Morgunblaðið - 13.09.2017, Síða 26

Morgunblaðið - 13.09.2017, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2017 Eyrún Eggertsdóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi nýsköp-unarfyrirtækisins Róró, á 35 ára afmæli í dag. Fyrsta vara fyr-irtækisins, dúkkan Lúlla, hefur vakið mikla athygli og hafa ver- ið seld 80.000 eintök af henni úti um allan heim. Eyrún var valin frumkvöðull ársins 2017 af Stjórnvísi. „Fókusinn okkar í fyrirtækinu er á svefn og velllíðan, en það eru margar áskoranirnar sem tengjast svefni. Lúlla er dúkka sem hjálpar börnum að sofa, hún er mjúk í gegn, er gerð úr náttúrulegum efnum og spilar upptöku af andardrætti. Ég fékk hugmyndina að henni þegar ég var í fæðingarorlofi með seinni soninn minn. Vinkona mín átti á sama tíma fyrirbura og gat ekki verið hjá henni á spítalanum á næturnar. Ég fór að skoða á netinu hvort ekki væri til vara sem líktist nærveru mann- eskju en fann ekkert slíkt og kom þá með þessa hugmynd.“ Eyrún vann frumkvöðlakeppnina Gulleggið árið 2011 fyrir hugmynd- ina að dúkkunni og síðan fékk hún stóran styrk frá Tækniþróunarsjóði. „Þá ákvað ég að fara ekki aftur í vinnuna sem ég var í heldur fylgja hugmyndinni vel eftir.“ Eyrún var að vinna hjá Hjallastefnunni í Öskju- hlíð en hún er með BS-próf í sálfræði. Nýjar vörur fyrirtækisins Róró munu verða kynntar á vörusýningu í Los Angeles núna í nóvember. „Nýju vörurnar verða allar tengdar svefni og vellíðan, við ætlum að kynna fleiri gerðir af dúkkunni og einn- ig teppi, sjöl og fleira.“ Eiginmaður Eyrúnar er Þorsteinn Otti Jónsson, sjálfstætt starfandi grafískur hönnuður, og börn þeirra eru Jökull Otti 10 ára, Bjartur Otti, 7 ára og óskírð þriggja vikna. Við mæðgurnar ætlum í lítinn göngutúr og fá okkur að borða og síð- an ætlum við að leggja okkur, það eru stóru plönin á afmælisdeginum.“ Frumkvöðull Eyrún var valin frumkvöðull ársins hjá Stjórnvísi. Nýjar vörur kynnt- ar í Los Angeles Eyrún Eggertsdóttir er 35 ára í dag K jartan Helgason fæddist í Reykjavík 13.9. 1932 en ólst upp í Hvammi í Hrunamannahreppi við öll almenn sveitastörf. „Hvammur var nýbýli sem foreldrar mínir stofnuðu. Þau voru með kúabúskap en stund- uðu heilmikla matjurtaræktun og það þótti þá nýlunda í búskap að rækta matjurtir fyrir almennan markað. Hvammur heitir eftir Hvammi í Dölum þar sem afi var prestur áður en hann fékk Hruna. Ég er alinn upp við það að Hvamm- ur í Hvammssveit sé nánast helgur staður, en faðir minn var um 10 ára er fjölskyldan flutti að Hruna. Pabbi og systkini hans söknuðu lengi fyrri heimkynna, eins og eftirfar- andi vísa afa lýsir vel: Degi hallar. Dalaþrá djúp og sár er vöknuð. En Hrunakarlinn, hrottinn sá, hæðir tár og söknuð. Sést ei runnur, sjór né álft, sjaldan kunnur gestur, eins og nunna hálft um hálft horfir Unnur vestur.“ Kjartan var í heimavistarskóla á Flúðum, lauk landsprófi frá Gagn- fræðaskóla Vesturbæjar 1949 og bú- fræðiprófi frá bændaskólanum á Stend í Noregi 1956: „Skólinn í Noregi hafði boðið tveimur Íslendingum að stunda þar nám. Ég sótti um af ein- hverri rælni og varð annar þeirra er urðu fyrir valinu. Þetta var prýðilegur skóli með fjölbreytilega búfræði- námskrá.“ Kjartan hóf sjálfur búskap í Kjartan Helgason, fyrrv. hreppstjóri í Hvammi – 85 ára Hjónin í Hvammi Kjartan og Björg hafa alltaf ferðast mikið, hér heima og erlendis, og eru nýkomin frá Englandi. „Degi hallar. Dalaþrá djúp og sár er vöknuð“ Árið 1935 Frá vinstri: Sigríður Jó- hannesdóttir, Jóhannes Helgason, Einar Hallgrímsson, Kjartan Helga- son og Elín Guðjónsdóttir. Eva Steinsen gekk í hús á Kársnesinu og safnaði pen- ingum fyrir fátæk börn í Afríku, alls 4.521 kr. Hún færði Rauða krossinum á Íslandi peninginn. Hlutaveltur Telma Guðrún Þorsteins- dóttir gekk í hús í Fannafold í Grafarvogi og seldi gamalt dót frá sér. Hún styrkti Rauða krossinn á Íslandi um 850 kr. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. ERIKURNAR ERUKOMNAR 990kr 3 stk., 11cm pottur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.