Morgunblaðið - 13.09.2017, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 13.09.2017, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2017 Mest seldu ofnar á Norðurlöndum áreiðanlegur hitagjafi 10 ára ábyrgð Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Seðlabanki Íslands ber fyrir sig þagnarskyldu gagnvart fyrirspurn sem Sigurður Ingi Jóhannsson, for- maður Framsóknarflokksins, bar upp við Bjarna Benediktsson for- sætisráðherra á Alþingi hinn 22. maí síðastliðinn og svar hefur nú borist við. Fyrirspurnin sneri að Seðla- bankanum og dótturfélögum hans, einkum Eignasafni Seðlabanka Ís- lands (ESÍ). Henni var beint til for- sætisráðherra þar sem málefni bankans heyra undir ráðuneyti hans samkvæmt forsetaúrskurði. Í fyrirspurninni, sem er í fimm lið- um, er kallað eftir svörum við því hvernig staðið hefur verið að ráðstöf- un eigna/krafna sem bankanum var falin umsjón með í kjölfar banka- hrunsins 2008. Í svari bankans segir að verkefni ESÍ og dótturfélaga þess hafi að litlu leyti snúist um eignasölu en að mestu um innheimtu útistandandi krafna. Þó er þar rakið að fimm veigamiklar sölur hafi átt sér stað, þ.e. salan á danska FIH-bankanum árið 2010, sala á hlutabréfum í Sjóvá- Almennum árið 2011, sala lánasafna til Arion banka 2013 til að gera upp kröfu bankans á hendur Dróma, slitabúi sem komið var undir forræði Seðlabankans, sala á samnings- bundnum sértryggðum skuldabréf- um útgefnum af Arion banka til Íbúðalánasjóðs 2015 og 2016, og í síð- asta lagi sala árið 2016 á veðtryggðu skuldabréfi sem Íslandsbanki hafði gefið út til Íbúðalánasjóðs. Ekkert upplýst um aðkeypta þjónustu né hvað hún kostaði Í fyrirspurninni er einnig kallað eftir upplýsingum um að hversu miklu leyti Seðlabanki Íslands, beint eða í gegnum dótturfélög, hefur keypt sérfræðiþjónustu vegna sölu á eignum og kröfum í eigu stofnunar- innar. Þá er þar spurt hvort þjón- ustan hafi verið auglýst eða boðin út og hvernig staðið hafi verið að ráðn- ingu þeirra þjónustuaðila sem komið hafi að fyrrnefndum málum. Ekki „opinberar upplýsingar“ Í svari ráðherra kemur fram að bankinn hafi aflað sér þjónustu utanaðkomandi sérfræðinga og að „fjármálafyrirtækjum og eftir atvik- um lögmannsstofum hafi verið greidd þóknun vegna sölu á mark- aðsverðbréfum, skuldabréfum og hlutabréfum auk þess sem fasteigna- sölum hefur verið greidd þóknun vegna sölu fasteigna“. Þjónustan hafi hins vegar ekki verið boðin út. Seðlabankinn neitar hins vegar að upplýsa um til hverra hafi verið leit- að um þjónustuna og hversu mikið hafi verið greitt fyrir hana. Segist bankinn ekki geta svarað spurning- unum með vísan til sjónarmiða um þagnarskyldu. Þannig er í sérstök- um inngangskafla að svari við fyr- irspurn formanns Framsóknar- flokksins sagt að „stór hluti þeirra upplýsinga sem fyrirspurnin beinist að eru bæði þess eðlis og efnis að þær varða hagi viðskiptamanna ESÍ og dótturfélaga þess (og þar með Seðla- banka Íslands) og ekki síður málefni bankans sjálfs“. Og af þeim sökum segir bankinn upplýsingarnar ekki „opinberar upplýsingar“ og að um þær ríki þagnarskylda. Ber fyrir sig þagnarskyldu Morgunblaðið/Golli Eignasafn Miklir fjármunir hafa farið í gegnum ESÍ en litlar upplýsingar eru gefnar upp um hverjir þegið hafa greiðslur vegna þeirra viðskipta.  