Morgunblaðið - 13.09.2017, Side 10

Morgunblaðið - 13.09.2017, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2017 Garðs Apótek Sogavegi við Réttarholtsveg Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | www.gardsapotek.is Appótek: www.appotek.is Einkarekið apótek í 60 ár Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Hindberjajógúrt Lífrænar mjólkurvörur • Engin aukaefni • Meira af Omega-3 fitusýrum • Meira er af CLA fitusýrum sem byggja upp vöðva og bein • Ekkert undanrennuduft • Án manngerðra transfitusýra www.biobu.is NÝ AFURÐ FRÁ BIOBÚ! 11 milljarða frá gildandi fjárlögum yf- irstandandi árs. Meginboðskapur ráðherrans, er hann kynnti markmið frumvarpsins, er að viðhalda jafnvægi í efnahagslíf- inu, stuðla að sterkum kaupmætti og nýta allt svigrúm til að auka velferð- ina. Fram kom í máli ráðherrans að raunvöxtur útgjalda milli ára er 4,1% og ef litið er til undanfarinna tveggja ára er samtals um 13% vöxt að ræða á miklu hagvaxtarskeiði. Útgjöld í heil- brigðis- og velferðarmálum hækka til að mynda um 4,4% að raungildi á milli ára. 833 milljarðar í tekjur Heildartekjur ríkissjóðs fyrir árið 2018 eru áætlaðar 833 milljarðar og þar af á virðisaukaskatturinn að skila 239 milljörðum. Skattar af tekjum og hagnaði eiga að aukast úr um það bil 269 milljörðum í fjárlögum yfirstand- andi árs í tæplega 281 milljarð á næsta ári. Tryggingagjöld eiga að skila tæpum 99,5 milljörðum, sem er aukning um rúma 9 milljarða en reiknað er með að arðgreiðslur minnki umtalsvert eða úr 39,7 millj- örðum sem þær eru taldar skila á þessu ári í 18,7 milljarða á næsta ári. Heildarútgjöld ríkissjóðs hækka um ríflega 36 milljarða kr. á milli ára og er áætlað að þau verði 790 millj- arðar að meðtöldum 73 milljarða vaxtagjöldum á árinu 2018. Í kynningu á efni frumvarpsins kemur fram að hækka á tekjutrygg- ingu í almannatryggingakerfinu þannig að fólk sem býr eitt og þiggur örorkulífeyri eða ellilífeyri muni fá a.m.k. kosti 300 þúsund í stað 280 þúsunda á næsta ári. Útgjöld vegna þessa eru áætluð á bilinu 700-800 milljónir á næsta ári. Alls aukast út- gjöld í almannatryggingum um 2,7 milljarða vegna fjölgunar bótaþega. Stofnstyrkir til byggingar al- mennra íbúða verða þrír milljarðar og hæstu greiðslur í fæðingarorlofi hækka úr 500 í 520 þúsund kr. en stefnt er að því að hækka greiðslurn- ar í 600 þúsund á næstu árum. Þá verða framlög vegna móttöku flóttamanna nálega þrefölduð og styrkja á enn frekar stuðningskerfi til að auka atvinnuþátttöku fólks með skerta starfsgetu. Í fréttatilkynningu frá velferðar- ráðuneytinu í gær er bent á að fram- lög til byggingar nýs Landspítala verða aukin um 1,5 milljarða kr. á næsta ári umfram það sem ráðgert var í fjármálaáætlun ríkisins. Um 400 milljónir króna verða veittar til við- halds á eldra húsnæði spítalans. Rekstur jáeindaskanna hefst á næsta ári og eru 200 milljónir króna merkt- ar rekstrinum. Alls verða heildarútgjöld til heil- brigðismála á næsta ári tæpir 208 milljarðar kr. sem er 13,5 milljarða aukning frá fyrra ári eða 6,9%. Kolefnisgjaldið tvöfaldað og olíugjöldin hækka Ýmsar breytingar á skattkerfi og gjöldum ríkisins með samræmingu krónutölugjalda taka gildi á næsta ári og skila alls um 5 milljörðum kr. þegar allt er talið. Kolefnisgjaldið verður tvö- faldað frá og með 1. janúar sem eykur tekjur ríkissjóðs af því um 3,2 milljarða frá því sem ella hefði orðið að óbreyttu en hækkunin er liður í aðgerðum stjórnvalda gegn losun kolefnis út í andrúmsloftið. Samræma á gjaldtöku af bensíni og díselolíu sem eykur tekjur ríkisins um 1,7 milljarða kr. Þá á að jafna áfengisgjald léttvíns og bjórs með hækkun gjaldsins á léttvíni en það eykur tekjur ríkisins skv. áætl- un frumvarpsins um 400 milljónir. Ákveðið hefur verið að undanþága frá virðisaukaskatti fyrir kaup vist- vænna bíla verði framlengd til þriggja ára en við það minnka tekjur ríkissjóðs um tvo milljarða á næsta ári. Afnám afsláttar af vörugjöldum bílaleigubíla er talið minnka tekjur af vörugjöldum um 2,5 milljarða en þeg- ar hefur verið lögfest að afnema þennan afslátt sem bílaleigur hafa notið. Frá ársbyrjun 2018 munu bíla- leigur því greiða sambærilegt vöru- gjald og greitt er af fólksbílum al- mennt. 