Morgunblaðið - 13.09.2017, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2017
Heildarlausnir
Fyrir hótel, gistiheimili, dvalarheimili,
veitingahús, veisluþjónustur,
heilsugæslustofnanir o.fl.
Sími 788-2070 / 787-2070 | hotelrekstur@hotelrekstur.is | hotelrekstur.is
HOTELREKSTUR
ALLT Á EINUM STAÐ
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
VISBY sófi
2ja og 3ja sæta, horn eða tungusófar,
mikið úrval af áklæði og leðri
BAKSVIÐ
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Í fyrra komu tvær milljónir gesta í
Hörpu, haldnir voru 1.284 viðburðir
og 295.000 aðgöngumiðar voru seldir.
Sífellt meira er um að vera í Hörpu,
nýting hússins jókst um 22% á milli
ára, gestum fjölgar ár frá ári og bók-
aðir hafa verið viðburðir fram til árs-
ins 2022. Engu að síður var tapið af
starfseminni rúmar 668 milljónir í
fyrra, sem var 24% aukning frá árinu
á undan.
Þórður Sverrisson, nýr stjórnar-
formaður Hörpu, segir að rýna þurfi í
reksturinn og Svanhildur Konráðs-
dóttir, forstjóri Hörpu, segir „morg-
unljóst“ að reksturinn beri ekki þau
gjöld sem fylgja honum, eins og t.d.
fasteignagjöldin. „Dæmið gengur
bara ekki upp,“ segir Svanhildur.
Ársreikningur samstæðu Hörpu,
sem er húsið sjálft og dótturfélög, var
kynntur á framhaldsaðalfundi í fyrra-
dag. Í ársreikningnum segir m.a. að
greiðslustaða samstæðunnar hafi ver-
ið þung. Ein af ástæðunum sem eru
nefndar er að fasteignagjöld hafi ver-
ið mun hærri en gert hafði verið ráð
fyrir, en lengi hefur verið deilt um
fasteignamat Hörpu sem gjaldið er
byggt á og stjórnendur Hörpu telja of
hátt. Dæmt hefur verið í málinu bæði
í héraðsdómi og hæstarétti, því var
vísað til Þjóðskrár, svo til yfirfast-
eignamatsnefndar sem vísaði því aft-
ur til Þjóðskrár þar sem málið er nú
til meðferðar enn á ný.
Fasteignagjöldin í fyrra voru tæp-
ar 269 milljónir, rúm 18% af heildar-
tekjum Hörpu sem voru 1.472 millj-
ónir. „Þetta er eitt af því sem þarf að
fara vel yfir aftur og komast þarf að
niðurstöðu um þessar tölur sem
fyrst,“ segir Þórður.
Ný stjórn fari í gegnum stöðuna
Hann segir ljóst að rekstur Hörpu
hafi verið neikvæður frá upphafi, fyr-
ir því séu margvíslegar ástæður. „Það
verður meginverkefni nýrrar stjórn-
ar að fara í gegnum fjárhagsstöðuna
og leita leiða til að styrkja hana. Eigið
fé var neikvætt, samkvæmt reikning-
um, í lok síðasta árs. Menn þurfa að
rýna í reksturinn fyrir árið í ljósi af-
komunnar og finna raunhæfar leiðir
til að halda áfram úti þeirri blómlegu
starfsemi sem einkennir Hörpu,“ seg-
ir Þórður.