Seðlabankinn neitar að upplýsa hverjir sinnt hafi ráðgjafarverkefnum fyrir ESÍ  Ekkert gefið upp um fjárhæðir þóknana til sömu aðila  Þjónustan ekki boðin út Þagnarskylda » Seðlabankinn segir að hefðbundin trúnaðarákvæði eigi við um umbeðnar upplýs- ingar. » Þannig eru sérfræðingar sem veiti aðkeypta þjónustu skilgreindir sem „viðskipta- menn“ bankans. Hagnaður ORF líftækni, sem meðal annars framleiðir Bio- effect-húðvörur sem seldar eru í yfir 1.000 versl- unum í 28 lönd- um, var 31 milljón árið 2016 og dróst hann saman um 52% á milli ára. Tekjur jukust um 16% á milli ára og voru 631 milljón króna í fyrra. Um er að ræða útflutningsfyrirtæki en gengi krónu styrktist um 16% í fyrra. Arðsemi eiginfjár var 4%. Eigið fé félagsins var 914 milljónir króna við lok árs og eiginfjárhlutfallið var 76%. Hlutafé var aukið um 78 millj- ónir króna í fyrra. Stærsti hluthafi fyrirtækisins er FIVE Invest með 33% hlut. Frosti Ólafsson, fyrrverandi fram- kvæmdastóri Viðskiptaráðs, settist í stól framkvæmdastjóra ORF líf- tækni í byrjun árs 2017. Ársverk hjá fyrirtækinu eru 43, samkvæmt árs- reikningi. Á meðal stjórnarmanna er Guð- björg Edda Eggertsdóttir, fyrrver- andi forstjóri Actavis. helgivifill@mbl.is Hagnaður ORF dregst saman milli ára Frosti Ólafsson ● Fisk Seafood hefur gert sam- komulag um kaup á öllum hlutabréf- um í Soffaníasi Cecilssyni í Grund- arfirði. Með kaupunum hyggst Fisk Seafood styrkja sig í sessi sem eitt öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki lands- ins og treysta enn frekar fjölbreyttan rekstur í útgerð, fiskvinnslu og sölu sem byggst hefur upp á undanförnum árum, að því er segir í tilkynningu frá félaginu. Samkomulag um kaupin er með fyrirvörum, m.a. um samþykki Sam- keppniseftirlitsins. Ef af kaupunum verður mun starfsemi félagsins skipu- lögð með það að markmiði að tryggja áframhaldandi öfluga starfsemi í Grundarfirði, segir jafnframt í tilkynn- ingunni. Fisk kaupir Soffanías Cecilsson í Grundarfirði 13. september 2017 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 105.81 106.31 106.06 Sterlingspund 139.71 140.39 140.05 Kanadadalur 87.34 87.86 87.6 Dönsk króna 17.074 17.174 17.124 Norsk króna 13.584 13.664 13.624 Sænsk króna 13.292 13.37 13.331 Svissn. franki 111.42 112.04 111.73 Japanskt jen 0.9745 0.9803 0.9774 SDR 150.8 151.7 151.25 Evra 127.04 127.76 127.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 154.5341 Hrávöruverð Gull 1326.25 ($/únsa) Ál 2100.0 ($/tonn) LME Hráolía 53.82 ($/fatið) Brent ● Greiningardeild Arion banka spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,25% milli mánaða í september, sem er minni hækkun en bankinn hafði áður spáð. „Ástæðan er fyrst og fremst að við teljum að hratt hægi á áhrifum hús- næðisverðs og aukin samkeppnisáhrif sem setja verðhækkunum takmörk nú að loknum sumarútsölum. Gangi spáin eftir mun ársverðbólgan standa í 1,5%,“ segir í markaðspunktum grein- ingardeildarinnar. Bankinn spáir því að verðlag hækki um 0,25% í október, um 0,1% í nóv- ember og um 0,3% í desember. Gangi spáin eftir mun ársverðbólgan standa í 2,1% í desember. Spáir minni verðbólgu í september en áður STUTT Hagnaður Siglu, fjárfestingafélags í eigu Finns Reyrs Stefánssonar og Tómasar Kristjánssonar, nam 1,6 milljörðum króna árið 2016 og jókst um 43% á milli ára. Arðsemi eigin fjár nam 28% á árinu. Eigið fé félagsins var 4,7 milljarðar króna við árslok. Félagið skuldar tengdum félögum rúmlega 700 millj- ónir en öðrum tæplega 300 milljónir króna sem eru eftirstöðvar lang- tímaláns. Eiginfjárhlutfallið er 82%. Fjárfestingafélagið hagnaðist um tæplega 900 milljónir króna vegna hækkana á hlutabréfaverði. Það á 6,4% hlut í Regin, sem metinn var á 2,6 milljarða króna við árslok. Hluta- bréfaverð Regins hækkaði um 34% á síðasta ári. Sigla á 7,3% hlut í Kviku sem metinn var á rúmlega 500 millj- ónir króna, 1,7% hlut í Sjóvá sem met- inn var á tæplega 400 milljónir og 1,2% hlut í Skeljungi sem metinn var á 170 milljónir króna. Hlutdeild Siglu í afkomu dóttur- félaga var rúmlega 600 milljónir króna. Mestu munar að Klasi fjárfest- ing lagði til tæplega 500 milljónir króna. Félagið á hlut í íbúðaleigu- félaginu Heimavöllum. Söluhagnaður eignarhluta var 150 milljónir króna. helgivifill@mbl.is Sigla hagnaðist um 1,6 milljarða króna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.