegn vægu gjaldi, 900 krónur. Samtök eldri sjálfstæðismanna hafa undanfarin ár staðið fyrir vikulegum fundum í hádeginu á miðvikudögum að vetri til og verður fundurinn í dag sá fyrsti á þessum vetri. Bjarni á fundi með SES í Valhöll Bjarni Benediktsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.