2 milljarðar í Dýrafjarðargöng Ekki er gerð breyting á álagning- arhlutfalli tryggingagjalds en reiknað er með að tryggingagjaldsstofninn hækki um 10,4% á næsta ári m.a. vegna 6,5% hækkunar nafnlauna sem áætluð er og þar sem iðgjald launa- greiðenda í lífeyrissjóði er að hækka í Dæmi um útgjöld á mann Heimild: Fjármála- og Efnahagsráðuneytið Löggæsla 43.000 kr. Samgöngur 100.000 kr. Umhverfismál 49.000 kr. Menning, listir, íþrótta– og æskulýðsmál 37.000 kr. Framhaldsskólar 84.000 kr. Háskólar 87.000 kr. Heilbrigðismál 334.000 kr. Fjölskyldumál 92.000 kr. Húsnæðisstuðningur 39.000 kr. Örorkugreiðslur í almannatryggingakerfinu 161.000 kr. Málefni aldraðra 216.000 kr. Ríkissjóður skili 44 milljarða króna afgangi  Aukin útgjöld til velferðarmála  Skuldir minnka  Hækkun vsk. í ferðaþjónustunni frestað til 1. janúar 2019 Fjárlagatillögur » Tekjur ríkissjóðs aukast um 33 milljarða kr. milli ára. » Útgjöld til heilbrigðismála eru áætluð 201 milljarður og útgjöld til félags, húsnæðis- og tryggingamála 208 milljarðar á næsta ári. » Gert er ráð fyrir 100 millj- óna kr. framlagi til undirbún- ings endurnýjunar þyrluflota Landhelgisgæslunnar. » Reiknað er með að launa- breytingar hjá ríkinu auki launakostnað um ríflega 10 milljarða kr. á næsta ári SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Afgangur á að verða af rekstri rík- issjóðs upp á tæpa 44 milljarða króna á næsta ári samkvæmt fjárlagafrum- varpi ársins 2018, sem Benedikt Jó- hannesson fjármála- og efnahagsráð- herra, lagði fram á Alþingi í gær. Þetta er nær fjórum milljörðum kr. meiri afgangur en gert var ráð fyrir í ríkisfjármálaáætlun Alþingis. Í meg- indráttum er afkoma ríkisins skv. frumvarpinu þó í samræmi við áætl- unina og fjármálastefnuna sem þingið samþykkti sl. vor. Afgangur fjárlaga á svonefndum frumjöfnuði, þ.e.a.s. fyrir vexti, er áætlaður um 104 milljarðar króna skv. frumvarpinu og sagði Benedikt er hann kynnti fjárlagafrumvarpið á fréttamannafundi í gærmorgun, að þetta væri mesti afgangur ríkissjóðs í Evrópu, 3,8% af vergri landsfram- leiðslu. 8,9 milljarða tekjulækkun vegna frestunar Frumtekjur ríkissjóðs verða þó um 2,3 milljörðum kr. lægri en gert var ráð fyrir í fjármálaáætlun og vegur þar þyngst að ákveðið hefur verið að fresta hækkun ferðaþjónustutengdr- ar starfsemi úr neðra þrepi virðis- aukaskattsins í almennt þrep virðis- aukaskatts um hálft ár, eða til ársbyrjunar 2019 en þá á að vera búið að lækka almenna þrepið í 22,5%. Þetta er talið leiða til tæplega 8,9 milljarða kr. tekjulækkunar ríkis- sjóðs á næsta ári. Sagði ráðherra að með þessari frestun væri komið til móts við gagnrýni um of skamman aðlögunartíma fyrir ferðaþjónustuna. Vel hefur tekist til við lækkun skulda ríkisins en reiknað er með að heildarskuldir ríkissjóðs, fyrirtækja og sjóða ríkisins minnki um 74,5 millj- arða á næsta ári. Eftir sem áður eru vaxtagjöldin þó mjög há og Íslend- ingar borga miklu meira í vexti en flestar aðrar þjóðir, að því er fram kom í máli Benedikts. Áætlað er að vaxtagjöld ríkisins verði tæpir 60 milljarðar kr. á næsta ári og lækki um Fjárlagafrumvarpið 2018 Áætlað er að tekjur af veiði- gjöldum muni aukast um 3,6 milljarða króna í fjárlagafrum- varpi næsta árs frá árinu 2017 og verði nálægt 10 milljörðum króna. Í greinargerð fjárlagafrum- varpsins segir að aukninguna megi rekja til meiri framlegðar af fisk- veiðum á árinu 2015 sem leiði til þess að stofn veiðigjalds fyrir botn- fisk tvöfaldast á fiskveiðiárinu 2017/2018. „Þá hefur réttur til lækkunar á veiðigjaldi vegna vaxta- berandi skulda við kaup á afla- hlutdeild verið afnuminn, sem leiðir til þess að tekjur ríkissjóðs af veiði- gjaldi aukast um 650 [milljónir kr.],“ segir ennfremur í skýringum á þessu. Tíu milljarða tekjur af veiðigjöldum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.