„Eigendurnir, ríki og borg, og hús-
ið sjálft þurfa að vinna saman að því
að byggja grundvöll fyrir rekstur
Hörpu. Frá því að ég tók við í vor hef-
ur verið rekstrarrýning í gangi,“ seg-
ir Svanhildur. Hún segir að það sé al-
gjört grundvallaratriði að létta af
rekstrinum þeim resktrarkostnaði
sem snertir fasteignina sjálfa og á þar
m.a. við umfangsmikið viðhald. Hún
segir að víða í nágrannalöndunum séu
menningarhús undanskilin slíkum
gjöldum. „Þá mætti skoða að setja
fasteignina í eitt félag og reksturinn í
annað.“
Að sögn Svanhildar eru í eigenda-
stefnu hússins sett fram mjög skýr
menningarleg og listræn markmið
fyrir starfsemina. Að þar eigi að efla
tónlist af öllum tegundum, en sam-
hliða því er gerð sú krafa að rekst-
urinn skuli vera sjálfbær. „Það er al-
gerlega útilokað að þannig sé hægt að
bera þungann af fasteigninni. Þetta
gengur ekki upp. Húsið hefur verið
rekið með tapi í sex ár. Á sama tíma
hafa tekjur aukist og umfang allrar
starfsemi vaxið ár frá ári. En þessir
kostnaðarþættir, þeir ytri eins og
fasteignagjöldin og þeir innri, eru að
sliga reksturinn.“
Svanhildur segir að nú sé verið að
skoða innri kostnaðarþætti og þar sé
öllum steinum lyft upp. „Við erum að
skoða hvað við getum gert innanhúss
til að bæta reksturinn og ná árangri
miðað við starfsemina og þær kvaðir
sem fylgja húsinu varðandi menning-
arstarfsemi.“
– Stendur til að fækka starfsfólki?
„Það eru engar slíkar hugmyndir
uppi.“
Margir ónýttir möguleikar
Að mati Svanhildar gætu ýmis
tækifæri skapast þegar alþjóðlega
hótelkeðjan Marriott opnar hótel við
Hörpu 2019. „Þetta er öflug keðja
með alþjóðlegt markaðsstarf og þar
gætu verið margir möguleikar á sam-
starfi bæði hvað varðar ráðstefnur,
en ekki síður í menningartengdri
ferðaþjónustu. Ég held að við eigum
ennþá marga ónýtta möguleika í að fá
hingað ferðamenn sem hafa áhuga á
íslenskri menningu.“
– Er hægt að reka Hörpu réttum
megin við strikið?
„Miðað við þær forsendur sem
blasa við er það mat fráfarandi
stjórnar og mitt sömuleiðis að það
þurfi að endurskoða rekstrargrund-
völlinn í heild,“ svarar Svanhildur,
„þannig að við getum farið að einbeita
okkur að því sem var ástæða þess að
húsið var byggt; að þar verði vett-
vangur alþjóðlegs ráðstefnuhalds og
þar geti allar tegundir tónlistar átt
heima, ekki bara sú sem getur fyllt
Eldborg.“
„Dæmið gengur bara ekki upp“
Forstjóri og stjórnarformaður Hörpu segja að fara þurfi yfir reksturinn Aldrei fleiri gestir, sífellt
fleiri tónleikar og viðburðir en tapið eykst ár frá ári Segja að fasteignagjöldin séu að sliga reksturinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Harpa Mikið tap er á rekstrinum.
Tekjur Hörpu 2016
» Ráðstefnur, fundir og út-
leiga 25%
» Listviðburðir 19%
» Fastir leigjendur (Sinfónían
og Íslenska óperan) 14%
» Framlög eigenda 13%
» Miðasala á eigin viðburði
11%
» Rekstrarleigusamningar við
veitingastaði og verslanir 11%
» Ferðamenn 5%
» Aðrar tekjur 2%
Þórður
Sverrisson
Svanhildur
Konráðsdóttir
magna búnað og lausafé tengt
stjörnuverinu og nemur áætlun
þeirrar fjárfestingar 310 milljónum
króna. Fram kemur að áætluð heild-
arfjárfesting félagsins í tengslum
við sýninguna í Perlunni nemi um
2.000 milljónum króna við opnun á
áfanga 2 sem fyrirhugaður er í maí
2018.
