Morgunblaðið - 13.09.2017, Page 24

Morgunblaðið - 13.09.2017, Page 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2017 Pabbi var alla tíð mikill dýravinur og fljótur að greina ef bjátaði á í umhirðu. Oft keypti hann skepnur úr þeirri prísund. Á Grísabóli voru alltaf hundar og kettir. Þar kom hann daglega og brást ekki að hann hafði með sér gómsæta bita sem báð- um hentaði. Hann kunni ógrynni kveðskapar um dýrin. Þegar talið barst að hestum, en einkum þó góðhestum, brást ekki að hann fór með þessi er- indi úr Skúlaskeiði. Sörli minn! Þig hef ég ungan alið og aldrei valið nema besta fóður. Nú er líf mitt þínum fótum falið, forðaðu mér nú undan, klárinn góður. Það var eins og blessuð skepnan skildi Skúla bæn því háls og eyru hann reisti, frýsaði hart – og þar með gammur- inn gildi glennti sig og fram á hraunið þeysti. Á kostum Sörli fór í fyrsta sinni, furðar dverga hve í klungrum syng- ur. Aldrei hefur enn í manna minni meira riðið nokkur Íslendingur. Tíðara Sörli en sendlingur á leiru sinastælta bar í gljúfrum leggi, glumruðu Skúla skeifurnar um eyru, skóf af klettunum í hófahreggi. Rann hann yfir urðir eins og örin eða skjótur hvirfilbylur þjóti. Ennþá sjást í hellum hófaförin, harðir fætur ruddu braut í grjóti. (Grímur Thomsen) Kristinn Sveinsson ✝ Kristinn Sveins-son fæddist 17. október 1924. Hann lést 23. ágúst 2107. Útför Kristins fór fram 6. september 2017. Sumarkoman var honum hug- leikin: Lóan er komin að kveða burt snjóinn, að kveða burt leið- indin, það getur hún. Hún hefur sagt mér, að senn komi spó- inn, sólskin í dali og blómstur í tún. Hún hefir sagt mér til syndanna minna, ég sofi of mikið og vinni ekki hót. Hún hefir sagt mér að vakna og vinna og vonglaður taka nú sumrinu mót. (Páll Ólafsson) Þegar blásið var til starfs- mannafagnaðar hjá Grísabóli var skálað, sungið og hafðar yf- ir góðar vísur. Sá sem aldrei elskar vín, óð né fagran svanna, hann er alla ævi sín andstyggð góðra manna. (Jón Thoroddsen) Þetta dugði ekki og var þess vegna: Sá sem aldrei elskar svín, sem og fagran svanna, hann er alla ævi sín andstyggð góðra manna. (Tilbrigði) Hann vakti yfir svínabúinu. – kom þar hvort heldur kvölds eða nætur að fylgjast með got- um og hlúa að gyltunum hvað sem leið verkefnum næsta vinnudags. Þannig bjargaði hann mörgum grísum og gylt- um þegar um var að ræða erfið got. Hjartahnoð og bað í yl- volgu vatni eru dæmi um þá umhyggju. Þetta gerði hann jafnt í vinnugalla og spariföt- um. Umhirðan skipti hann miklu máli, enda sagði hann jafnan: „Svín er ekki svín nema svínahirðirinn sé svín.“ Bú- stjórar Grísabóls voru nokkrir, en aðeins einn varð ráðherra – og þar að auki landbúnaðarráð- herra. Sá var Guðni Ágústsson. Þegar pabbi hætti fyrir- tækjarekstri vildi hann eftir sem áður njóta samvista við dýrin. Hann átti tvo Cavalier- hunda. Sá fyrri var Bjössi en hinn var Amor. Bjössi gekk aldrei heill til skógar, en pabbi var vakinn og sofinn yfir vel- ferð hans og naut þar afburða- þjónustu dýralækna og starfs- manna Dýraspítalans í Víðidal og einkum Ólafar, sem hann tók umsvifalaust í dýrlingatölu. Við þökkum þeim öllum. Hann vitnaði oft til þessarar gömlu speki: „Samband manns og hunds er undir manninum kom- ið. Hundurinn gerir alltaf sitt bezta.“ Fyrir hönd málleysingjanna, sem voru föður mínum svo kærir, María Aldís Kristinsdóttir. Kveðja frá Svínaræktar- félagi Íslands Svínaræktarfélag Íslands var stofnað árið 1976 á Hótel Holti í Reykjavík. Aðalhvata- menn að stofnun þess voru svínabændurnir Kristinn Sveinsson, Páll Ólafsson í Brautarholti og Þorvaldur Guð- mundsson í Síld og fiski. Krist- inn var fyrsti formaður félags- ins og gegndi því til ársins 1982. Fyrstu kynni hans af svínum komu þannig til að þeg- ar faðir hans lést, er Kristinn var á barnsaldri, var fjölskyld- unni gefinn grís. Kom það í hlut Kristins að annast grísinn. Þá vaknaði áhugi hans á svín- um og svínarækt sem hélst til æviloka. Löngu seinna, þá um- svifamikill byggingaverktaki, lét hann gamlan draum rætast um að stofnsetja svínabú og rak hann árum saman eitt af stærri svínabúum landsins á Hamri ofan Reykjavíkur og var þar einnig með