Morgunblaðið - 13.09.2017, Side 11
11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2017
þrepum en það hefur áhrif á gjald-
stofninn sem tryggingagjaldið er
reiknað af.
Framkvæmdasjóður ferðamanna-
staða mun hafa tæplega 800 milljónir
til ráðstöfunar á næsta ári gangi áætl-
anir frumvarpsins eftir en það er
aukning um 200 milljónir. Verja á
auknu fé til rannsókna og gagnaöfl-
unar í ferðaþjónustu og auka stuðn-
ing við Markaðsstofur landshluta.
Tæplega 18 milljarðar króna fara í
framkvæmdir og viðhald vega sam-
kvæmt fjárlagafrumvarpinu. Meðal
stærstu verkefna verða Dýrafjarðar-
göng en þar er gert ráð fyrir tveggja
milljarða kr. auknu framlagi til fram-
kvæmdanna. Ljósleiðaratengingar
verða og styrktar um hálfan milljarð í
gegnum verkefnið Ísland ljóstengt,
og hafnabótasjóður eflist.
Þá er áætlað að útgjöld vegna at-
vinnuleysisbóta muni hækka um
rúmlega 1,4 milljarða á næsta ári í
takt við endurskoðaða þjóðhagsspá.
Í umfjöllun frumvarpsins um
barnabætur er bent á að nýlega var
skipaður starfshópur á vegum vel-
ferðarráðherra til að endurskoða
kerfi barnabóta og barnalífeyris al-
mannatrygginga og á sá hópur að
skila tillögum sínum í nóvember nk.
,,Í ljósi þess er lagt til að heildarút-
gjöld til barnabóta verði svipuð og
gert var ráð fyrir í fjármálaáætlun
fyrir tímabilið 2018-2022, eða 10,5
[milljarða kr.] Í því felst að
barnabótaútgjöldin hækka um 10,5%
milli ára í krónum talið,“ segir þar.
Útgjaldaskuldbindingar 28 milljarðar
Aukin útgjöld umfram forsendur fjárlaga 2017 Útgjöld í milljörðum
þar af: Sjúkratryggingar - einkumvegna lækniskostnaðar og lyfja 9,8
þar af:Almannatryggingar – einkumvegna elli- og örorkulífeyrisþega 4,8
þar af: Útlendingamál – vegna aukins fjölda umsókna umhæli 3,1
Almannatryggingar - áætluð fjölgun bótaþega 2018 1,9
Framkvæmdir við Dýrafjarðargöng 2,7
Bygging nýs Landspítala 2,0
Hækkun stofnframlaga til byggingar og kaupa á almennum íbúðum 1,5
Atvinnuleysisbætur – spá umaukið atvinnuleysi frá forsendum fjárlaga 2017 1,5
Fæðingarorlofssjóður – hækkun hámarksgreiðslna og kjarasamninga 1,1
Framkvæmdalok við Norðfjarðargöng, vegtengingu o.fl. við Bakka 2,6
Vaxtabætur –m.v. óbreyttar viðmiðunarfjárhæðir og reiknireglur 2,0
Önnur bundin útgjöld 12,9
Samtals breytingar á útgjaldaskuldbindingum 28,4
Heimild: Fjármála- og Efnahagsráðuneytið
Tekjur og gjöld 2018
Frumtekjur
822 milljarðar
Vaxtatekjur
12 milljarðar
Frumgjöld
717 milljarðar
Vaxtagjöld
73 milljarðar
Afgangur
44milljarðar
Heimild: Fjármála- og Efnahagsráðuneytið
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Útgjöld vegna
öryggis- og varn-
armála eiga að
hækka um 22%
skv. fjárlaga-
frumvarpinu.
Með því á m.a. að
kosta borgara-
lega sérfræðinga
til verkefna hjá
NATO og mögulega að fjölga sér-
fræðingastöðum. Gangi frum-
varpið eftir munu heildargjöld rík-
isins vegna öryggis- og varnarmála
nema 1.891 milljón króna sam-
anborið við tæpar 1.550 milljónir í
ár.
22% hækkun til ör-
yggis- og varnarmála
Lífeyrisskuld-
bindingar ríkis-
sjóðs eru 515
milljarðar kr.
vegna B-deildar
Lífeyrissjóðs
starfsmanna rík-
isins og 62 millj-
arðar vegna Líf-
eyrissjóðs
hjúkrunarfræðinga. LH og B-deild
LSR verða sameinaðar 1. janúar
nk. og til þess að sameinaður sjóð-
ur geti staðið við skuldbindingar
sínar þyrftu árleg framlög rík-
issjóðs að vera 7,6 milljarðar á ári
næstu 30 árin í stað 5 milljarða
eins og nú er gert ráð fyrir á
næstu árum.
577 milljarða lífeyr-
isskuldbindingar
4,7%
hækkanir á bótum almannatrygg-
inga á næsta ári skv. frumvarpinu.
2,8
milljarða kr. framlög sem veita á til
byggingar nýs Landspítala 2018
2,3
milljarða króna stuðningur við ný-
sköpun úr Tækniþróunarsjóði 2018
84.000
Útgjöld í krónum á hvern Íslending til
framhaldsskóla á næsta ári
334.000
Útgjöld í kr. á hvern Íslending til heil-
brigðismála á árinu 2018
652
Tekjur ríkissjóðs af sköttum í millj-
örðum kr. á næsta ári.