Á framkvæmdatímanum hefur
jafnframt komið í ljós að ástand
Perlunnar var verra en ætlað hafði
verið og mun kostnaður vegna lag-
færinga, eldvarnamála og breytinga
hússins því hækka um 100 milljónir
króna eða úr 230 m.kr. í 330 m.kr.
„Áhrif þess á afkomu vegna Perl-
unnar eru þó óveruleg. Þannig var
gert ráð fyrir að fjárfestingin í Perl-
unni væri búin að skila sér að fullu á
árinu 2034 miðað við 4% ávöxt-
unarkröfu en seinkar fram á mitt ár
2035 með þessari viðbót. Ekki er
þörf á að gera breytingu á fjárfest-
ingaráætlun yfirstandandi árs
vegna þessar aukningar né heldur
vegna viðbyggingar,“ segir í bréfi
skrifstofu eigna og atvinnuþróunar.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Borgarráð hefur samþykkt að heim-
ila viðbyggingu við Perluna sem
hýsa mun stjörnuver nýrrar nátt-
úrusýningar í húsinu. Áætlaður
grunnflötur viðbyggingar er 850
fermetrar og frumkostnaðaráætlun
350 milljónir króna. Stefnt er að því
að nýtt hátæknivætt stjörnuver
verði opnað haustið 2018.
Fram kemur í bréfi skrifstofu
eigna og atvinnuþróunar borgar-
innar að byggingin verði að mestu
neðanjarðar og tengd Perlunni með
glerbyggingu. Í upphaflegum hug-
myndum átti stjörnuverið að vera í
Perlunni sjálfri og átti toppur þess
að standa upp úr gólfi þriðju hæðar.
Á framkvæmdatímanum kom í ljós
að ekki reyndist unnt að koma fyrir-
hugðu stjörnuveri fyrir á milligólfi
eins og áformað hafði verið. Þess í
stað hafa verið lögð drög að því að
reisa nýtt mannvirki norðan við
Perluna.
Byggingin verður hönnuð af arki-
tekt hússins, Ingimundi Sveinssyni,
og framkvæmdin unnin í samráði
við hann. Tillaga að breytingu á
deiliskipulagi sem heimilar viðbygg-
inguna var í kynningu til 17. ágúst.
Borgin fjármagnar bygginguna
Bygging stjörnuversins verður
fjármögnuð af Reykjavíkurborg
enda viðbygging við núverandi eign.
„Tekjur af viðbótinni yrðu tæplega
24 milljónir króna á ári og mun fjár-
festingin því skila sér til baka á inn-
an við 15 árum og er þá mið tekið af
4% ávöxtunarkröfu. Að 25 árum
liðnum hefur fjárfestingin skilað
hagnaði upp á 243 m.kr. miðað við
sömu forsendur,“ segir í bréfinu.
Eignarhaldsfélagið Perla norð-
ursins ehf., sem er móðurfélag
Perlu norðursins hf., mun fjár-
Hátæknivætt stjörnuver
opnað í Perlunni 2018
Viðgerð á Perlunni mun kosta 330 milljónir króna
Morgunblaðið/Ómar
Perlan Húsnæðinu hefur verið gerbylt og komið fyrir nýrri náttúrusýningu.
Stjörnuverið verður með 360
gráðu „allt-umlykjandi upp-
lifun“ með öflugu hljóðkerfi og
mestu myndgæðum sem í boði
eru á heimsvísu í dag, segir í
kynningu á heimasíðu Perl-
unnar. Fyrsta sýningin er sér-
staklega samin fyrir nýja
stjörnuverið, framleidd af Perl-
unni og Bowen Productions,
sem sérhæfir sig í myndum fyrir
stjörnuver. Sýningin er byggð á
verkum kunnra íslenskra ljós-
myndara og kvikmyndatöku-
manna sem feta nýjar slóðir til
að sýna náttúru og lífríki Ís-
lands. Hljóðmyndin er sett sam-
an af Ragnhildi Gísladóttur.
360 gráðu
upplifun
STJÖRNUVERIÐ