lítið sláturhús. Árið 1986 byggði hann svo sér- hæft svínasláturhús skammt ofan Elliðaárvogs og starfrækti það í nokkur ár og tók þá einnig að slátra fyrir fleiri svínabændur. Eftir að Kristinn gerðist svínabóndi varð honum fljótt ljós nauðsyn þess að svínabændur hefðu með sér hagsmunafélag og í formanns- tíð sinni hafði hann mikinn metnað fyrir hönd svínarækt- arinnar, og alla tíð, eins eftir að hann hætti rekstri svínabús, bar hann hag svínabænda fyrir brjósti, ekki síst þeirra minni. Það var mikils virði fyrir svína- bændur, á mótunarárum fé- lagsskapar þeirra, að fá til for- ystu mann með bakgrunn og lífsreynslu Kristins. Allir sem hann þekktu vita hversu ein- staklega kraftmikill, áhuga- samur og ósérhlífinn hann var í öllu er hann tók sér fyrir hend- ur. Fjölskylda hans á Sveins- stöðum í Dölum háði erfiða lífs- baráttu, en Kristinn var þannig að skapferli að erfiðleikar og raunir beygðu hann ekki held- ur efldu miklu fremur til fram- sækni og dáða. Hann var afar agaður maður, vinnusamur, heiðarlegur og traustur í hví- vetna, enda naut hann virðing- ar allra sem við hann áttu við- skipti, t.d. sem bygginga- verktaka, eða kynntust honum á öðrum vettvangi. Og þó að hann efnaðist ágætlega gleymdi hann aldrei uppruna sínum og þeir er minna máttu sín, ekki hvað síst fólk í hópi bænda, áttu hauk í horni þar sem hann var. Ekki löngu eftir stofnun svínaræktarfélagsins tóku svínabændur að sækja sér þekkingu út fyrir landsteinana, einkum til Danmerkur, t.d. með ferðum á landbúnaðarsýningar. Kristinn var oft með í þessum ferðum, hlýr í viðmóti, léttur og skemmtilegur, sagnamaður ágætur og góð eftirherma. Hann gat farið á kostum er hann hermdi eftir körlunum í fyrrverandi sveit sinni og sýslu. Að leiðarlokum þakka svínabændur samfylgdina og votta Margréti og aðstandend- um öllum dýpstu samúð. Bless- uð sé minning hins mæta manns Kristins Sveinssonar. Ingvi Stefánsson, formaður Svínaræktarfélags Íslands. Í hinsta sinn 7. september kvaddi ég mömmu mína sem var yndið mitt kæra. Elsku mamma mín, ég ætla að þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Tími minn með þér er eitt það dýrmætasta sem ég hef fengið í lífi mínu og mun ég alltaf minnast hans svo lengi sem ég lifi. Ég mun einnig minnast þín eins og þú varst, hin yndislegasta sál sem gerði Hrefna Björg Guðmundsdóttir ✝ Hrefna BjörgGuðmunds- dóttir fæddist 22. janúar 1952. Hún lést 19. ágúst 2017. Útför Hrefnu fór fram 7. september 2017. allt fyrir fjölskyldu sína. Mamma var ein sú blíðasta mann- eskja sem ég þekki. Ég er og verð þér alltaf þakklát fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig í lífi mínu. Þú varst besta mamma og vinur sem ég gat óskað mér. Ég dýrkaði þig meira en þú gerðir þér grein fyrir. Þú ert og verður alltaf fyrirmyndin mín, elsku mamma. Þú varst alltaf svo traust, rösk, þolinmóð og skilningsrík. Góður hlustandi var hún mamma. Gat ég sagt henni allt og hún dæmdi mann aldrei. Öryggi og huggun fann ég allt- af hjá þér. Einnig þakka ég þér fyrir alla þína ást og umhyggju sem þú gafst mér og mun ég alltaf meta og aldrei gleyma ást þinni og umhyggju. Ég elskaði þig út af lífinu og mun alltaf gera það, elsku mamma, endalaust og að eilífu. Þú mótaðir mig sem persónu og kenndir mér margt um lífið. Ég met það mikils að hafa erft góðsemi þína. Ég lærði margt af þér, elsku mamma. Frá því ég man eftir mér varstu alltaf svo bókelsk og þú smitaðir mig með áhuga þínum. Í öllum þeim litlu hlutum sem ég geri mun ég minnast þín, þegar ég les góða bók eða horfi á góðar kvikmyndir sem þú hefðir haft gaman af þá hugsa ég til þín. Ég mun aldrei nokkurn tímann gleyma þér og mun ég ávallt sakna þín á hverjum einasta degi meðan ég lifi og þangað til við hittumst á ný. Nú kveð ég þig, elsku mamma mín, með sorg í hjarta og minning þín lifir ávallt hjá okkur fjölskyldu þinni. Ég ætla að láta fylgja með fallegt ljóð: Ó, mamma mín hve sárt ég sakna þín sál mín fyllist angurværum trega. Öll þú bættir bernskuárin mín blessuð sé þín minning ævinlega. Oft ég lá við mjúka móðurkinn þá mildar hendur struku tár af hvarmi. Oft sofnaði ég sætt við vanga þinn þá svaf ég vært á