ÚR FRUMVARPINU
»
Kynning Benedikt Jóhann-
esson, fjármála- og efnhags-
ráðherra, greindi frá efni
fjárlagafrumvarps næsta árs
á blaðamannafundi í gær-
morgun. Á morgun mun
hann hafa framsögu um
frumvarpið við 1. umræðu á
Alþingi.
LINGERIE
DE PEAU
AQUA NUDE
WATER.INFUSED
PERFECTING FLUID
SMOOTHES - PLUMPS
HYDRATES
SPF 20
LINGERIE
DE PEAU
AQUA NUDE
WATER-INFUSED NUDE FOUNDATIONS
Verið
velkomin
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
20% afsláttur
af Guerlain vörum kynningardagana
kynnir tvo nýja farða til leiks úr
Lingerie de Peau línunni
Glæsileg kynning
miðvikudag, fimmtudag og föstudag
Hækka á greiðslur
vegna stofn-
framlaga vegna
nýrra félagslegra
leiguíbúða um 1,5
milljarða á næsta
ári í tengslum við
loforð um aðgerð-
ir í húsnæðis-
málum. Framlag
til vaxtabóta lækkar hins vegar um
rúma tvo milljarða. En gert er ráð
fyrir að fjárheimild til greiðslu
vaxtabóta verði fjórir milljarðar kr.
á árinu 2018 ,,og er þá miðað við
sömu reiknireglur og viðmið-
unarfjárhæðir og giltu á þessu ári“.
Tveggja milljarða
lækkun vaxtabóta
Framlag til fjár-
festinga á há-
skólastigi skv.
flokkun fjárlaga-
frumvarpsins
verður aukið um
590 milljónir
vegna byggingar
Húss íslenskra
fræða. Um er að
ræða tímabundið framlag en gert
er ráð fyrir að framlög vegna fram-
kvæmdarinnar verði 3,8 milljarðar
kr. á árabilinu 2017-2020.
Í frumvarpinu eru fjárveitingar
til kennslu í háskólum hækkaðar
um 773,3 milljónir og framlag til að
styrkja Aldarafmælissjóð HÍ verður
hækkað um 140 milljónir kr.
Hækkun vegna Húss
íslenskra fræða
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
„Að óbreyttu mun þessi ríkisstjórn,
miðað við áætlun vegna reksturs rík-
issjóðs í ár og fjárlögin sem nú liggja
fyrir, hækka heildartekjur sínar af
bílum um 9,3%, þetta er auðvitað bara
aðför að heimilisbílnum,“ segir Run-
ólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Fé-
lags íslenskra bifreiðaeiganda (FÍB),
um fyrirhugaðar skattahækkanir á ol-
íu og bensín í fjárlögum.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu
sem Benedikt Jóhannesson fjármála-
ráðherra kynnti í gær verður olíu- og
bensíngjald jafnað á næsta ári. Áhrif
þess verða um 8 króna hækkun á
bensínlítra og 18 króna hækkun á
dísílolíulítra. Benedikt sagði í samtali
við mbl.is að
breytingin mundi
skila ríkissjóði um
1,7 milljörðum í
auknar tekjur en
Runólfur telur töl-
una vera mun
hærri. „Tekjur
hins opinbera af
dísíl- og olíugjald-
inu hækka um
tæplega tvo milljarða. Síðan er áætl-
að að kolefnisgjaldið hækki, þannig
að þar verði líka um tveggja milljarða
tekjuaukning, og síðan leggst ofan á
þetta allt virðisaukaskattur,“ segir
Runólfur sem áætlar að heildartekjur
ríkisins vegna hækkananna verði 4,6
milljarðar.
Hann segir að þetta muni bitna á
heimilum og atvinnulífinu. „Útgjöld
vegna reksturs heimilisbílsins er
næststærsti útgjaldaliður heimilanna,
samkvæmt vísitölu neysluverðs.
Þannig að þetta hefur umtalsverð
áhrif. Útgjöld vegna meðalfjölskyldu-
bíls sem eyðir um 2.000 lítrum á ári,
ef það er dísilbíll hækka þau um 42
þúsund á ári og til þess að afla þess
þarf að þéna um 70 þúsund,“ segir
Runólfur en hækkunin mun einnig
hafa áhrif á atvinnubílstjóra.
„Þetta mun hafa verulegar hækk-
anir í för með sér og hefur áhrif á vísi-
tölu. Ég man ekki til þess að þessi rík-
istjórn hafi gefið sig út fyrir það að
vera einhver skattahækkunarstjórn
en hún allavega fer þannig af stað
gagnvart heimilum og atvinnulífinu í
leiðinni.“ Runólfur segir einnig að ef
markmiðið sé að rafbílavæða Ísland
skorti stjórnvöld framtíðarsýn í þeim
efnum. „Það er engin sýn komin á
framtíðina. Það er ekki einu sinni búið
að leggja fyrir að það eigi að vera
hluti af byggingarreglugerð að það sé
gert ráð fyrir raftenglum utan á hús-
um.“
FÍB ósátt við
skattahækkanir
Runólfur Ólafsson
„Aðför að heimilisbílnum“