hlýjum móður armi. Ó, móðir kær, ég man þig enn svo vel mikill var þinn hlýi trúarkraftur. Þig blessun Guðs í bæninni ég fel á bak við lífið kem ég til þín aftur. (Jón Gunnlaugsson) Elísabet Kjartansdóttir. Þann sjöunda september kvaddi ég dásamlega móður mína í hinsta sinn. Það er erfitt að trúa að hún sé farin, alltof snemmt og snöggt. Hún var stór partur í tilveru minni og mun verða það ávallt í minn- ingum mínum. Hún var góðlynd sál, hógvær og tókst á við allt sem varð á vegi hennar með jafnaðargeði. Ég mun minnast skemmti- legu æskuáranna með henni á Suðurgötunni og Heiðarvegin- um með hlýju er ég vaknaði við hamagang hennar í eldhúsinu eða við heimilisverkin. Hún helgaði líf sitt uppeldi barna sinna og skapaði hamingjuríkt heimili fyrir þau til að vaxa og dafna. Og fyrir það erum við syst- kinin ævinlega þakklát. Takk mamma. Móðir mín var bæði tón- og bókelsk og ég man sérstaklega eftir ferðum okkar til gamla bókasafnsins á Mánagötu. Þar smitaðist ég af áhuga hennar á bókum og lestri og varð gamla bókasafnið sem mitt annað heimili til fullorðinsára. Móðir mín var líka góður hlustandi og skilningsrík og gat maður leitað til hennar þegar mann vantaði andlegan stuðn- ing. Á fimmtugsaldri greindist hún með vefjagigt og síðar bættist við slitgigt sem reynd- ist henni erfiður sjúkdómur. Samt tók hún á þessu með sínu jafnaðargeði og æðruleysi þó maður sæi þennan leynda sjúk- dóm draga úr henni orku og þrekþegar leið á. En með komu tengdadætra og barnabarna kom einnig nýr og ánægjulegur kafli sem hún naut sem tengdamóðir og amma, hann veitti henni mikla gleði og styrk allt til leiðarloka Ég mun ávallt meta okkar stundir saman og varðveita í hjarta mínu. Takk fyrir allt, mamma, og hvíl þú í friði á himnum meðal þinna nánustu sem voru saman komnir þar á undan þér. Bjarni J. Kjartansson. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn- ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar Elskulega móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HREFNA STEINUNN KRISTJÁNSDÓTTIR, Njarðarvöllum 6, Njarðvík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þriðjudaginn 29. ágúst. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 15. september klukkan 13. Eiríkur Þorbjörnsson Svanhildur Þengilsdóttir Hulda María Þorbjörnsdóttir Bergþór Sigfússon Kristbjörn Þorbjörnsson Guðríður Ingvarsdóttir Birna Rut Þorbjörnsdóttir Sverrir Þorgeirsson Ágúst Þorbjörnsson Ragnhildur Geirsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN HREFNA KRISTJÁNSDÓTTIR sjúkraliði, frá Hvallátrum við Látrabjarg, Jötunsölum 2, Kópavogi, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju föstudaginn 15. september klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlega afþakkað. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á minningar- og húsnæðissjóð Ljóssins. Guðlaug Ragnarsdóttir Birgir Bjarnason Kristján Hjálmar Ragnarsson Kristjana Una Gunnarsdóttir Sigríður Ragnarsdóttir Trausti Gylfason barnabörn og barnabarnabörn Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA GUÐRÚN PÁLSDÓTTIR, áður til heimilis á Njálsgötu 14, lést á hjúkrunarheimilinu Grund fimmtu- daginn 7. september. Jarðarförin fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn 20. september klukkan 13. Brynja Baldursdóttir Kristján Helgi Jóhannsson Styrmir Sigurðsson Helga María Jónsdóttir Kristjana Mjöll Sigurðard. Óskar Sigurðsson Vífill Sigurðsson Freygerður A. Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, sonur, bróðir, mágur og tengdasonur, ÞÓRÐUR EYFJÖRÐ HALLDÓRSSON, Hrauntúni 12, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn 9. september eftir stutt veikindi. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 18. september klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hins látna er vinsamlegast bent á framtíðarsjóð sonar Þórðar og Sólveigar, kt. 131202-2450, reikningsnúmer 515-18-510831. Sólveig Stefánsdóttir Jökull Halldór Þórðarson Hanna Björg Sveinbjörnsdóttir Sveinbjörn Halldórsson, Ásdís Ingadóttir Kristín Björg Halldórsdóttir, Bjarni Helgason Kristín Ísleifsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.